Morgunblaðið - 04.04.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 1996 43
I
I
I
I
I
1
I
j
!
I
:
:
\
i
I
i
í
(
I
i
(
i
4
i
Ungxir Búlgari
varð jafn Kasparov
AFMÆLI
OLAFUR HILMAR
ÞORBJÖRNSSON
LAUFEY
GUÐMUNDSDÓTTIR
SKÁK
Amstcrdam
10. OG SÍÐASTA VSB
STÓRMÓTIÐ
22. mars - 1. aprfl. Veselin Topalov,
21 árs Búlgari, sigraði ásamt Gary
Kasparov, PCA heimsmeistara, á
VSB stórmótinu í Amsterdam sem
lauk á mánudaginn.
ÞAÐ munaði mestu um að Top-
alov lagði Kasparov að velli í inn-
byrðis viðureign þeirra í fyrstu
umferð. Þeir voru jafnir og efstir
fyrir síðustu umferðina og það
breyttist ekki því báðir unnu skákir
sínar. Topalov vann heimamanninn
Jeroen Piket og Kasparov vann
Hvít-Rússann Boris Gelfand.
Topalov skaut fyrst upp á
stjörnuhimininn árið 1992, þá að-
eins 17 ára, er hann vann hvert
mótið á fætur öðru á Spáni. Hann
hækkaði mjög á stigum, en tókst
ekki að fylgja því eftir fyrr en árið
1994. Þá náði hann frábærum ár-
angri á Ólympíumótinu í Moskvu,
vann þar t.d. sinn fyrsta sigur á
Kasparov. Hann er mikill vinnu-
hestur og þekktur fyrir ýtarlegar
rannsóknir sínar á drekaafbrigðinu
í Sikileyjarvörn, en það hefur fært
honum marga glæsilega sigra. Þar
fetar hann í fótspor Kirils Georgi-
evs sem var sterkasti skákmaður
Búlgara í áratug, áður en Topalov
tók við.
Fyrir VSB mótið var Topalov
kominn í 7.-8. sæti á heimslistanum
með 2.700 skákstig, ásamt Gelfand.
Fyrir ofan eru aðeins þeir Ka-
sparov, Kramnik, Karpov, ívant-
sjúk, Kamsky og Anand. Eftir þetta
er hann öruggur með sjöunda sæt-
ið. Lokastaðan á mótinu varð þessi:
1.-2. Topalov og Kasparov 6‘A v. af 9
3.-4. Short og Anand 5 v.
5.-6. Kramnik og Lautier 4'A v.
7. Seirawan 4 v.
8. Gelfand 3'/i v.
9. Piket 3 v.
10. Timman 2 l: v.
Kasparov vann skemmtilegan sig-
ur í síðustu umferð. Hann braut upp
svörtu kóngsstöðuna með laglegri
riddarafórn. Gelfand hratt upphaf-
legu atlögunni með því að gefa ridd-
arann til baka en síðan varðist hann
illa og varð auðveld bráð:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Boris Gelfand
Sikileyjarvörn
I. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - a6
6. Be2 - e5 7. Rb3 - Be7 8. 0-0
- 0-0 9. Khl - Rc6 10. f4 - a5
II. a4 - Rb4 12. Bf3 - Db6 13.
g4 - exf4 14. Bxf4 - Rd7 15. Rd4
- g6 16. Bh6 - He8
17. Rf5! - gxf5 18. gxf5 - Bf6 19.
Hgl+ - Kh8 20. Dd2 - Re5 21.
Dg2 - Rg6 22. fxg6 - fxg6 23.
Hgfl - Bg7? 24. Bxg7+ - Kxg7
25. Hadl - Bd7 26. Dg3 - He5
27. Bg2 - Rxc2 28. Rd5 - Dd8
29. Df2 - Rb4 30. Rb6 - Bg4 31.
Df7+ - Kh8 32. Rxa8 - Bxdl 33.
Hxdl - Dxa8 34. Df6+ - Kg8 35.
Hxd6 - He8 36. Hd7 og svartur
gafst upp.
Áskorenda-
og opinn flokkur
Það stefnir í mjög spennandi
keppni um sætin tvö í landsliðs-
fiokki. Mótinu lýkur á annan í pásk-
um og er teflt daglega frá kl. 14,
nema það er frí í dag, skírdag.
Kristján Eðvarðsson vann Sævar
Bjarnason, alþjóðlegan meistara, í
fjórðu umferð og tók forystuna
ásamt Guðmundi Daðasyni, frá
Bolungarvík, sem vann Ólaf B.
Þórsson óvænt. Efstir í áskorenda-
flokki eftir 4 umferðir:
1.-2. Kristján Eðvarðsson og Guðmundur
Daðason 3'A v.
3.-4. Heimir Ásgeirsson og Einar Kr. Ein-
arsson 3 v.
Efstir í opna flokknum:
1. Hjörtur-Oaðason 4 v.
2. -4. Ólafur Kjartansson, Hjalti Rúnar
Ómarsson og Davíð Guðnason 3'/z v.
5.-7. Héðinn Bjömsson, Hlynur Hafliðason
og Baldur H. Möller 3 v.
Margeir Pétursson
Öndvegishjónin, Ólaf-
ur Hilmar Þorbjörnsson,
f. 5. apríl 1926 í Reykja-
vík og Laufey Guð-
mundsdóttir, f. 10. mars
1926 í Ystu-Görðum,
Kolbeinsstaðahreppi,
Hnapp., fagna 140 ára
samanlögðum afmælum
sínum þann 5. apríl n.k.,
þ.e. föstudaginn langa,
enda veitir ekki af svo
löngum degi fyrir svo
mikið afmæli.
Þau hjónin hafa komið
upp stórum hópi unga
sem, foreldrum sínum til
heiðurs, munu halda
þeim veislu sem mun
eiga sér stað í fyrsta og
eina mótel- gistiheimili
landsins sem sonur þeirra er að
ljúka við að koma á laggirnar, þ.e.
Gistiheimilið Venus, sem staðsett
er við Seleyri í Hafnarskógi, rétt
við brúarsporð Borgarfjarðarbrúar,
gegnt Borgarnesi.
Þau hjónin hafa búið allan sinn
búskap í Reykjavík þar sem Ólafur
hefur í rúm fjörutíu ár verið í „stein-
inum“, þrátt fyrir að hann sé al-
mennt viðurkenndur sem löghlýðinn
og gegn drengur. Laufey hefur á
þeim tíma unnið almenn afgreiðslu-
störf þar til nú síðustu árin að hún
„endaði" á Kleppi, þó er hún af
öllum þekkt sem hin geðstilltasti
einstaklingur.
Til að forðast augljósan „en
kannski skiljanlegan" niisskilning
þá skal það áréttað að Ólafur hefur
þessi rúmlega ijörutíu ár unnið sem
steinsmiður hjá S. Helgason hf.
steinsmiðju og Laufey hefur nú síð-
ustu ár unnið í eldhúsi og á sauma-
stofu Kleppsspítala.
Ólafur og Laufey, sem hafa feng-
ið „helgarleyfi" nk. helgi, munu
ásamt börnum sínum taka á móti
gestum, sem fyrr segir, { Gistiheim-
ilinu Venus í Hafnarskógi, föstu-
daginn langa þann 5. apríl frá kl.
15.
Klæðningin
sem þolir
islenska
veðráttu
Leitið tilboða
ÁVALLT TIL A LAGER
ÞÞ
&co
Þ. ÞORGRIMSSON &CO
ÁRMÚLA 29 • 108 REYKJAVÍK
SÍMAR S53 8640/568 6IOO,fax 588 8755.
Opið
yfir
hátíðarnar
PRIMAVERA
RISTORANTE
AU STU RSTRÆTI 9
Verðfrá
m.v. 2 í bíl í B-flokki í eina viku'
Að auki fá menn fullan t
af bensíni.PBH
Vortilboð
lug og bíll
gildir 25. apríl
til 12. júní
Handliaíar Eurocard Atlas- og
Gullkorta fá 2000 kr. afslátt
(gilrtir cingöngu fyrir handhafa korlsins).
þar sem vegir liggja til allra átta
Hámarks- og lágmarksdvöl cr ein vika (7 dagar). Fyrsti brottfarardagur
cr 2S. apríl og síðasti heimkomudagur cr 12. júní.
Hafðu samband við sölufólk okkar, ferðaskrifstofurnareða í síma 50 50 100
(svarað mánud. - föstud. frá kl. 8-19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
‘ Innifalið: flug og bíll, ótakmarkaður kílómetrafjöldi, CDW-trygging, TP-trygging,
ASC-þjónustugjald á flugvelli og söluskattur.
FLUGLEIDIR
OATIAS^
EUROCARD
Traustur tslenskur ferðafélagi