Morgunblaðið - 03.04.1996, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Móðir okkar,
EMILÍA GRÖNVOLD,
frá Litlu-Skógum,
siðasttil heimilis
á Skúlagötu 40,
lést í Landspítalanum mánudaginn 1. apríl
Halldór Grönvold,
Karl Grönvold.
t
Okkar kæri frændi og vinur,
TORFI L. TORFASON,
dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness
31. mars sl.
Jarðsett verður frá Akraneskirkju
11. apríl nk. kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Lauritz H. Jörgensen.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir,
ÞÓRARINN
ALEXANDERSSON,
Stigahlíð 20,
Reykjavík,
er látinn.
Sigriður Maria Sigurðardóttir,
Hanna Þórarinsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
KAMILLA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Víðilundi 20,
Akureyri,
sem lést 31. mars, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju föstudag-
inn 12. apríl kl. 13.30.
Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, vinsamlegast láti Sundlaug-
arsjóð Kristnesspítala njóta þess.
Edda Eiríksdóttir,
Auður Eiríksdóttir, Jóhann Halldórsson,
Þorsteinn Eiríksson, Arndis Baldvinsdóttir,
Guðríður Eiríksdóttir, Gunnar Ragnars,
Hafsteinn Andrésson,
barnabörn og langömmubörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma, langamma og
langalangamma,
MARGRÉT SIGRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Skólavöllum 14,
Selfossi,
áður húsfreyja
á Læk í Holtum,
verður jarðsungin frá Hagakirkju í Holtum laugardaginn 6. apríl
kl. 14.00.
Þeir, sem vildu minnast hennar, vinsamlegast láti Hagakirkju njóta
þess.
Sigurður Sigfússon,
Eygló Sigfúsdóttir,
Davíð Sigfússon,
Dóra Sigfúsdóttir,
Ólafur Sigfússon,
Pálmi Sigfússon,
Vigdís Magnúsdóttir,
Halldór Þorkelsson,
Hlfn Magnúsdóttir,
Karl Steinbergsson,
Hólmfrfður Hjartardóttir,
Vigdfs Guðmundsdóttir,
Oddný G. Eyjólfsdóttir, Erla Björgvinsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför móður
minnar, fósturmóður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
VALGERÐAR
GUÐMUNDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra-
hússins á Blönduósi.
Guðmundur Haraldsson, Erla Björg Evensen,
Svava Axelsdóttir, Grímur Haraldsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
ÁSGRÍMUR
HALLDÓRSSON
á Höfn sneri hann sér af fullum
krafti að rekstri fyrirtækisins
Skinneyjar hf. sem hann hafði
stofnað ásamt öðrum yngri. Það
var oft hann sem vildi ganga lengra
en þeir yngri sem héldu í tauminn.
Þó Asgrímur væri kominn vel yfir
miðjan aldur var hann alltaf að
byggja upp fyrir framtíðina og
næstu kynslóðir.
Eitt aðaláhugamál Ásgríms var
að græða landið og hafði hann um
það frumkvæði að kaupa land til
skógræktar fyrir Skógræktarfélag
Austur-Skaftafellssýslu sem hann
hugsaði sem sælureit fyrir sýslubúa
í framtíðinni og vann þar af mikilli
ósérhlífni við girðingar og gróður-
setningu. Með því að hafa svo ein-
lægan athafnaáhuga hreif hann
aðra með sér til dáða og hefur hann
ekki hvað síst haft áhrif á okkur
hjón hvað varðar skógræktaráhuga
og alltaf var hann tilbúinn með
hvatningu og ráðleggingar.
Nú á síðastliðnu ári var hann
búinn að girða nýjan gróðurreit í
Karl fyrir fjölskylduna þar sem
henni er ætlað að koma saman
a.m.k. einu sinni á ári til gróður-
setningar og mun það í framtíðinni
vera á okkar ábyrgð að halda áfram
þar sem frá var horfið. Líklega
getum við ekki heiðrað minningu
hans á betri hátt en með því að
yrkja landið. Elsku Guðrún, sorg
þín er mest en styrkur þinn er styrk-
ur okkar allra.
Þar sera góðir menn fara þar eru Guðs vegir.
(B.B.)
Siguijóna.
Frá því ég fyrst man eftir mér
leit ég upp til Ásgríms, þessa
frænda míns sem stýrði stóru kaup-
félagi í Hornafirði og var þar mik-
ill athafnamaður. Hann var örlaga-
valdur í mínu lífi eins og margra
annarra. Hann útvegaði mér sumar-
dvöl í sveit hjá góðu fólki í Þórisdal
í Lóni þegar ég var á níunda árinu.
Á hverju vori og hausti í fimm ár
dvaldi ég á heimili hans og Guðrún-
ar þegar ég var á leið í og úr sveit-
inni. Seinna stundaði ég sjó á horn-
firskum báti og vann sem verka-
maður á Höfn og átti þá alltaf skjól
á heimili þeirra. Á námsárunum
fann ég hvað hann fylgdist með
hvernig mér reiddi af og hvatti mig
þegar við hittumst. Ég veit að hann
fylgdist með líkum hætti með fjölda
ungs fólks í Hornafirði, hvatti það
til dáða og studdi til góðra verka.
Eftir að námi lauk héldum við allt-
af sambandi. Þá vann ég m.a. fyrir
hann verkefni á árunum 1984 og
’85, þegar hann var að kanna nýja
möguleika til uppbyggingar Skinn-
eyjar hf. Það var ekki síst vegna
þess að ég fann að ég hafði stuðn-
ing og traust Ásgríms að ég réð
mig til starfa hjá Borgey hf. í maí
1992, þegar sjávarútvegsstarfsemi
KASK var endurskipulögð. Þá fór-
um við Ásgrímur að starfa saman
með allt öðrum hætti en áður. Við
stýrðum fyrirtækjum sem áttu í
beinni samkeppni, en áttu líka í
samstarfi. Einnig störfuðum við
saman í stjórn Oslands hf., fiski-
mjölsverksmiðju, við að byggja fyr-
irtækið upp. Á fyrstu tveim starfs-
árum mínum sem framkvæmda-
stjóri Borgeyjar hf. gekk félagið í
gegnum miklar þrengingar. Þessi
ár voru erfið, ég fann til mikillar
ábyrgðar sem stjórnandi Borgeyjar
hf., sem vegna stærðar sinnar er
burðarás í atvinnulífi í Hornafirði.
Við Ásgrímur vorum ekki alltaf
sammála um hvernig staðið skyldi
að málum, en alltaf gat ég leitað
til hans til að ræða vandasöm úr-
lausnarefni sem ég átti við að glíma.
Það var ekki síst þá sem ég fann
hversu yfirgripsmikla þekkingu og
djúpstæðan skilning hann hafði á
rekstri fyrirtækja. Það var samt
ekki sú þekking hans sem réð úrslit-
um fyrir mig, þegar mest á reyndi,
heldur að geta ætíð leitað til hans
og átt trúnað hans þegar mér fannst
álagið verða yfirþyrmandi. Þá var
gott ^ð geta létt af sér fargi og
geta rætt hvaða tilfinningar voru
að bærast í bijóstinu. Þá skynjaði
ég hversu mikinn persónulegan
styrk Ásgrímur hafði og ég fór frá
honum með endurnýjað baráttu-
þrek. Ásgrímur bar hag Borgeyjar
hf. ávallt fyrir brjósti, og reyndist
mér hollráður og studdi mig alltaf
útávið, þegar mest á reyndi. Fyrir
það verð ég honum ætíð þakklátur.
Elsku Guðrún, við Tóta vottum
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför
MARÍU SVEINLAUGSDÓTTUR,
Lindarsíðu 4,
Akureyri.
Fyrir hönd vandamanna,
Ófeigur Pétursson.
+
Innilegar þakkir færum við þeim, er sýndu okkur samúð og vin-
áttu við andlát og útför
GUÐBJÖRNS KRISTÓFERS KETILSSONAR
fyrrum bónda,
Hamri
i' Hörðudal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins að Fellsenda fyr-
ir alúð og vináttu sýnda honum.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gfsli Ketilsson,
Kristinn Breiðfjörð.
fi
avarac
OTRULEGA HAGSTÆTT VERÐ
&C0
LEITIÐ TILBOÐA
BYGGINGAVORUR
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK
SÍMI 553 8640 / 568 6100
þér og fjölskyldu þinni okkar dýpstu
samúð.
Halldór Árnason.
Enn einn samreiðarmaður, að
þessu sinni úr Hornafirðinum, hefur
nú lagt Gjallarbrú að baki. Það er
öðlingurinn og kempan Ásgrímur
Halldórsson.
Það er í eðli sumra manna að
setja svip á umhverfi sitt. Logn-
molla er þeim fjarri skapi og meðal-
mennsku þola þeir ekki. Lífið er
þeim vettvangur athafna, stundum
jafnvel ats, og ekkert sem þeir koma
að verður hið sama eftir. Oft er
slíkum mönnum tamara að herða á
rás viðburðanna eða breyta henni
en láta hana renna framhjá í föstum
farvegi vanans. Af þeirri Höfn í
Hornafirði, sem Ásgrímur flutti að
ungur að árum er fátt þekkjanlegt
nú nema fjallahringurinn. Meira að
segja Hornafjarðarfljóti hefur verið
breytt og séu þessar breytingar
grannt skoðaðar, munu fáar
finnast, sem Ásgrímur hefur ekki
komið að, með einum eða öðrum
hætti.
Kynni mín við þau ágætishjón
Guðrúnu og Ásgrím hófust uppúr
því að elsta dóttir þeirra slasaðist.
Slysið var þess eðlis að margar
aðgerðir þurfti til lagfæringar. Af
þeim kynnum spratt vinátta sem
haldist hefur æ síðan, þó fundum
hafi fækkað hin síðari árin.
Svo var hestamennska sameigin-
legt áhugamál, sem allmörg sumur
dró okkur hjónin ásamt fleiri vinum
og kunningjum austur í Suðursveit
og til Hafnar. Á þessu svæði er
náttúrufegurð óviðjafnanleg, eins
og allir vita sem þangað hafa ferð-
ast.
Þó oftast hafi skinið sól í ferðun-
um austur, verður sú ferðin minnis-
stæðust, þegar veðurguðirnir börðu
sem rækilegast á okkur. Sú ferð
var farin um mánaðamótin júlí og
ágúst 1969, úr Lóni, meðfram aust-
urströndinni, yfir Öxi, í Hallorms-
stað. Þaðan var svo farið um Sturlu-
flöt, suður yfir Víðidalsöræfi. Á
þeim áfanga sá vart handa skil
vegna illviðris.
Sökum vatnavaxtanna sem ill-
viðrið gerði, treystumst við ekki til
að leggja hestana til sunds yfir
Jökulsá á Lóni og teymdum þá yfir
nýsmíðaða göngubrú yfir ána.
Fæstir vita það víst nú, að þá brú
byggði Ásgrímur að miklu leyti með
eigin höndum og eigin hestum, því
allt efni þurfti að draga niður Illa-
kamb að brúarstæðinu og dugðu
ekki í það neinar liðleskjur. Mér
býður í grun, að þetta mannvirki
hafi verið Ásgrími hugstæðara en
mörg önnur stórvirki, sem hann
átti hlut að.
Veislan heima hjá þeim hjónum
að ferðalokum kemur í huga minn
í hvert sinn er ég lít á stóra ópalinn
á arinhillunni, sem hún Guðrún sótti
i garðinn sinn og lét í farangurs-
geymsluna á bílnum mínum, þegar
við kvöddumst.
Ég mun ætíð minnast Ásgríms
sem eins af þeim samferðamönnum,
sem hafa gefið lífinu lit.
Við Lóló sendum Guðrúnu og
allri fjölskyldunni innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Árni Björnsson.
Erfídnkkjiir
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEHDIR
Illfil LÍIFTLEIDIH