Morgunblaðið - 09.06.1996, Side 16
16 E SUNNUDAG.UR 9. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HÚSIÐ OG GARÐURINN
Undirbúning-
ur jarövegs
NAUÐSYNLEGT er að undirbúa
vel jarðveginn sem ætlunin er
að gróðursetja í. Loft og vatn
þarf að geta leikið um moldina
eigi plönturnar að ná öruggri
festu og því þarf að stinga beð-
in vel upp. Einnig
þarf að blanda á
jarðveginn
áburði og bæti-
efnum. Flestar
tegundiraf gróð-
urmold eða
moldarjarðvegi
sem finnast hérlendis eru frem-
ur ófrjóar og þéttar í sér, eins
og til dæmis mýrarjarðvegur,
leir og fokjarðvegur. I görðum í
þéttbýli er oftast notuð aðflutt
mold, grafin upp úr misdjúpum
mýrum eða moldarbörðum. Nú-
orðið er einnig hægt að kaupa
tilbúna, grjóthreinsaða og
blandaða mold.
Undirlagið í garðinum getur
verið misjafnt. Þar sem um möl
eða annað gljúpt jarðefni er að
ræða ætti hæfilegt moldarlag
ekki að vera undir 50-70 sentí-
metrum. Ef undirlagið erfast
berg eða móhella þarf þykkara
moldarlag.
Ef um er að ræða fastþjapp-
aðan leir eða malarjarðveg get-
ur reynst nauðsynlegt að losa
um hann áður en mold er bætt
ofan á. Síðan er yfirborðið unnið
vel í skóflustungudýpt, 25-30
sm, og mulið vel. Oft þarf að
bæta efni í efsta lag moldarinnar
til að tryggja vatns- og loft-
streymi.
Húsdýraáburður
bætir alla mold
I mýrarmold er þá oftast not-
aður sandur eða vikur og verður
þá að gæta þess að efnið sé
mátulega gróft. í leirkennda eða
mjög sendna mold þarf hins
vegar að blanda léttri mómold
eða húsdýraáburði. Húsdýraá-
burður bætir í raun alla mold
og heppilegast að að stinga
hann upp með moldinni svo að
blandist vel í skóflustungudýpt.
í 100 m2 er hæfilegt að setja
10-15 kíló af blönduðum garðá-
burði, til dæmis blákorn, kálkorn
eða trjákorn. Ef um nýjan garð
með mýrarmold er að ræða er
gott að nota sex kfló af þrífos-
fati og 20 kfló af kalki. Að þessu
búnu er hægt að gróðursetja í
garðinn án þess að þurfa að
bera á það sem eftir er sumars.
Leikur
að efni
ORN Ómar Guð-
jónsson bifreið-
arstjóri býr við
Gerðhamra
ásamt föður sín-
um og hefur
dundað við að fegra umhverfi sitt
síðastliðin tvö ár. Hugmyndirnar
koma úr eigin kolli og segist hann
hafa gaman af því að leika sér
með efniviðinn; rauðamöl frá
Svínavatni, fjörusand, hraunhell-
ur, birki og ýmsa stærri hluti, til
dæmis dráttarvélar. í garðinum
eru þrír karlar, smíðaðir úr þirki
sem til féll við grisjun Hallorms-
staðaskógar eitthvert sinnið. Var
Örn Ómar sérstaklega að leita
að dökkum efnivið en trén eru
50-60 ára gömul. Þá hefur hann
smíðað kerru, sem ekki var nokk-
ur leið að nálgast með öðrum
hætti;' og sett á hana mjólkur-
brúsa, að gömlum sið.
Ekki er allt upp talið því garðinn
prýðir fegursta tjörn, tréharpa
með koparvír sem Orn Ómar
smíðaði, og dráttarvél frá fyrri tíð
sem hann hefur málað eldrauða
og ekki var auðvelt að verða sér
út um að hans sögn. Fyrirframan
húsið stendur einn birkikarlanna
með merki Reykjavíkurborgar um
hálsinn pg heilsar gestkomandi.
Örn Ómar segist hafa nefnt
hann eftir núverandi forsætisráð-
herra. „Hann heitir Davfð Odds-
son, því hann hugsaði svo vel um
Grafarvoginn í sinni borgar-
stjóratíð."
Morgunblaðið/Ásdís
DAVÍÐ gengur við staf og geymir mjólk á brúsa.
í GARÐINUM er fjölskrúðugt dýralíf, tréharpa og dráttarvél.
Borgarplast hf., Sefgörðum 3, I70 Seltjarnarnesi
Sími: 561 22 II, Fax: 561 4I8S
Internet: http://www.arctic.is/fin/borg
iaa ÆTw
Vökvun
ÞEGAR vökvað er fer best á því
að svo rækilega sé að verki
staðið að efstu 20 sentímetrar
jarðvegsins vökni. Ef gróður-
sett er í þurru
veðri er nauð-
synlegt að að
vökva strax og
ef margar plönt-
ur eru gróður-
settar getur
þurft að vökva allt aftur að lok-
inni gróðursetningu. Þá er auð-
veldast að vökva með úðara
sem getur gegnbleytt jarðveg-
inn á 2-3 tímum.
Almennt hefur verið talið rétt
að vökva daglega eftir gróður-
setningu og þá oftast bara
sprautað yfir plönturnar svo lít-
ið vatn nær að síga niður með
rótunum. Ef vökvað er oft og
litið i senn kólna plönturnar og
jarðvegurinn að nauðsynja-
lausu, sem dregur úr vexti. Ef
vökvað er vel við gróðursetn-
ingu á ekki að þurfa að vökva
aftur fyrr en eftir 4-5 daga ef
þurrt er. Gott er að vökva með
ylvolgu vatni sé þess kostur því
jarðvegurinn dregur fljótar í sig
volgt vatn en kalt. Ef blöndun-
artæki eru ekki vð hendina má
blanda vatni í tunnu sem vök-
vað er úr. Vökvið ekki í glaða
sólskini um miðjan dag, heldur
að morgni eða á kvöldin.