Morgunblaðið - 07.06.1996, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
ÍDAG
Olaf Ragnar og
Guðrúnu Katrínu
til Bessastaða
Frá Sverri Ólafssyni:
FORSETAKOSNINGAR eru fram-
undan. Miklu og góðu starfi Vig-
dísar Finnbogadóttur í embætti
forseta er um það bil að ljúka og
ég efa ekki, að hennar mun verða
sárt saknað. Þó þykist ég vera viss
um, að þjóðin muni lengi enn njóta
verka hennar, visku og krafta.
Eg tel, að við þessar kosningar
sé mannvalið gott og flestir fram-
bjóðenda hafi mikla og góða mann-
kosti. Mér þykir þó einn þeirra
hafa áberandi yfirburði yfir aðra
í þessum kosningum. Þessi maður
er Ólafur Ragnar Grímsson.
Friðarsinni
Ég tel mig gæfusaman, að hafa
fengið að þekkja Ólaf Ragnar og
hans glæsilegu eiginkonu, Guð-
rúnu Katrínu, um margra ára
skeið. Þau kynni hafa staðfest enn
betur þá skoðun mína, að þar fari
fólk sem á meira erindi á Bessa-
staði en flestir aðrir. Ólafur og
Guðrún eru bæði bráðgreind og
vel menntuð. Þau eru mikið áhuga-
fólk um listir og önnur menningar-
mál og hefur þessi áhugi þeirra
verið áberandi um langt árabil.
Ólafur er mikill friðarsinni og hef-
ur alla tíð verið öflugur málsvari
þeirra sem minna mega sín í sam-
félaginu. Störf Ólafs að friðarmál-
um innan samtakanna „Parlia-
mentarians for Global Action", þar
sem hann hefur starfað að friðar-
málum við hlið margra af þekkt-
ustu stjórnmálamönnum hins vest,-
ræna heims, hafa aflað honum við-
urkenningar og virðingar um víða
veröld. Meðal annara viðurkenn-
inga sem Ólafur hefur verið sæmd-
ur eru friðarverðlaun Indiru Gand-
hi.
Sérfræðingur
í alþjóðamálum
Ólafur Ragnar er þörkudugleg-
ur og' ósérhlífinn og fátt sem hann
er ekki tilbúinn að takast á við ef
það má vera samfélaginu til hags-
bóta. Hann hefur sterka siðferðis-
kennd og hefur ætíð verið í farar-
broddi þeirra sem berjast fyrir
mannréttindum og gegn hverskon-
ar spillingu, hvort sem er hér heima
eða úti í hinum stóra heimi. Ólafur
hefur á ferli sínum sem stjórnmála-
maður náð að verða einn af mikil-
vægustu sérfræðingum okkar á
sviði alþjóðamála og eru tengsl
hans á því sviði slík, að engu verð-
ur til jafnað. Þessa þekkingu sína
og tengsl hefur Ólafur verið óspar
á að miðia til íslenskra fyrirtækja
sem hefur orðið til þess, að þau
hafa getað haslað sér völl á nýjum
mörkuðum, svo sem í Indónesíu,
Víetnam, Kína, á Indlandi jafnt og
í Suður-Ameríku, þ.m.t. í Mexíkó
og Chile. Vegna starfs míns er
mér persónulega kunnugt um þá
miklu virðingu og viðurkenningu,
sem Ólafur nýtur meðal valda-
manna í mörgum fjarlægum lönd-
um, en þar að auki er hann bæði
þekktur og virtur í menningar-
heiminum. Engan þekki ég annan
íslending, sem hefur náð slíkum
frama og viðurkenningu á alþjóða-
vettvangi. En stuðningur minn við
Ólaf Ragnar og Guðrúnu byggist
ekki síður á mínum persónulegu
kynnum af þeim _en yfirburða hæfi-
leikum þeirra. Ólafur Ragnar og
Guðrún Katrín eru vinir vina sinna,
bæði raungóð og ráðagóð. Þau eru
blátt áfram og með öllu laus við
yfirborðsmennsku, tilgerð eða
stærilæti sem gerir þau enn meira
aðlaðandi. Þau eiga það sameigin-
legt að vera einstaklega hlý í við-
kynningu og vináttu. Þau eru bæði
bráðskemmtileg og miklir húmor-
istar og það sem meiru máli skipt-
ir, þau bera fyrir brjósti hag þeirra
sem um sárt eiga að binda. Þau
eru bæði reglusöm og vönd að virð-
ingu sinni og framkomu. Þau eru
bæði mjög vel máli farin og eiga
auðvelt með mannleg samskipti.
Ég er þess fullviss, að þau muni
verða glæsilegir fulltrúar íslensku
þjóðarinnar og ekki síður mikil-
vægur lykill okkar að samfélagi
þjóðanna, jafnt og boðberar friðar
og réttlætis. Ég mun kjósa Ólaf
Ragnar Grímsson í komandj kosn-
ingum einfaldlega vegna þess, að
málefnum íslensku þjóðarjnnar er
best borgið í hans höndum.
SVERRIR ÓLAFSSON,
myndlistarmaður
í Hafnarfirði
Sameinumst um
Guðrúnu
Agnarsdóttur
Frá Vali Pálssyni:
ÞAÐ ER sorglegt að sjá hvemig
bamalegur sandkassaleikur póli-
tískra sundrangarafla hefur fengið
að gegnumsýra þessar forsetakosn-
ingar.
Ég er sammála þeim sem halda
á lofti þeirri skoðun að forsetakosn-
ingarnar snúist í dag um það hvort
vilji sé fyrir því að breyta embætt-
inu í stíu fyrir pólitískan hanaslag
eða viðhalda því sem sameiningar-
tákni þjóðarinnar. Viiji menn póli-
tískan hráskinnsleik geta þeir valið
á milli Ólafs Ragnars og Péturs
Hafstein. Að vísu hefur verið á það
bent að Pétur sé reynslulítill á sviði
alheimsstjómmálanna. Ekki ætla
ég mér að dæma um það en eitt
er víst að gera verður þá kröfu að
forseti sé samræðuhæf(-ur) um
gang heimsmálanna í hópi opin-
berra ráðamanna, án þess þó að
vera með yfirlýsingar sem ganga
þvert á opinbera stefnu Alþingis á
hverjum tíma.
Að dómi okkar sem viljum halda
flokkspólitískum flokkadráttum ut-
an við forsetaembættið er Ólafur
Ragnar með öllu óhæfur þótt hann
hafi vissulega mikla reynslu af inn-
anríkis- og utanríkismálum. Það
ætti öllum að vera orðið ljóst að
maður sem á sér jafnmarga haturs-
menn og hann getur aldrei orðið
forseti þjóðarinnar allrar, um hann
næst aldrei þjóðarsátt.
Vilji menn viðhalda reisn og
virðuleik forsetans og jafnframt fá
á Bessastaði hæfan einstakling með
reynslu og innsýn í innanríkis- og
utanríkismál, sem um getur mynd-
ast þjóðarsátt, er valið einfalt. Guð-
rún Agnarsdóttir læknir uppfyllir
allar þessar'kröfur.
VALUR PÁLSSON,
tónlistarmaður,
Stokkhólmi.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
sérfræðinga, eins og t.d.
dr. Sigrúnu, í lið með ykk-
ur til að skipuleggja að-
gerðir. Gerið eitthvað! Lát-
ið ekki málið reka á reiðan-
um, jaaá, sjáum nú til, nei
þetta gengur ekki lengur
og e_r skólanum til skamm-
ar. Ég veit einnig að þetta
á sér stað úti um allt í
mörgum skólum. Ég hef
lesið viðtöl við fullorðna
þolendur og það er sorgleg
lesning. Einnig vil ég skora
á foreldra gerendanna að
tala alvarlega við börnin
sín og fá þau til að sjá að
þau eru að gera rangt.
Börnin hlusta helst á for-
eldra sína, uppeldið á sér
jú stað heima. Látum þetta
ekki viðfangast, þetta er
siðlaust. Það hljóta allir að
sjá.“
Frá aðstandanda
úr fjarlægð.
Gæludýr
Sissý er týnd
SISSÝ hvarf frá Grettisgötu í Reykjavík þann 23. maí
sl. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er Sissý gulbrönd-
ótt. Hún er ómerkt. Hennar er sárt saknað og ef ein-
hver hefur orðið ferða hennar var vinsamlegast hringið
í síma 551-0929.
MORGUNBLAÐIÐ hefur
fallist á að birta eftirfar-
andi bréf undir dulnefni
vegna alvöru þess máls,
sem um er fjallað:
Einelti í
Hólabrekku-
skóla
„MIG langar að vekja at-
hygli skólastjórnanda,
kennara Hólabrekkuskóla
og foreldrum gerenda á
ótrúlegu ofbeldi og einelti
sem fær þrifist innan
veggja skólans ef svo ólík-
lega vill til að það hafi far-
ið fram hjá einhveijum
þessara aðila.
Ég hef nú í vetur og
reyndar síðastliðna vetur
orðið vitni að úr nokkurri
íjarlægð kúgun og ofbeldi
sem á sér stað innan skól-
ans. Hlutum sem þar ger-
ast, og manni rennur kalt
vatn milli skinns og hör-
unds að heyra atburðarás-
ina og er maður þó ýmsu
vanur, hef verið kennari
sjálfur og margt séð í am-
erískum bíómyndum, en
satt að segja líkist þetta
helst slíkum atriðum. Ekki
er alltaf að foreldrar kom-
ist að því hvað komið hefur
fyrir börnin þeirra, þar sem
þolendur skammast sín
venjulega mikið fyrir að
vera teknir þannig fyrir og
leyna því eins og þeir geta;
mega ekki heyra á það
minnst að eitthvað sé gert
í málinu. Nei alls ekki,
gerandi er á síðasta snún-
ingi að vera-rekinn úr skól-
anu.m; ef ég klaga fæ ég
sko að finna margfalt verr
fyrir því. Ég verð barinn í
klessu, dýft ofan í klósett,
úthræktur, hrint, strítt,
hjólið mitt skemmt, og
þannig mætti lengi telja.
Nei, alls ekki mega ör-
væntingarfullir foreldrar
rekast í málin, það gerir
bara illt verra. Foreldrar
mega horfa upp á bömin
sín nídd niður í svaðið af
skólafélögunum.
Mig langar að benda á
leið sem ef til vill er fær
í þessu máli. Dr. Sigrún
Aðalbjarnardóttir er sú
manneskja sem hvað mest
hefur rannsakað og skrif-
að um einelti, en það er
orðið sem nú er oftast
notað um það atferli sem
ég hef verið að lýsa. Ég
vil eindregið skora á skóia-
stjórnendur og kennara að
gera eitthvað í þessu öm-
urlega máli, það er verið
að fremja sálarmorð á sak-
lausum börnum og ungl-
ingum.
• Notið nú sumarið og
skipuleggið aðgerðir, fáið
Kettlingar fást
gefins
ÞRIR svartir og hvítir sjö
vikna gamlir kettlingar
þurfa að eignast góð heim-
ili. Þeir eru vanir börnum.
Áhugasamir eru beðnir að
hafa samband í síma
557-7788.
Dd5 - Hel+ 28. Kf2 -
H8e2+ 29. Kg3 - Dc3+
og hvítur gafst upp. Eftir
30. Hd3 -He3+ tapar hann
biskupnum á h3 og svartur
.hefur áframhaldandi mát-
sókn.
Helgarskákmót á Bíldud-
al á vegum Tímaritsins
Skák fer fram nú um helg-
ina og hefst í kvöld.
SKÁK
llmsjón Margcir
,Pctursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á
skipsmótinu, Skák-
þingi Islands,
landsliðsflokki,
sem lauk á mánu-
dagskvöldið.
Magnús Örn Úlf-
arsson (2.290) var
með hvítt, en Jó-
hann Hjartarson
(2.570), stórmeist-
ari, hafði svart og
átti leik.
Hvítur lék síðast
25. Hg3-g2?
25. - Bxe4! 26.
fxe4 - Hxe4 27.
Eim-
ÞESSI duglegu systkin frá Hvammstanga héldu
hlutaveltu nýlega og færðu barnastarfi Hjálpar-
sjóðs RKI ágóðann sem varð 1.900 krónur.
Þau heita Anton Albert og Kristrún Osk.
Hlutavelta
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var á dögunum að
fletta Óperublaðinu, en með-
al efnis þess eru „óperupunktar",
þar sem í stuttfréttum er meðal
annars getið um ýmislegt af gengi
íslenzkra söngvara erlendis.
í þessu blaði er sagt af ferð
Kristms Sigmundssonar og Guð-
jóns Óskarssonar á fjalir Scala, en
fréttir af góðri frammmistöðu
þeirra félaga þar berast okkur ein-
mitt þessa dagana. Hanna Dóra
Sturludóttir sigraði í ljóðasöng-
keppni í Þýzkalandi fyrir skömmu
og Jóhann Smári Ævarson bassa-
söngvari hefur undirritað samning
við óperuhúsið í Köln, þar sem
þrír aðrir íslenzkir listamenn
starfa; Erlingur Vigfússon söngv-
ari, Gerður Gunnarsdóttir, fiðlu-
leikari, og Katrín Hall ballettdans-
ari, sem senn er á heimleið til ís-
land. Tómas Tómasson bassa-
söngvari mun næsta vetur syngja
á sviði Konunglega leikhússins í
Kaupmannahöfn, þar sem Jón
Rúnar Arason söng sig til verð-
launa á dögunum. Sólrún Braga-
dóttir söng nýlega greifynjuna í
Brúðkaupi Fígarós í Belfast á ír-
landi og Þóra Einarsdóttir, sem nú
syngur Dísu í Galdra-Lofti Jóns
Ageirssonar, heldur á ný til Eng-
lands í sumar til að syngja í Töfra-
flautunni og verður farið í leikferð
með þá sýningu.
xxx
LOKS skal hér tíundað úr Óperu-
blaðinu, að Garðar Cortes sem
nú sveiflar tónsprotánum á sýning-
um Galdra Lofti, hefur fengið til-
boð frá óperunni í • Helsinki um
meiri söng þar í kjölfar Ótelló, sem
hann söng þar til Galdra-Loftur
seiddi hann heim.
Þeir sem til þekkja munu af þessu
sjá, að margir íslenzkir söngvarar,
sem starfa úti, eru hér ónefndir.
Það er því hreint ekki svo lítill hóp-
ur Islendinga, sem hefur haslað sér
söngvöll erlendis. Og hann er alltaf
að stækka.
xxx
NEYSLA á munntóbaki, eða
sænsku skroi, meðal ung-
menna hefur farið vaxandi á síðari
árum eins og fram kom í blaðinu í
gær. Sérstaklega hefur þessi sóða-
skapur verið áberandi meðal
íþróttamanna, sem margir hverjir
eru þó í fremstu röð.
Fyrst heyrði skrifari af notkun
þessara tóbakskúlna, sem hnoðaðar
eru fram og aftur uppi í gómnum,
hjá heimsþekktum sænskum knatt-
spyrnumanni á áttunda áratugnum,
og margir öpuðu ósiðinn eftir
stjörnunni. Einmitt áNorðurlöndum
hefur þetta verið vinsælt, einhvers
konar tískubóla, sem breiðst hefur
mjög út.
Út af fyrir sig er þetta ekki ósvip-
að og að taka í vörina eins og eldri
íslendingar hafa margir prófað, én
það sem meðal annars er sérlega
ógeðfellt við sænska skroið er að
ungir strákar falla fyrir þessu og
telja slíka eiturneyslu flotta. Sem
betur fer hefur Alþingi íslendinga
samþykkt að banna notkun munn-
tóbaks og vonandi tekst að fram-
fylgja banninu og þeim ákvæðum
öðram sem er að finna í nýju tób-
akslögunum.