Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL1996 37 '
MINNINGAR
UNA
ÞÓRÐARDÓTTIR
+ Una Þórðar-
* dóttir var fædd
á Norðfirði 4. októ-
ber 1926. Hún lést
þann 28. mars sl.
Móðir Unu er
Ragnheiður Pét-
ursdóttir, búsett í
Neskaupstað, en
faðir hennar Þórð-
ur Sveinbjörnsson,
lést 1933. Fóstur-
faðir Unu var Víg-
lundur Víglunds-
son sem lést 1976.
Hálfbróðir Unu er
Þórður Víglunds-
son sem búsettur er í Neskaup-
stað. Eiginmaður Unu var Guð-
jón Emil Aanes skipsljóri frá
Vestmannaeyjum, f. 24.10.
1930, d. 8.5. 1983. Börn þeirra:
Ragnar, f. 13.2. 1952, maki
Gunnhildur Ólafs-
dóttir, Þóra, f. 21.2.
1953, maki Sveinn
Valgeirsson, Sig-
urður, f. 12.10.
1956, maki Ásdís
Haraldsdóttir,
Helga, f. 15.6.1958
maki Tryggvi
Sveinsson, Kristín
f. 4.4. 1961, maki
Martin H. Avery,
Sverrir, f. 3.4
1965, d. 13.9. 1995
maki Magdalena
Ásgeirsdóttir. Alls
eru barnabörnin
orðin þrettán, af þeim eru tólf
á lífi og nýlega kom fyrsta
barnabarnabarnið í heiminn.
Utför Unu fer fram frá Landa-
kirkju í Vestmannaeyjum 6.
apríl og hefst athöfnin kl. 13.
Tengdamóðir mín, Una Þórðar-
dóttir, er látin tæplega sjötug að
aldri. Andlát hennar bar brátt að,
fiölskyldan situr hljóð eftir.
Fyrstu kynnum mínum af Unu
gleymi ég aldrei. Eg var að koma
til Vestmannaeyja í fyrsta sinn með
kærastanum mínum, syni hennar,
og var bæði feimin og dálítið kvíð-
in. Stóð hún ekki þarna á bryggj-
unni svo undur ljúf og blíð, faðm-
aði mig að sér og kyssti á báðar
kinnar. Á Fífilgötunni biðu síðan
hnallþórur með kaffinu. Mér fannst
þetta einstakar móttökur og þannig
hafa þær verið æ síðan.
Tengdamóðir mín var afar sér-
stök kona. Enda þótt hún ynni
meira og minna utan heimilis lifði
hún fyrst og fremst fyrir fjölskyldu
sína. Hún fylgdist af áhuga með
öllu sem gerðist í stórfjölskyldunni;
fermingum, brúðkaupum, barn-
eignum, afmælum, gleði og sorgum
og tók þátt í því af heilum hug.
Út á við var hún lítt fyrir að trana
sér fram, var hlédræg og feimin.
Hennar staður var heimilið. Þar réð
hún og var föst fyrir ef þurfa þótti.
Á hugann leita minningar um glett-
in tilsvör og tvíræðan stríðnissvip
hennar þegar setið var og spjallað
yfir kaffibolla. Una fæddist á Norð-
firði en fluttist ung til Vestmanna-
eyja þar sem hún kynntist eigin-
manni sínum Guðjóni Emil Aanes.
Hún hreifst strax af þessum stað.
í síðustu ferð okkar til Eyja rifjaði
hún upp þegar hún kom þangað
fyrst. Fegurðin allt um kring og
hjartahlýja fólksins orkaði svo
sterkt á hana að upp frá því vildi
hún helst hvergi annars staðar vera.
Lífið var þó ekki alltaf dans á rós-
um. Una missti eiginmann sinn árið
1983 og fyrir sjö árum fékk hún
illvígt krabbamein. Með hetjulegri
baráttu endurheimti hún heilsuna
smám saman. Áfallið síðastliðið
haust, er hún missti yngsta barnið
sitt, Sverri, varð henni erfiðast: Það
var líkt og lífsneistinn slokknaði við
þessa óendanlegu sorg. Um leið og
ég sendi allri fjölskyldunni innilegar
samúðarkveðjur vil ég þakka
tengdamóður minni samfylgdina.
Eftir lifir minningin um hjálpsama,
góða og trygga konu.
Hvíli hún í friði.
Ásdís.
Fimmtudaginn 28. mars misstum
við í Vestmannaeyjum góðan vin
þegar hún tengdamóðir mín Una
Þórðardóttir, matráðskona á dag-
heimilinu Rauðagerði, fór frá okk-
ur. Ekki get ég hugsað um hana
nema sem „Unu ömmu“.
Erfitt er að hugsa um Unu öðru-
vísi en í barnahóp, svo kær voru
þau henni. Aldrei aftur geta bömin
okkar heimtað að fara heim til Unu
ömmu eða að fara heim með henni
eftir að hún var búin að vera í heim-
sókn. Una amma lætur eftir sig
tólf barnabörn á lífi og eitt barna-
barnabarn og er missir þeirra mikill.
Eg kynntist Unu fyrir sjö árum
í gegnum eiginkonu mína, hvaða
tilfinningar bærðust í brjósti hennar
þegar dóttir hennar kom með út-
lending get ég ekki ímyndað mér,
en aldrei hefur verið betur tekið á
móti mér. Þegar ég og Kristín kon-
an mín vorum að byija búskap veitti
hún okkur mikla hjálp og stuðning.
Gjafir Unu voru eftirtektarverðar
fyrir notagildi þeirra, ekki er hægt
að elda mat né laga kaffi án þess
að nota hluti sem Una gaf okkur.
Una var tíður gestur hjá okkur
og við hjá henni. Hún heiðraði okk-
ur með því að vera fastagestur hjá
okkur á ýmsum stórhátíðum. Að-
fangadagskvöld verður tómlegt án
nærveru hennar og aldrei eigum
við eftir að vera hjá henni í salt-
kjöti og baunum. Við eigum eftir
að sakna hennar mikið.
„Send not out for whom the bell
tolls,
it tolls for thee.“
John Donne.
(Spyr þú því aldrei hveijum klukkan
glymur, hún glymur þér.) (þýð.
M.H. Avery.)
Martin Harris Avery.
Una amma er dáin. Þetta gerðist
svo snöggt og óvænt að maður er
ekki enn búinn að átta sig á því.
Una amma var sú manngerð og
amma sem allir vildu átt hafa, oft
bauð hún í mat og var þá eins og
heil hersveit væri væntanleg og
aldrei nokkum tíma kom það fyrir
að nokkur færi út frá henni ósadd-
ur hvort sem var eftir kaffiboð,
matarboð eða bara venjulega kvöld-
heimsókn.
Síðast er við hittumst var svo
mikið spjallað um lífið, tilveruna
og tilganginn með því, og var ég
farinn að hlakka svo til að hitta þig
nú í páskafríinu og kíkja í spjall
því það var svo margt sem ég ætl-.
aði að segja þér. En maður veit
víst aldrei hvenær kallið kemur og
þaðan af síður fær maður fyrirvara
á því sem maður ætlaði að segja
og gera. Minningin um yndislega
konu sem alltaf tók svo vel á móti
öllum og hugsaði svo einstaklega
vel um sína, lifir og mun lifa í hjarta
mínu.
Elsku amma, nú þegar þú ert
farin er það annars bjart ljós í
dimmum veruleikanum að þú ert
nú komin til afa og Sverris, og eitt
veit ég, að ef eitthvað er til fyrir
handan þá hafa þeir tekið vel á
móti þér og ykkur líður nú öllum vel.
Elsku amma, ég kveð þig nú með
hryggð í hjarta og mun ég hugsa
vel um hana litlu mína. Bið ég góð-
an guð að veita okkur öllum trú
og styrk á þessum erfíðu tímum.
„í bljúgri bæn, og þökk til þín
sem þekkir mig og verkin mín,
ég leita þín, guð, leiddu mig
og lýstu mér um ævistig."
Guðjón Emil Sveinsson.
Það er ótrúlegt að hugsa um að
amma Una sé dáin. Það eru svo
margar góðar minningar sem ég á
um hana.
Ég bjó hjá ömmu, afa og Sverri
með mömmu í tvö og hálft ár eftir
að ég fæddist og- var mamma þá í
námi og var ég því mikið hjá ömmu
og Þóru frænku. Amma vann sem
matráðskona á barnaheimilinu
Rauðagerði og var ég á því barna-
heimili. Oft stalst ég þá fram í eld-
hús til hennar. Ég var 3 ára þegar
afi dó og eru það því fáar minning-
ar sem ég á um hann. Sverrir,
yngsti sonur þeirra, dó af slysförum
fyrir hálfu ári síðan og var þetta
því búinn að vera erfiður tími fyrir
hana. Hún flutti af Fífilgötunni í
Sólhlíð 19 og var hún ánægð að
búa þar. Svo var það um daginn
að hún veiktist skyndilega og þurfti
að ganga í gegnum mikla aðgerð
sem gekk vel og héldum við að hún
væri á batavegi en svo á fimmtu-
daginn 28. mars sl. var hún flutt
með sjúkraflugi og stuttu seinna
var mér tilkynnt að hún væri dáin.
Þetta er mikið áfall enda var hún
stór hluti af lífi mínu. Nú er hún
hjá afa og Sverri og ég veit að
henni líður vel. Þessi bæn sem ég
læt fylgja með er ein af bænunum
sem amma kenndi mér.
„Leiddu mína litlu hendi,
blíði Jesú, ég þér sendi
bæn frá mínu bijósti, sjáðu,
blíði Jesú að mér gáðu.“
Una Þóra.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
HALLDÓRA VÍGLUNDSDÓTTIR,
Furugrund 71,
Kópavogi,
lést laugardaginn 30. mars.
Útför hennar fer fram frá Fossvogs-
kirkju þriðjudaginn 9. apríl kl. 15.00.
Kristin Jónsdóttir, Óskar Guðjónsson,
Stefán V. Jónsson, Þorgerður Gylfadóttir,
Hólmfrfður S. Jónsdóttir, Ásgrímur Stefánsson,
Guðmundur Jónsson
og barnabörn.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 - sími 587 1960
Okkur langar til að setja á blað
nokkur þakkar- og kveðjuorð til
samstarfskonu okkar, hennar Unu
í eldhúsinu.
Una starfaði á leikskólanum
Rauðagerði til fjölda ára og þótti
okkur hún vera einn af föstu punkt-
unum í tilverunni. Una var hógvær
en glettin og létt í lund og allt í
fari hennar gerði það að verkum
að manni leið vel í návist hennar.
Oft var glatt á hjalla í eldhúsinu
og mátti heyra dillandi hlátur henn-
ar þegar brandararnir fuku.
Úna bar mikla umhyggju fyrir
fjölskyldu sinni og voru barnabörn-
in henni mikils virði.
Elsku Una, við þökkum þér sam-
starfið og kveðjum þig með söknuði.
Við sendum öllum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Við þökkum fyrir ástúð alla
indæl minning lifir kær.
Nú mátt þú vina höfði halla,
við herrans bijóst er hvíldin vær.
í sölum himins sólin skín,
við sendum kveðju upp til þín.
(H.J.)
Starfsfólk leikskólans
Rauðagerðis.
Föstudaginn 29. fyrra mánaðar
kvaddi þennan heim sjötta skóla-
systir mín úr góðum og tryggum
hópi frá Laugarvatni.
Una Þórðardóttir var fædd í
Garði, Norðfirði, og ólst þar upp.
Ég kynntist Unu á Laugarvatni
fyrir hart nær hálfri öld í Hús-
mæðraskóla Suðurlands, „Lind-
inni“. Við vorum þarna þijátíu ung-
ar stúlkur að búa okkur undir fram-
tíðina til munns og handa og bjart-
sýni réð ríkjum. Þetta varð einstak-
lega samheldur hópur strax og hef-
ur haldist síðan. Vinátta og tryggð
hefur einkennt þennan hóp.
Við höfum hist á fimm ára fresti
og stundum oftar alla tíð.
Við Una lentum saman í númeri
eins og sú skipan var þá, ég er sú
eina sem eftir lifi af okkur fjór-
menningunum.
Unnum við því saman alla daga
í níu mánuði og bjuggum undir *
sama þaki, þannig að það varð ekki
hjá því komist að kynnin yrðu náin.
Ekki segi ég að við höfum alltaf
verið sammála^ en kærleikurinn var
fyrir hendi. Ég reyndi að stríða
henni með því að hún sæti i festum
að gömlum og góðum sið, þá brosti
mín og ljómaði eins og sól í heiði.
Hún elskaði Gæa sinn, svo stríðnin
mistókst.
Við vorum saman í laglausa
kórnum og sungum einkum í
þvottahúsinu, því þá heyrði enginn
til okkar. »
„Jeg elsker Gæa og Gæi elsker
mig,
vi er forlovet, Gæi og mig,“
og fleira og fleira, helst rómantísk
ástarljóð, þetta var græskulaust
gaman.
Una var hlý og einlæg mann-
eskja, vildi öllum vel og trúði á það
góða í öllum. Fals, undirferli og
óheiðarleika þekkti hún ekki. Hún
var vandvirk og samviskusöm í orð-
um og gjörðum og trúi ég að börn
hennar og venslafólk hafi notið
þess.
Hún giftist unnusta sínum Guð-
jóni Aanes frá Vestmannaeyjum,
flutti til Eyja og eignuðust þau sex
börn, sem öll eru myndarfólk.
Guðjón lést langt um aldur fram.
Una varð fyrir þeirri sorg að missa
son sinn Sigurð á sl. ári. Það var
henni erfitt, ekki síst þar sem hún
var sjúk sjálf. Móðir hennar og
tengdamóðir lifa báðar dóttur sína
í hárri elli.
Við skólasysturnar og kennarar
vottum þeim, börnum, tengdabörn-
um og öðrum ættingjum dýpstu
samúð og sendum þeim hlýjar
kveðjur.
Minnumst góðrar konu, kveðjum "
þig, Una mín og þökkum liðið.
Vilhelmína Böðvarsdóttir.
t
Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HALLDÓRSSON
múrarameistari,
Eyrarvegi 20,
Akureyri,
lést á heimili sínu laugardaginn 30. mars.
Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 9. apríl kl. 13.30.
Brynja Sigurðardóttir,
Magnús Stefánsson,
Sigríður Jónsdóttir,
Bára Stefánsdóttir,
Ingibjörg Stefánsdóttir, Smári Sigurðsson,
Sigríður H. Stefánsdóttir, Tommy Asp,
Hrafnhildur Stefánsdóttir, Kári (. Guðmann,
Halldóra Stefánsdóttir, Gri'mur Laxdal,
Gerður Oiofsson, Daði Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegustu þakkir fœrum við öllum
þeim, er sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
RAGNARS GUÐLEIFSSONAR,
Mánagötu 11,
Keflavik.
Björg Sigurðardóttir,
Sigrún Ragnarsdóttir, Ágúst H. Bjarnason,
Sveinbjörn Jónsson,
afa- og langafabörn.
F7.
Líkkistuvinnusfofg EtjvinJgp Apnasongp Sfo fnað 25. nóv.
1899
U tfa pci [ðj ón u sta
t
LílckistusmíSi
BFauti’iiJjeliJur í 95. óp
Vesturhlíð 7 ♦ Sími: S5I 3485 ♦ Davíð Osvaldsson ♦ Heimasími: 553 9723
r