Morgunblaðið - 04.04.1996, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skipstjóri rússneska togarans hunzar fyrirmæli skipherra varðskipsins
„Tek ekki hermenn um borð“
VARÐSKIPIÐ Ægir kom að rúss-
neska togaranum Dmitríj Pokramo-
vítsj um kl. 7 í gærmorgun. Þá var
skipið að veiðum skammt utan efna-
hagslögsögunnar. Landhelgisgæslan
hafði veitt togaranum óslitna eftirför
frá því hann var staðinn að meintum
ólöglegum veiðum um 2,4 mílur inn-
an 200 mílna landhelgismarkanna
út af Reykjanesi á þriðjudag. Skip-
herra varðskipsins fyrirskipaði tog-
aranum þegar að stöðva og hífa inn
veiðarfæri og var togaranum til-
kynnt að fyrirhugað væri að senda
menn um borð í skipið. Skipstjóri
togarans neitaði því og mun hafa
sagt að hann „tæki ekki herfólk um
borð“. Skipið er svo hátt í sjó að
ekki verður farið um borð í það af
sjó nema með samþykki togara-
manna.
Fleiri togarar á vettvang
Helgi Hallvarðsson, skipherra og
yfirmaður gæsluframkvæmda, sagði
að skipherra varðskipsins hefðu ít-
rekað fyrirmæli sín mörgum sinnum,
en skipstjóri togarans neitað og bor-
ið því við að hann væri að bíða eftir
fyrirmælum frá útgerðarmanni
skipsins. Það hefði síðan verið um
kl. 9.25 að tveir rússneskir togarar
frá sömu útgerð hefðu komið á
svæðið og haldið sig nálægt togaran-
um. Þeir hefðu ekki verið að veiðum
heidur haldið sig í grenndinni eins
og þeir væru tilbúnir til að veita
togaranum liðsinni ef á þyrfti að
nama. rjuroi rogannn hefði komið á
svæðið milli klukkan ellefu og tólf
en hann hefði haldið sig fjær. Varð-
skipið hélt sig í nágrenni við hinn
meinta landhelgisbrjót og reyndi
einn togarinn að troða sér þar á
milli, en lét síðan af þeim tilraunum.
Fyrirmæli frá útgerðinni
Laust eftir kl. 15 í gær hafði varð-
skipið enn samband við togarann
þar sem hann var að veiðum og var
þess krafist að varðskipsmenn
fengju að fara um borð. Þá sagðist
skipstjórinn vera með þau skilaboð
frá útgerðinni að skipið væri að veið-
um á opnu hafsvæði og varðskips-
menn ættu ekkert erindi um borð.
Nú staðhæfði skipstjórinn að hann
hefði verið innan landhelgismark-
anna vegna vélarbilunar og veiðar-
færi hefðu ekki verið í sjó. Sagðist
hann hafa vitni að því.
Bar við vélarbilun
Flugvél Landhelgisgæslunnar TF-
SÝN kom að Dmitríj Pokramovítsj
að ólöglegum veiðum klukkan 15.37
á þriðjudag. Flugvélin hafði strax
samband við skipið og tilkynnti því
að það hefði mælst innan lögsögunn-
ar og var því fyrirskipað að hífa upp
veiðarfærin og halda til næstu ís-
lensku hafnar, að sögn Helga Hall-
varðssonar, skipherra og yfirmanns
gæsluframkvæmda hjá Landhelgis-
gæslunni.
Helgi sagði að það hefði ekki virst
koma skipstjóra togarans á óvart
að hann mældist vera innan lögsög-
unnar því hann hefði borið við vélar-
bilun. Klukkan 16.42 hafí hann tek-
ið inn pokann og þá sé togarinn
kominn eitthvað utar því hann mæl-
ist 0,7 sjómílur innan lögsögunnar.
Hann hafi sett á fulla ferð út fyrir
lögsöguna, lónað þar smástund en
hafi síðan byijað veiðar aftur 17.15.
Honum hafi verið gefið ljósmerki um
að hafa samband við flugvélina en
því hafi hann ekki sinnt.
Helgi sagði að jafnframt hefði
verið tekin ákvörðun að senda varð-
skipið Ægi á staðinn til að reyna
að taka togarann. Ægir hafi verið
við eftirlitsstörf á Seivogsbanka.
Hann hafí lagt af stað klukkan 17
og hafi verið kominn að togaranum
um klukkan 6 í gærmorgun. í milli-
tíðinni hafí flugvéi Landhelgisgæsl-
unnar sveimað yfír togaranum og
flugvél Flugmálastjórnar TF-DCA
leyst hana af þegar TF-SÝN hafí
þurft að halda til lands til að ná í
eldsneyti. Yfírmaður frá Landhelgis-
gæslunni hafí verið um borð í TF-
DCA til að eftirförin yrði samfelld.
TF-SÝN hafí farið aftur út eftir að
hafa tekið eldsneyti. Flugvélin hafi
þá haft tíu tíma flugþol og hafi hald-
ið áfram að sveima yfír togaranum
í alla fyrrinótt. Flugvél Flugmáia-
stjórnar hafí leyst hana aftur af um
kl. 05.30 í fyrrinótt þegar Ægir hafí
átt mjög skammt eftir til togarans.
Hélt áfram veiðum
Togarinn Dmitríj Pokramovítsj er
yfir 3.000 tonn að stærð og talið
er að um sjötíu manna áhöfn sé um
borð. í samskiptum togarans og
varðskipsins kom fram að afli hafi
verið þokkalegur en sé lítill nú. Fjöldi
togara frá ýmsum löndum er nú að
veiðum á tiltölulega þröngu svæði
rétt utan við landhelgismörkin á
Reykj aneshrygg.
Skipherra á varðskipinu Ægi er
Sigurður Steinar Ketilsson. Ægir er
1.200 tonn að stærð og áhöfnin er
19 manns.
Morgunblaðið/Þorkell
HELGI Hallvarðsson, yfirmaður gæsluframkvæmda, og Hafsteinn
Hafsteinsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, ásamt Guðmundi
Eiríkssyni þjóðréttarfræðingi, á leið á fund um togaramálið.
Vona að ekki komi til átaka
MEINT landhelgisbrot rúss-
neska togarans Dmitríj Po-
kromovítsj var til umfjöllunar í
dómsmálaráðuneyti, utanríkis-
ráðuneyti og sjávarútvegsráðu-
neyti í gær. FuIItrúar Landhelg-
isgæslunnar áttu fund með Þor-
steini Pálssyni dómsmálaráð-
herra í gær og fræddu hann um
gang málsins.
Að sögn Þorsteins Geirssonar,
ráðuneytisstjóra, vonuðust menn
til að ekki þyrfti að koma til
átaka.
Sendiherrann kallaður í utanríkisráðuneytið
Rússnesk
stjórnvöld
beiti sér í
togaramálinu
JÚRÍ J Reshetov, sendiherra
Rússlands, var kallaður í utanrík-
isráðuneytið klukkan hálfellefu
í gærmorgun, á fund þeirra
Sveins Björnssonar, staðgengils
ráðuneytisstjóra, og Guðmundar
Eiríkssonar þjóðréttarfræðings.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var sendiherr-
ann beðinn að hafa samband við
rússnesk sljórnvöld og fá þau til
að beita sér fyrir því að togarinn
færi að lögum og hlýddi skipun-
um Landhelgisgæzlunnar um að
sigla til hafnar á íslandi. Jafn-
framt var lögð áherzla á að
sljórnin í Moskvu beitti sér fyrir
því að atvik af þessu tagi endur-
tæki sig ekki.
Rússneska sendiráðið vildi
ekki tjá sig um málið í gær.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins hefur ekkert
Morgunblaðið/Árni Sæberg
JÚRÍJ Reshetov, sendiherra
Rússlands, var kallaður i ut-
anríkisráðuneytið í gærmorgun.
komið fram í máli togarans
Dmitríj Pokramovítsj sem bendir
til að það tengist óánægju Rússa
með niðurstöðuna í Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndinni
(NEAFC) um skiptingu á úthafs-
karfakvóta á Reylganeshrygg.
Rússar hafa áskilið sér rétt til
að mótmæla samþykktinni.
Þjóðréttarreglur um töku skipa utan lögsögumarka í hafréttarsáttmálanum
Verða að hafa veitt
óslitna eftirför
ÞJÓÐRÉTTARREGLUR um „rétt til
óslitinnar eftirfarar" eru í hafréttar-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þær
veita strandríki rétt til að taka land-
helgisbijót, þótt hann sé kominn út
fyrir lögsögumörkin, hafi skip eða
flugvélar strandríkisins veitt honum
óslitna eftirför. Landhelgisgæzlan
telur sig hafa viit reglurnar um
óslitna eftirför í smáatriðum er hún
elti rússneska togarann Dmitríj
Pokramovítsj eftir að hafa staðið
hann að meintum ólöglegum veiðum
innan fiskveiðilögsögunnar.
í 111. grein hafréttarsáttmálans
segir að veita megi erlendu skipi
óslitna eftirför þegar þar til bær yfír-
völd strandríkis hafi góða ástæðu til
að ætla að skipið hafi brotið lög og
reglur þess ríkis.
Rétturinn til óslitinnar eftirfarar
gildir meðal annars um brot í sér-
efnahagslögsögunni, þ.e. fískveiði-
lögsögunni, sem framin eru á þeim
lögum og reglum strandríkisins sem
gilda um efnahagslögsöguna. í þessu
tilviki er um að ræða brot á banni
við veiðum erlendra skipa í íslenzkri
fiskveiðilögsögu.
Gefa þarf stöðvunarmerki
Hafréttarsáttmálinn kveður á um
að óslitin eftirför teljist ekki hafín
nema skipið eða flugvélin, sem veiti
eftirför, hafí gengið úr skugga um
það, með þeim ráðum, sem tiltæk
kunni að vera, að skipið sem veitt
er eftirför sé innan marka landhelg-
innar eða efnahagslögsögunnar.
Landhelgisgæzlan telur rússneska
togarann hafa verið um 2,4 mílur
mnan lögsögunnar.
í sáttmálanum er kveðið á um að
eftirförina megi aðeins hefja eftir að
sjáanlegt eða heyranlegt stöðvunar-
merki hafi verið gefíð, ekki fjær en
svo að það megi sjá eða heyra frá
erlenda skipinu. Áhöfn flugvélar
Landhelgisgæziunnar, TF-SÝN, gaf
Dmitríj Pokramovítsj slíkt merki um
talstöð er komið var að togaranum
á þriðjudag.
Flugvélar og skip haldi eftirför
Iinnulaust áfram
„Beiting réttarins til óslitinnar eft-
irfarar má aðeins vera í höndum
herskipa eða herloftfara ellegar ann-
arra skipa eða loftfara sem eru skýrt
auðkennd og bera það með sér að
þau séu í þjónustu ríkis og hafa
umboð til þess,“ segir í 111. grein-
inni. Þar kemur jafnframt fram að
loftfar, sem gefi skipi stöðvunarskip-
un, verði sjálft að veita skipinu virka
eftirför unz skip eða annað loftfar
strandríkisins, sem loftfarið hefur
kvatt til, komi til að taka við eftirför-
inni nema loftfarið geti sjálft tekið
skipið. Það þykir ekki nægja tii að
réttlæta töku utan landhelginnar að
áhöfn flugvélarinnar hafi eingöngu
séð skipið vera brotlegt eða grunsam-
legt ef því er ekki bæði skipað að
stöðva og veitt eftirför af loftfarinu
sjálfu eða öðrum ioftförum eða skip-
um, sem halda eftirförinni linnulaust
áfram.
Flugvélar Landhelgisgæzlunnar
og Flugmálastjómar, með auðkenn-
um íslenzka ríkisins, skiptust á um
að veita rússneska togaranum eftir-
för, auk þess sem varðskipið Ægir
elti hann út fyrir lögsögumörkin.
EuroCAD
Ráðstefnan
fluttí
stæni sal
UM 240 manns munu taka
þátt í Evrópuráðstefnunni um
fíknsjúkdóma EuroCAD/96,
sem hefst i Reykjavík á mið-
vikudag. „Þátttakan er mun
meiri en við höfðum þorað að
gera okkur vonir um,“ segir
Sveinn Rúnar Hauksson,
læknir, einn skipuleggjenda
ráðstefnunnar. Hann segir að
vegna hinnar miklu þátttöku
hafi fundir ráðstefnunnar ver-
ið fluttir úr stærsta ráðstefnu-
sal Hótels Sögu í Súlnasal
hótelsins.
Sveinn Rúnar segir að auk
um 80 erlendra þátttakenda
frá a.m.k. 15 löndum sæki
ráðstefnuna 150-160 íslend-
ingar. Hann segir fyrirsögn
fréttar í Morgunblaðinu í gær
gefa alranga mynd af við-
fangsefni ráðstefnunnar.
„Ráðstefnan fjallar ekki um
fíkniefnamál heldur um fíkn-
sjúkdóma, alkóhóiisma og aðra
efnafíkn. Þetta er ráðstefna
um forvarnir og meðferð.“
Björgun-
arsveitir
og kafarar
við leit
LEIT að 21 árs gömlum
manni, sem síðast sást í mið-
borg Reykjavíkur aðfaranótt
sunnudags, var fram haldið í
gær, en án árangurs.
Lögreglan í Reykjavík lýsti
eftir Hjalta Guðjónssyni á
þriðjudag og þann dag leituðu
tugir björgunarsveitarmanna
á opnum svæðum innan borg-
armarkanna. í gær leituðu
kafarar í Reykjavíkurhöfn.
Hjalta er svo lýst að hann
sé grannvaxinn, 170 sm á
hæð, með stutt, skollitað hár.
Ungir lækn-
ar vilja úr
Læknafé-
laginu
FUNDUR Félags ungra lækna
(FUL) beindi því til stjórnar
félagsins á fundi hinn 14.
mars síðastliðinn að hefja þeg-
ar undirbúning að úrsögn að-
ildarfélaga FUL úr Læknafé-
lagi íslands (LÍ) og stofnun
nýrra læknasamtaka. Þá for-
dæmdi fundurinn nýgerðan
samning Læknafélags Reykja-
víkur og Tryggingastofnunar
ríkisins um sérfræðilæknis-
hjálp, „sem stuðlar að einokun
stofulækna. Um er að ræða
brot á siðareglum iækna, brot
á lögum Læknafélags íslands
og Læknafélags Reykjavíkur,"
segir í ályktun fundarins.
Bílvelta við
Bláfjalla-
veginn
BÍLL valt við Bláfjallaafleggj-
arann um klukkan hálfellefu
í gærkvöld. Fimm manns voru
í bílnum þegar óhappið varð
og var ökumaður og fíórir
farþegar fluttir á slysadeild
Sjukrahuss Reykjavíkur.