Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDNAMA
HREYFIAFL í FF.RDAhJÓNUSTU
kyn n f r: Ráðstefnu um
á Hótel Eddu, Flúðum 19. og 20. apríl.
Dagskxá
Umhverfi - afþreying - vistvænn rekstur - markaðssetning
Dagur I
ki. 10.30 Setning
Fulltrúi samgönguráðuneytisins
Kl. 10.45 Ávarp
Fulltrúi umhverfisráðuneytisins
Ki. íi .oo „Ecology Management“
Kenningar grænnar ferðamennsku sem stjórntæki.
Prof. dr. Flansruedi Muller, Forschungsinstitut Bern,
Sviss.
ki. 11.45 „International practical examples of green
tourism"
„Eco audits" fyrir ferðaskrifstofur, umhverfisvottun,
náttúrugjald, skipulagsmál o.fl. Angelika Frei,
markað's- og ferðaráðgjafi Futour, Þýskalandi.
ki. 12.30 Hádegisverður - „græn skoðunarferð".
ki. 15.00 „Að koma til móts við breyttar kröfur
ferðamannsins?"
Geta íslenskir gistí- og veitingastaðir pýtt sér reynslu
Finna varðandi sjálfbæran rekstur? Bændagisting.
Jouko Parviainen, yfirmaður umhverfisráðgjafar
Savonia, Finnlandi
ki. 15 45 Eftirmiðdagshressing
Ki. 16.10 „Viskubrunnur náttúrunnar11
Um samspil náttúru, mannlífs og fræðslu. '
\/irk ferðamennska.
Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur.
ki. 16.40 „Svipir fortíðar í landslagi“
Um kynningu fornminja og sögufrægra staða fyrir
Birna Gunnarsdóttir, MA Archeological Heritage
Management.
Ki. i7.io Þátttakendur velja sér vinnuhóp.
Kl. 19.00 Fordrykkur, kvöldverður og kvöldvaka
með fjölbreyttum skemmtiatriðum.
Dagur II
Kl. 09.30 „Umhverfismál og ferðamenning nútímans"
Mikilvægi umhverfismála fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Á hverju byggir hin græna ímynd?
Björn Guðbrandur Jónsson, umhverfisráðgjafi.
ki. ío.oo „Bændur flugust á“
Er hægt að selja ferðamönnum menningararfinn?
Arthúr Björgvin Bollason, rithöfundur.
Kl. io.30 „Mannvirki sem aðdráttarafl fyrir ferðamenn"
Um hönnun mannvirkja í náttúrunni.
Pálmar Kristmundsson, arkitekt.
ki. i í.oo „Ábyrg upplýsingamiðlun endurspeglar
sterka ímynd“
Glöggt er gests augað. Úttekt á kynningarefni sem á
boðstólum er fyrir erlenda ferðamenn.
Dr. Coletta Burling, forstöðumaður Goethe Institut.
ki. 11.30 „Persónuleg þjónusta - lykilatriði í grænni
ferðamennsku"
Hvaða skilning leggjum við í þjónustu? Hvernig stöndum
við okkur í þjónustu við ferðamenn? Leiðir til bættrar
þjónustu.
Sigurður Helgason, þjónusturáðgjafi Landnámu.
ki. 12.00 Hádegisverður
Kl. 13.00 „Hugmyndir um ísland: Hvað veit sá sem
ekkert veit?“
Könnun á hugmyndum um ísland.
Ragnar Ólafsson, MSc félagssálfræði.
ki. 13.30 „Sterkt vörumerki skapar sérstöðu
á markaðnum“
Samstilltar markaðsaðgerðir í átt að heilsteyptri
ímyndasköpun fyrir landið. Ferðaþjónusta -tæki til
landkynningar.
Pétur J. Eiríksson, framkvæmdastjóri markaðssviðs
Flugleiða.
Kl. 14 oo Hópvinna hefst.
Kl. i7.oo Ráðstefnuslit.
Skráning og nánari upplýsingar
veittar í síma 561 5835.
FLUGLEIDIR
^GOETHE INSTITUT
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
FLYTJENDUR á páskabarrokki; Sverrir Guðjónsson, Guðrún
Birgisdóttir, Anna Magnúsdóttir og Martial Nardeau. Á myndina
vantar Pál Hannesson.
Páskabarrokk
í Kópavogi
NÚ eru senn liðin tvö ár frá því
Listasafn Kópavogs-Gerðarsafn
hóf starfsemi sína. Á þessum
tíma hafa verið margar myndlist-
arsýningar og tónleikar í safninu
og ýmsar hefðir verið í mótun.
Til dæmis hefur Kópavogsbær
staðið fyrir barokktónleikum um
jól og páska frá upphafi í Lista-
safninu og svo verður einnig í ár.
Páskabarokk Kópavogs verð-
ur eins og í fyrra haldið laugar-
daginn fyrir páska, 6. apríl, kl.
17.
Sverrir Guðjónsson mun meðal
annars syngja fræga tónlist eftir
Hándel og úr kvikmyndinni Far-
inelli, sem sýnd hefur verið í
Háskólabíó undanfarið.
Á páskatónleikunum leika
eimiig Martial Nardeau og Guð-
rún Birgisdóttir á barokkflautur,
Anna Magnúsdóttir á sembal og
Páll Hannesson á violone.
Tónlistarmennirnir munu
flytja að auki Tríó-sónötu í G-
dúr, Kantötu No. 53 og Aríuna
Esurientes úr Magnificat eftir
J.S. Bach og sónötu eftir Vilhelm
Friedemann Bach.
Á barrokktónleikum Kópavogs
er leikið á upprunaleg hljóðfæri.
Listahátíð Sel-
tj arnarneskirkj u
ÞRIÐJA listahátíð Seltjarnarnes-
kirkju verður haldin í kirkjunni
7.-20. apríl næstkomandi. Yfir-
skrift og meginefni hátíðarinnar
er „Upprisan". Listahátíðin hefst
á páskadagsmorgun í hátíðar-
messu sem byrjar kl. 8. í guðs-
þjónustunni munu nemendur úr
ballettskóla Guðbjargar Björgvins
dansa. Að lokinni guðsþjón-
ustunni verður hátíðin formlega
sett með opnun myndlistarsýning-
ar. Þar munu ýmsir listamenn af
Seltjarnarnesi sýna verk tengd
upprisunni. Myndlistarsýningin
verður síðan opin á páskadag kl.
14-16 og annan I páskum kl.
14-17 og eftir það á virkum dög-
um frá kl. 20 til 22 en um helgar
í tengslum við tónleika og helgi-
hald.
Tónlist mun skipa veglegan
sess á hátíðinni. Laugardaginn
fyrir páska, 6. apríl, mun hljóm-
sveitin Jueily Orchestral Youth frá
Englandi halda tónleika í kirkj-
unni og heíjast þeir kl. 17. Að-
gangur á þessa tónleika er ókeyp-
is.
Tónlistardagskrá hátíðarinnar
verður annars sem hér segir:
Annan í páskum, 8. apríl, kl.
18. Tónleikar kórs og barnakórs
Seltjarnarneskirkju. Einleikarar
verða: Martial Nardeau, flauta;
Guðrún Birgisdóttir, flauta;
Gunnar Kvaran, selló; Viera
Gulázsiová, orgel, og Pavel Maná-
sek, orgel. Einsöngvarar: Þuríður
G. Sigurðardóttir, sópran; Svava
K. Ingólfsdóttir, messósópran, og
Sverrir Guðjónsson, kontratenór.
Stjórnandi: Viera Gulázsiová. Að-
gangseyrir: 1.000 kr.
Laugardaginn 13. apríl kl. 17:
Tónleikar kennara Tónlistarskól-
ans á Seltjarnarnesi. Einsöngvari:
Þuríður G. Sigurðardóttir. Ein-
leikarar: Peter Tompkins, Hall-
fríður Ólafsdóttir, Hinrik D.
Bjarnason, Jakob Hallgrímsson,
Sigurlaug Eðvaldsdóttir og Guð-
mundur Magnússon. Aðgangseyr-
ir: 1.000 kr.
Laugardaginn 20. apríl kl. 17:
Tónleikar karlakórsins Fóst-
bræðra. Einsöngvari með kórnum
verður Þóra Einarsdóttir. Stjórn-
andi: Árni Harðarson. Aðgangs-
eyrir: 1.000 kr.
Verk
fjögurra
tónskálda
frumflutt
HAMRARHLIÐAKORINN heldur
tónleika í Listasafni íslands þriðju-
daginn 9. apríl kl. 20.30. Á efnisskrá
eru eingöngu íslensk tónverk, flest
þeirra lítt þekkt eða hafa ekki verið
flutt áður. Allt eru
þetta verk eftir nú-
lifandi tónskáld og
mun kórinn frum-
flytja verk eftir Jón
Nordal, Snorra
Sigfús Birgisson,
raddsetningu eftir
Hróðmar Inga Sig-
urbjömsson á lagi
ömmu hans, Ing-
unnar Bjarnadótt-
ur, og stutt tónverk
eftir Hrafnkel Orra
Egilsson tónlistamema sem lýkur
burtfararprófi frá Tónlistarskólanum
í Reykjavík nú í vor.
Flest verk á efnisskránni eru sam-
in á seinustu 15 ámm fyrir Hamra-
hlíðarkórinn og stjórnanda hans, Þor-
gerði Ingólfsdóttur. Einsöngvari með
kómum er Hallveig Rúnarsdóttir kór-
félagi.
48 kórfélagar skipa nú Hamrahlíð-
arkórinn. Kórnum er boðið á alþjóð-
lega kórhátíð æskukóra í Japan í júlí
nk. og vinnur nú að undirbúningi
þeirrar ferðar.
Tónleikarnir í Listasafni íslands á
þriðjudagskvöld hefjast kl. 20.30. og
aðgöngumiðar verða seldir við inn-
ganginn.
-------♦ ♦ ♦-------
Þorgerður
Ingólfsdóttir
Kvenlegt
hraunrennsli
PEROS Teater í Stokkhólmi er leik-
hús sem býður upp á ýmiss konar
efni fyrir börn og fullorðna, m.a.
gestaleiksýningar. Anna Lena Pers-
son skrifar í Svenska Dagbladet um
nýlegan íslenskan
gjöming í Peros
Teater og talar um
ferskleika þessarar
íslensku heimsókn-
ar sem var helguð
nýju efni efír ís-
lenska kvenhöf-
unda. Dagskráin
nefndist Varalitur
og hraun og var í
flutningi Þóreyjar
Sigþórsdóttur leik-
konu.
Leikritið Skilaboð til Dimmu eftir
Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur var
flutt í heild sinni fyrir hlé. Anna Lena
Persson lýsir verkinu svo að það fjalli
„á absúrdan tragíkómískan hátt um
vegvillta leitandi konu sem leiti hugg-
unar í að lita varimar og lakka negl-
umar. Hún leitar meðal annars látins
föður síns í- eins konar frelsunar-
skyni.“
Einnig segir gagnrýnandinn að
þessi kona velti fyrir sér merkingu
lífs og ástar og sé full vanmáttar
gagnvart styijaldaröflum í heiminum:
„Innri hraunstraumur brýst fram í
leitinni að fegurð og samhengi í líf-
inu.“
-----♦ ♦ ♦----
Elísabet
Kristin
Jökulsdóttir
Þrjár konur
stórar
KJALLARALEIKHÚSIÐ hefur nú
aftur sýningar á leikritinu Þijár kon-
ur stórar eftir bandaríska leikrita-
skáldið Edward Albee í þýðingu
Hallgríms H. Helgasonar. Helgi
Skúlason er leikstjóri en með hlut-
verk fara Helga Bachmann, Edda
Þórarinsdóttir og Halla Margrét Jó-
hannesdóttir.
Onnur sýning verður á skírdag kl.
20.30, þriðja sýning verður laug-
ardaginn 6. apríl kl. 16 og fjórða
sýning mánudaginn 8. apríl kl. 20.30.