Morgunblaðið - 13.03.1996, Side 44
44 MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
Lióska
Ferdinand
Smáfólk
TAAHAVIN6 TROUBLE \
6ETTIN6 STARTED WITH ]
v MV HOMEUJORK.. J
Ég á í basli með að byrja á heima-
verkefninu mínu...
U/ELL, S0METIME5 VOU JU5T
HAV6 TO OPEN THE BOOK,
ANP 60 RI6HT AT IT..
Nú, stundum verður maður bara Ég hef óbeit á því að opna bók-
að opna bókina og hefjast, ina!
handa...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Ungt fólk þarf ekki
vímuefni til að
skemmta sér
FRÁ Vestmannaeyjaför ungmennastúkunnar Eddu.
Frá Jónu Karlsdóttur:
ELSTA Ungmennastúka landsins,
Edda, var endurvakin fyrir 2 árum.
Hún hefur aðsetur að Skipholti 33,
Vinabæ, áður Tónabíó. Meðlima-
fjöldi er nú yfir 50 á aldrinum 15
til 18 ára. Umsjónarmaður stúk-
unnar er Jóna Karlsdóttir, sem
nýtur stuðnings eiginmanns síns
Þórhalls Stígssonar. Þau líta á
þetta sem foreldrastarf og hvetja
foreldra til þess að nýta þau félags-
samtök er þau aðhyllast, til þess
að halda utan um hóp unglinga.
Ungt fólk þarf ekki vímuefni til
þess að skemmta sér en vímuefna-
neytendur hafa nær undantekning-
arlaust byrjað á áfengisneyslu, að
sögn fíkniefnalögreglu. Fyrirhuguð
er för til Færeyja í júlí á,alþjóða-
mót ungs fólks.
Myndin er úr Vestmannaeyjaför
er farin var nýlega, Ingibjörg John-
sen, sem er í framkvæmdanefnd
Stórstúku Islands, var heimsótt,
stúkufólk og félagar í KFUM. Enn-
fremur stóð þingstúka Reykjavíkur
fyrir námskeiðinu Komið að dansa.
Ungt fólk og foreldrar geta haft
samband við Jónu Karlsdóttur og
Guðlaug Sigmundsson, sem er yfir-
maður ungmennastarfs Stórstúk-
unnar eða skrifstofu Stórstúku ís-
lands varðandi aðstoð við að mynda
slíka hópa eða koma og starfa með
okkur.
JÓNA KARLSDÓTTIR,
umsjónarmaður Eddu.
Sparnaður aldarinnar
á hlaupársdeginum
Frá Jóni Ármanni Héðinssyni:
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA og fjár-
málaráðherra hljóta að vera mjög
svo hamingjusamir þessa dagana,
þeir fengu nefnilega aukadag,
hlaupársdag, nú í ár og notuðu hann
til þess að tilkynna um sparnað.
Telja má nokkuð augljóst að hér sé
hvorki meira né minna á ferðinni
en sparnaður aldarinnar.
Öll þjóðin hlýtur að hafa tekið
eftir því, að ákveðnum hópi ellilíf-
eyrisþega var gert að sæta skerð-
ingu fyrri réttinda. Sá sparnaður,
sem fjármálaráðherra vann hér
fram og heilbrigðisráðherra til-
kynnti um, nemur 2 milljónum á
mánuði. Húrra.
Sama dag voru fréttir af Suður-
nesjum og þar var á að hlýða að
forstöðumenn sjúkrahússins og heil-
brigðismála þar skyldu ná fram 3
milljónum. Einhvern veginn hefur
það virkað illa á heilbrigðis- og fjár-
málaráðherrana, að mikil og góð
heilbrigðisþjónusta hefur verið á
Suðurnesjum. Sjálfsagt þekkja þau
ekki mikið til um þróun mála þar,
t.d. frá stríðslokum. Sandgerðingar
og Grindvíkingar muna þ_ó vel fyrri
tíma og vandamálin þá. Ég ætia að
þetta fólk skili sínu mjög vel í heild-
ina og verðskuldi þjónustu sam-
kvæmt því.
Ekki er ámælisvert að fara vel
með fjármuni ríkisins. En þegar ráð-
herrar vilja í raun sýna sparnað og
virkt aðhald verða þeir að byija á
réttum vettvangi. Þjóðin getur ekki
sætt sig við svona sparðatíning, þeg-
ar gífurleg eyðsla, að langmestu að
óþörfu, á sér stað víða. Má í því
sambandi nefna allan ferða- og
risnukostnað ríkisins. Svona tilburð-
um um aðhald hafnar þjóðin hrein-
lega, meðan mörg eyðsluhítin er
galopin.
Manni verður á að orða sparnað-
artilburðina þannig:
Næturgustur hampar í húmi
hnífi hér og þar.
Fólkið er ekki í fyrirrúmi.
Framsóknar lygin víðast hvar.
JÓN ÁRMANN HÉÐINSSON,
fyrrv. alþm. og ellilífeyrisþegi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskiiur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast sam]iykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.