Morgunblaðið - 04.04.1996, Page 40
40 FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
ÓSKAR Finnsson veitinga-
maður sker lambakjöt
fyrir gesti.
Páskahlaðborð
Argentínu
Lambakjötið
í öndvegi
FJÖLBREYTILEIKI í matargerð
einkennir páskahlaðborð veitinga-
hússins Argentínu við Barónsstíg þar
sem að íslenska lambakjötið er í
öndvegi.
Uppskriftirnar eru sóttar víða að
-og kom það matreiðslumönnum stað-
arins þægilega á óvart hversu gott
lambakjötið er í alls konar rétti. Þó
að hin íslenska matarhefð geri jrfir-
leitt ráð fyrir lambakjöti sem aðal-
rétti byggju suðrænni þjóðir yfir
mörgum spennandi lambakjötsupp-
skriftum í alls konar rétti, sem vert
væri að gefa gaum. Lambakjöt væri
víða notað í salöt og bökur og einnig
tekið hrátt, grafið eða marinerað.
Þetta er í fyrsta skipti sem Argent-
ína setur upp páskahlaðborð, en lík-
lega ekki í síðasta sinn, að sögn
Öskars Finnssonar. „Hugmyndin er
sú að gera þetta að árlegum við-
burði enda hefur mikil vinna verið
lögð í undibúninginn. Ef marka má
undirtektir er þetta kærkomin til-
breyting enda hefur verið vitlaust
að gera frá því að við byijuðum þann
28. mars sl. Kannski verður það með
þetta eins og jólahlaðborðin, sem
einu sinni þekktust ekki en eru nú
á öllum veitingastöðum."
Páskahlaðborðið samanstendur af
25 lambakjötsréttum, heitum og
köldum, frá ýmsum þjóðlöndum, m.a.
Ítalíu, Kýpur, írak, Portúgal, Spáni
og Karíba hafi. Páskadagar á Arg-
entínu standa til 8. apríl ef frá eru
taldir föstudagurinn langi og páska-
dagur, þegar lokað verður. Hlaðborð-
ið er aðeins í boði á kvöldin. Fyrir
manninn kostar 1.890 krónur nema
á föstudögum og laugardögum þegar
verðið hækkar í 2.490 krónur.
Morgunblaðið/Ásdís
HLJÓMSVEITIN Lhooq, Pét-
ur Hallgrímsson, Sara Guð-
mundsdóttir og Jóhann
Jóhannsson.
íslensk hljóm-
sveit á útgáfu-
samning
ÍSLENSKA hljómsveitin Lhooq er á
förum til Bretlands eftir páska að
skrifa undir útgáfusamning við
breska útgáfu, en í samningnum felst
meðal annars að hljómsveitin fær
ríflega upphæð greidda við undir-
skrift. Ætlað er að fyrsta breiðskífan
komi út í haust.
Lhooq er skipuð Pétri Hallgríms-
syni, Johanni Jóhannsyni og Söru
Guðmundsdóttur. Þeir Pétur og Jó-
hann segja að þeir hafi stofnað
hljómsveitina fyrir tæpu ári og tekið
upp kynningarupptökur sem þeir
sendu til breskra fyrirtækja. „Þau
sýndu þegar áhuga og okkur bárust
nokkur tilboð um útgáfu, en ákváð-
um snemma að semja við Echo,
vegna þess að okkur leist best á fyrir-
tækið og þá sem þar störfuðu,“ segja
þeir. Jóhann og Pétur veijast allra
frétta um hve miklir peningar séu í
boði, segja þó að upphæðin sem þau
fá þegar þau skrifa undir hlaupi á
nokkrum milljónum. „Þetta er nóg
til þess að við getum lifað af þessu
næstu tvö árin,“ segja þeir, en að
auki leggur útgáfan dijúgt fé í upp-
tökur og hljóðblöndun og tæki fyrir
hljóðver hljómsveitarinnar, en fyrsta
smáskífan kemur væntanlega út síð-
sumars. „Við hyggjumst starfa hér
heima að minnsta kosti næstu miss-
erin, en það verður leigð fyrir okkur
íbúð ytra sem við nýtum þegar þörf
krefur."
Jóhann, Pétur og Sara fara utan
á þriðjudag til að skrifa undir samn-
inginn.
Fermingar
Ferming í Háteigskirkju 2. í
páskum kl. 13.30:
Ólafur Orri
Guðmundsson,
Bræðraborgarstíg 49.
Ferming í Safnkirkjunni Árbæj-
arsafni annan í páskum klukkan
17. Prestur sr. Sigríður Guð-
mundsdóttir. Fermdur verður:
Hannes Arnórsson
Blöndubakka 1
Miðnætur-
sýningar í
Sambíóunum
SAMBÍÓIN Álfabakka og Sambíóin
við Snorrabraut verða með miðnæt-
ursýningar á föstudaginn langa, 5.
apríl nk. Sýningamar hefjast kl.
12.15 aðfaranótt laugardagsins.
í Sambíóunum við Snorrabraut
verða sýningar á þremur myndum,
„To Die For“ með Nicole Kidman í
aðalhlutverki, Leikfangasaga með
Tom Hanks og Tim Allen og „Copyc-
at“ með Sigourney Weaver og Holly
Hunter.
í Sambíóunum við Álfabakka
verða sýningar á eftirtöldum mynd-
um: Leikfangasaga, Faðir brúðarinn-
ar II með Steve Martin, „The Usual
Suspects" með Kevin Spacey, „Fair
Game“ með Cindy Crawford,
„Copycat" og Babe með James
Cromwell.
Tertur í
bankanum
BÚNAÐARBANKINN í Mos-
fellsbæ átti 25 ára starfssmæli
1. apríl sl. Af því tilefni var
viðskiptavinum og gestum
boðið upp á kaffi og tertur.
Útibússtjóri er Karl Loftsson.
Á annarri myndinni er
starfsfólk bankans og hinni
viðskiptavinir og gestir, sem
voru á öllum aldri.
■ SKRAUT- og bréfdúfusýning
verður haldin í Tónabæ um páskana
og verður hún opin laugardaginn 6.
apríl frá kl. 12-18 og sunnudaginn
7. apríl frá kl. 15-18. 50 bréfdúfum
verður sleppt bæði kl. 14 og 16 báða
dagana. Miðaverð er 200 kr. fyrir
börn á aldrinum 6-12 ára en 500
kr. fyrir fullorðna.
■ TEITUR Atlason og Sverrir
Briem framkvæma gjöming laug-
ardaginn 6. apríl nk. Hann er í því
fólginn að binda inn Vesturbæinn.
Taka skal fram að þetta verður
stærsta útilistaverk landsins að um-
máli, u.þ.b. 8 kílómetrar. Gjörningur-
inn byijar fyrir framan Ráðhúsið kl.
13.
Skíðasvæðin um páskahelgina
SKALAFELL
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
stinningskaldi eða allhvass, él öðru
hveiju og skafrenningur. Frost 2-6
stig. Horfur á föstudag: Norðaust-
anstinningskaldi og úrkomulaust
að mestu en líklega skýjað. Frost
4-8 stig. Horfur á laugardag: Held-
ur hægari norðaustlæg eða austlæg
átt og skýjað með köflum. Frost
4-9 stig. Horfur á sunnudag: Frem-
ur hæg norðaustlæg átt og bjart
veður að mestu. Frost 4-9 stig.
Horfur á mánudag: Austlæg átt,
ef til vill dálítill strekkingur. Bjart
veður að mestu, dregur lítið eitt
úr frosti.
Opið: Opið alla páskahelgina frá
10-18.
Upplýsingar fást í síma 580-1111.
Landsmót á skíðum fer fram í Blá-
fjöllum um páskana og færi var
frekar hart í gær.
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
átt, líklega allhvöss eða hvöss, él
öðru hveiju og skafrenningur.
Frost 2-5 stig. Horfur á föstudag:
Norðaustanstinningskaldi eða all-
hvass og úrkomulaust að mestu en
líklega skýjað. Frost 4-8 stig. Horf-
ur á laugardag: Heldur hægari
norðaustlæg eða austlæg átt og
skýjað með köflum. Frost 4-9 stig.
Horfur á sunnudag: Fremur hæg
norðaustlæg átt og bjart veður að
mestu. Frost 4-9 stig. Horfur á
mánudag: Austlæg átt, líklega
fremur hæg. Bjart veður að mestu,
dregur lítið eitt úr frosti.
Opið: Opið alla helgina 10-18.
Upplýsingar fást í síma 881-9510.
Landsmót á skíðum fer fram í
Skálafelli um helgina.
wmmmmm
KOLVIDARIIOLSSVÆDI
Veðurhorfur: í dag: Norðaust-
anstinningskaldi, él öðru hveiju og
líklega skafrenningur. Frost 2-6
stig. Horfur á föstudag: Norðaust-
ankaldi eða -stinningskaldi og úr-
komulaust að mestu en líklega
skýjað. Frost 4-8 stig. Horfur á
laugardag: Heldur hægari norð-
austlæg eða austlæg átt og skýjað
með köflum. Frost 4-9 stig. Horfur
á sunnudag: Fremur hæg norðaust-
læg átt og bjart veður að mestu.
Frost 4-9 stig. Horfur á mánudag:
Austlæg átt, líklega fremur hæg.
Bjart veður að mestu, dregur lítið
eitt úr frosti.
Opið: Opið alla helgina 10-18.
Upplýsingar fást í síma 881-8272.
Veðurhorfur: í dag: Vaxandi
norðaustanátt og dálítil él, stinn-
ingskaldi þegar líður á daginn.
Frost 3-7 stig. Horfur á föstudag:
Norðaustankaldi, skýjað með köfl-
um og líklega úrkomulaust. Frost
3-7 stig. Horfur á laugardag:
Minnkandi norðaustanátt, hægviðri
með kvöldinu. Bjart veður að
mestu. Frost 2-7 stig. Horfur á
sunnudag: Hægviðri og léttskýjað.
Frost 1-6 stig. Horfur á mánudag:
Hægviðri og léttskýjað. Frost 1-5
stig.
Opið: Að líkindum verður bara ein
lyfta opin vegna snjóleysis frá
10-17 páskahelgina. Auglýst
garpamót fellur niður en brettamót
fer fram uppi á Seljalandsdal. Far-
in verður gönguskíðaferð á skírdag
á Breiðadalsheiði í fylgd með leið-
sögumönnum. Gönguskíðabrautir
þar eru sagðar mjög góðar. Þá
verður farin gönguskíðaferð á
Homstrandir.
Upplýsingar fást í síma 881-9500,
456-3215 og 456-3581.
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi eða -stinningskaldi og snjó-
koma eða éljagangur. Frost 3-6
stig. Horfur á föstudag: Norðaust-
ankaldi og él. Frost 4-7 stig. Horf-
ur á laugardag: Heldur hægari
norðaustanátt og minnkandi él.
Frost 4-7 stig. Horfur á sunnudag:
Hægviðri og léttskýjað. Frost 4-8
stig. Horfur á mánudag: Hægviðri
og bjart veður að mestu. Frost 5-8
stig.
Opið: Verður að líkindum ekki
opið.
Upplýsingar fást í síma 467-1806.
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi eða -stinningskaldi og snjó-
koma eða éljagangur. Frost 3-7
stig. Horfur á föstudag: Norðaust-
ankaldi og él. Frost 4-8 stig. Horf-
ur "á iaugardag: Heldur hægari
norðaustanátt og minnkandi él.
Frost 4-8 stig. Horfur á sunnudag:
Hægviðri og léttskýjað. Frost 4-9
stig. Horfur á mánudag: Hægviðri
og bjart veður að mestu. Frost 5-9
stig.
Opið: Hefur ekki verið opið að
undanförnu.
Upplýsingar fást í síma 466-2525
og 85-40577.
DALVÍK
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi eða -stinningskaldi og snjó-
koma eða éljagangur. Frost 3-7
stig. Horfur á föstudag: Norðaust-
ankaldi og él. Frost 4-8 stig. Horf-
ur á laugardag: Heldur hægari
norðaustanátt og minnkandi él.
Frost 4-8 stig. Horfur á sunnudag:
Hægviðri og léttskýjað. Frost 4-9
stig. Horfur á mánudag: Hægviðri
og léttskýjað. Fróst 5-9 stig.
Opið: Var lokað síðustu viku vegna
snjóleysis.
Upplýsingar fást í síma 466-1010
eða 466 1005.
AKUREYRl
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi og dálítil snjókoma eða élja-
gangur. Frost 4-6 stig. Horfur á
föstudag: Norðaustankaldi og
minnkandi él. Frost 5-8 stig. Horf-
ur á laugardag: Heldur hægari
norðaustanátt og úrkomulítið en
skýjað að mestu. Frost 5-8 stig.
Horfur á sunnudag: Hægviðri og
léttskýjað. Frost 5-9 stig. Horfur
á mánudag: Hægviðri og léttskýj-
að. Frost 5-10 stig.
Opið: Opið alla helgina 10-17.
Upplýsingar fást í síma 462-2930,
462 2280 og 462-3379. Á laugar-
dag verður snjóbrettamót sem
hefst klukkan 14 og almennings-
ganga á páskadag sem hefst klukk-
an 14. Einnig verður útiguðsþjón-
usta á páskadag sem hefst klukkan
12 á hádegi.
IIÚSAVÍK
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi og snjókoma eða éljagangur.
Frost 3-6 stig. Horfur á föstudag:
Norðaustankaldi og él. Frost 4-7
stig. Horfur á laugardag: Heldur
hægari norðaustanátt og úrkomu-
laust að mestu. Frost 4-7 stig.
Horfur á sunnudag: Hægviðri og
léttskýjað. Frost 4-8 stig. Horfur
á mánudag: Hægviðri og bjart veð-
ur að mestu. Frost 5-8 stig.
Lokað um páska að öllum líkind-
um.
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi eða stinningskaldi og snjó-
koma. Frost 2-4 stig. Horfur á
föstudag: Norðaustankaldi eða
-stinningskaldi og dálítil snjókoma
eða éljagangur. Frost 2-5 stig.
Horfur á laugardag: Norðankaldi
og minnkandi él. Frost 3-6 stig.
Horfur á sunnudag: Hæg norðlæg
átt og bjart veður að mestu. Frost
3-7 stig. Horfur á mánudag: Hæg-
viðri og bjartviðri framan af degi
en austlæg átt og þykknar líklega
upp síðdegis. Frost 2-5 stig.
Opið: Ef veður leyfír verður opið
11-17 eða 18 alla páskana.
Upplýsingar fást í síma 472-1160
og 85-44462.
ODDSSKARIJ
Veðurhorfur: í dag: Norðaustan-
kaldi eða stinningskaldi og snjó-
koma. Frost 2-4 stig. Horfur á
föstudag: Norðaustankaldi eða
-stinningskaldi og dálítil snjókoma
eða éljagangur. Frost 2-5 stig.
Horfur á laugardag: Norðankaldi
og minnkandi él. Frost 3-6 stig.
Horfur á sunnudag: Hæg norðlæg
átt og bjart veður að mestu. Frost
3-7 stig. Horfur á mánudag: Hæg-
viðri og bjartviðri framan af degi
en austlæg átt og þykknar líklega
upp síðdegis. Frost 2-5 stig.
Opið: Opið alla helgina 10-17.
Upplýsingar fást í síma 477-1474
og 476 1465. Færi var mjög gott
í gær og á föstudaginn langa verð-
ur páskaeggjamót Austra sem
hefst klukkan 13. Einnig verða
lagðar göngubrautir.
:
«
€
!
i
«
1
I
2
i
i
i
i
i
<
(
(
(
(