Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 2

Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samið við SH um sölu á afla tveggja rússneskra togara Rússar kaupa veiðar- færi og vinnslubúnað Morgunblaöið/Ásdfs UNNIÐ hefur verið við uppsetningu íslensks vinnslu- og veiðar- færabúnaðar um borð í tveimur rússneskum togurum, sem halda munu á karfaveiðar á Reykjaneshrygg innan tíðar. Ráðherrar á Reyðarfirði Búist við að flotinn verði í höfn ÚTVEGSMANNAFÉLAG ' Aust- fjarða hefur boðað sjávarútvegsráð- herra og þingmenn Austurlands til opins fundar næstkomandi þriðjudag klukkan 14 á Reyðarfirði vegna and- stöðu við framkomið frumvarp sjáv- arútvegsráðherra um veiðistjóm smábáta. Reiknað er með að nær allur austfírski fískiskipaflotinn sigli til hafnar til að taka þátt í mótmæl- unum. „Útvegsmannafélagið er búið að boða þingmenn Austurlands og sjáv- arútvegsráðherra til fundac. Forystu- menn sjómanna og útvegsmannafé- lagsins verða á fundinum sem er opinn öllum. Mér skilst að flest skip sem gerð eru út á Austfjörðunum verði í landi,“ segir Eiríkur Ólafsson, formaður Útvegsmannafélags Aust- íjarða. „Það sýður enn meira á sjómönnum en útvegsmönnum vegna þessa máls. Mönnum fínnst að það sé búið að ganga svo freklega á loforð að það nái engu tali. Menn eru búnir að herða ólina aftur og aftur en síðan er það útvalinn hópur sem á að fá allan arð- inn. Mönnum er full alvara og þeir eru virkilega sárir yfir þessu frum- varpi sem komið er fram frá sjávarút- vegsráðuneytinu," segir Eiríkur. HAMPIÐJAN, Marel og Sölumið- stöð hraðfrystihúsanna undirrituðu í gær samning við sjávarútvegsfyr- irtæki í Múrmansk um umfangs- mikil vöru- og fiskviðskipti. Samn- ingurinn felur í sér að Hampiðjan selur Gloríu flottroll og Marel selur vinnslubúnað um borð í tvo rúss- neska verksmiðjutogara í eigu Dolphin, sem er skrásett á Gíbralt- ar en er dótturfyrirtæki Murmansk Trawl Fleet í Múrmansk. Undan- farna daga hefur verið unnið að því að koma íslenska búnaðinum um borð í skipin tvö á athafna- svæði Samskipa í Sundahöfn og er stefnt að því að þau geti haldið á veiðar í kvöld og verður förinni þá heitið á karfaslóðir á Reykjanes- hrygg. Andvirði tækjabúnaðar og trolla nemur um 100 milljónum króna. Togaramir tveir munu selja allar afurðir sínar í gegnum SH, en þeir era, hvor um sig, 120 metr- ar að lengd og taka allt að 7.600 tonn. Þetta era systurskip og hefur Dolphin-félagið yfír að ráða þrettán slíkum skipum til viðbótar. „Murmansk Trawl Fleet er stærsta útgerðarfyrirtæki í Múr- mansk með fjöldann allan af físki- skipum, bæði í Atlantshafi og Bar- entshafí. Vissulega vonast menn til þess að þessi samningur geti verið upphafið að einhverju meira. Aðilar era að minnsta kosti sam- mála um að svo geti orðið ef vel gengur með þessa tvo togara,“ seg- ir Geir A. Gunnlaugsson, forstjóri hjá Marel. Hampiðjan hefur tekið að sér að sjá um veiðarfærahliðina og Marel aftur vinnsluhliðina. Sölumiðstöðin sér svo um að selja þær afurðir, sem skipin munu veiða. Það er því verið að selja eitt stykki heildar- lausn. Talið er að meðalafli hjá svona skipi geti verið 750-1000 tonn á mánuði upp úr sjó, þar af fæst um þriðjungur í afurðir. Veiði- tíminn í karfanum á Reykjanes- hrygg er átta til níu mánuðir, frá apríl og fram í miðjan desember. Um borð er karfínn unninn þannig að hann er hausskorinn, slógdreg- inn og frystur. Hann er síðan seld- ur beint á Japansmarkað til frekari vinnslu. Að sögn Bjama Lúðvíks- sonar, framkvæmdastjóra hjá SH, er Sölumiðstöðin stærsti einstaki söluaðili á karfa í heiminum. „í Japan erum við með um fjórðung markaðarins. Á undanförnum þremur áram höfum við verið með fimm rússnesk skip í viðskiptum og nú bætast tvö önnur við. Fyrir utan þetta samstarf erum við { samstarfí við Færeyinga, Breta og Útgerðarfélag Akureyringa í gegn- um þýska fyrirtækið Mecklenburg- er Hochseefischerei. Við trúum því að saman náum við hærri verðum en sitt í hvoru lagi.“ „Misskilningur“ Iouri Tsourkan, framkvæmda- stjóri Dolphin-félagsins, undirrit- aði samninginn fyrir hönd rúss- nesku útgerðarinnar og sagðist vera mjög ánægður með það sam- starf, sem náðst hefði við íslensku fyrirtækin. Hann vonaðist til að samningurinn kæmi Rússum jafnt sem íslendingum til góða. Ef reynslan yrði góð stæði ekkert í veginum fyrir því að um frekari viðskipti yrði að ræða. Þetta væri líklega aðeins upphafið að frekara samstarfi. Aðspurður um meintar ólöglegar veiðar rússnesks togara og afskipti íslensku Landhelgisgæslunnar af honum í gær og fyrradag, svaraði Tsourkan því til að líklega væri um einhvern misskilning að ræða. Hann vildi að minnsta kosti trúa því. Hinsvegar væri þetta skip ekki á hans vegum og því vissi hann lítið sem ekkert um málið. Hann hefði sínar fréttir, enn sem komið væri, aðeins úr íslenskum fjölmiðl- Húsnæðisnefnd RÚV lýkur störfum Sjónvarpið í Útvarps- húsið STARFSHÓPUR um framtíðarskipan húsmála Ríkisútvarpsins hefur lokið störfum og leggur til að starfsemi sjónvarpsins verði öll flutt í Útvarps- húsið við Efstaleiti og að núverandi sjónvarpshús við Laugaveg verði selt. Áætlaður kostnaður við þessar tilfær- ingar er 515 milljónir króna sem er mun lægri fjárhæð en hingað til hefur verið talið raunhæft að ætla, að sögn Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, formanns Útvarpsráðs og svonefndrar húsnefndar, sem menntamálaráð- herra skipaði á síðasta ári. Gunnlaugur Sævar segir að ástæð- ur áætlaðrar kostnaðarlækkunar megi m.a. rekja til þess að nú hafi tekist að raða starfseminni inn í það húsnæði við Efstaleiti sem fyrir er og ekki þurfí að byggja neitt húsnæði til viðbótar. Sömuleiðis væri ekki talin þörf á jafnmikilli tækjaendumýjun og áður var talin nauðsynleg. Tillögur nefndarinnar hafa verið kynntar í Útvarpsráði og þær voru afhentar ráðherra í gær. Gunnlaugur Sævar sagði að nefndin legði til að gengið yrði til viðræðna af fullri alvöru við íslenska útvarpsfélagið um sölu á núverandi sjónvarpshúsi. » ♦ ♦--- Aðgerðir stéttarfélaga Óskað eftir fundum með ríkisstjórn FORMENN landssambanda innan Alþýðusambands íslands hafa sam- þykkt að óska eftir því við alla þing- flokka að þeir komi til viðræðna við fulltrúa ASÍ um frumvarp félags- málaráðherra um breytingar á lög- um um stéttarfélög og vmnudeilur í síðari hluta næstu viku. í gær var svo haldinn fundur for- ystu ASÍ með forystu BSRB, kenn- arasamtökunum, BHMR og Sam- bandi bankamanna. Var samþykkt að formenn allra þessara samtaka óskuðu eftir fundi með fulltrúum ríkisstjórnarinnar að morgni næst- komandi miðvikudags, áður en Al- þingi kemur saman til að fara yfir samskipti - stjórnvalda og samtaka launafólks. í bréfi ASÍ til þingflokkanna er sagt mikilvægt að tækifæri gefíst til að ræða tilurð og efni frumvarps- ins um stéttarfélög og vinnudeilur. MEÐ blaðinu í dag fylgir 8 síðna auglýsingablað, _,,Vor- sprengja“ frá Úrval-Utsýn, þar sem ferðaskrifstofan kynnir m.a. 1.000 viðbótarsæti i sólina í sumar. um. Yfirlýsing borgarstjóra um starfsfólk Skólaskrifstofu Reykjavíkur Öllu starfsfólki boðið starf hjá Fræðslumiðstöð INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, gaf þá yfírlýsingu á fundi með for- manni BSRB og formanni Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar að öllum starfsmönnum Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar yrði boðin vinna hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur, en hún tekur til starfa 1. ágúst nk. Ógmundur Jónas- son, formaður BSRB, segir þessa yfirlýsingu mjög mikilvæga, en BSRB telji eftir sem áður að ekki hafí verið staðið að uppsögnum starfs- fólksins með réttum hætti og draga eigi uppsagn- imar til baka. Ingibjörg Sólrún sagði í samtali við Morgun- blaðið að borgin gæti ekki orðið við kröfum um að uppsagnirnar yrðu dregnar til baka. „Megin- atriðið f þessu máli hlýtur að vera hvort starfs- fólkið fái tilboð um ráðningu hjá Fræðslumið- stöðinni eða ekki. Það hefur alltaf verið okkar skilningur að með þessum uppsagnarbréfum fælist boð til allra starfsmanna Skólaskrifstofu Reykjavíkurborgar um ráðningu hjá Fræðslu- miðstöðinni. Starfsmönnum verða boðin sömu launakjör, en við getum ekki tryggt að fólk verði ráðið til nákvæmlega sömu starfa og það hefur gegnt hingað til. Starfsvettvangurinn verður hins vegar væntanlega svipaður." Ingibjörg Sólrún sagði að viðræður við starfs- fólk Skólaskrifstofunnar um ráðningar til Fræðslumiðstöðvarinnar væru hafnar og þeim yrði lokið fyrir 1. maí þegar uppsagnimar taka gildi. Mikilvæg yfirlýsing „Ég tel þessa yfírlýsingu borgarstjóra mjög mikilvæga. Eftir sem áður tel ég rétt að draga þessar uppsagnir starfsfólksins til baka því að ég tel ekki rétt að þeim staðið. Það hlýtur hins vegar að vera meginmarkmið okkar að starfsör- yggi fólks sé tryggt og þess vegna fagna ég yfírlýsingunni," sagði Ögmundur. Ekki hefur verið gengið frá því hvert verk- svið starfsmanna Fræðslumiðstöðvar Reykjavík- ur verður. Ögmundur sagði æskilegt að frá því hefði verið gengið áður en starfsfólkinu var sagt upp. Yfirlýsing borgarstjóra um að starfsfólki yrði búin eigi lakari launakjör en því era búin núna væri mikilvæg. Starfsfólk fræðsluskrifstofa bíður eftir svörum Ögmundur sagði að BSRB hefði einnig tekið upp mál starfsfólks Fræðsluskrifstofu Reykja- víkur og starfsfólks fræðsluskrifstofa almennt, en þessu fólki hefur verið sagt upp störfum í tengslum við flutning grannskólans frá ríki til sveitarfélaga. BSRB skrifaði menntamálaráðu- neytinu bréf í byijun febrúar og afrit af því var sent borgarstjóra og formanni Sambands ís- lenskra sveitarfélaga. í bréfinu er sett fram krafa um að starfsöryggi starfsfólks fræðslu- skrifstofa verði tryggt. Ogmundur sagði að ekk- ert svar hefði borist frá menntamálaráðherra við bréfinu. Starfsfólk Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur- borgar er í vinnu hjá ríkinu, en ekki Reykjavík- urborg. Ingibjörg Sólrún sagði að verkefnis- stjórnin, sem hefur yfírumsjón með flutningi grunnskólans til sveitarfélaganna, hefði ekki rætt við Reykjavíkurborg um stöðu starfsfólks Fræðsluskrifstofunnar. Hún sagði^ að Reykjavík- urborg hefði fullan hug á að nýta sér starfs- krafta starfsfólks Fræðsluskrifstu Reykjavíkur- borgar þegar ný stofnun tæki til starfa. „Það er alveg ljóst að við þurfum á þeirri þekkingu sem þetta fólk býr yfir að halda þegar Fræðslumiðstöðin tekur til starfa og við teljum okkur hafa ákveðnum skyldum að gegna gagn- vart því, en alls ekki þeim sömu og gagnvart okkar eigin starfsmönnum," sagði Ingibjörg ) ) I ) i i i i i \ \ * -

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.