Morgunblaðið - 04.04.1996, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
LISTIR
Reuter
VERKAMENN bera lík úr fjöldagröf nálægt bænum Mrkonjic
Grad í Bosníu þar sem talið er að króatískir hermenn hafi
grafið Serba sl. haust. 78 lík höfðu fundist í gær.
Rannsókn á stríðsglæpum í Bosníu
Lík fjarlægð úr
fjöldagröfum?
Boston. Reuter.
BANDARÍSKA dagblaðið Christian
Science Monitor skýrði frá því í gær
að lík hefðu verið grafin upp úr
tveimur fjöldagröfum þar sem talið
er að serbneskir hermenn hafi graf-
ið múslimska karlménn er hurfu
eftir að Serbar náðu borginni Sre-
brenica í Bosníu á sitt vald í fyrra.
Blaðið segir þetta geta torveldað
saksóknurum stríðsglæpadómstóls-
ins í Haag að sanna meinta stríðs-
glæpi Serba.
Dagblaðið segir að fundist hafi
ummerki um uppgröft í um 70%
stærri fjöldagrafarinnar og í um
heimingi þeirrar minni. Tugir eða
hundruð líka kunni að hafa verið
grafín upp. Jakkar, göngustafir og
skór, sem ljósmyndari blaðsins hafi
myndað, hafi horfið og ummerki
séu um nýleg för eftir þunga bíla.
Blaðið segir þó að á svæðinu
hafi fundist ný sönnunargögn, svo
sem lík og tugir augnabinda, sem
staðfesti frásagnir múslima er lifðu
af svokallaðar „þjóðemishreinsan-
ir“ Serba í Srebrenica.
Talið er að serbnesku hermenn-
irnir hafi drepið þúsundir músl-
imskra karlmanna frá Srebrenica
eftir árásina á borgina, sem var þá
vemdarsvæði Sameinuðu þjóðanna.
Friðargæslusveitir Atlantshafs-
bandalagsins hafa fylgst með
fjöldagröfunum og friðargæsluliðar
hafa farið í eftirlitsferðir um þær
með jöfnu millibili, auk þess sem
flugvélar hafa flogið yfir þeim.
Talsmaður friðargæslusveitanna
sagði að engar vísbendingar hafi
komið fram um að lík hafi verið
grafin upp. Christian Science Mon-
itor segir að Serbar kunni að hafa
grafið líkin upp milli eftirlitsferða
friðargæsluliðsins.
Blaskic kveðst saklaus
Króatíski hershöfðinginn Tihom-
ir Blaskic, sem saksóknarar stríðs-
glæpadómstólsins hafa ákært fyrir
stríðsglæpi, kvaðst í gær saklaus
af sakargiftunum. Hann er sakaður
um að hafa fyrirskipað dráp á
múslimum í Lasva-dal í miðhluta
Bosníu 1992-93.
Forseti dómstólsins hafnaði í gær
beiðni hershöfðingjans um að hon-
um yrði haldið í stofufangelsi. Hann
fyrirskipaði að Blaskic yrði þó ekki
haldið í fangelsi dómstólsins í Haag,
heldur í „bústað sem hollensk yfir-
völd tiltaka".
Fundur landbúnaðarrádherra ESB
Mikill niðurskurður
nautfjár samþykktur
Brussel, Luxemborg. Reuter.
FRANZ Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, ESB, kvaðst í
gær vona, að unnt yrði að afnema
bannið við útflutningi bresks nauta-
kjöts sem fyrst en landbúnaðarráð-
herrar bandalagsins náðu í gær
samkomulagi um aðgerðir gegn
kúariðu.
„Við viljum afnema bannið og
það verður að gera um leið og að-
gerðirnar gegn kúariðunni fara að
hafa áhrif,“ sagði Fischler en tók
fram, að enn væri of snemmt að
segja hvenær það yrði gert.
Landbúnaðarráðherrar ESB
komust að samkomulagi í gær um
aðgerðir til að uppræta kúariðu og
sagði Fischler, að breska stjómin
yrði að leggja fram áætlun fyrir lok
þessa mánaðar um slátrun allra
nautgripa eldri en 30 mánaða eða
tveggja og hálfs árs. Það getur
þýtt, að nokkrar milljónir gripa
verði felldar og brenndar á firnrn
eða sex árum. Breska stjórnin hefur
ekki fallist formlega á samkomu-
lagið en á ekki annarra kosta völ.
„Samkvæmt þessu verður að
slátra að minnsta kosti 700.000
gripum á ári,“ sagði Fischler en
ESB mun borga 70% kostnaðarins
við slátrunina. Eru Bretar óánægð-
ir með það og höfðu krafist þess,
að bandalagið greiddi 80% kostnað-
arins en þeir sjálfir 20%. Áætlað
er, að árleg útgjöld Evrópusam-
bandsins vegna þess verði 26,5
milljarðar ísl. kr.
Uppsagnir í kjötiðnaði
Slátrarar og kjötkaupmenn á
Smithfíelds-markaðnum í London
segja, að nautakjötssala hafi aukist
aftur lítillega en fyrirtæki í þessarí
grein segjast verða að segja upp
20% starfsmanna sinna.
Robert Lacey, prófessor og ör-
verufræðingur, sem varð einna
fyrstur til að vara við hugsanlegu
kúariðusmiti í fólki, telur, að boðað-
ar aðgerðir séu ónógar og komi of
seint. Hann hefur látið svo um-
mælt, að hugsanlega verði um að
ræða 500.000 tilfelli á ári af Creutz-
feldt-Jakob-sjúkdómnum eftir alda-
mótin.
Á sama tíma að ári
í Loftkastalanum
FLUGFÉLAGIÐ Loftur frumsýnir
um miðjan maí leikritið Á sama
tíma að ári eftir Bemard Slade í
Loftkastalanum. Leikstjóri er Hall-
ur Helgason en hlutverkin tvö í
sýningunni verða í höndum Sigurð-
ar Siguijónssonar og Tinnu Gunn-
laugsdóttur.
Að sögn Baltasars Kormáks, eins
forsprakka Flugfélagsins, er um
farandsýningu að ræða. Eru fyrstu
sýningarnar fyrirhugaðar í Loft-
kastalanum í maí en frá og með
1. júní mun Listahátíð í Reykjavík
hafa þau húsakynni til umráða.
Mun þá leikurinn berast út á land
og segir Baltasar að reynt verði að
fara sem víðast. „Ef vel gengur
kemur síðan til greina að taka aftur
upp þráðinn í Loftkastalanum í
haust.“
Á sama tíma að ári er rómantísk-
ur gamanleikur sem fjallar í st'órum
dráttum um elskendur sem hittast
einu sinni á ári á hótelherbergi, þar ar vinsældir á vegum Þjóðleikhúss- mundsdóttir með aðalhlutverkin.
sem þeir fremja hjúskaparbrot. Var ins á árunum 1978-1979 en þá fóru Munu um 41.000 manns hafa séð
verkið sýnt 140 sinnum við feikileg- Bessi Bjarnason og Margrét Guð- þá sýningu.
Morgunblaðið/Ásdís
TINNA Gunnlaugsdóttir og Sigurður Sigurjónsson fara með
aðalhlutverkin í Á sama tíma að ári.
MYNDIN ver tekin í íslensku óperunni á dögunum þegar hópurinn sem kemur að Galdra-Lofti hitt-
ist. Garðar Cortes, David Walters, Axell Hallkell, Maria Fitzgerald, Hulda Kristín Magnúsdóttir,
Bergþór Pálsson, Þóra Einarsdóttir, Elín Ósk Óskarsdóttir, Jón Ásgeirsson, Loftur Erlingsson og
Þorgeir Andrésson. Á myndina vantar leiksljórann, Halldór E. Laxness,
og sýningarstjórann, Kristínu S. Krisljánsdóttur.
Galdra-
Loftur
Morgunblaðið/Árni Sæberg
STEINGRÍMUR Eyfjörð, Börkur Arnarson, Sara Björnsdóttir
og Svanur Kristbergsson.
Blóð Krists
FRUMSÝNING verður í íslensku
óperunni á nýrri óperu Jóns Ás-
geirssonar, Galdra-Lofti, 1. júní
næstkomandi. Óperan er sýnd í
samstarfi við Listahátíð í Reykja-
vík og er sýningafjölditakmark-
aður. Að vanda býður Islenska
óperan styrktrafélögum sínum
forkaupsrétt á miðum og er hann
frá 9.-20. apríl í íslensku óper-
unni. Nú þegar hafa borist miða-
pantanir erlendis frá, þar á meðal
frá hópi úr Metropolitan Opera
Guild eða Styrktarfélagi Metro-
politan óperunnar í New York.
Hljómsveitarstjóri er Garðar
Cortes, leikstjóri Halldór E. Lax-
ness. Leikmynd hannar Axel Hall-
kell, búningahönnun er í höndum
Huldu Kristínar Magnúsdóttur,
lýsingu annast David Walters og
sýningarsljóri er Kristín Krist-
jánsdóttir.
Með aðalhlutverk fara Þorgeir
Andrésson, sem leikur Loft, Elín
Ósk Óskarsdóttir leikur Stein-
unni, Þóra Einarsdóttir leikur
Dísu, Bergþór Pálsson leikur
Ólaf, Loftur Erlingsson leikur
andann eða samvisku Lofts og
Bjarni Thor Kristinsson leikur
gamla manninn.
íslenska óperan hvetur styrkt-
arfélaga sem aðra til að tryggja
sér miða í tíma og hægt er að
panta miða á skrifstofutíma. Sýn-
ingar verða 1., 4., 7., 8., 11. og
14. júní.
„BLÓÐ KRISTS“ heitir sýning fjög-
urra listamanna sem opnar í dag í
Gallerí Ingólfsstræti 8. Listamenn-
irnir heita Steingrímur Eyfjörð, Sara
Björnsdóttir, Börkur Arnarson og
Svanur Kristbergsson og unnu þau
verk sín undir áhrifum af verki tón-
skáldsins Gavin Bryars „Jesus Blood
Never Failed Me Yet...“ eða Blóð
Krists hefur ekki brugðist mér
enn ..."
Listamennirnir bjóða fermingar-
börn sérstaklega velkomin auk allra
sem láta sig trúmál einhveiju skipta.
Svanur segir að sú hugmynd hafi
kviknað að stefna nokkrum listmiðl-
um saman og nota tónlist, sem þeg-
ar sé til, sem kveikju að verkunum.
„Þetta verk Bryars höfðaði sterkt til
mín og ég kynnti það fyrir hinum
og þeim leist einnig vel á það,“ sagði
Svanur.
Steingrímur Eyijörð sagði að við-
fangsefni sýningarinnar væri að
stefna mörgum birtingarformum á
einni hugmynd saman á sýningu
undir einum útgangspunkti.
Þau sögðu titil sýningarinnar gefa
ýmis skilaboð og fólk hrykki sjálf-
sagt í kút við að heyra hann þó að
páskarnir séu einmitt sá tími sem
mikið sé drukkið af „blóði Krists" í
altarisgöngum í kirkjum landsins í
tengslum við yfirstandandi ferming-
ar. Við það að vinna verk á þessa
sýningu segjast þau óhjákvæmilega
hafa velt ýmsu fyrir sér í sambandi
við trúmál og tengsl þeirra við mynd-
list. „Við fermumst í annað skipti
við opnun sýningarinnar," sögðu þau
og brostu.
Á opnuninni flytur Sara Björns-
dóttir gjörning og leifar hans verða
eftir sem verk en einnig mun kross-
um og letri bregða fyrir.