Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR KARA klippti niður birkigreinar sem ÞÁ ER að búa til hreiður úr hálmi, byijaðar eru að springa út og batt basti ef vill, greinum og stráum. þær saman í lítið knippi sem hún festir með vír á körfuna. Páskaskraut EF FÓLK á lítinn garð með tijám og grasi eða hefur aðgang að siíkum bletti þá þarf ekki mikið meira til ef búa á til fallegt páskaskraut. Hún Kara Jóhannesdóttir hjá Blómum og ávöxtum býr að minnsta kosti til skemmtilegar skreytingar sem hún seg- ir að séu að uppistöðu úr því sem finna má í görðum alls staðar. „Margir eru að reyna að eyða mosa úr grasi þessa dagana. Ef fólk tínir hann og þurrkar á dagbiöðum er hann frábær undir- staða í náttúrulega páskaskreytingu," seg- ir hún. Hægj; er að kaupa frauð (oasis) í blóma- verslunum. Sumir vilja skreyta frauðhririgi en síðan má skera til frauð í allskyns ílát eftir smekk hvers og eins. Blöð af pottaplöntum má nota líka Mosinn er festur í frauðið með vírlykkj- um og það má líka nota blöð af pottaplönt- um til að þekja frauðið með mosanum. „Að þessu búnu er ágætt að nota þær greinar sem búið er að klippa í garðinum. Greinar af öspum og birki springa fallega út séu þær látnar i vatn. Lítilli grein er tilvalið að stinga í frauðið og ekki úr vegi að láta lítinn hana standa þar.“ Kara segir að það komi líka vel út að klippa litlar greinar niður í tíu 5-10 sentimetra greinarstúfa og víra nokkra saman í knippi sem síðan er stungið niður í frauðið. Lítil hreiður er hægt að búa til úr grein- um með því að vefja þær og kannski hafa hálm eða strá með. Eggin í hreiðrið er hægt að kaupa ef vill en ennþá betra er kannski að mála lítil hænuegg með 'te- vatni, vatnslitum eða öðru og setja í hreiðr- ið. Þá þarf fyrst að blása úr eggjunum. Kara bendir líka á að þurrkaðar rósir séu fallegar í páskaskreytingar, ýmis önn- ur þurrkuð blóm, strá, börkur af greinum, gijót og svo framvegis. „Þetta þarf ekki að kosta neitt, ungarnir geta verið af göml- um páskaeggjum en þar að auki kosta þeir lítið í verslunum og síðan hafa börn mjög gaman af því að tína í garðinum hráefni í páskaskraut. Tími og hugmynda- flug er í raun það sem þarf.“ BÚIÐ að skera til frauð í tágakörfu og hér er Kara byrjuð að hyljafrauð- ið með galaxi-blöðum og reyndar má nota önnur falleg blöð af pottaplönt- um í skreytinguna. Mosi úr garðinum sem búið er að þurrka er líka tilval- inn þegar þarf að hylja frauð (oasis). ÞURRKAÐAR rósir koma vel út í skreytingu eins og þessari og þeir sem vilja geta notað gula borða og litskrúðuga unga. SKREYTINGIN tilbúin á páskaborðið. * 1 SiWW'' TILBOÐIN ' NÓATÚN GILDIR 2.-6. APRÍL Grísahryggur með puru, kg 699 kr | Pekingendur, kg 499 kr. Kalkúnar, kg 698 kr.! Öra grænar baunir, Vi dós 48 kr. Luxus maískorn, '/2 dós 39 kr. Pepsi Cola, 21 129 kr. BKI kaffi, 400 g, rautt 219 kr. Cape vínber, blá og græn, kg 249 kr. KAUPGARÐURí MIÓDD GILDIR tll 10. APRÍL Kaupgarðs hamborgarhryggur, kg 939 kr. i | Nautainnanlæri, kg 1.198 kr. Náutafilet, kg 1.298 kr. Svínalundir, kg 1.198 kr. Þurrkrydduð svínarif, kg 489 kr. Urvals Londonlamb, kg 889 kr. Grafinn og reyktur lax, kg 1.399 kr. Thule pilsner, 0,51 59 kr. FJARÐARKAUP GILDIR 4. og 6. apríl Svínalæri, kg 398 kr. Svínakótilettur, kg 798 kr. Sykursaltað paskalæri, kg 798 kr. Mjúkís 1 I 198 kr. Sælumolar 198 kr. Rósakál og gulrótarskífur3ÖÖg 89 kr. Víanetta ísterta 198 kr. Maxwell House kaffi, 500 g 299 kr. Eggjabakki, 10stk. 168 kr. Kremkex súkk/vanillu 87 kr. Sérvara Sprittkerti, 30 Stk. 129kr.< Duni kerti, 4 litir, i Ö stk. 149 kr. Pampers bleiur st. pk. + bl.klútar 1;S8ðkr. Servíettur, 75 stk. 109 kr. Herra pólóbolir 667 kr. BÓNUS GILDIR 3.-6. APRÍL Bónus hamborgarhryggur, kg 699 kr. Ali hamborgarhryggur, 15% afsl. við kassa Búkonugraflax, kg 790 kr. Bónus graflaxsósa, 400 ml 99 kr. Rækjur, 1 kg 499 kr. Kiddi kaldi, 10 klakar 159 kr. Hrís ísterta 259 kr. 5 Bónus cola, 2 I, sjötta flaskan frí Sérvara í Holtagörðum Hrærivélmeð skál 2.459 kr. Euroiine hárblásari 997 kr. Digítal vekjaraklukka 897 kr. Svefnpokar 1.597 kr. Philipsrakvél 5.547 kr. Álba hljómtækjasamstæðan 12.400 kr. HAGKAUP GILDIR TIL 10. APRÍL Hagkaups smjörlíki. 500 g 65 kr. | Hagkaups majones, 500 g 79 kr. Thol blár kastari, 150 g 139 kr. j Kaíkúnar, kg 798 kr. | 10 pylsur/bakaðar baunir/spaghetti 398 kr. I Búkonu reyktur og grafinn lax, kg 898 kr. Millistórarrækur, kg 569 kr. j Appelsínur, kg 79 kr. Mosi úr grasinu og greinar af trjánum í skreytinguna Morgunblaðið/Árni Sæberg NÁTTÚRULEG páskaskreyting sem Kara Jóhannesdóttir, hjá Blómum og ávöxtum gerði og gefur örugglega einhverjum lesendum hugmyndir. Islandsmet í tertuskreytingnm HÓPUR bakara leggur nú drög að því að skreyta á mettíma gríðarstóra brúðartertu fyrir gesti á sýningunni Matur 96 sem verður haldin í íþrótta- húsinu í Smáranum í Kópavogi 19-21 apríl nk. „Bakarasveinafélag íslands verður með bás á sýningunni þar sem tertan verður skreytt, jafnframt því sem sýnd verða nokkur skreytingarstykki úr súkkulaði, sykri, marsípani, brauð- deigi og fleiru," segir Jón Rúnar Aril- íusson, lslandsmeistari í kökuskreyt- ingum og bakari hjá Bakarameistar- anum í Suðurveri. Jón Rúnar gefur lesendum uppskrift að páskatertu. Súkkulaðiterta bakarameistarans Uppskriftin er í tvær tertur _______135 q smjörlíki_____ _______350 q sykur_________ ___________3 egq _________ 55gkakó 300 g hveiti ______'Atsk. natrón______ _______'Msk. lyftiduft_____ salt á hnífsoddi 'Al m ólk vanilludropar Morgunblaðið/Þorkell JÓN Rúnar Arilíus- son við páska- borð. Blandið saman smjörlíki, sykri og kakói. Bætið eggjum út í og hrærið í hálfa mínútu. Blandið þurrefnum saman við og hrærið aftur í hálfa mínútu. Að síðustu er mjólkinni blandað rólega saman við og vanillu- dropunum. Sett í tvö mjög vel smurð springform, um 22 cm í þvermál og bakið við 170°C uns kakan er bökuð eða í 40-60 mín. _______________Krem:______________ 1,2 kg flórsykur 120 g kakó ____________ _________200 g brætt smiör__________ ____________4 stór egg______________ 4 tsk, vanilludropgr örlítió vatn el þgrf Blandið saman kakói og flórsykri og bætið síðan við bræddu smjörinu á meðan það er heitt. Setjið egg og vanilludropa saman við og vatn ef þörf er á. Kljúfið hvorn botn í þrennt. Smyijið kreminu á milli botna og ofan á báðar terturnar. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.