Morgunblaðið - 13.03.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996 43
Bókun Viðars Eggertssonar
á Leikhúsráðsfundi í gær
VIÐAR Eggertsson, fráfarandi
leikhússtjóri LR, lagði fram eftir-
farandi bókun á leikhúsráðsfundi í
gær.
„Síðustu misserin hefur verið
mikil umræða um leiklistarstarf-
semina í Borgarleikhúsinu og náði
sú umræða hápunkti á málþingi
sem haldið var fyrir réttu ári. Þar
kom fram mikil gagnrýni á rekstur
Leikfélags Reykjavikur í Borgar-
leikhúsinu og í framhaldi af því
fóru fram viðræður borgaryfirvalda
og Leikfélagsmanna um hvernig
nútímaleikhúsrekstri ætti að vera
hagað i Borgarleikhúsinu. Leikfélag
Reykjavíkur stóð enn einu sinni á
krossgötum. Þetta gamla áhuga-
mannafélag sem hafði tekið breyt-
ingum í áranna rás og þróast yfir
í að verða atvinnuleikhús, þurfti að
bregðast við nýjum tímum og nýjum
aðstæðum. Og það er einmitt eðli
listarinnar að bregðast við breyttum
tímum.
Því var það ljóst þegar núverandi
leikhússtjóri sagði starfi sínu lausu
að það þyrfti að endurskoða og
endurmeta allan rekstur í Borgar-
leikhúsinu, það mátti hveijum
manni vera ljóst að með nýjum leik-
hússtjóra yrðu töluverðar breyting-
ar. Til að skerpa á vilja LR að koma
til móts við hugmyndir borgaryfir-
valda var lögum félagsins breytt í
,þá veru að ráðning leikhússtjóra
yrði í höndum leikhúsráðs. Ég sem
nýr leikhússtjóri fékk í veganesti
breytingar á lögum félagsins og
niðurstöður viðræðuhóps Borgaryf-
irvalda og Leikfélagsmanna um
„Málefni Borgarleikhúss" (eins og
sú skýrsla nefnist), en hvort tveggja
miðaði að því að styrkja stöðu leik-
hússtjóra og undirstrika stöðu hans
■ MYNDAKVÖLD Ferðafélags
íslands verður haldið í kvöld, mið-
vikudaginn 13. mars, að Mörkinni
6 (stóra sal) og hefst það stundvís-
lega kl. 20.30.
Freysteinn G. Jónsson sýnir
myndir úr ferðum sínum und-
anfarin sumur. Þær ferðir hafa
flestar verið farnar á vegum Ferða-
félagsins. M.a. frá Hornströndum
(Aðalvík-Hesteyri-Hlöðuvík-Horn-
vík), gönguleiðinni frá Hvítárnesi
til Hveravalla þar sem m.a. var
gengið inn á Jökulkrók og hinum
litríku Lónsöræfum. Myndir Frey-
steins hafa birst á fjölda póstkorta
og einnig prýtt ferðaáætlun Ferða-
félagsins.
A myndakvöldun verða afhent
verðlaun i ljósmyndasamkeppni
F.í. og myndum úr keppninni verða
sýndar á spjöldum í anddyri.
■ í miðvikudagskvöldgöngu
Hafnargönguhópsins 13. mars
verður farið frá Hafnarhúsinu kl.
20.
Gengið verður suður í Skeija-
ijörð þar sem alfaraleið frá Vík til
Skildinganess lá, svokölluð Bessa-
staðaleið, og gengið þaðan að
Bessastöðum og áfram til að tengj-
ast fornleiðum um Alftanes og
suður með sjó.
Þetta verður þriðja gönguferð
HGH í vikunni til kynningar á kjör-
göngufyrirkomulaginu.
■ ÖKUKENNARAFÉLAG ís-
lands og Sjóvá-Almennar munu
standa fyrir málþingi á Grand
Hótel Reykjavík fimmtudaginn
14. mars kl. 13-16.30.
Þar munu ýmsir aðilar flytja
erindi um siðferði í umferðinni,
siðferði í tryggingamálum og
hvernig hægt er að byggja upp
umferðarsiðferði. Má þar nefna
starfsmann Siðfræðistofnunar Há-
skóla íslands, Jón Kalmannsson,
Gabríelu Sigurðardóttur, Sig-
mar Ármannsson, framkvæmda-
stjóra Sambands íslenskra Trygg-
ingafélaga. Þá mun Gunnar Ingi
Gunnarsson læknir fjalla um aga
sem yfirmanns leikhússins og list-
ræns stjórnanda þess. í 16. grein í
lögum félagsins segir um leikhús-
stjóra: „Leikhússtjóri stjórnar leik-
húsrekstri félagsins og er æðsti
yfirmaður allra starfsmanna þess.“
I samkomulagi viðræðunefndar
Borgarinnar og Leikfélagsins, seg-
ir: „... ætti að styrkja sem best stöðu
leikhússtjóra og sjálfstæði, og veita
honum víðtækt umboð til þeirra
breytinga sem hann telur nauðsyn-
legar til að efla leiklistarstarfsem-
ina og rekstur Borgarleikhússins.“
Eftir þessu hef ég unnið og það
leikhúsráð sem réði mig til starfa
og við ávallt stuðst við lög félagsins.
Um miðjan janúar lagði ég fram
á fundi leikhúsráðs hugmyndir mín-
ar um verkefni næsta vetrar og
leikhúsráð samþykkti að gefa mér
svigrúm til að taka ákvarðanir um
hvaða starfssamninga leikara ég
losaði. Eins voru síðar samþykktar
tillögur mínar um starfslokasamn-
inga sem bjóða ætti nokkrum leik-
urum sem starfað hafa lengur á
föstum samningi en 15 ár. Sam-
kvæmt þessari bókun vann ég. Þó
varð strax ljóst að þegar þessar
hugmyndir komu til framkvæmda,
gátu ekki allir félagsmenn við þær
unað og fór svo að lokum að kallað-
ur var saman félagsfundur 27. febr-
úar sl. Hann ályktaði á þá leið að
allar hugmyndir um uppsagnir
fastráðinna starfsmanna, fastráðn-
ingar og breytingar á föstum samn-
ingum starfsmanna yrði leikhús-
stjóri að bera upp til samþykktar á
leikhúsráðsfundi.
Daginn eftir var leikhúsráðs-
fundur haldinn þar sem ég lagði
fram hugmyndir mínar um upp-
sagnir og ráðningar leikara. Þær
- agaleysi í umferðinni. Skráning
mun fara fram á staðnum og er
áðgangur ókeypis.
■ SÖNG- og skemmtikvöld að
hætti Skagfirðinga verður haldið á
Hótel íslandi, laugardaginn 16.
mars. Skemmtikvöld sem þessi eru
orðin árlegur viðburður á íslandi.
Skemmtikvöldið hefst með borð-
haldi kl. 19.
Margir kunnir skemmtikraftar
úr Skagafirðinum koma fram og
má þar nefna karlakórinn Heimi,
undir stjórn Stefáns R. Gíslason-
ar. Kórinn er með létta og
skemmtilega söngskemmtun með
einsöng, tvísöng og þrísöng. Ein-
söngvarar með kórnum eru Einar
Halldórsson, Oskar Pétursson,
Pétur Pétursson og Sigfús Pét-
ursson. Undirleikari er Thomas
Higgerson. Þá mun Ómar Ragn-
arsson koma fram og hagyrðingar
munu láta til sín taka^um dægur-
mál jiðandi stundar. Álftagerðis-
bræðurnir taka lagið við undir-
leik Stefáns R. og kynnir á þessu
skemmtikvöldi verður sr. Hjálmar
Jónsson.
Hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar mun svo leika fyrir dansi
fram á nótt.
Verð á kvöldverði er 4.500 kr.
en verð á skemmtun, sem hefst
stundvíslega kl. 21, er 2.000 kr.
Enginn aðgangseyrir er á dansleik-
inn með Geirmundi eftir að söng-
skemmtun lýkur.
■ RABBKVÖLD fyrir mæður
fatlaðra barna og unglinga verður
haldið á vegum FFA, fræðslu
fyrir fatlaða og aðstandendur,
miðvikudaginn 13. mars. Aðild að
FFA eiga Landssamtökin Þroska-
hjálp, Sjálfsbjörg landssamband
fatlaðra, Styrktarfélag lamaðra og
fatlaðra og Styrktarfélag van-
gefinna. Fundurinn hefst kl. 20 og
stendur til kl. 23. Hann verður
haldinn í sal Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga á Suður-
landsbraut 22, 4. hæð.
Rætt verður um stöðu mæðra
voru samþykktar. Enginn hafði tek-
ið starfslokasamningum og dró ég
allar slíkar tillögur til baka.
Ég dreg ekki dul á að frá þeim
tíma að leikhúsráð fól mér umboð
til að gera breytingar á samningum
fastráðinna um miðjan janúar hef
ég fundið lítinn samstarfsvilja hjá
hluta leikhúsráðs og framkvæmda-
stjóra. Það gekk seint og illa að
ljúka gerð endanlegrar kostnaðar-
áætlunar, sem framkvæmdastjóra
ber að vinna með leikhússtjóra og
síðan leikhúsráðs að samþykkja eða
hafna. Engu að síður bar mér
skylda til á sama tíma að hafa öll
spjót úti við að leita eftir leikritum,
sýningarrétti leikrita, hæfu lista-
fólki á öllum sviðum og falast eftir
því fyrir hönd LR, að sjálfsögðu
með fyrirvara um samþykki leik-
húsráðs. Það var leikhúsráði full-
kunnugt að nauðsyn bar til að und-
irbúningur jafn mikilvægs leikárs
sem framundan er (á afmælisári)
yrði að ganga hratt og örugglega
fyrir sig. Þessar áætlanir hefðu síð-
an í fyllingu tímans verið kynntar
félagsmönnum LR og starfsmönn-
um. Öðruvísi framgangsmáti er
óhugsandi við skipulag leikárs, ekki
síst í ljósi þess að LR á í harðri
samkeppni við öfiugan keppinaut.
Ég tók við þessu starfi með mik-
illi gleði og bjartsýni, þess fullviss
hvaða ábyrgð og vandi því fylgdi
og í trausti þess að ég ætti að út-
færa starfið samkvæmt lögum
Leikfélagsins og niðurstöðu sem er
að finna í fyrrnefndri skýrslu um
„Málefni Borgarleikhúss". Ég
harma að það hefur komið á daginn
að ekki fara saman hugmyndir mín-
ar og félagsins um listræna stjórnun
og stefnu þessa húss.“
sem eiga fatlað barn og hvaða
áhrif það hefur haft á líf þeirra.
Velt verður upp spurningunni
hvort mæður fatlaðra barna eigi
að láta í sér heyra í jafnréttisum-
ræðunni.
Rannveig Traustadóttir, fé-
lagsfræðingur, mun spjalla um
rannsóknir sínar um aðstæður og
umönnunarhlutverk kvenna sem
eiga fötluð börn og stýra umræðum
um þessi mál.
■ BJÖRGUNARSKÓLI Lands-
bjargar og Slysavarnafélags Is-
Iands stendur fyrir fræðslufundi
fyrir almenning um ferðabúnað til
göngu- og fjallaferða, fimmtudag-
inn 14. mars kl. 20. Fyrirlesari
verður Helgi Eiríksson.
Fundurinn verður haldinn í
Brekkubæjarskóla, Akranesi, og
er öllum opinn. Þátttökugjald er
1.000 kr. og er fræðslurit um
ferðamennsku innifalið í þátttöku-
gjaldinu.
■ ÓLAFUR Stephensen píanó-
leikari og félagar leika á
Kringlukránni miðvikudags-
kvöldið 13. mars. Dagskráin hefst
kl. 22 og stendur fram yfir mið-
nætti.
Á efnisskránni eru sígild djass-
lög í bland við þjóðlegan djass.
Með Ólafi leika þeir Tómas R.
Einarsson á kontrabassa og
Guðmundur R. Einarsson á
trommur.
LEIÐRÉTTING
Nemandi VÍ
RANGHERMT var í frásögn
Morgunblaðsins í gær af úrlit-
um i landskeppni í eðlifræði,
að Lýður Þór Þorgeirsson, sem
varð í 4.-5. sæti, væri nem-
andi í Flensborgarskóla. Hann
er nemandi við Verzlunarskóla
íslands.
Morgunblaðið biðst afsökunar
á þessum mistökum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁ afhendingu myndbandanna, f.v. Anna Jóna Lárusdóttir,
formaður Félags heyrnarlausra, Ragnheiður Friðriksdóttir,
Dóra Sif Wium, Erla Vigelund, Katrín Árnadóttir og Sylvía
Jóhannsdóttir, allar í Lionsklúbbnum Engey.
Myndbönd á táknmáli
LIONSKLÚBBURINN Engey
afhenti Félagi heyrnarlausra
fyrir skömmu myndbönd á
táknmáli fyrir heyrnarlaus
börn.
Lionskúbburinn Engey í
Reykjavík stóð á síðasta ári fyr-
ir konukvöldi og söfnuðust þar
100.000 kr. Klúbburinn ákvað
að gefa féð til gerðar mynd-
banda á táknmáli fyrir heyrnar-
laus börn í tilefni 35 ára afmæl-
is Félags heyrnarlausra. Mynd-
böndin voru gerð hjá Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra og voru nokkr-
ar sögur fyrir börn endursagð-
ar á táknmáli.
Hægt verður að fá þau lánuð
hjá Félagi heyrnarlausra, Sam-
skiptamiðstöð heyrnarlausra og
heyrnarskertra og hjá Vestur-
hlíðarskóla (skóla heyrnar-
Iausra og heyrnarskertra).
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför föðursystur okkar,
SIGRÍÐAR BJARIMADÓTTUR,
Holtsgötu 16,
Reykjavík.
Helga Guðrún Eysteinsdóttir,
Björg Hemmert Eysteinsdóttir,
Jóhanna Arnljót Eysteinsdóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð, hlý-
hug og vináttu við andlát og útför,
JÓHÖNIMU ALBERTSDÓTTUR
frá Syðra Hóli,
er andaðist í Héraðssjúkrahúsinu á Blönduósi sunnudaginn
3. mars sl.
Hólmfríður Magnúsdóttir,
María Magnúsdóttir,
Björn Magnússon, Ingunn Hjaltadóttir,
Ásdis Magnúsdóttir, Gunniaugur Bragason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum sýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ÖNNU ÁRNADÓTTUR,
frá Stóra-Hrauni,
Mánagötu 16,
Reykjavfk.
Árni Pálsson, Rósa Björk Þorbjarnardóttir,
Bjarni Pálsson.Valborg Þorleifsdóttir,
Bergur Pétur Jónsson
og barnabörn.
t
Þökkum innilega samúð og hly
andlát og útför móður okkar,
móður, ömmu og langömmu,
SVÖVU JÓNSDÓTTUR
frá Snartartungu.
Þökkum starfsfólki Sunnuhliðai
vogi, hlýlega umönnun.
Þórey Ásmundsdóttir,
Sigurkarl Ásmundsson,
Ragnar Ásmundsson,
Jón Sturla Ásmundsson,
Hrefna Guðbjörg Ásmundsdóttir, Gissur Þorvaldsson,
Snorri Ásmundsson,
Pálmi Ásmundsson, Ásdis Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Gunnhildur Halldórsdóttir,
Aðalheiður Torfadóttir,
Guðrún Narfadóttir,