Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 B 17 ATVIN NU UGL YSINGAR Tæknival IÐNSTYRIDEILD Tólfti tœknifrœðingurinn Iðnstýrideild Tœknivals hf. leitar að tœknifrœðingi til starfa við verkefni á sviði sjálfvirkni. Viðfangsefni deildarinnar eru margvísleg svo sem framleiðslu- og verksmiðjustýringar með FIX- skjámyndakerfi, iðntölvustýringar og háþróaðar strikamerkjalausnir. Síauknar kröfur framleiðslu- fyrirtœkja um hagkvæmar lausnir á sviði sjálfvirkni kalla á fleiri starfsmenn til deildarinnar. Við leitum að vel menntuðum og hœfum aðila til að takast á við krefjandi verkefni. Áhersla er lögð á fagleg og vönduð vinnubrögð. Umsœkjendur þurfa að hafa burði til að vinna sjálfstœtt, geta stýrt verkefnum og fylgt þeim vel eftir. Nánari upplýsingar veitir Guðný Harðardóttir, STRÁ-GALLUP og Ragnar Bjartmarz, deildarstjóri Iðnstýrideildar Tæknivals. Umsóknum skal skilað eigi síðar en 23. september n.k. til STRA- GALLUP. Ráðning verður sem fyrst. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Umsóknareyðublöð eru fyrirliggjandi á skrifstofunni sem opin erfrá kl.10-16, en viðtalstímar erufrá 10-13. STRA GALLUP STARFSRAÐNINGAR Mörkinni 3,108 Reykjavík Sími: 588 3031, bréfsími: 588 3044 Guðný Harðardóttir Framkvæmdastjóri Starf framkvæmdastjóra Héraðsnefndar Þingeyinga er laust til umsóknar. Ráðning vérður frá 1. janúar 1997. Umsóknarfrestur er til 1. október nk. Um áramót verða Héraðsnefnd Suður-Þing- eyjarsýslu og Héraðsnefnd Norður-Þingey- inga sameinaðar í Héraðsnefnd Þingeyinga. Starfssvæði nefndarinnar verður frá Háls- hreppi til Þórshafnarhrepps. Skrifstofa henn- ar verður á Húsavík. Nánari upplýsingar veita Einar Njálsson í síma 464 1222 og Ingunn St. Svavarsdóttir í síma 465 2188. Umsóknir skulu vera skriflegar og berast til Halldórs Kristinssonar, Útgarði 1,640 Húsa- vík. LYFJAVERSLUN ISLANDS H F. ICELANDIC PHARMACEUTICALS LTD. Tæknimaður Lyfjaverslun íslands hf. óskar eftir að ráða tæknimenntaðan aðila á viðhaldsdeild sína. Aðallega er um að ræða starf við viðhald framleiðslutækja í lyfjaverksmiðju fyrirtækis- ins og búnaðar er henni tengist. Sóst er eftir aðila með menntun sem vélfræð- ingur frá Vélskóla íslands og með sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun. Aðilar með hliðstæða þekkingu koma þó vel til greina. Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristinn Ó. Kristinsson í síma 562-3900. Áhugasamir skili umsóknum til skrifstofu félagsins Borgartúni 7, 105 Reykjavík, merktum „Starfsmannahald". SIÓVÁHinALMENNAR Suöurlandsbraut 4 og Siðumúla 39. Umboösmenn um allt land. Netþjónusta Sjóvá-Almennar óska eftir að ráða starfsmann til að sjá um notendaþjónustu á tölvuneti fyrirtækisins. Starfíð er fjölbreytt og krefst þekkingar á Microsoft skrifstofuhugbúnaði og stýrikerfunum Windows 95 og NT. Notendur tölvukerfanna eru um 150 og eru staðsettir um allt land. Væntanlegur starfsmaður þarf að hafa menntun á rafeindasviði og vera þjónustulipur. Hann þarf að geta bilanagreint tölvur og önnur skrifstofutæki og framkvæmt minniháttar viðgerðir og annast fyrirbyggjandi viðhald. Þegar starfsmaður með rétta persónueiginleika er fundinn mun hann fá viðbótar menntun og þjálfun eftir þörfum. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar "Sjóvá-Almennar 456" fyrir 21. september n.k. Heimilislæknar Vegna nýafstaðinnar kjaradeildu heimilis- lækna er hér með framlengdur umsóknar- frestur um tvær lausar stöður heilsugæslu- lækna við Heilsugæslustöðina á Hvamms- tanga. Stöðunum fylgja hlutastörf við Sjúkra- hús Hvammstanga. Stöðurnar veitast frá 1. janúar 1997. Krafist er sérfræðiviðurkenning- ar í heimilislækningum. Umsóknarfrestur er til 30. september nk. Einnig vantar nú þegar lækni í afleysingar til áramóta. Upplýsingar veita Gísli Þ. Júlíusson yfirlækn- ir, vs. 451 2346, hs. 451 2357 og Guðmund- ur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri, vs. 451 2348, hs. 451 2393. Umsóknir sendist Guðmundi Hauki Sigurðs- syni framkvæmdastjóra, Spítalastíg 1, 530 Hvammstanga. Heilsugæslustöðin Hvammstanga, Sjúkrahús Hvammstanga. Sjúkrahús Suðurnesja Keflavík, auglýsir eftir: Ljósmóður til starfa strax eða eftir nánara samkomulagi á fæðingardeild sjúkrahússins. Fæðingardeildin er 8 rúma blönduð fæð- ingar- og kvensjúkdómadeild. Fæðingar eru 250-300 á ári. Hjúkrunarfræðingum á almenna deild (sjúkradeild). Þar sem fer fram m.a. hjúkrun skurðsjúklinga lyflæknisjúklinga, krabba- meinssjúklinga og öldrunarsjúklinga. Deildin er 22ja rúma deild. Á Suðurnesjum búa um 16 þúsund manns. Á Sjúkrahúsi Suðurnesja hefur megináhersla verið lögð á bráðaþjónustu, skurðlæknis- þjónustu, öldrunarhjúkrun og fæðingar. Áhugasamar Ijósmæður/hjúkrunarfræðing- ar, vinsamlegast hafið samband við hjúkrunar- forstjóra og/eða framkvæmdastjóra og fáið upplýsingar um laun og kjör í síma 422 0500, eða komið í heimsókn. Heilsugæslulæknir Frá 1. október nk. er laust starf heilsugæslu- læknis við H 1 stöð á Kirkjubæjarklaustri. Laun samkvæmt samningum opinberra starfsmanna, en sérstaklega er óskað eftir sérfræðingi i heimilislækningum. Kirkjubæjarklaustur er ákjósanlegur staður fyrir fjölskyldufólk, þar sem öll venjuleg þjón- usta er fyrir hendi. Stöðinni fylgir stór og góður læknisbústaður. Upplýsingar um starfið veitir Haukur Valdi- marsson, heilsugæslulæknir, í síma 487 4806 og Hanna Hjartardóttir, formaður stjórnar, í síma 487 4635/487 4633 sem jafn- framt tekur á móti umsóknum á þar til gerð- um eyðublöðum sem fást hjá landlæknis- embættinu. Umsóknarfrestur er til 24. september nk. Fræðslustjóri starfsmannahald Starfsmannahald Reykjavíkurborgar óskar að ráða í stöðu fræðslustjóra hjá starfsmannahaldi. Starfið er laust nú þegar. Starfið felst í stefnumótun og yfirumsjón endurmenntunarmála starfsmanna borgar- innar í samráði við starfsmannastjóra Reykja- víkurborgar. Leitað er að einstaklingi með háskóla- menntun og reynslu af endurmenntunar- málum. Viðkomandi þarf að eiga gott með að tjá sig í ræðu og riti og hafa kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs- ingar fást á skrifstofu Guðna Jónssonar og skal umsóknum skilað á sama stað. Umsóknarfrestur er til 20. september nk. Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar, stofnana hennar og fyrirtækja. Guðni Tónsson RÁDGIÖF & RÁDNINGARÞJÓNUSTA HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.