Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
~1 ' ~j lÁyAJlÁ5jllÁTI-JU^m
Hugleiðingar um
fjármagnstekjuskatt
ÁRUM OG áratugum saman
tíðkaðist sá siður hér á landi að
stórum hluta af sparifé lands-
manna var stolið af stjórnvöldum
og að hluta til úthlutað til skulda-
kónga og braskara. Þar sem verð-
trygging þekktist ekki var það ein-
faldlega gert þannig að vextir,
bæði innlánsvextir og útlánsvextir
voru lægri en verðbólgan. Þetta
kom sér að sjálfsögðu verst fyrir
lágtekjufólk. Hinir tekjuhærri
höfðu að sjálfsögðu meiri mögu-
leika á að koma flármunum sínum
fyrir í steinsteypu, en það var eini
íjárfestingarmöguleikinn á þeim
tímum.
Árið 1963 hóf ríkissjóður að
selja verðtryggð spariskírteini og
upp úr því fór verðtrygging að tíðk-
ast æ meir bæði á innláns- og útl-
ánsvöxtum. Þetta kom sér vel fyr-
ir almenning, en að sama skapi
illa fyrir braskara og fjárglæfra-
menn.
Ýmsir misvitrir stjórnmálamen
hafa aldrei verið sáttir við verð-
tryggingu og hafa viljað afnema
hana og einnig skattleggja fjár-
magnstekjur. Það hefur þó vafist
fyrir stjórnvöldum að finna réttláta
9g heiðarlega leið til að gera það.
í fyrstu var talað um að skatt-
leggja aðeins raunvexti og hafa
auk þess ákveðið frítekjumark,
þannig að flest venjulegt fólk
slyppi við skattinn þótt það eigi
nokkrar krónur í banka, sem það
hefur nurlað saman á löngum tíma.
Nú eru loks komnar fram tillög-
ur um umræddan skatt, en þær
ganga í þveröfuga átt. Skattleggja
á bæði vexti og verðbætur og ekki
á að vera neitt frítekjumark. Að
skattleggja verðbætur má nánast
flokka undir þjófnað, því verðbæt-
ur eru alls ekki tekjur. Undanfarin
ár hefur verið hér lítil verðbólga,
sem eingöngu er því að þakka að
launahækkun láglaunafólks hefur
verið haldið í algjöru lágmarki. Á
sama tíma hafa ýmsir
þrýstihópar fengið
umtalsverða tekju-
hækkun. Að vonum
hefur þetta valdið
óánægju meðal verka-
lýðsins og var ekki
annað að heyra meðal
ýmsra forystumanna
þess en að þeir hyggðu
til hreyfings um næstu
áramót, þegar núver-
andi samningar eru
lausir. Svo segir mér
hugur að í náinni
framtíð hefjist hér
mikið kapphlaup milli
hinna ýmsu hópa um
launakjör, sem svo að
sjálfsögðu leiðir til aukinnar verð-
bólgu. Allt bendir til að ráðamenn
þjóðarinnar muni fagna aukinni
verðbólgu, því þeim mun meira
geta þeir skattpínt almenning.
Ef við svo lítum á væntanlegan
10% fj ármagnstekj uskatt í ljósi
umtalsverðrar verðbólgu og hugs-
um okkur 20% verðbólgu og 5%
Að skattleggja verð-
bætur, segir Baldur
Davíðsson, flokkast
undir þjófnað.
vexti og gefum okkur að vextir
og verðbætur séu reiknuð einu
sinni á ári og vextirnir séu einnig
verðtryggðir kemur í ljós að raun-
vextir falla niður í 2,8%. Ef við
gerum hinsvegar ráð fyrir 4% vöxt-
um, sem eru óskavextir sumra, og
60% verðbólgu, sem var hér árið
1982, þá falla raunvextirnir niður
í mínus 1,5%.
Fleiri og verri hliðar eru þó á
þessu máli. Það er langt frá því
að allt sparifé almennings sé verð-
tryggt. Álmennar sparisjóðsbækur
eru ekki verðtryggðar
og bera að meðaltali
aðeins 0,9% vexti.
Óbundnir sparireikn-
ingar eru einnig
óverðtryggðir og bera
að meðaltali 3,6%.
Auk þess þarf oftast
að greiða úttektar-
gjald 0,15% eða 0,2%.
Þar sem verðbólga var
3,21% á síðastliðnu ári
er greinilegt að enginn
verður feitur á því að
geyma fé sitt í
óbundnum banka-
reikningum. Ef verð-
bólga fer vaxandi eru
líkur á að þessir vextir
hækki eitthvað, en eitt er víst að
vextir á almennum sparisjóðsbók-
um verða alltaf lægri en verðbólg-
an. Margt roskið fólk geymir allt
sitt fé í bönkum, því finnst einfald-
lega of flókið að standa í verðbréfa-
viðskiptum.
Efnafólk er þegar bytjað að
koma fjármunum sínum fyrir er-
lendis, enda er það tiltölulega auð-
velt með aðstoð verðbréfafyrir-
tækjanna. Ef og þegar ofannefnd-
ur skattur verður lagður á má
gera ráð fyrir að það geri það í
auknum mæli. Einnig er nokkuð
öruggt að sala spariskírteina ríkis-
sjóðs dragist mjög saman. Þá neyð-
ast ráðamenn til að taka erlend Ián
í auknum mæli og er ekki á það
bætandi.
I sumum nágrannalöndum okk-
ar mun vera fjármagnstekjuskatt-
ur en þar er þá lítill eða enginn
eignaskattur, öfugt við það sem
hér er.
Að lokum vil ég skora á ríkis-
stjórnina að sjá að sér í tíma og
hætta alfarið við að leggja skatt á
ljármagnstekjur.
Höfundur starfar á mælingíidcild
borgarverkfræðings.
Baldur
Davíðsson
Hver gætir hagsmuna
hinna sjúku?
SJÚKLINGASAMTÖK eru ekk-
ert séríslenskt fyrirbrigði. Sjúkl-
ingasamtök beijast fyrir rétti sinna
félagsmanna (og einnig þeirra sem
ekki eru félagsmenn) í þjóðfélaginu:
Er það rétt að slíkt starf sé unnið
í sjálfboðavinnu af hinum sjúku?
Samtök sjúklinga eru misöflug enda
sumir sjúklingar ekki í stakk búnir
til að betjast fyrir rétti sínum. Sum-
ir sjúkdómar eru áþreifanlegri og
fá þar af leiðandi meiri unifjöllun.
Hver á að gæta hagsmuna okkar
sem fengið hafa þann dóm að lifa
og beijast allt sitt líf við ólæknandi
sjúkdóma?
Er það ekki hagur þjóðfélagsins
að öllurn líði vel og geti verið virkir
einstaklingar og borgað sinn skatt.
Tekjuöflun sjúklingasamtaka er
sáralítil, aðallega eru það félags-
gjöld sem oftast eru ‘ frekar lág
(kannski rúmlega fyrir húsaleigunni
og öðrum nauðsynlegum rekstri).
Auk þess eru allar aðferðir notaðar,
flest þessara félaga eru að betjast
um jólakortasöluna og þá er spurn-
ingin hver hefur bestu samböndin.
Tekjur samtakanna eru síðan notað-
ar til að gefa út fræðsluefni og að-
stoða þá sem eiga erfitt innan okk-
ar hóps, svo og fjölskyldu þeirra.
Væri það ekki hagur þjóðfélags-
ins að styrkja þessi félög þannig að
hægt væri að vinna það fræðslu-
starf sem þarf til að gera sjúklingum
lífið bærilegra og kenna
þei að lifa sem eðlileg-
ast með sinn ævilanga
förunaut. Hið opinbera
gefur ekki út neitt
fræðsluefni fyrir hina
ýmsu sjúklingahópa,
margt þarf að athuga,
sem er mismunandi
milli sjúkdóma, en allt
yrði mun auðveldara ef
fræðslan væri meiri.
Enn og aftur komum
við að skammtíma-
hugsun ráðamanna
þessarar þjóðar. Hafa
þeir ekki áttað sig á því
að það er fyrirbyggj-
andi að fræða fólk til
að koma í veg fyrir óhöppin. Að
sjálfsögðu er mér kunnugt um það
að valdatíð ráðamanna er mjög
Það er fyrirbyggjandi,
segir Guðrún Þóra
Hjaltadóttir, að fræða
fólk til að koma í veg
fyrir óhöppin.
stutt. Þrátt fyrir það ætti þeim ekki
að vera alveg sama um sjúklinga
þessa lands.
Hvernig væri að
heilbrigðisráðuneyt-
ið eða einhver stofn-
un innan þess réði
manneskju til að að-
stoða félagasamtök,
t.d. við gerð fræðslu-
efnis, fræða sjúkling-
ana, það gæti sparað
margar læknisheim-
sóknir. Sjúkrafélög
eru mörg að vinna
að sama verkefninu
án þess að vita að
því. Það væri hægt
að sameina þessa
krafta og trúlega
fækka heimsóknum
okkar í ráðaneytin. Við
vitum að víða er hægt að spara.
Mörgum ferðum hjá hinu opinbera
mætti sleppa, risnufé er víða allt
of mikið, laun margra innan heil-
brigðisgeirans eru mjög há. Við
getum hjálpað þriðja heiminum; er
ekki komin tími til að við ræktum
okkar eigin garð. Hér í þessu landi
er hópur fólks sem hefur stóran íjár-
hags- og félagslegan bagga sem það
hefur ekki valið sér sjálft, það hefur
verið svo ólánssamt að fá ólækn-
andi sjúkdóm, sem í mörgum tilfell-
um verður verri með tímanum.
Höfundur er forniaður Samtaka
sykursjúkra.
Guðrún Þóra
Hjaltadóttir
RAUTT
EÐALGINSENG
Skerpir athygli
- eykur þol.
FEIAG
m ELDRI
BORGAR4
Vika eldri borgara
u
Stór - fjölskylduhátíð í Laugardalshöll
kl. 15.00 fimmtudaginn 14. mars 1996.
Skemmtun fyrir unga á öllum aldri.
Aldraðir, bjóðið fjölskyldu ykkar með! Ókeypis aðgangur.
mest selda heimilisvélin í 50 ár
• 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu, rauðu og gráu
i Fjöldi aukahluta
i íslensk handbók fylgir með uppskriftum
i Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
i Sérstök brúðkaupsgjöf:
Öll brúðhjón fá glæsilega svuntu með ísaumuðu nafni
sínu og brúðkaupsdegi
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf
Reykjavikursvæði: Byggt og búiö, H.G. Guöjónsson, Suðurveri. Glóey, Ármúla 19, Rafbúöin, Álfaskeiði 31,
Hafnarf. Miðvangur, Hafnarfirði. SUÐURNES: Stapafell hf., Keflavik. Samkaup, Keflavik. Rafborg, Grindavik
VESTURLAND : Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi. Trésmiðjan Akur, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi
Blómsturvellir, Hellissandi. Versl. Hamar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR: Kf. Króks
fjaróar, Króksfjaróarnesi. Skandi hf„ Tálknafirói. Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri. Laufið, Bolungarvík. Húsgagnaloft
ið, Isafirði, Straumur hf„ Isafirði. Kf. Steingrímsfjaröar, Hólmavik. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðinga, Borðeyri
Kf. V-Húnvetninga, Hvammstanga. Kf. Húnvetninga. Blönduósi. Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki KEA, Akur
eyri og útibú á Norðurlandi. Kf. Þingeyinga, Húsavik. Kf. Langnesinga, Þóshöfn, Versl Sel„ Skútustöðum
AUSTURLAND: Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf. Fram, Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Seyðisfirði. Kf. Hér
aðsbúa, Egilsstöðum. Rafalda, Neskaupstað. Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði. Kf. Fáskrúðsfjarðar. Kf. A-Skaftfell
inga, Djúpavogi Kf. A-Skaftfellinga, Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vik. Kf. Rangæinga, Hvolsvelli. Kf
Rangæinga, Rauðalæk, Versl. Mosfell, Hellu, Reynistaður, Vestmannaeyjum. Kf. Árnesinga, Selfossi.
<D
E
tn
«o
o
■Q
E
D
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28 ® 562 2901 og 562 2900