Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
VBR
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 27
AÐSENDAR GREINAR
Ríkisútvarpið og íslenskt mál
EKKI dreg ég í efa góðan vilja
starfsmanna Ríkisútvarpsins um
vandað málfar, enda starfar þar
málfarsráðunautur og hefur hann
komið þar mörgu góðu ti! leiðar.
Um það ætla ég ekki að ræða al-
mennt hér, en drepa aðeins á eitt
atriðið, þar sem mér finnst, að
minkurinn hafi heldur betur sloppið
úr búrinu, - eða er ég bara gamal-
dags gamalmenni?
Eg fékk bréf frá Innheimtudeild
þessarar ágætu stofnunar, dags.
28.2. 1996; í alla staði hið vinsam-
legasta, stílað á mig sjálfan með
fullu nafni, kennitölu og öðrum
formlegheitum. Ég er ekki að
kvarta undan þeirri deild sem slíkri,
lief alltaf átt við hana góð sam-
skipti, og vonandi ber fólk þar mér
einnig sömu sögu. Þetta var al-
mennt umburðarbréf til útvarpsnot-
enda með beiðni um samstarf svo
að hægt væri ,að spara útgjöld1.
Bréfið var alllangt og ítarlegt og
höfðað var til skilnings okkar út-
varpsnotenda á þörfinni fyrir sem
besta nýtingu fjármuna stofnunar-
innar. Allt með ágætum. - En eitt-
hvað var þó að!
íslenskt mál?
En nú er mál að spyrja: Var bréf-
ið skrifað á íslensku eða ensk/amer-
ísku og svo hrá-þýtt á íslensku?
En hér kemur sýnishorn, þriðja
málsgreinin í bréfinu, en allt var
það með sama brag:
„Beingreiðslur: Þú semur við
bankann þinn um að greiða fyrir
þig á ákveðnum gjalddögum um-
samin útgjöld, til dæmis afborganir
eða áskriftargjöld. Þá millifærir
STANDEX
Alinnréttingar
Hönnum og smíðum eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
hann greiðslu af reikningi
þínum til þess sem þú
ætlar að greiða á ákveðn-
um degi. Til þessa getur
þú notað alla óbundna
bankareikninga. Þetta er
hagkvæmasti greiðslu-
máti nútímans. Þú þarft
að veita bankanum þínum
skriflega heimild til að
gera þetta. Við sendum
þér með þessu bréfi seðil
sem þú getur fyllt út og
afhent þínum banka eða
sparisjóði, næst þegar þú
átt leið þangað, ef þú
kýst beingreiðslu.“
Tölvan mín segir, að
Haukur
Eggertsson
þessi málsgrein sé
91 orð og af þeim
eru 12 skáletruð,
þ.e. auðkennd sem
„fornafna-ávarps-
áráttu-framsetn-
ing“ eða hvað væri
réttast að kalla það.
Tölfræðilega segir
tölvan líka, að þau
skáletruðu séu
13,2% af orðafjöld-
anum. Nú hlýt ég
að spyija málfars-
ráðunaut Ríkisút-
varpsins að því,
hvort þetta sé góð
og gild nútíma-
Var bréfið ritað á ís-
lensku? spyr Haukur
Eggertsson, eða á
ensk-amerísku?
íslenska, viðurkennd af honum sem
nothæf fyrir Ríkisútvarpið? Þetta
málfar tröllríður þjóðfélaginu nú á
hinum síðari tímum, sérstaklega í
því sem viðkemur auglýsingum, eða
á að vekja sérstaka athygli viðkom-
andi fólks. Eru þetta ekki fingraför
einhvers PR-manns, eins og var svo
fínt að kalla þá hér áður fyrr?
(PR = Public Relations.)
Að spara útgjöld
En í lokin. Það er freistandi að
skjóta, þegar refurinn hleypur fyrir
framan byssuhlaupið, sagði frægur
stjórnmálamaður (J.J.) fyrir margt
löngu. Er hægt að spara útgjöld,
eins og sagt er í næstsíðustu máls-
grein áðurnefnds bréfs? Er það ekki
í mótsögn við það að spara (pen-
inga)? Ég spurði Gísla Jónsson á
Akureyri eitt sinn um þetta. Hans
svar var: „Ég hef borið þetta undir
ýmsa málvísa menn, og við erum
sammála um að þetta sé ekki fal-
legt, og þar að auki rökvilla.“ (Þátt-
ur nr. 127, íslenskt mál, 6. des.
1981.) Ríkisútvarpið vill spara pen-
inga með því að halda kostnaði í
lágmarki. Éða er það ekki tilgangur
bréfsins til mín o.fl.?
Höfundur er fyrrverandi forstjóri.
Vilt þú nýta tæknina?
Lestu þá þetta:
/ 30
Árva^ur V> Geirssotv-
ÚTG^. HaUgt^^nessetv,
t OR =imatæ> bess er n„an''<'ssslW
f. ‘f SM'*®'6 W er tengá 'I'aatai£sto{uti'-
4 AkttteV”„roaseSaað„„ V4 uot»8;
tT setn fy^r & stóru
að aðtæða- -■
Hvar keypti Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna símabúnaðinn?
SÍNWIRKINN
(|Hátúni 6A. Símtœki eflf.
Leitaðu upplýsinga. í sínna 56 I 4040.