Morgunblaðið - 13.03.1996, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Signr blasti við
Dole í-sjö ríkjum
Washington. Reuter.
SIGUR blasti við Bob Dole, leiðtoga
meirihluta repúblikana í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, í forkosning-
um, sem haldnar voru í sjö ríkjum
Bandaríkjanna í gær, og var búist
við að hann myndi færast talsvert
nær því marki að verða tilnefndur
forsetaframbjóðandi repúblikana í
kosningunum í nóvember.
362 fulltrúar voru í húfí í kosning-
unum í gær, en Dole var kominn
með 289 fulitrúa af þeim 996, sem
hann þarf til að tiyggja sér tilnefn-
ingu á landsfundi repúblikana í San
Diego í ágúst, eftir kosningamar í
New York á fimmtudag.
Flestir fuiltrúar eru í Texas og
Flórída, samanlagt 221, en einnig
var kosið í Louisiana, Mississippi,
Oklahoma, Oregon og Tennessee í
gær.
Steve Forbes og Pat Buchanan eru
helstu keppinautar Doles, en eftir
velgengni öldungadeildarþingmanns-
ins undanfamar tvær vikur er allur
vindur úr seglum þeirra.
Samkvæmt skoðanakönnun dag-
biaðsins Washington Post og sjón-
varpsstöðvarinnar ABC gæti enginn
þessara þriggja skákað Bill Clinton
Bandaríkjaforseta yrði gengið til
kosninga nú. 56% aðspurðra kváðust
styðja Clinton gegn Dole, sem fengi
39%. Clinton fengi 61% gegn Forb-
es, sem fengi 33%. En versta útreið
fengi Buchanan, eða 28% og Clinton
65%.
Clinton hefur ekki lýst yfir því
formlega að hann sækist eftir end-
urkjöri, en hann er þegar farinn að
auglýsa málstað sinn í sjónvarpi.
Reuter
Húsbrunar í Ilidza
STJÓRN sambandsríkis múslima
og Króata í Bosníu tók í gær við
stjórn úthverfisins llidza í
Sarajevo af Bosníu-Serbum.
Þurfti að leita aðstoðar sveita úr
gæsluliði Atlantshafsbandalagsins
(NATO) til að koma í veg fyrir
að serbneskir þjóðernissinnar
færu ránshendi um hverfið Og
kveiktu í húsum.
Götur Ilidza og hverfisins
Grbavica, sem Serbar verða að
afhenda í næstu viku, voru fullar
af frönskum friðargæsluliðum.
„Okkar menn eru komnir á stað-
inn og gera allt sem í þeirra valdi
stendur [til að halda uppi lögum
og regluj nema að skjóta fólk,“
sagði Leighton Smith, yfirmaður
NATO-liðsins.
Serbum tókst þó að kveikja í
fjölmörgum byggingum í Uidza
áður en gæsluliðarnir komu á
staðinn. Vona margir að hægt
verði að koma í veg fyrir að það
sama gerist í Grbavica en Leig-
hton Smith varaði þó við of mik-
illi bjartsýni: „Hvemig á ég að
koma í veg fyrir að maður kveiki
í húsi án þess að vera sjálfur inni
í húsinu og.slökkva á eldspýtunni?
... Ég get ekki fært Bosníumönn-
um frið. Enginn getur gert það.
Friðurinn verður að koma að inn-
an.“
Sljóm múslima og Króata hefur
nú tekið við stjórn fjögurra af
fimm hverfum Serba í Sarajevo í
samræmi við ákvæði Dayton-sam-
komulagsins.
Hundmð múslima og Króta
komu til Ilidza í gær til að fagna
því að hverfið heyrir nú undir
stjórn landsins og á myndinni
kyssir einn þeirra fána Bosníu.
Kamsky sækir um
áritun til Iraks
New York. Reuter.
GATA Kamsky, bandaríski stór-
meistarinn í skák, hefur farið þess
á leit við bandaríska utanríkisráðu-
neytið, að það leggi blessun sína
yfir að hann etji kappi við Anatólí
Katjiov í Baghdad.
Ákvörðun Kírsans Ílúmjínovs,
forseta Alþjóðaskáksambandsins
(FIDE), að einvígi Kamskys og
Karpovs um heimsmeistaratitilinn
skuli fara fram í írak, hefur vakið
litla hrifningu.
Gert er ráð fyrir að einvígið hefj-
ist 1. júní, að verðlaunaféð verði
tvær milljónir dollara, jafnvirði 132
milljóna króna, og að Saddam Hus-
sein íraksforseti leiki bytjunarleik
fyrstu skákarinnar.
Þrátt fyrir viðskiptabann Sam-
einuðu þjóðanna á Irak og þó svo
Bandaríkjamenn hafi ekkert stjórn-
málasamband við Baghdad er
bandarískum borgurum ekki bann-
að að takast ferð á hendur þangað.
Til þess þurfa þeir sérstaka árit-
un í vegabréf sitt og gegn henni
skuldbinda þeir sig til þess að eyða
þar ekki krónu í bandarískum gjald-
eyri.
„Eg er með nauðsynleg skjöl í
höndum frá Ílúmjínov og geri ráð
fyrir svari frá ráðuneytinu seinna
í vikunni," sagði Roustam Kamsky,
faðir stórmeistarans, er hann lagði
inn umsókn um fararleyfi til íraks
á mánudag.
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þekkirþú
bróður þinn?
Danskt
bókmenrita-
kvöld
DANSKIR bókmenntadagar
verða í Norræna húsinu í kvöld
kl. 20.30. Skáldsagnahöfund-
arnir Jytte Borberg og Svend
Áge Madsen og ljóðskáldið Sor-
en Ulrik Thomsen lesa úr verk-
um sínum.
Jytte Borberg sendi ekki frá
sér skáldverk fyrr en hún var
komin á sextugsaldur og vakti
þá strax mikla athygli. Meðal
helstu verka hennar er Nær-
billeder (1994). Hún skrifar
einnig fyrir útvarp og sjónvarp.
Svend Áge Madsen er af-
kastamikill höfundur, tilrauna-
maður í fyrstu en hefur lagt
áherslu á frásagnarlist í nýjustu
verkum sínum eða frá og með
Dage med Diam (1972).
Soren Ulrik Thomsen er með-
al þeirra dönsku skálda þar sem
ljóðið og líkaminn eru aðalyrkis-
efni. Hann. hefur ritað
fræðibækur um ljóðlist. Meðal
ljóðabóka hans er Hjemfalden
(1991). Nokkur ljóða hans hafa
verið þýdd á íslensku.
Argentínskar
bókmenntir
og Borges
FEDERICO Mirre, sendiherra
Argentínu á íslandi (með aðset-
ur í Osló) flytur fimmtudaginn
14. mars fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn, sem nefnist
Argentínskar nútímabók-
menntir og Jorges Luis Borges,
fer fram í fundarsal Norræna
hússins og hefst kl. 17.15.
Federico Mirre menntaðist í
heimspeki, tungumálum og lög-
fræði, áður en hann gekk í ut-
anríkisþjónustu Argentínu.
Hann hefur átt mikil samskipti
við rithöfunda og listamenn og
var meðal annars ágætlega
kunnugur Borges.
Jorge Louis Borges (1899-
1986) er viðurkenndur rithöf-
undur í Argentínu og með
þekktustu höfundum aldarinnar.
LEIKUST
Stúdcntalcikhúsið
SJÁ ÞAÐ BIRTIR TIL
Sjá það birtir til: Hausverkur Skap-
arans eftir Gauta Sigþórsson og
Elektra eftir Stefán Vilbergsson.
Leikstjóri Bjöm Ingi Hilmarsson.
Frumsýning sunnudaginn 10.
ÞAÐ er alltaf gaman að sjá ný
verk nýrra höfunda. Verk svo ný að
bókmennta- og leikhúsfræðingar
hafa enn ekki náð að binda þau á
bása einhverra hugtaka sem þeir
lærðu í háskólanum í Bochum eða
Berlín, rífa þau úr öllu samhengi og
setja á þau einhvetja ævisögukenn-
ingastimpla, eða hvað sem hentar
þeim bezt, áður en þeir leysigreina
þau og gera að eylöndum, án höf-
unda eða nokkurs slíks.
Ég sá eitt slíkt á sunnudagskvöld-
ið, þegar Stúdentaleikhúsið frum-
sýndi Sjá það birtir til. Eða ætti ég
að segja: Eg sá tvö slík? Þetta voru
tveir einþáttungar, tvö verk sem
bæði eiga ættir sínar að rekja til
leikþáttasamkeppni Stúdentaleik-
hússins. Fátt veit ég um þessa sam-
keppni, nema þá að hún er þarft
framtak og vel þegin lyftistöng fyrir
íslenzka leikritun.
Sýningin byijaði með myrkri, eins-
og svo margar aðrar. Þetta myrkur
var lengra en önnur leikhúsmyrkur
og útúr því komu mjög Pink Floyd-
legir tónar. Ég hefði alveg verið til
í að sitja í þessu myrkri og hlusta á
þessa tóna í einn og hálfan klukku-
tíma, en ég var ekki spurður, tónarn-
ir þögnuðu, myrkrið vék, sýningin
hófst.
Fyrra stykkið, Hausverkur Skap-
arans, var um skáld í krotkrísu. Per-
sónur þess lifnuðu við og reyndu að
hjálpa honum, tvær sem hann hafði
skrifað sjálfur en líka tvær sem hann
kannaðist ekkert við. Þetta hlýtur
þess vegna að hafa verið nokkuð
gott skáld, eða var það kannski bara
geðveikt? Skilin milii snilldar og geð-
veiki eru oft á tíðum svo óljós.
Engu að síður sömdu þær sögur
fyrir það, reyndar hefur seinni sagan
verið skrifuð nokkuð oft. Hún fyllir
tvær, þrjár hillur á Borgarbókasafn-
inu, hillurnar með Rauðu ástarsög-
unum.
Skáldinu fannst ekki mikið til
sagnanna koma, rak þau út og end-
aði á nákvæmlega sama stað og
hann byrjaði, með fullan penna og
tóm blöð fyrir framan sig. Hann
sagði að ástin ætti ekkert'erindi til
fólks, það kynni enginn að elska
lengur.
Ekkert hlé var milli þáttanna
tveggja. í Möguleikhúsinu var engin
sjoppa og þar með engin forsenda
fyrir hléi. Persónur beggja verkanna
hjálpuðust að við að skipta um sviðs-
mynd.
Já, þá man ég eftir því. Sviðs-
myndin. Hún var ekkert til að hrópa
húrra fyrir, og ekkert til að fara að
grenja yfir heldur. Hún bara var.
Seinna stykkið, Elektra, var skrif-
að utanum Élektrumýtuna, þekkingu
eða þekkingarleysi og þá blekkingu
sem af þeim getur hlotist. Elektra
var færð til nútímans og látin fara
í mat til fjölskyldu sinnar. Þar kemur
í ljós að hún þekkir ekki sinn eigin
bróður, sem kannski var ekki skrítið,
hann var svo flókinn að það þurfti
þijá leikara til að túlka hans hlut-
verk. Hann byijar að koma með
spurningar og vangaveltur um þekk-
inguna og trúverðugleika hennar;
hvað ef allt væri ekki sem sýnist?
Hvað ef allt væri annað? Svo ég troði
minni skoðun inn þá tel ég augað
vera hraðlygnasta fyrirbæri sem uppi
hefur verið og mest auðtrúandi.
Matarboðið varð lengra en Elektra
hafði hugsað sér, reyndar svo langt
að það hætti að vera boð.
Lýsingin var með afbrigðum góð
og vel heppnuð. Gunnar B. Guð-
mundsson fær langt og efnismikið
prik fyrir hana.
Ég erfi ekki við Stúdentaleikhúsið
að hafa slökkt á tónlistinni og kveikt
ljósin í byijun sýningar.
Heimir Viðarsson
Danskir dagar á Suðumesjum
DAGANA 14.-21. mars verða haldn-
ir á vegum Norræna félagsins, Bóka-
safnsfélagsins og Tónlistarskólans í
Keflavík danskir dagar á Suðurnesj-
um. Verkefnið er styrkt af Nord
Liv. Fyrirhugað er að hafa margs
konar kynningu á danskri menningu
þessa daga meðal annars í samvinnu
við skólana í Reykjanesbæ. Önnur
atriði dagskrárinnar verða öllum
opin og verða þau sem hér segir:
Grafíksýning í Kjarna: Verkin eru
eftir einn kunnasta listamann Dana,
Svend Wiig Hansen, sem hefur vak-
ið athygli víða Um heim fyrir sýning-
ar sínar, síðast hélt hann stóra sýn-
ingu í Mexíkó 1994 en fyrir henni
stóð danska menningarmálaráðu-
neytið. Þessi grafíksýning er í boði
Norræna hússins og verða verkin til
sýnis í sýningarsal í bókasafni og í
göngugötunni í Kjama frá 14. t.il
21. mars.
Bókasýning í bókasafni: Sýndir
verða nokkrir tugir danskra bóka
bæði fagurbókmenntir og einnig af-
þreyingarbókmenntir fyrir unglinga
og fullorðna. Éinnig geisladiskar og
myndbönd með nýlegum dönskum
myndum. Margt af þessu stendur til
boða að fá lánað gegnum millisafna-
lán. Bóka- og myndasýningin stend-
ur einnig frá 14.-21. mars.
Danski sendikennarinn á íslandi,
Siri Karlsen, heldur fyrirlestur um
danskar nútímabókmenntir í tengsl-
um við bókasýninguna og verður
fyrirlesturinn fimmtudaginn 14.
mars kl. 8.30. Tónleikar verða í
Kjarna föstudaginn 15. mars kl.
20.30, þar sem fram koma lista-
mennirnir Benny Andersen og Poul
Dissing sem mörgum eru að góðu
kunnir. Með þeim á tónleikunum
kemur fram vísnasöngkonan Anna
Pálína Árnadóttir sem syngur þekkt
norræn vísnalög við píanóundirleik
Gunnars Gunnarssonar. Við inn-
ganginn leikur djasssveit frá Tónlist-
arskólanum í Keflavík.
Flug Hótel mun sjá um veitingar
og verður boðið upp á danskt með
kaffinu og auk þess danskt „ol og
smorrebrod".