Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 33 LISTIR Náttúrulega... LISTMUNIR Norræna húsið HANDVERK Norræn samsýning. Opin alla daga kl. 14-19 til 6. apríl. Aðgangur kr. 200. ÞAÐ ER ekki einungis á íslandi sem vaxandi áhugi er fyrir fram- gangi handverksins og hlutverki þess í menningarlífinu. Á öðrum Norðurlöndum er löng og mikil hefð fyrir þessum þætti listmenningar- innar, sem er í mörgum tilvikum ríkulegur hluti í lífsmynstri þjóð- anna. Því er að vonum að norræn samsýning á þessum vettvangi sé fjölskrúðugt framtak þar sem kenn- ir ýmissa grasa, en það er að líkind- um hentugasta orðalagið til að kynna þá sýningu sem nú fyllir sali Norræna hússins undir heitinu „Naturligvis ...“ eða „náttúrulega (( Þessi farandsýning er haldin fyrir tilstilli Heimilisiðnaðarfélags ís- lands, en hún var fyrst sett upp í Lillehammer í Noregi á síðasta sumri í tilefni af þingi norræna heimilisiðn- aðarsambandsins. Yfirskriftin vísar til inntaksins, en hér er öll áhersla lögð á nýtingu náttúrulegra hráefna sem og endurnýtingu; hið umhverf- isvæna viðhorf er boðorð dagsins, og kemur fram með skemmtilegum og oft listilegum hætti í þeim meira en tvö hundruð verkum, sem merkt eru á sýningunni. Sýningargripunum er skipt í flokka eftir því hvaðan meginhrá- efni þeirra er komið. Þannig er tal- ið það sem kemur úr sjó og vötnum (roð, selskinn, hvaltennur, skeljar og kuðungar, sef), af akri (hör, hálmur) úr mó og mel (torf og ull, steinar, leir), af dýrum (ull skinn, horn, hár og bein), úr skógum (jafnt pappír sem tré) og loks endurnýtt efni, sem er allt frá mottum úr gallabuxum og plastpokum til kertastjaka úr niðursuðudósum. Slíkur efniviður býður upp á fjöl- breytta möguleika, þar sem hið hefð- bundna og nýstárlega fara vel sam- an. Við innganginn blasir við gestum glæsikjóll norskrar listakonu (nr. 1), sem fískroð mótar öðru fremur; fínnskar sefmottur (nr. 36-8) og sænskur hörvefnaður (nr. 47-9) byggja á aldagömlum hefðum og ÞÓRUNN Krane: Sam- kvæmiskjóll úr roði, silki og flaueli. einfaldleika, sem bjóða öllum tísku- straumum birginn og eru ætíð sem ný. Tímaleysi gripanna sést gleggst á nær tvö hundruð ára gamalli fínnskri bátamottu (nr. 121) sem sýnir vel að endumýting er alls ekki nýtt hugtak, og ullarföt frá Færeyj- um (nr. 123-4) og Noregi (nr. 139) sýna að ný hönnun getur tekist eink- ar vel innan ramma hefðarinnar. Ýmsir listamenn hafa orðið til að leita aftur til handverksins og með nýrri myndsýn gert vönduð listaverk úr hefðbundnum efnum. Þannig er óslitinn vegur milli nokk- urra næfraaskja frá Svíþjóð (nr. 173-4) og ferðabolla frá Noregi (nr. 193-4) annars vegar og t.d. verka Hannesar Lárussonar; flétt- aðar körfur úr víði (nr. 214-19) eru í raun náskyldar ýmsu því, sem veflistakonur hafa verið að takast á við hin síðari ár. Skiljanlega er nokkuð þröngt um svo stóra sýningu í sölum Norræna hússins, og flestir gripanna hefðu augljóslega notið meira rýmis. Slíkt hefði þó aðeins tekist hér á kostnað fjölhæfninnar, og þá hefði of miklu verið fórnað. Þetta er ekki síður mannvænleg sýning en umhverfis- væn; það er þægilegt að ganga um hana, og á einum stað hefur verið komið fýrir vinnuhorni fyrir börn, þar sem þau geta einnig tekið á fjölbreyttum efnum. íslenskir þátt- takendur komast hér vel frá sínu, og er fróðlegt að sjá viðfangsefni þeirra í því náttúrulega samhengi sem sýning af þessu tagi veitir. Það þarf vart að minna hand- verksfólk á þessa fróðlegu sýningu, en hér er einnig að finna fjölmargt sem ætti að gleðja auga og sál allra listunnenda. Eiríkur Þorláksson Dröfn sýnir í Stöðlakoti DRÖFN Guðmundsdóttir opnar sýningu í Listhúsi 39, Hafnar- fírði, næstkomandi laugardag. Þetta er önnur einkasýning Drafnar, en áður sýndi hún í Stöðlakoti 1994. Hún hefur einnig tekið þátt í nokkrum sam- sýningum. ■ Dröfn út- skrifaðist úr MHÍ, mynd- höggvara- skor, 1993. Einnig hefur hún lært gler- bræðslu hjá bandarískum gier- listamanni, Chris Ellis, og farið á ýmis námskeið varðandi list síná síðan hún útskrifaðist. Verkin á sýningunni eru unnin úr gleri, málmum og tré. Sýningin er opin daglega til 21. apríl frá kl. 14-18. Kjörbók Landsbanka íslands hefur í 12 ár verid langhagstæðasta og vinsælasta óbundna bankabók landsins. Þann tíma hefur innstæða yfir 80.000 þúsund íslendinga vaxió og dafnað - rétt eins og Vala Flosadóttir 18 ára Evrópumeistari í stangarstökki. Báðar eru fremstar á sínu sviði hér á landi og þótt víðar væri leitað. KJÖRBÓK Landsbanki íslands Banki allra landsmanna i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.