Morgunblaðið - 03.04.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 27
þær greiðslur eru stórmannlegar.
Ef þær ná því að nálgast hungur-
mörkin þá falla niður flestir ellilíf-
aurarnir, þrátt fyrir að menn hafi
greitt í báðar sjóðahítirnar alla
sína tíð, án þess að vera spurðir
um vilja sinn í þeim efnum. Menn
geta bara keypt sér viðbótartrygg-
ingar, sagði forseti ASI í sjón-
varpsþættinum umrædda. Nær-
gætin huggum þeim, sem eru að
komast á eftirlaunaaldurinn.
Jafnir - jafnari - jafnastir
Hver skyldu nú vera líféyriskjör
forseta ASÍ? Skyldi hann fá 35 til
40 þúsund á mánuði, eins og sjóð-
félagar í lífeyrissjóðakerfinu fá.
Nei, hann fær örugglega 85% af
sínum tekjum þegar hann hættir.
Þannig er mál neð vexti að verka-
lýðseigendurnir hafa gert samning
við Lífeyrissjóð ríkisstarfsmanna
um að fá að greiða sínar 10% líf-
eyrisgreiðslur í gegnum þann sjóð,
a.m.k. til skamms tíma. í raun
greiða þó verkalýðsfélögin þessi
eftirlaun því þau bera fulla ábyrgð
á þessum greiðslum, að sögn fjár-
málaráðherra. Þannig tryggja
verkalýðseigendurnir sér og sínum
mönnum fullan lífeyrir. Hvernig
er hægt að ætlast til að almenn-
ingur sé ánægður með kerfi sem
sjálfir forustumennirnir og frum-
kvöðlarnir treysta ekki? Við erum
' allir jafnir, sumir eru bara jafnari
en aðrir, miklu jafnari.
Úlfur, úlfur
fullkomið, fullkomið
Öll viljum við eiga áhyggjulaust
ævikvöld og flestir vilja hafa eitt-
hvað að segja um það hvernig
þeir undirbúa sig. Lágmarkskrafa
hins almenna borgara er að honum
verði treyst fyrir því að velja sér
lífeyrissparnað. Það amast líklega
fáfr við því að þessu verði settar
einhveijar skorður af ríkisvaldinu,
svo sem að sjóðir og tryggingafé-
lög verði að sýna fram á að þau
séu þannig rekin og hafi þannig
eignastöðu að líklegt sé að þau
geti uppfyllt skuldbindingar sínar.
Þetta á við bílatryggingafélög og
brunatryggingafélög. Þetta virðist
hins vegar ekki eiga við líféyris-
sjóði, sem menn eru skyldaðir til
að greiða í þótt öruggt sé að þeir
geti aldrei staðið við neitt af því
sem þeir lofa. Úlfur, úlfur kallaði
smalinn, en enginn trúði honum í
þriðja sinn. Fullkomið, fullkomið,
best af öllu, hrópa lífeyrissjóða-
menn í þriðja sinn og eru stein-
hissa á að enginn hlusti.
Frelsi eða helsi
sparnaðarleiða
Því í ósköpunum mega menn
ekki tryggja sér sinn lífeyrir eins
og þeim finnst best og hagkvæm-
ast? Til dæmis með söfnunarlíf-
tryggingum, eins og algengt er
erlendis og eru nú eru í boði hér-
lendis. Söfnunartryggingafélögin
eru sum hver allt að því 200 ára
og ráða ýfir margfalt stærri sjóð-
um heldur en Ríkissjóður íslands.
Þessi félög, þau bresku a.m.k., eru
með ríkisábyrgð á bak við sig,
geta sýnt fram á góða og örugga
ávöxtun á lífeyrissöfnun í tugi
ára, jafnvel 14- 16% meðalárs-
ávöxtun til margra ára. Þessi félög
eru öll með tölu svo heiðarleg að
benda á, að góður árangur í fortíð
sé ekki endilega ávísun á góðan
árangur til allrar framtíðar. Lífey-
riskerfið íslenska fer öfugt að og
segir að hinn klúðurslegi fortíðar-
vandi þýði alls ekki klúður í fram-
tíðinni, þvert á móti, nú getum við
og því skal hindra alla óþægilega
samkeppni. Hvers vegna í ósköp-
unum mega menn ekki velja sér
sparnaðarleiðir.
Áfram Finnur
Ríkisstjórnin, með viðskiptaráð-
herra í broddi fylkingar, hefur lof-
að því að auka valfrelsi í lífeyris-
málum. Vonandi fáum við að sjá
árangurinn af því áður en langt
um líður.
Höfundur er allsherjargoði
ásatrúarmanna.
banaslysi í bíl sem
vegur undir 800 kg
séu 2,5 sinnum hærri
en í bíl sem vegur
1.200 kg. Það er ekki
mögulegt með núver-
andi tækni að smíða
öruggan bíl sem végur
á milli 600 og 700 kg.
Öryggisbúnaður
Á síðustu árum
hafa komið fram
tækninýjungar sem
auka á öryggi öku-
manna og farþega í
bifreiðum. Þessi bún-
aður er oftast auka-
en ekki staðalbúnaður
í söluhæstu bifreiðunum á mark-
aðnum. Öryggisbúnaðurinn hækk-
ar bílverð þannig að eðlilegt er að
gefa fastan afslátt af vörugjaldi
þeirra bifreiða sem búnar eru sér-
stökum barnaöryggisbúnaði, líkn-
arbelgjum (airbag), hemlalæsivörn
(ABS), hliðarárekstrarvörn o.fl.
Með niðurfellingu aukast einnig
líkur á örari útbreiðslu þessara
öryggistækja.
I nýlegri bók frá American
Automobile Association (Félag
bandarískra bifreiðaeigenda) fyrir
ökunema kemur fram að notkun
öryggisbeltis dragi um 50 prósent
úr líkunum á því að notandinn
látist í umferðarslysi. Sé líknar-
belgur einnig til staðar dregur frá
66 til 75 prósent úr líkunum á
banaslysi.
Runólfur
Olafsson
Nýleg bandarísk
rannsókn, sem unnin
var af Failure Analys-
is Association (FaAA)
fyrir samtök bandarí-
skra bílaframleiðenda,
sýnir að bílar með
læsivarða hemla eru
með 9 til 19 prósent
lægri óhappatíðni en
bílar sem ekki eru með
þennan búnað.
Aukum öryggið
Umferðarslysin
valda ómældum miska
og mannlegum hör-
mungum og kosta
þjóðfélagið um 8 millj-
arða á hveiju ári. Aðgerðir sem
miða að auknu öryggi í umferð-
inni skila fljótt arði. Tekjur ríkis-
sjóðs af aðflutningsgjöldum öku-
tækja lækka, en öruggari bílar
draga úr dýrum slysum. Öruggur
bíll er ekki lúxus heldur nauðsyn.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Félags íslenzkra hifreiðaeigenda.
ffli a 2
Verö frá kr. A hvora leið með U flugvallarskatti ^ !.$ I0
Sala: Wihlborg Rejser, Danmörku,
Hækkun sjálfræð-
isaldurs í 18 ár
Á ÍSLANDI eru foreldrar for-
sjárskyldir við börn sín til 16 ára
aldurs þeirra. Forsjáraðilar eru þó
framfærsluskyldir gagnvart börn-
um sínum til 18 ára aldurs og
geta einstaka forsjárskyldur hald-
ist lengur ef þörf krefur. Framlag
til menntunar eða starfsþjálfunar
getur haldist til 20 ára aldurs. .
Inntak forsjárskyldu
Framlenging á forsjárskyldum
foreldra til 18 ára miðar gagngert
að því að auka réttaröryggi barns-
ins, en inntak forsjárskyldu er
uppeldisskylda, svo sem best hent-
ar hag barns og þörfum. í barna-
lögunum er mælt fyrir um að for-
eldrar skuli hafa samráð við barn
sitt áður en persónulegum málefn-
um þess er ráðið til lykta eftir því
Abyrgðin er ekki aðeins
ungmenna, segir Jó-
hanna Sigurðardóttir,
heldur og foreldranna
og samfélagsins.
sem gerlegt er, þar á meðal með
tilliti til þroska barns. Barnasátt-
málinn gerir ráð fyrir því að eðli-
legt sé að miða aídursmörkin við
18 árin, en við þau mörk taki börn-
in yfir réttinn til að ráða sér alfar-
ið sjálf og séu þá jafnframt tilbúin
til að axla þá ábyrgð sem frelsinu
fylgir.
Rökin fyrir hækkun
Nú er það svo að þroski barna
er einstaklingsbundinn. Mörg ung-
menni eru fullfær um að axla
ábyrgð á sjálfum sér þegar við 16
ára aldur og því eðlilegt að þau
öðlist rétt til að ráða persónulegum
högum sínum, s.s. dvalarstað, þeg-
ar við 16 ára aldur. Þegar það er
virt að framlenging á forsjárskyld-
um foreldra um tvö ár, sem eru
oft mikilvæg ár í þroska og félags-
niótun barna, felur í sér aukna
vernd fyrir börn almennt eiga þau
tilvik ekki að leiða til skerðingar
á réttaröryggi barna almennt.
Skjótur og eðlilegur þroskl barna
mælir ekki heldur gegn því að
foreldraskyldur og vald viðhaldist
til 18 ára aldurs. Það er alkunna
að þjóðfélagsaðstæður hafa gjör-
breyst frá því að 16 ára reglan
var innleidd í lög. Með auknum
menntunarkröfum og atvinnuleysi
ungs fólks dveljast ungmenni mun
lengur í foreldrahúsum. Það reyn-
ir því meira á skyld-
ur/vald foreldris
gagnvart barni sínu
en fyrr á tímum. Nú
búa 80-90% ung-
menna á aldrinum
16-18 ára í foreldra-
húsum.
Ábyrgðin unglinga,
foreldra og
samfélagsins í heild
Nokkuð hefur borið
á því í umræðu um
áfengis- og vímuefna-
neyslu unglinga að
hinn lági sjálfræðis-
aldur skapi vanda fyr-
ir foreldra og þjóðfé-
lagið í heild við að taka á vandan-
um. Það er staðreynd að þau úr-
ræði sem fyrir hendi eru, s.s. með-
ferð ungmenna á lokuðum deild-
um, hafa ekki nýst sem skyldi og
er það skoðun sérfræðinga og
annarra þeirra sem komið hafa
að þessu vandamáli að hækka
beri sjálfræðisaldurinn í 18 ár. í
tilvikum sem þessum er nauðsyn-
legt að foreldrar geti haft yfirráð
og eftirlit með börnum sínum leng-
ur en til 16 ára í því skyni að
veita þeim vernd gegn vandamál-
um. Með þessu er ekki verið að
gera ungménni ábyrgðarlaus held-
ur er það viðurkenning á því að
ábyrgðin sé ekki einungis þeirra
heldur og foreldranna og sámfé-
lagsins í heild.
Samræmi í réttindum og
skyldum ungs fólks
Þegar horft er til nágrannaland-
anna hefur þróunin verið önnur
en hér á landi. Á Norðurlöndum
var sjálfræðisaldur víða kominn í
20 til 21 ár en var lækkaður aftur
í 18 ár á þessari öld. í dag er sjálf-
ræðisaldur í þessum págranna-
löndum okkar 18 ár.
Samráðsnefnd um málefni
barna og ungmenna, sem skilaði
áfangaskýrslu til mín sem félags-
FbiodrogaJ
Litrænar
i jurtasnyrtivörur |
Enginaukailmefni.
t BIODROGA §
málaráðherra i októ-
ber 1992, taldi eðlilegt
að hækka sjálfræðis-
aldurinn í 18 ár. í til-
lögum starfshóps á
vegum borgarstjóra
um úrbætur í miðbæ
Reykjavíkur kom
einnig fram tillaga um
að sjálfræðisaldurinn
verði hækkaður úr 16
árum í 18 ár. Sömu-
leiðis hefur fulltrúar-
áð Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga
lagt til við stjórn sam-
bandsins að það beiti
sér fyrir því að sjálf-
ræðisaldur verði
hækkaður úr 16 árum í 18 ár á
yfirstandandi þingi. í frumvarpi
sem undirrituð flutti á Alþingi um
að lækka aldursmörk til kaupa og
neyslu á áfengi úr 20 árum í 18
ár var því varpað fram að rétt
væri að hækka sjálfræðisaldurinn
úr 16 árum í 18 ár. Einnig var
vakin athygli á því að ökuleyfisald-
urinn er miðaður við 18 ára aldur
annars staðar á Norðurlöndum,
en hér á landi er hann miðaður
við 17 ár.
I samræmi við þessa skoðun að
hækka þurfi sjálfræðisaldur hefur
undirrituð ásamt þingmönnunum
Guðmundi Árna Stefánssyni og
Margréti Frímannsdóttur lagt
fram á Alþingi frumvarp um
hækkun á sjálfræðisaldri úr 16
árum í 18 ár.
Höfundur er formaður Þjóðvaka.
MÖRKINNI 3 • SÍMI S88 0640
Jóhanna
Sigurðardóttir
26. JUNI-30. JUNI
Þau iið, sem óska eftirað taka þátt i
SHELLMÓTI TÝS 1996 er verður haldið
í Vestmannaeyjum 26. júní-30. júni,
tilkynni þátttöku eigi síðar en 20. apríl.
Knattspyrnufélagið Týr,
pósthóif 395,
902 Vestmannaeyjar
eða
simbréf 481 2751.
1996
i þátttökutilkynningu skal koma fram
nafn félags, nafn þjálfara, simanúmer,
faxnúmer og áætlaður fjöldi þátttakenda.
Einnig nafn, heimili og simanúmer
ábyrgðarmanns hópsins.
Allar nánari upplýsingar
eru veittar i Týsheimilinu
ísima 481 2861 eftirkl. 17.00.
Herjólfur brúar biliö
Ueriólfur hf.
Pantið timanlega fyrir
Bila og hópa