Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 39 Lára Ólafsdótt- ir fæddist á Skjaldarstöðum i Oxnadal 9. ágúst 1915. Hún lést í Sjúkrahúsi Suður- lands 29. mars síð- astliðinn. Foreidrar Láru voru hjónin Jóhanna Magnús- dóttir fædd 22. febrúar 1881, dáin 18. júní 1970, og Ólafur Jónsson fæddur 9. október 1887, dáinn 14. febrúar 1971. Börn Jóhönnu og Óiafs voru auk Láru, Þorsteinn f. 1917, d. sama ár, Jón f. 1918, d. 1919, Anna Aðalheiður f. 4. febrúar 1920, d. 17. september 1993, Jón Hild- mann f. 17. mars 1921 og Stef- án Kristinn f. 1922, d. sama ár. Jóhanna átti fyrir dótturina Klöru f. 16. október 1909. Lára ólst upp hjá foreldrum Elskuleg móðursystir mín hefur nú kvatt og hrannast þá upp minn- ingar liðinna ára. Lára hefur verið fastur punktur í tilverunni svo langt sem ég man, en hún var allt- af á heimili afa og ömmu, þangað var ég send eins árs og ílengdist ég þar um tíma eða þangað til að foreldrar mínir fluttu í sama hús og þau bjuggu í. Ég man eftir að sínum á Miðlandi og Hraunshöfða í Öxnadal, en árið 1938 flytja þau til Akureyrar og fór Lára þá fljótlega að vinna í skógerð Ið- unnar. Fljótlega eftir komuna til Akureyrar veikist Lára og missir heyrnina og fer þá að vinna við að sauma herraskyrt- ur fyrir verslun, auk þess vann hún á heimili foreldra sinna alla tíð þangað til þau fóru á elliheimili og eftir það hélt hún heimili með Jóni, bróð- ur sínum. Árið 1988 flylja Lára og Jón til systurdóttur sinnar i Hveragerði og hafa búið þar síðan. Útför Láru fór fram 3. apríl síðastliðinn í kyrrþey að ósk hinnar látnu. þegar að afi fór ofan kl. 5 á morgn- ana til að kveikja upp í kolavél- inni, þá var Lára alltaf komin á fætur og búin að kynda eldhúsið með olíuofni og hella upp á kaffi, þá fékk lítil stelpa kaffisopa með afa. I minningunni er Lára alltaf eitt- hvað að vinna, elda og baka, því mikill var gestagangurinn og ávallt MINNINGAR tekið vel á móti öllum, eða að hún sat við saumavélina og margar flíkumar gerði hún á okkur systra- börnin. Lára hafði yndi af blómum og hafði hún hluta af garðinum við húsið, þar ræktaði hún tré, alls konar blóm og rabbabara. Lára ferðaðist ekki mikið um dagana en hennar bestu skemmti- ferðir voru að fara til beija og fór hún nánast hvert haust þangað til hún flutti til Hveragerðis 1988, en komst þó norður í ber tvisvar eftir það, síðast 1994. Lára og Jón bróðir hennar fluttu til mín fyrir tæplega átta árum og hafa verið hjá mér síðan. Meðan Lára hafði heilsu bakaði hún og eldaði ef ég þurfti á því að halda, og alltaf var hún til staðar þannig að yngsta dóttir mín kom aldrei heim að lokuðu húsi og alltaf ein- hver sem tók á móti henni og það er mikils virði í nútímasamfélagi þegar báðir foreldrar verða að vinna úti. Ég, Svenni, Árni og fjölskylda, Sigurbjörg og fjölskylda og Eva Rós þökkum þér samfylgdina og það sem þú hefur verið okkur, elsku frænka. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi,' hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín Magnea LARA ÓLAFSDÓTTIR GUÐMUNDUR SIGFÚSSON + Guðmundur Sigfússon fædd- ist í Egilsstaðakoti í Flóa 16. mai árið 1913. Hann lést á Hrafnistu í Hafnar- firði 28. mars sl. Foreldrar hans voru Gróa Gests- dóttir frá Geldinga- liolti í Gnúpverja- hreppi og Sigfús Benóný Vigfússon frá Söndum í Með- allandi. Þau eign- uðust 12 börn og öll eru þau látin nema Guðjón sem nú býr á Sólvöllum á Eyrarbakka. Árið 1936 kvæntist Guðmundur eft- irlifandi konu sinni Þorbjörgu Pálsdóttur frá Svínadal i Kelduhverfi. Þau eignuðust níu börn, þau eru Jónína Björg, f. 1937, Guðmundur Sigurpáll f. 1939, Garðar f. 1941, Sveinveig f. 1942, Árni f. 1946, Þórdís Gróa f. 1949, Svan- hildur f. 1950, Bryiyar Heimir f. 1957 og drengur f. 1958, d. 1958. Guð- mundur var bóndi um margra ára skeið og bjó lengst á jörðinni Fljóti í Fljótshlíð. Árið 1959 fluttu þau hjón til Þorlákshafnar og hóf hann þá störf hjá Meitl- inum hf. og lauk þar starfsferli sínum 73ja ára að aldri. Guð- mundur verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju í Þorlákshöfn, laugardaginn 6. apríl og hefst athöfnin kl. 14. ana og búinn að gera svo margt þegar aðrir risu úr rekkju. Eg verð ævinlega þakklátur fyr- ir það að hafa átt Guðmund fyrir afa. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég þakka starfsfólkinu á deild 2 B á Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir ein- staka umönnun, hjálpsemi og alúð- legt viðmót. Einnig vil ég fyrir hönd móðursystkina minna þakka Sveinveigu sem að öðrum ólöstuð- um hlynnti að afa af eindæma ósérhlífni. Guðbjörn Árnason. í Spámanninum stendur skrifað: „Og hvað er að hætta að draga andann annað en að frelsa hann frá friðlausum öldum lífsins, svo að hann geti risið upp í mætti sín- um og ófjötraður leitað á fund Guðs síns?“ Ég veit að þessi orð eiga vel við elsku afa minn sem nú er hvíldinni feginn. Síðustu vik- urnar voru honum erfiðar enda farinn að heilsu og kröftum þegar yfir lauk. Það hlaðast upp minningar þeg- ar litið er til baka. Þær minningar mun ég geyma í huga mér og kalla fram til að ylja mér um hjartaræt- ur um ókomna tíð. Ég minnist þess hversu hress í bragði hann var ávallt. Ég heyri hann enn í huganum raulandi og flautandi þegar hann kom i sveitina á vorin °g var að gá til kinda á sauð- burði. Mér sem litlum dreng var óskiljanlegt hvemig hann gat verið kominn á fætur fyrir kl. 5 á morgn- Séifræðingar í blómaski-oyliiigiim vió »11 LrUilirri m blómaverkstæði »INNA* Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 t Hjartkær móðir okkar, GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR, Akursbraut 22, Akranesi, sem lést í Sjúkrahúsi Akraness 1. apríl, verður jarðsungin frá Akraneskirkju þriðjudaginn 9. apríl kl. 14.00. Dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför JÓNS GUÐMUNDAR JÓNSSONAR frá Vestra-íragerði, Stokkseyri, fer fram frá Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 10. apríl kl. 14. Fyrir hönd frændfólks og annarra vandamanna, Elín Bachmann, Guðný Pétursdóttir, Jón Adólf Guðjónsson. t Elskuleg móðir okkar, HREFNA TRYGGVADÓTTIR, Norðurbrún 1, lést á heimili sinu 2. apríl. Theodóra Steinþórsdóttir, Erla Steinþórsdóttir, Sigtryggur Steinþórsson, Egiil Steinþórsson. t Móðir okkar, EMILÍA GRÖNVOLD frá Litlu-Skógum, síðast til heimilis á Skúlagötu 40, sem lést mánudaginn 1. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtu- daginn 11. apríl kl. 15.00. Halldór Grönvold, Karl Grönvold. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa ög langafa, JÓNATANSLÁRUSAR JAKOBSSONAR fyrrv. skólastjóra, Leifsgötu 4, Reykjavik. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrun- ardeildar G2, Hrafnlstu, Reykjavík. Jakob Jónatansson, Stefán Jónatansson, Ása Benediktsdóttir, Auður H. Jónatansdóttir, Aðalsteinn K. Guðmundsson, Sigrún Ó. Jónatansdóttir, Gestur Björnsson, Benedikt Th. Jónatansson, Gréta Lárusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát og útför ÖNNU VALGERÐAR JÓNSDÓTTUR, Kópavogsbraut 1 b, Kópavogí. Erla Ingólfsdóttir, Sveinn Gústavsson, Ásbjörg Ingólfsdóttir, Magnús Gíslason, Halidór Halldórsson, Ragnheiður Héðinsdóttir, Inga Þórunn Halldórsdóttir, Þorsteinn Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar KRISTINS FRIÐÞJÓFSSONAR, Urðargötu 15, Patreksfirði. Sólrún B. Kristinsdóttir, Guðni Jónsson, Hauður Kristinsdóttir, Magnús Alfonsson, Þóra Sjöfn Kristinsdóttir, Anna M. Kristinsdóttir, Gísli Reynisson og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir vinsemd og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐBJARGAR JÓNSDÓTTUR, Hrafnistu, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, Reykjavík. ingibjörg Júnia Gísladóttir, Sigurgeir Jónsson, Þorsteinn Gíslason, Sigríður Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.