Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Gjaldskrár Landsvirkjunar og stærstu dreifiveitna hækkuðu um mánaðamótin Raforkuverð hækkar um 3% Afsláttur á rafmagni til húshitunar aukinn GJALDSKRÁ Landsvirkunar hækkaði um 3% um nýiiðin mán- aðamót og hækka stærstu dreifi- veitur einnig raforkuverð sitt um sama hlutfall frá sama tíma. Leiðir til 0,03% hækkunar vísitölu neysluverðs Landsvirkjun hefur ekki hækk- að raforkuverð frá því í janúar 1994, að sögn Þorsteins Hilmars- sonar, upplýsingafulltrúa Lands- virkjunar, sem bendir á að gjald- skráin hafí lækkað að raungildi miðað við verðiagsbreytingar. Hækkunin nú sé nauðsynleg út frá fjárhagsstöðu fyrirtækisins. Hækkun gjaldskrárinnar er minni en sem nemur hækkun byggingarvísitölu sem hækkaði um 6,3% frá því að raforkuverð hækkaði síðast. Talið er að raf- orkuverðshækkunin nú muni leiða til um 0,03% hækkunar á vísitölu j BIODROGA Lifrænar | jurtasnyrlivörur f Enginauka ilmefni. BIODROGA 1 neysluverðs. Að ósk Finns Ingólfssonar iðn- aðarráðherra hafa Rafmagnsveit- ur ríkisins og Orkubú Vestfjarða ákveðið að auka afslátt á raf- magni til hitunar íbúðarhúsnæðis þannig að kostnaður við upphitun hækki ekki meira en hin almenna hækkun á raforkuverði en að óbreyttu hefði hækkun útsölu- verðs raforku leitt til hlutfallslega meiri hækkunar á raforku til hús- hitunar eða um 5%. Munu dreifi- veiturnar því hækka afslátt á raf- orku til hitunar íbúðarhúsnæðis úr 0,03 krónum á kílówattstund (kr/kWh) í um 0,08 kr/kWh. Niðurgreiðslur ríkis til húshitunar 450 millj. kr. Ríkið ver 450 milljónum kr. til niðurgreiðslna á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis á þessu ári. Lands- virkjun hefur einnig veitt afslátt á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis og dreifíveitur sem selja raforku til hitunar hafa veitt viðbótaraf- slátt til lækkunar húshitunarkostn- aðar. Skv. upplýsingum iðnaðar- ráðuneytisins hafa þessar þijár aðgerðir leitt til þess að rafhitunar- kostnaður heimila hefur undanfarið verið um 1,8 kr/kWh lægri en ella væri eða sem nemur 67 þús. kr. á ári á húsnæði vísitölufjölskyldu, að teknu tilliti til álagningar virðis- aukaskatts og endurgreiðslu ríkis- sjóðs af hluta skattsins. fífflhjólp Dagskrá Samhjálpar í Þríbúðum um páskana: Föstudagurinn langi: Hátíðarsamkoma kl. 16.00. Ræðumaður Gunnbjörg Óladóttir. Laugardagur 6. apríl: Opið páskahús kl. 14.00-17.00. Heitt kaffi á könnunni. Lítið inn og rabbið um lífið og tilveruna. Almennur kórsöngur kl. 15.30. Páskadagur: Hátíðarsamkoma kl. 16.00. Samhjálparkórinn tekur lagið. Vitnisburðir. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Ræðumaður Óli Ágústsson. Allir velkomnir í Þríbúðir, félagsmiðstöð Samhjálpar, Hverfisgötu 42, um hátíðina. GleSilega páska! Samhjálp. HÖfum opnað lögfræðiskrifstofu í Hafnarstræti 20. 4. Iiæð (við hliðina á Héraðsdómi Reykjavíkur), undir nafninu: ■wiw,iaeMMi»nr;a Skrifstofan veitir einstaklingum og fyrirtækjum alla almenna lögfræðiþjónustu, s.s. málflutning • uppgjör slysabóta og annarra skaðabóta • innheimtur • kaupmálagerð • erfðaskrár • skipti dánarbúa • hjónaskilnaðarmál • sambúðarslit • samningagerð • fjárvörslu • eignaumsýslu • álitsgerðir • stofnun fyrirtækja og varnir í sakamálum. Einar Sigurjónsson hdl., Magnús Brynjólfsson hdl., Ómar Stefánsson hdl. Sími 552 5590, fax 562 7323. FRÉTTIR Seðlabanki sýknaður af kröfu viðskiptamanns Ávöxtunar ^ Morgunblaðið/Kristinn Ishár ÞÓTT sól sé farin að hækka á var í gærmorgun með „bítla- Iofti og hlýindi séu yfir daginn, hár“ úr ís, er Ijósmyndarinn ók er stundum kalt á næturna eins hjá. Strákurinn er við einn af og þessi mynd sýnir. Strákurinn söluturnum Nestis í Reykjavík. Nýr Þjórsár- dalsvegur í undir- búningi FYRIRHUGAÐUR Þjórsár- dalsvegur frá Þverá undir Gaukshöfða verður mun greiðfærari en núverandi vegur að mati skipulagsstjóra ríkisins, en frumathugun embættisins á umhverfís- áhrifum vegalagningarinnar er nýlega lokið. Um er að ræða vegagerð á 7,7 km löng- um_ kafla. Áætlað er að leggja 3,7 km af bundnu slitlagi á nú- verandi veg og byggja nýjan 4,0 km langan veg fyrir neð- an Gaukshöfða í Þjórsá. Nú- verandi vegur um Gauks- höfða verður áfram opinn allri almennri umferð, en markmið framkvæmdanna er að auka umferðaröryggi og fry&g)a greiðari samgöngur í Gnúpvetjahreppi. Jarðrask verði sem minnst Skipulagsstjóri setur m.a. skilyrði um að jarðrask utan vegsvæðis og aurburði í Þjórsá á verktíma verði haldið í lágmarki. Vinna í farvegi árinnar, efnistaka og fyllingar frá aprílbyrjun til júníloka verði alveg háð samráði við Suðurlandsdeild Veiðimálastofnunar, og ekki verði hróflað við basaltklett- um í sunnanverðum Gauks- höfða. UpplýsingTini leynt fyrir bankaeftirliti HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað Seðlabanka Islands af kröfum fyrrverandi * viðskiptamanns Ávöxtunar hf., sem Héraðsdómur hafði dæmt tæplega 100 þúsund krónur í skaðabætur þar serh bankaeftirlit Seðlabankans hafi ekki sinnt eftirlitsskyldúm sínum með starfsemi Ávöxtunar með fullnægjandi hætti frá 12. júlí 1988 þar til starfsemi fyrirtækis- ins var hætt 20. ágúst 1988. í máli sem maðurinn höfðaði krafðist hann 1,7 milljóna króna skaðabóta en Héraðsdómur dæmdi Seðlabankann til að greiða mann- inum þau u.þ.b. 60% sem vantaði á að hann hefði fengið til baka það fé sem hann fól fyrirtækinu að ávaxta eftir 12. júlí 1988. Með dómi Hæstaréttar í gær er bankinn sýnaður af öllum kröf- um mannsins. „Á það verður að fallast, _ að bankaeftirlit Seðla- banka íslands hafi haft tilefni til þess að ganga fyrr og af meiri festu en gert var eftir upplýsingum úr bókhaldi og reikningsskilum Ávöxtunar sf. og Verðbréfasjóðs Ávöxtunar hf. þegar líða tók á árið 1988,“ segir í dóminum. „Bankaeftirlitið hafði ríka ástæðu til tortryggni og á því hvíldi skylda til frumkvæðis.“ Þá segir að á hinn bóginn sé þess að gæta, að verðbéfamarkað- ur hafi á þessum tíma verið í mótun hér á landi og hafi ekki búið við ítarlegar lagareglur en verið viðkvæmur fyrir beinum af- skiptum opinberra eftirlitsaðila. Upplýsingum um raunverulega stöðu félaganna hafi ýmist verið haldið leyndum fyrir bankaeftirlit- inu eða látið undir höfuð leggjast að koma þeim á framfæri. Framkvæmdastjórar Ávöxtunar og endurskoðandi hafi verið látnir sæta refsiábyrgð fyrir að rang- færa ársreikninga en gera verði ráð fyrir að eftirlitið hefði látið til skarar skríða fyrr ef það hefði fengið örugga vitneskju um upp- lýsingar um stöðu félagsins og sjóðanna. Ekki verði því talið að bankaeft- irlit Seðlabankans hafi sýnt sak- næmt athafnaleysi og bakað sér fébótaábyrgð gagnvart viðskipta- manninum. Fengu 40% nafnvirðis greitt Starfsemi Ávöxtunar sf. stöðv- aðist 20. ágúst 1988 og bankaeft- irlit Seðlabankans hóf sérstaka rannsókn á starfsemi Verðbréfa- sjóðs Ávöxtunar hf. og Rekstrar- sjóðs Ávöxtunar hf. tveimur dög- um síðar og í framhaldi af því var starfrækslu þeirra hætt og skila- nefndir kosnar. Skilanefndirnar greiddu eigend- um hlutdeildarskírteina í sjóðun- um liðlega 40% af nafnverði inn- stæðna. Um 1.100 aðilar lýstu kröfum í sjóðina fyrir um 250 milljónir króna að nafnvirði. Eig- endur Ávöxtunar voru dæmdir í Hæstarétti í 2 og 2 'A árs fang- elsi fyrir ýmis brot í tengslum við rekstur Avöxtunar og verðbréfa- sjóðanna. Dalsel 6 - 4ra herb. 100 fm glæsileg íb. á 1. hæð. Rúmgóð 3 svefnherb. Sérmerkt bílastæði í bílskýli. Áhvílandi hagstæð lán kr. 4,3 millj. Verð 7,8 millj. Laus í júní. Opið hús laugardag kl. 14 til 17. Þóra sýrtir, sími 557 7284. EFasteignasalan 564-1500 EIGNABORG sf. jp Hamraborg 12 - 200 Kópavogur ”
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.