Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 9
FRETTIR
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Sumar ár
opnar -
aðrar ekki
ENN VEIÐIST vel á sjóbirtingsslóð-
um á Suðurlandi og veiðimenn eru
samdóma um að mikill fískur sé á
leið til hafs. Víða er þó vorveiði ekki
leyfð og þeim veiðistöðum hefur
fækkað þar sem slíkur veiðiskapur
er leyfilegur. Þó uppsveifla sé nú í
sjóbirtingsstofnum, þá hafa mörg hin
síðari ára verið mögur og margur
viljað kenna um vorveiðinni, en al-
kunna er að menn geta dregið marga
fiska á skömmum tíma þegar vel
hittist á. Fiskifræðingar segja þó
engin gögn enn sem komið er stað-
festa að vorveiðin spilli stofnunum.
Ólafur Oddsson, bóndi í Mörtungu,
formaður Veiðifélags Skaftár, sagði
í samtali við Morgunblaðið að sums
staðar á Skaftársvæðinu hefði vor-
veiði verið bönnuð. Aðalstaðirnir
væru Geirlandsá og Vatnamótin, en
í Skaftá sjálfri væri aðeins reynd
stangaveiði fyrir löndum Hæðar-
garðs og Nýjabæjar og það í litlum
mæli. Stangaveiðifélag Keflavíkur
er með Geirlandsá og Vatnamótin á
leigu, en Jón Marteinsson og fleiri
eru með Hörgsá á Síðu sem komst
í fréttirnar í vikunni er barnungir
drengir, 5 og 12 ára, veiddu stærstu
sjóbirtinga þessa vors til þessa.
Veiðileyfi í Hörgsá eru seld í verslun-
inni Veiðilist í Síðumúla, en veitt er
í neðanverðri ánni á tvær stangir.
Af öðrum sjóbirtingsslóðum má
nefna Varmá við Hveragerð, en í
hana eru seld veiðileyfi á skrifstofu
Landssambands veiðifélaga í Bol-
MERKI fluguhnýtinga-
keppni LS.
holti. Vorveiði er bönnuð í Eldvatni
og ekki leyfileg fyrr en iiðið er nokk-
uð á maí í Tungufljóti, sem SVFR
hefur á leigu ásamt Stakki í Vík.
Vorveiði hefst ekki í Grenlæk fyrr
en í mai og er þá aðallega^ veitt í
Flóðinu. Stangaveiðifélagið Armenn
eru með Flóðið á leigu. I Ytri Rangá
hefur verið vorveiði í vísindaskini
síðustu ár, fiskur verið merktur og
sleppt aftur.
Fluguhnýtinga-
keppni LS
„Það er komið að lokakeppninni,
þátttaka hefði mátt vera meiri, en
þetta er allt í lagi og það stefnir í
spennandi keppni. Lokaátakið verður
í húsakynnum Ármanna í Dugguvogi
13. apríl næst komandi,“ sagði Jón
G. Baldvinsson, formaður Landsam-
bands veiðifélaga, í samtali við Morg-
unblaðið í vikunni. Jón er að tala um
fluguhnýtingarkeppni sem félög inn-
an LS samþykktu að gangast fyrir
og hefur farið fram undankeppni
innan félaganna. „Það eru furðu
margir snillingar í fluguhnýtingum
hér á landi og það verður spennandi
að sjá útkomuna," bætti Jón við.
Veiðimaðurinn
helgaður Norðurá
Tímaritið Veiðimaðurinn, er ný-
komið út. Það er ekki í frásögur
færandi nema vegna þess að blaðið
er stærra og efnismeira en í annan
tíma og algerlega helgað Norðurá.
Það er gert í tilefni af því að í hönd
fer senn fertugasta vertíðin að SVFR
hefur haft ána á leigu. Á síðum blaðs-
ins koma saman flölmargir úr röðum
bænda, stjórnarmanna SVFR og
annarra sem sótt hafa Norðurá heim.
Er þarna að finna mikið efni um
Norðurá úr núttíð og fortíð.
C
marsip'anskreytingar með Jóa Fel.
Fullkomið kennslumyndband
á kr. 2.600.
Pantanasími 551 3311
á verslunartíma.
MGM-sjónvarpsefni.
Úival af fágætum
smámunum
og fallegum
antikhúsgögnum
Antikmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Á enqann sinn líka
í verðldinni
Kyolic daglega, það gerir gæfumuninn.
/ Kyolic hvítlaukurinn er lífrænt ræktaður.
/ Tveggja ára kaldþroskun eykur virkni og fjarlægir lykt.
/ Kyolic er stöðluð afurð. Trygging kaupenda.
/ 250 gæðaprófanir í framleiðslu.
/ Áratuga vísindarannsóknir.
/ Vinnur gegn oxun, blóðfitu og fl.
/ Olíu- og vatnsuppleysanlegt. Virku efnin varðveitast.
/ 12 alþjóðlegt einkaleyfi
Fáanlegt í hylkjum, töílum
og í fljótandi formi
Kyolic - Líkami þinn finnur muninn
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunnh
89 milljonir
Dagana 28. mars - 2. apríl voru samtals 89.512.560 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öðrum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður Upphæð kr.
28. mars Kringlukráin 119.892
29. mars Háspenna, Laugavegi 229.225
29. mars Háspenna, Laugavegi 58.322
30. mars Eden, Hveragerði 221.373
31. mars Bíóbarinn 109.031
31. mars Garðakráin, Garðabæ 51.188
1. apríl Hótel Saga 220.732
1. apríl Gúlliver 169.792
1. apríl Háspenna, Laugavegi 64.226
Staða Gullpottsins 3. apríl, kl. 10.00
var 7.381.284 krónur.
Silfurpottarnir byrja ailtaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta.