Morgunblaðið - 04.04.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 35
jf
LISTIR
MYNDSKREYTING eftir Erlu Sigfurðardóttur við sögu Herdísar
Egilsdóttur Veisluna í barnavagninum.
skapað sér sess fyrir að vera fyndn-
ir og bráðskemmtilegir og var Bert
á metsölulista annað árið í röð. En
þegar annað er skoðað finnum við
Kim-bækurnar á ný, Nancy og
Frank og Jóa-bækumar, og tvær
sögur um Indiana Jones. Dodda-
bækur Enid Blyton koma nú endur-
útgefnar í röðum.
Nokkrar útgáfur af
ævintýrum H.C. And-
ersen eru annaðhvort
í endurprentunum eða
nýjum útgáfum jafnvel
frá Rússlandi. Disney
á fleiri titla á íslensk-
um bókamarkaði en
nokkur annar höfund-
ur, lífs eða liðinn, og í
hans nafni eru endur-
gerð öll helstu ævintýr
heimsins. Þó hefur
Astrid Lindgren bann-
að að hennar bækur
komi nokkm sínni út í
anda Walt Disney.
Nokkrar þýddar
bækur falla þó undir þann flokk
að vera vönduð bókmenntaverk eða
að minnsta kosti skemmtilegar og
vandaðar bækur. Herra Zippó og
þjófótti skjórinn er smellin saga frá
Italíu um brúðuleikhús og náin
tengsl leikhússtjórans við brúðum-
ar sínar. Nikkóbóbínus eftir Terry
Jones á einnig að gerast á Ítalíu
en er rakin ýkjusaga, bráðskemmti-
lega þýdd af Páli Hannessyni.
Gunnar Stefánsson þýðir nýja sögu
eftir Bo Carpelan og heldur þannig
uppi merkjum norrænna bamabók-
mennta. Magnaðar minjar er fjórða
ástralska verðlaunabókin sem Lind-
in hefur gefið út og er hér í þýð-
ingu Guðna Kolbeinssonar. Eitt
helsta vandamálið við útgáfu
þýddra bama- og unglingabóka er
hversu erfitt er að fá umfjöllun um
þær í íslenskum fjölmiðlum. Sala
þeirra er yfirleitt miklu minni en
íslenskra bóka með einstaka undan-
tekningum og því lítil hvatning fyr-
ir forlög að færa bömum þann fjár-
sjóð sem felst í vönduðum erlendum
bókum, vel þýddum.
Hreiðar Stefánsson
kvaddur
í mars á síðastliðnu
ári lést Hreiðar Stef-
ánsson sem um langt
árabil var einn vinsæl-
asti bamabókahöfund-
ur þessarar þjóðar.
Öddubækumar og
margar fleiri sögur
komu úr penna hans í
samvinnu við Jennu
konu hans. Bækur
þeirra eru fjölmargar
og fengu þau hjón
Bamabókaverðlaun
Fræðslumálaráðs árið
1973 í fyrsta sinn sem
þau vora veitt fyrir framlag sitt til
barnabókaritunar. Hreiðar átti þar
að auki einn nokkrar sögur, þar á
meðal verðlaunasöguna Grösin í
glugghúsinu sem út kom árið 1980
og fyrir þá sögu fékk hann Bama-
bókaverðlaun Fræðslumálaráðs
Reykjavíkur. Mun hans verða
minnst sem eins mikilvirkasta og
vandvirkasta bamabókahöfundar
þessarar þjóðar.
Lokaorð
Utgáfa bama- og unglingabóka
er í nokkuð föstum skorðum nú
orðið. Forlög leitast við að hafa
góðar bækur við hæfi allra aldurs-
hópa, myndabækur fyrir yngstu
bömin, léttan texta fyrir þá sem
era byijaðir að lesa, skemmtilegar
sögur fyrir aldurshópinn 9-12 ára
og nokkrar unglingabækur sem
12-15 ára krakkar lesa áður en þau
hella sér út í bækur fyrir fullorðna
eða hreinlega hætta að lesa. Mark-
aðurinn ber þess sterk merki að
hér er það einkaframtakið sem er
alls ráðandi. Menn verða að velja
það efni sem þeir vita að selst.
Annað er bamaskapur og ávísun á
gjaldþrot.
Enn sem fyrr er það ákveðinn
flokkur bóka sem algerlega vantar
á markað en það era bækur sem
fræða böm og unglinga um íslenskt
samfélag, náttúra og umhverfi.
Námsgagnastofnun er sú ríkis-
rekna stofnun sem á að sjá bömum
á skólaskyldualdri fyrir lestrarefni
og fræðslu á öllum þeim sviðum
sem skólaskyldan gerir kröfu um.
Á þeirra vegum kom út ein merki-
legasta nýjung á síðastliðnu ári en
það er íslandshandbókin, margm-
iðlunardiskur með fjölbreyttum
upplýsingum um land og þjóð. Eng-
inn vafi er á að þetta er aðeins
fyrsta skrefið í því að gefa út fræð-
andi efni á þessum nýja miðli. Þeg-
ar tæknileg vandamál sem tengjast
íslenskri tungu og íslensku stafrófi
hafa verið leyst verða fleiri til að
leggja efni inn á þennan nýja miðil.
Annað sem Námsgagnastofnun
ætti að eiga framkvæði að er að
leggja íslenskt kennsluefni sitt inn
á Intemetið og gera það aðgengi-
legt nemendum í gegnum tölvur
skóla og heimila. í nútímanum er
það heillandi að leita upplýsinga
fyrir tilstilli lyklaborðsins og það
er spennandi að fá fram upplýs-
ingar á þennan hátt - miklu meira
spennandi en að fletta upp í bók.
Mikið efni er til í eigu hins opin-
bera sem mætti setja á Intemetið
og gæti þannig bætt úr þeirri þörf
sem er fyrir fræðibækur fyrir böm.
Þá þyrfti ekki að leggja í útgáfu-
kostnað því efnið er nú þegar til í
textaformi og með myndum og
ekki mikill kostnaður við að leggja
það inn á netið. Endumýjun og
uppfærslur era miklu auðveldari og
ódýrari.
Þessi lausn væri nothæf til að
leysa tvö meginvandamál. Með því
að leggja efni inn á netið sem nú
þegar er til er verið að skapa mót-
vægi gegn því að nemendur venjist
þeim hugsunarhætti að fræðsla og
skemmtun sé aðeins til á ensku.
íslenskan verður þá tungumál upp-
lýsinganna ekki síður en enskan.
Miklir erfiðleikar eru fólgnir í því
að halda úti fræðibókaútgáfu fyrir
böm og unglinga. Með því að nýta
nýja tækni mætti vinna gegn þessu
vandamáli og taka nýju tæknina í
sína þjónustu. íslendingar era mjög
fljótir að tileinka sér nýja tækni og
ættu því ekki að vera í vandræðum
með að hagnýta hana til upplýs-
ingamiðlunar fyrir böm og ung-
linga. Forgöngu ætti Námsgagna-
stofnun að hafa og einnig mætti
huga að samstarfsverkefnum við
þau forlög sem sterkust era og
hafa sýnt áhuga á vandaðri bama-
bókaútgáfu.
Hreiðar
Stefánsson
þú kemst til Evrópu í vikur með fjölskylduna og bílinn
verði frá kr. I 11 _ m á mann?
i
* Verð miðast við 4.manna fjöiskyldu með eigin bíl til Danmerkur 6. júní
og'heim frá Noregl 25. júní. 2 fullorðnir og tvö börn yngri en 15 ára.
Taktu...
..húsbíllnn I
.hjólhýsið
þú kemst til Færeyja I
_ á verði frá kr.
f '
-
|Í|§|I
hústjaldlð
••
m * * & *
■
jölskyiduna og bllinn
á mann? *
Verð miðast við 4.manna fjölskyldu með eigin bíl.
2 fullorðnir og tvö börn yngri en 15 ára.
■
■8
#
Al 1 ii MFNNJ¥Hn&bl
. vL L WftK#IH Ok : flKfljyrrmI ■ I
..fellih
m fVI*lf>CFjWÍlÍÍSf W1ÍT Wk"ám‘ 1k T
..bilinn
reiðhjólið
FERÐASKRIFSTOFAN
Laugavegur 3. Sími: 562 6362 •*» *
-------... ,