Morgunblaðið - 07.09.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. SEPTEMBER 1996 15
AKUREYRI
Málverka-
uppboð
GALLERÍ Borg heldur málverka-
uppboð í Sjallanum annað kvöld,
sunnudagskvöldið 8. september kl.
20.30.
Boðin verða upp um 70 málverk,
flest eftir þekktustu listamenn þjóð-
arinnar. Þá verða boðnar upp tvær
myndir eftir Kristínu Jónsdóttir, en
önnur er máluð á Akureyri um 1914.
Einnig verða boðin upp persnesk
teppi. Uppboðsverkin verða sýnd í
Mánasal Sjallans í dag, laugardag
og á morgun frá kl. 14 til 18.
---------» ♦ ♦----
Kjarnalundar-
dagur
KJARNALUNDARDAGURINN
verður haldinn á morgun, sunnudag-
inn 8. september frá kl. 14 til 17 í
húsi Náttúrulækningafélags Akur-
eyrar, Kjarnalundi.
Þar verður flóamarkaður og köku-
basar, konur sýna íslenska þjóðbún-
inginn og orlofshúsin við Kjarnalund
verða sýnd. Einnig verða veitingar
í boði og tónlist. Miklar framkvæmd-
ir hafa verið við lóð Kjarnalundar í
sumar, þannig að umhverfið er til
mikillar prýði.
----♦ ♦ ♦----
Kristilegt fé-
lag kvenna
heldur fund
KRISTILEGT félag kvenna, Aglow
hefur vetrarstarf sitt með fundi í
félagsmiðstöðinni Víðilundi næst-
komandi mánudagskvöld, 9. sept-
ember ki. 20. Ræðukona kvöldsins
verður Sigríður Halldórsdóttir og er
yfirskriftin „Faðirinn sjálfur elskar
yður.“
----» ♦ ♦----
Messur
GLERÁRKIRKJA: Messa verður í
kirkjunni á morgun, sunnudaginn 8.
september kl. 14.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Pjöl-
skyldusamkoma kl. 17 á sunnudag,
fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una og eru foreldrar hvattir til að
mæta og kynna sér hvað er í boði í
barna- og unglingastarfi Hjálpræðis-
hersins í vetur. Heimilasamband kl.
16 á mánudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bæna-
samkoma í umsjá unga fólksins kl.
20.30 í dag, laugardag. Vakninga-
samkoma kl. 20 á sunnudag, ræðu-
maður Jóhann Pálsson, stjórnandi
Valdimar Júlíusson. Bæn og lofgjörð
á föstudag. Allir velkomnir.
Nýr ilmur
á Islandi
VERO
mODA
Laugavegi 9S,s. 552 1444 • Kringlunni,
s. 568 6244 • Akureyri, s. 462 7708
Morgunblaðið/Kristján
Litið til hafs
JOKULL Guðmundsson er vel
þekktur á Akureyri enda
nokkuð fyrirferðarmikill í
miðbænum. Hann starfar sem
stöðumælavörður hálfan dag-
inn og þeir eru margir bæj-
arbúarnir sem hafa fengið
orðsendingu frá honum undir
rúðuþurrkuna. En þeir eru
kannski færri sem vita að Jök-
ull er líka smábátasjómaður
og „skipstjóri á Badda EA“,
eins og hann orðar það sjálf-
ur. Jökull fer reglulega og fær
sér soðið en á myndinni er
hann að líta til hafs og að sjálf-
sögðu í fullum skrúða.
HASKOLABIO
HASKOLABIO ÞAKKAR ÞEIM 23.866 GESTUM SEM LOGÐU LEIÐ SINA I
HÁSKÓLABÍÓ TIL AÐ SJÁ ID4.
HÁSKÓLABÍÓ LEGGUR METNAÐ SINN í AÐ SÝNA
BÚRVALS MYNDIR í ÚRVALS KVIKMYNDAHÚSI.
VERIÐ VELKOMIN í HÁSKÓLABÍÓ WwÆkm■
J