Morgunblaðið - 12.05.1996, Page 1
96 SÍÐUR B/C/D
107. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR12. MAÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
Sumarblíða í Vesturbænum
KOTTURINN á myndinni er í góðum holdum og virðist hafa haft ar eru í hreiðrum og foreldramir gæta sín ekki vel enda upptekn-
það náðugt í vetur. Hvað sem því líður verður að hafa í huga að ir af fæðuöflun fyrir ungviðið. Kattavinir ættu því að stuðla að
veiðihvötin er sterk og freistingarnar margar um þetta leyti. Ung- friðsamlegri sambúð og muna að hafa bjöllu á hálsbandi kisa.
Finnskir áhrifamenn
ræða aðild að NATO
Helsinki. Morgunblaðið.
Minningar
að austan
VINSÆLASTA spilið í Þýskalandi
núna er eins konar austur-þýsk út-
gáfa af hinu þekkta Monopoly, þátt-
takendur fá sýn inn í daglegt líf borg-
aranna í alþýðulýðveldinu gamla.
Meðspilarinn, sem þú hefur treyst
fullkomlega, getur reynst vera njósn-
ari á vegum öryggislögreglunnar al-
ræmdu, Stasi. Að sjálfsögðu er fjöld-
inn allur af tækifærum til að misstíga
sig og hafna í steininum.
Leikreglurnar endurspegla gálga-
húmorinn sem gerði mörgum Austur-
Þjóðveijum lífið í einræðisríki komm-
únista bærilegra en ella. Þátttakend-
ur verða að kljást við skrifræði, mútu-
þægni og svarta markaðinn þegar
þeir keppast um að eignast bíl, síma
eða aðgöngumiðann að öllum gæðum,
sjálft flokksskírteinið.
Robert Kurek, þrítugur verkfræð-
ingur, fann upp spilið ásamt eigin-
konu sinni, Heike, sem er tónlistar-
kennari. Leikurinn ber nafn sem er
tilvitnun í eitt af slagorðum kommún-
ista, „Fram úr þeim en án eftiröpun-
ar“ og vísaði til þess að markmiðið
væri jafngóð lífskjör og vestan megin
en sneitt yrði hjá göllunum.
Fóru vitnin
hundavillt?
DÓMSTÓLL í Wales breytti nýlega
fyrri ákvörðun og neitaði að taka til
greina ósk manns sem vildi fá að
sannfæra menn um sakleysi hundsins
síns. Mark Hayes, smábóndi í
Llangrannog og eigandi hundsins
Dino, fullyrti að annar hvutti í
byggðarlaginu, nauðalíkur Dino, hlyti
að hafa verið á ferð er vitni sáu hund
bera önd nágranna Hayes á brott í
kjaftinum.
Vildi Hayes, sem segir Dino, fimm
ára gamlan völskuhund, hræðast
önnur dýr og aldrei gera þeim nokkurt
mein, fá að láta hann vera í
réttarsalnum samtímis verðlauna-
öndinni Snædísi og hænunni Gæsku
er deildi vistarverum með Dino um
18 mánaða skeið. Áhugaleysi hundsins
á öllu fiðurfé myndi þá verða öllum
yóst. „Ef hæna reyndi að gogga í
hann myndi hann umsvifalaust taka
til fótanna," segir Hayes.
Hann varð að greiða granna sínum
2.500 króna sekt vegna andarhvarfs-
ins. Gæska verpti eggi í biðstofu rétt-
arsalarins og sagðist Hayes ekki vita
hvort hann ætti að snæða það í morg-
unverð eða fleygja því í dómarann.
I ÞESSARI viku hefur aðild Finna að Atlants-
hafsbandalaginu, NATO, orðið hitamál meðal
æðstu ráðamanna í Helsinki. Martti Ahtisaari
Finnlandsforseti sá ástæðu til þess á föstudag
að ítreka með formlegum hætti að stefna Finna
í öryggismálum verði óbreytt: Þeir myndu halda
uppi sjálfstæðum landvömum og ekki gerast
aðilar að neinum vamarsamtökum.
Einnig varaði jafnaðarmaðurinn Taija Hal-
onen utanríkisráðherra menn við því að velta
fyrir sér hugsanlegri NATO-aðild. Sagði Halon-
en að best væri fyrir Finna að óháðu ríkin
innan Evrópusambandsins, ESB, yrðu einhuga
í þeim öryggismálaviðræðum sem tengjast
ríkjaráðstefnu ESB.
Það sem að lokum olli hörðum viðbrögðum
Finnlandsforseta og utanríkisráðherra var við-
tal við Ole Norrback Evrópumálaráðherra, sem
birtist á föstudaginn. í því viðtali sagðist Norr-
back halda að NATO-aðild Finna og Svía yrði
að raunveruleika innan tíðar. Hefur mál þetta
alls ekki verið á dagskrá í ríkisstjórninni og
teljast viðbrögð forseta einnig vera áminning
um að Norrback skuli ekki skipta sér af þeim
málum sem ekki em innan verkahrings Evrópu-
málaráðherra.
Ummæli Jakobsons
Ummæli Norrbacks vom hins vegar aðeins
framhald á umræðu sem hófst með erindi sem
Max Jakobson, fyrrum sendiherra Finna hjá
Sameinuðu þjóðunum og virtur stjómmálaskýr-
andi, flutti. Að mati Jakobsons væri aðild Finna
að NATO aðeins rökrétt skref á þeirri braut
sem þjóðin valdi með því að ganga í ESB.
Meðal þeirra sem nú hafa stutt NATO-
aðild er einnig Pertti Salolainen fyrmm ráð-
herra, sem sá um aðildarviðræður Finna við
ESB. Salolainen tjáði sig einnig um NATO-
aðildina í vikunni enda er hann að hætta þing-
mannsstörfum til þess að verða sendiherra á
Bretlandi.
Það er opinbert leyndarmál að öryggismál
vom þyngst á metunum þegar þjóðin og for-
ráðamenn hennar kusu að ganga í ESB haust-
ið 1994. Rökstuðningur fyrir NATO-aðild
Finna byggist aðallega á því að óhagstætt
verði að vera einir ESB-þjóða á hugsanlegu
hagsmunasvæði Rússa án tryggingar frá Atl-
antshafsbandalaginu. Verði Borís Jeltsín ekki
næsti forseti Rússlands telst mjög líklegt að
hemaðarbrölt og þjóðemishyggja fari enn vax-
andi þar eystra. Talsmenn stjórnarandstöðu-
flokka í Rússlandi hafa sumir hótað að her-
taka Eistland á ný. Talið er að frá þeirra sjón-
arhóli sé sáralítill munur á Eystrasaltsríkjunum
og Finnlandi.
NEMENDUR
í FYRIRRÚMI
mVRVÖRVR IYRIR
IAMSMEMÍ60ÁR