Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 14
14 B SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 B 15 STÓRVIRKAR vinnuvélar losuðu grjótið úr Lögbergi og þunga- flutningabílar fluttu það í Steinsmiðjuna. GRJÓTIÐ var sagað í tröllvaxinni bandsög. Sumt af grágrýtinu og allt gabbróið var sagað báðum megin. ALLS voru tekin um 1.000 tonn af grjóti til vinnslu vegna Dómhússins. Þar af 800 tonn af grágrýti og 200 tonn af gabbrói. Morgunblaðið/Ámi Sæberg ÞAÐ voru engir smáhnullungar sem starfsmenn Steinsmiðjunnar þurftu að meðhöndla. Steinarnir vega á bilinu 5-10 tonn hver. Öflug- ir kranar voru notaðir til að flytja grjótið inn í verksmiðjuna. Það þótti við hœf i að nota alíslenskt á borð við grágrýti i Dóm- húsið. YTRA byrði stórs hluta af grágrýtinu var klofið með svonefndum settjárnum og setthömrum. Beitt var aidagömlum handtökum steinsmiða. Þessi vinnsluaðferð er sú sama og notuð var við byggingu Alþingishússins fyrir rúmri öld. .. BYGGTUR LOGBERGI DÓMHÚS Hæstaréttar stendur á milli gamalgróinna bygginga við Arnarhól. Skjannahvítt Safnahúsið, svart Þjóðleikhús og grábrúnn Arn- arhvoll varða húsið á þijá vegu. Að sögn Margrétar Harðardóttur arkitekts vildu þau Steve Christer, sem teiknuðu Dómhúsið, láta það falla vel að þessum bakgrunni. Ytra byrði hússins var því ákveðið úr eir, gabbró og grágrýti, varanlegum efnum sem voru í góðu samræmi við umhverfið. Margrét sagði að það hafi þótt fara vel á því að nota alís- lenskt byggingarefni á borð við grá- grýti í Dómhúsið. Grágrýti megi víða sjá í eldri byggingum hér á landi. Grágrýtið í Dómhúsinu er ýmist fleygað eða sagað. Fleyguðu stein- arnir minna á útlit Alþingishússins, enda unnir með svipuðum aðferðum og þar var beitt. Gabbróið er notað til áhersluauka við innganga Dóm- hússins og á milli gluggaflata. Grænleitur litur gabbrósins myndar tengingu á milli spanskgræns eir- klæðningarinnar og grágrýtisins. Sótt í Lögberg Steinsmiðja S. Helgasonar hf. í Kópavogi fékk það hlutverk að framleiða steinklæðninguna á Dóm- húsið. Að sögn Sigurðar Helgason- ar, steinsmiðs og forstjóra, var haf- ist handa við að losa grjót í Dómhús- ið í febrúar 1995. Þótt grágrýti sé algeng bergtegund hér á landi er ekki hlaupið að því að ná í hentugt gijót. Galdurinn er að finna heillegt berg, það má ekki vera sprungið eða mjög holuríkt. Steinsmiðjan var með grágrýtisnámu á Miðdalsheiði en gijótið þar er uppurið. Sigurður vissi af nokkrum stöðum í nágrenni höfuðborgarinnar þar sem hentugt grágrýti var að finna en erfitt reyndist að fá leyfi til gijótnámsins. Það var loks að Kópavogsbær leyfði að gijót yrði tekið úr Lög- bergi ofan við Reykjavík. Sigurður segir að þar séu þokkalega góðar klappir. Þó er bergið svolítið götótt, líkt og sjá má á steinhellunum í Dómhúsinu. Náman er sunnan við þjóðveg 1 þar sem hann liggur upp fyrir Lögberg. Það er því skemmti- leg tilviljun að Dómhús Hæstaréttar er bókstaflega byggt úr Lögbergi. Þúsund tonn af grjóti Alls voru tekin 800 tonn af grá- grýti til að nota í Dómhúsið. Auk grágrýtisins voru sótt 200 tonn af gabbrói í Eystra-Horn við Horna- fjörð. Vinnsla gijótsins stóð frá því í febrúar og fram á haust í fyrra. Grágrýtið var að mestu klofið með settjárnum og setthömrum,_ svipuð- um verkfærum og notuð voru við byggingu Alþingishússins fyrir 115 árum. Sigurður Helgason segir að hægt sé að nota nútíma verkfæri við sögun og eins sé hægt að flýta lítillega fyrir með loftverkfærum. Annars séu þetta sömu vinnubrögð og tíðkast hafa í aldanna rás við steinsmíði. Munurinn á Dómhúsinu og Alþingishúsinu er sá að Alþingis- húsið var reist úr tilhöggnum stein- um en Dómhúsið er klætt 10 senti- metra þykkum steinhellum. Hell- urnar eru límdar saman með se- mentsblöndu og festar við burðar- veggi með járnfestingum. Sigurður segir að með tímanum verði áferð grágrýtisins í Dómhúsinu svipuð því sem sjá má á Alþingishúsinu. Hluti ÞEGAR steinhellurnar voru tilhöggnar og sniðnar var borað fyrir festingum. Hellurnar eru síðan festar við burðarvegg hússins með járnankerum og límdar saman á köntunum með sementsblöndu. SÉRSTAKIR steinar voru útbunir á hornin á húsinu. Þannig næst áferð eius og húsið sé hlað- ið úr heilum steinum. GENGIÐ var frá klæðningunni utan á Dómhúsinu í fyrrasumar. Eiríkur Tryggvason múrarameist- ari og menn hans önnuðust uppsetninguna. grágrýtisins og allt gabbróið var sagað. Áferðin á þeim steinhellum er slétt til mótvægis við hijúfa áferð höggnu hellnanna. Aldagömul vinnubrögð Að sögn Sigurðar Helgasonar er töluvert um það að íslenskt gijót sé notað í byggingar hér á landi. Hann segir að af Arnarhóli megi sjá nokkrar byggingar þar sem starfsmenn Steinsmiðju S. Helga- sonar hafa tekið til hendinni. Auk dómhússins megi nefna Seðlabanka íslands, Héraðsdóm Reykjavíkur, Vesturgötu 7 og umgjörð um mósa- íkmynd Gerðar Helgadóttur á Toll- stöðinni. En hvað þykir Sigurði eft- irminnilegast frá vinnunni við Dóm- hús Hæstaréttar? „Það var sérstakt frá okkar hendi að vinna með svipuðum vinnubrögð- um og sömu verkfærum og beitt var fyrir heilli öld. Steinsmiðir kunna þessi handbrögð enn, þótt þjálfunin hafi ekki verið mikil í byij- un, en við erum í góðri þjálfun nú,“ sagði Sigurður. TILHÖGGNIR grágrýtissteinar eru einnig notaðir við frágang lóðar Dómhússins. Vié steinhöggió var beitt svipuóum vinnubrögóum og verkffærum og ffyrir heilli öld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.