Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 27
Alþjóðleg-
ur bóka-
dagur
UNESCO hefur ákveðið að
gera 23. apríl að árlegum al-
þjóðadegi bóka og höfundar-
réttar, en þessi dagur er bæði
fæðingar- og dánardagur
margra helstu rithöfunda fyrr
og nú. Halldór Laxness er til
dæmis fæddur þennan dag.
Stjórn Bókasambands ís-
lands hefur af þessu tilefni
ákveðið að standa fyrir kynn-
ingu á íslenskum bókmenntum
og bókagerð. Meðal annars
mun Bókasambandið efna til
eftirfarandi atburða þennan
dag;
Rithöfundar lesa úr verkum
sínum í völdum kaffihúsum.
Tónlistarmaður syngur söng
bókarinnar í viðkomandi kaffi-
húsum. Bókaútgefendur verða
með sérstakan afslátt á ís-
lenskum bókum. Bókasöfnin
minna sérstaklega á dag bók-
arinnar. Rithöfundur flytur í
íjölmiðlum ávarp vegna dags
bókarinnar. Prentsmiðjur aug-
lýsa starfsemi sína. Samtök
iðnaðarins afhenda bókaverð-
laun.
Bókasamband íslands hvet-
ur alla þá sem með einhverjum
hætti tengjast bókum og bóka-
útgáfu hér á landi að leggja
sitt lóð á vogarskálina til að
gera dag bókarinnar sem veg-
legastan.
Gull og
íslenskar
gersemar
SÝNINGUNNI Gulli og ger-
semum í Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu lýkur laugardag-
inn 6. apríl næstkomandi. Opið
verður á skírdag, föstudaginn
langa og á laugardag frá kl.
13-18.
Félag íslenskra gullsmiða
og Handverk, þriggja ára
reynsluverkefni á vegum for-
sætisráðuneytisins, standa
fyrir sýningunni í Hafnarhús-
inu.
Sýningin er samstarfsverk-
efni þessara aðila. Þar kynna
20 gullsmiðir nýsköpun í gull-
smíði þar sem íslenskt hráefni
fær að njóta sín.
Flestir sýningargripimir eru
unnir sérstaklega fyrir þessa
sýningu og er íslenskt hráefni
notað ásamt þeirra hefð-
bundnu hráefnum.
ÁSGEIR Ólafsson er mikill
beitningamaður.
SJÁLFSMYND listamannsins,
Spessa.
EYJÓLFUR Guðmundur Eyjólfsson, sem alltaf er kallaður
Gvendur Eyjólfs, er Isfirðingur og rær enn á trillunni
sinni þrátt fyrir háan aldur
Sigurlín sýnir
í Kaffi Lefolii
og í Húsinu
SIGURLÍN Grímsdóttir opnar sýn-
ingu á vatnslitamyndum í Kaffi
Lefolii og Húsinu á Eyrarbakka kl.
14 á skírdag. í Kaffi Lefolii er við-
fangsefnið landslagsmyndir „frá
ijöllum til ijöru“ en í Húsinu „hey-
annir og vinna fólks“. Þetta er í
fyrsta sinn sem Byggðasafn Árnes-
inga í Húsinu stendur fyrir mynd-
listarsýningu og verður sýningin í
norðausturstofunni svonefndu, þar
sem Sigurlín mun sýna sjö vatns-
litamyndir.
Sigurlín er fædd 1954 og býr á
Votumýri á Skeiðum. Hún hefur
farið á fjölda myndlistarnámskeiða
en er sjálfmenntuð að öðru leyti.
Sigurlín hefur haldið þijár einka-
sýningar og verið þátttakandi í
fjölda samsýninga.
Sýningin í Kaffi Lefolii stendur
út aprílmánuð og er opin á opnunar-
tíma veitiingahússins kl. 12-23.30
og í Húsinu er opið kl. 14-17 frá
skírdegi til annars í páskum, en kl.
14-17 aðra laugardaga og sunnu-
daga í apríl og eftir samkomulagi.
Hetjur og
jálkar Spessa
LJOSMYNDARINN Spessi,
öðru nafni Sigurþór Hallbjörns-
son, opnar ljósmyndasýningu í
Tjöruhúsinu á ísafirði í dag,
skírdag. Sýningin sem nefnist
Hetjur verður opin um óákveð-
inn tíma.
Hetjur Spessa eru gamlir
vestfirskir sjómenn. Mælikvarði
hans er sá að fyrirmyndirnar
hafi verið á floti í 40-50 ár. Á
bernskuárum á Isafirði þar sem
hann ólst upp kynntist hann
þessum mönnum og endurnýj-
aði síðar kynnin við þá. Hann
játar að myndirnar sýni tengsl
hans við upprunann: „Eg teng-
ist staðnum og þekki marga af
þessum mönnum. Þeir voru og
eru jálkar í mínum augum.“
Ævintýraljómi
Sem ljósmyndari vinnur
Spessi út frá orðinu hetjur og
þeim ævintýraljóma sem stafar
af því. Hann hefur haldið marg-
ar sýningar áður og er mennt-
aður í listum frá AKI-myndlist-
arskólanum í Hollandi. Hann
starfar sem ljósmyndari, rekur
eigin vinnustofu og fæst einkum
við iðnaðarljósmyndun, jafn-
framt því sem hann vinnur að
eigin listsköpun. Hann hrífst
fyrst og fremst af Ijósmyndinni
sem myndlist.
í sparifötum í auðu húsi
Sýningin í Tjöruhúsinu er á
vegum Slunkaríkis. Spessi fékk
afnot af gamla sjúkrahúsinu,
flestar myndanna eru teknar í
því „ofsafallega húsi sem Guð-
jón Samúelsson teiknaði“ sem
nú stendur autt, en á að vera
bóka- og listasafn í framtíðinni.
Hetjur sínar, sjómennina gömlu,
boðaði Spessi til myndatöku í
sjúkrahúsinu og þeir komu i
sparifötunum og sátu fyrir eða
stilltu sér upp. Spessi útvegaði
gamlan sófa og fékk lánaðar
myndir af Napóleon, Kristi og
Hallgrími Péturssyni.
Meðal þeirra mörgu sem
komu til myndatöku voru Ásgeir
Guðbjartsson eða Geiri á Gugg-
unni; Ásgeir Ólafsson háseti og
mikill beitningamaður og Eyjólf-
ur Guðmundur Eyjólfsson sem
alltaf er kallaður Gvendur Ey-
jólfs. Hann er ísfirðingur og rær
enn á trillunni sinni þrátt fyrir
háan aldur og ekki heldur það
aftur af honum að það tekur
liann fimm tíma að komast á
miðin. Þegar hann er lentur sel-
ur hann fiskinn beint upp úr
bátnum, að sögn Spessa.
Fyrirmyndir Spessa eru mjög
áhugasamar um sýninguna í
Tjöruhúsinu.
Passíusálmar í
Hallgrímskirkju
PASSÍUSÁLMAR séra Hallgríms Péturssonar verða lesnir í Hall-
grímskirkju í Reykjavík föstudaginn langa. Lesturinn hefst kl. 13.30
og ger er ráð fyrir að hann standi til um það bil 18.30. Flutningur
sálmanna er orðinn að árvissum viðburði í kirkjunni á þessum degi.
í þetta skipti hefur Heimir Páls-
son umsjón með lestrinum en lesar-
ar auk hans eru þær Ingibjörg
Haraldsdóttir og Steinunn Jóhann-
esdóttir. Lesturinn verður með
nokkuð öðru sniði en undanfarin
ár.
Þá mun kammerkór úr Mótettu-
kórnum, Schola Cantorum, syngja
á milli þátta undir stjórn Harðar
Áskelssonar.
Klæði og hökull eftir
Unni Olafsdóttur
Á föstudeginum langa gefst
tækifæri til að sjá altariskiæði sem
á sér ekki hliðstæðu hér á landi.
Eftir að altari Hallgrímskirkju hef-
ur verið afklætt eftir messu á skír-
dagskvöld er altarisklæðið sett
fram fyrir altarið. Það er látið
standa í kirkjunni yfir föstudaginn
langa sem myndræn íhugun. Klæð-
ið er svart og ber mynd pelíkan-
ans. Unnur Olafsdóttir listakona
gerði klæðið og gaf kirkjunni.
Þá gaf listakonan kirkjunni
einnig hökul fyrir föstudaginn
langa, en á hann er saumað fyrsta
vers Passíusálmanna og sex mynd-
ir úr píslarsögunni.
Fyrirmæli dagsins
Boð um að vera vera
EFTIR NORITOSHIHIRAKAWA
VINSAMLEGAST klipptu út
þennan ramma og hengdu upp
á vegg á salerninu heima hjá
þér. Lestu textann upphátt í
hvert sinn sem þú átt erindi á
salernið og lærðu hann smám
saman utan að þangað til þú
ert orðinn viss um að þú gleym-
ir honum aldrei nokkurntíma.
Að gráta og hlæja, það er
það sama.
Að líða illa og líða vel, það
er það sama.
Að reiðast og að gleðjast, það
er það sama.
Að örvænta og að fyllast
ofsakæti, það er það sama.
Að vera einsamall og vera
með öðrum, það er það sama.
Að lifa til að deyja og að
deyja til að lifa, það er það
sama.
Það eina sem máli skiptir, það
er hvort þetta gerist eða gerist
ekki.
%Fyrirmækisýning / samvinnu viii Kjarvnlsstaði og Dagsljós
Nýjar bækur
Hvað er stórt og
hvað er smátt?
ÚT er komin ljóðabókin
Ljós til að má nóttina
eftir Óskar Árna Ósk-
arsson. Þetta er fimmta
bók höfundar með
frumsömdum ljóðum,
en sú fyrsta, Hand-
klæði á gluggakist-
unni, kom út 1986.
Auk þess hefur hann
nokkuð fengist við
ljóðaþýðingar, einkum
á japönskum hækum.
Ljós til að mála nótt-
ina skiptist í þijá hluta,
tveir þeirra saman-
standa af sjálfstæðum
ljóðum en sá þriðji og
Óskar Árni
Oskarsson
síðasti er ljóðaflokkur-
inn Vegamyndir. „Nú
sem fyrr verður skáld-
inu margt að yrkisefni,
einkenni þessarar bók-
ar er ef til vill sérstakt
nostur við hið smá-
gerða í lífinu og spurn-
ingin: hvað er stórt og
hvað er smátt?“ segir í
kynningu.
Útgefandi er Mál og
menning. Ljós til að
mála nóttina er 47 bls.,
unnin í G. Ben - Eddu
prentstofu hf. Kápuna
hannaði höfundur.
Verð 1.680 kr.
EITT verka Sigríðar
Gísladóttur.
Gailerí Hornið
„Afla-
brögð
á djúp-
miðum“
SIGRIÐUR Gísladóttir opnar
sýningu á málverkum í Gall-
erí Horninu, Hafnarstræti
15, laugardaginn 6. apríl kl.
17. Sýningin ber yfirskriftina
„Aflabrögð á djúpmiðum".
Fyrsta einkasýning
Sigríður stundaði nám við
MHÍ og hefur einnig sótt
námskeið erlendis. Sýningin
í Gallerí Horninu er hennar
fyrsta einkasýning, en hún
hefur tekið þátt í samsýning-
um, síðast Gullkistunni á
Laugarvatni.
Sýningin verður opin alla
daga frá kl. 11-23.30 nema
hvað lokað verður á páska-
dag.
Frá kl. 14-18 er sérinn-
gangur í galleríið opinn en
annars er hægt að fara í
gegnum veitingahúsið inn í
sýningarsalinn.