Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.09.1996, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 B 19 ATVIN N tMAUGL YSINGAR Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Sjúkraþjálfari óskast í fullt starf, nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í sjúkraþjálfun barna. Upplýsingar um starfið veitir Jónína Guð- mundsdóttirforstöðukona í síma 581 4999. Lögfræðingar Lausar eru til umsóknar tvær stöður háskóla- menntaðra fulltrúa hjá utanríkisráðuneytinu. 1. Óskað er eftir lögfræðingi í fullt starf deildarsérfræðings á skrifstofu þjóðréttar- fræðings ráðuneytisins. Auk embættisprófs í lögum er sérmenntun á sviði þjóðaréttar, einkum auðlindaréttar og hafréttar, æskileg. Viðkomandi þyrfti að geta hafið störf 15. október 1996. 2. Óskað er eftir lögfræðingi í fullt starf deildarsérfræðings. Æskilegt er að viðkom- andi hafi sérþekkingu á Evrópurétti og mál- efnum EES og ESB en geti auk þess sinnt öðrum málaflokkum sem heyra undir utanríkisráðuneytið. Æskilegt er að viðkom- andi geti hafið störf 1. janúar nk. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjár- málaráðherra og Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins. Skriflegar um- sóknir með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf ber- ist starfsmannastjóra utanríkisráðuneytisins, Rauðarárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 1. októ- ber 1996. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Litið verður svo á að starfsumsóknir sem berast gildi í sex mánuði frá því að umsóknar- fresti lýkur nema annað sé sérstaklega tekið fram í umsóknum. Fyrirliggjandi umsóknir óskast staðfestar. Frekari upplýsingar veitir starfsmannastjóri utanríkisráðuneytisins. Bókhald KPMG Endurskoðun hf. leitar eftir dugmikl- um starfsmanni til að annast bókhaldsþjón- ustu og tengd störf fyrir viðskiptamenn fyrir- tækisins. Helstu verkefni: Starfsmaður mun sjá um og bera ábyrgð á færslu og úrvinnslu bókhalds, launaútreikn- ingum og gerð skilagreina er þessu tengjast. Kröfur um hæfni: Starfsmaður þarf að hafa viðeigandi mennt- un. Reynsla á sviði bókhalds er mikilvæg. Viðkomandi þarf að vera þægilegur í sam- skiptum, nákvæmur í vinnubrögðum og tilbú- inn að leggja sig allan fram. í umsókn þurfa að koma fram nákvæmar upplýsingar um menntun og fyrri störf. Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðar- mál og öllum umsóknum verður svarað. Þeim, sem telja sig uppfylla þær kröfur sem að ofan greinir, er boðið að senda inn um- sókn til KPMG Sinnu ehf. fyrir 21. septem- ber 1996. inna ehf. Rekstrar- og stjórnunarráðgjöf Vegmúli 3 Slmi 588-3375 108 Reykjavfk Fax 533-5550 KPMG Sinna ehf. veitir ráðgjöf á sviði stjórnunar- og starfsmannamála og einnig sérhæfða ráðningarþjónustu. KPMG Sinna ehf. er í samstarfi við KPMG Managcment Consulting. Munt þu blomstra... Nýherji getur á sig blómu bætt UNIX Við erum að efla okkar þjónustu við IBM RS/6000 tölyurnar. Hér þarf klóran starfskraft með reynslu og áhuga á UNIX umhverfinu. Internet Nýherji býður margvíslega þjónustu tengda Internetinu. Stefnt er að því að efla þessa deild með aukinni þjónustu og ráðgjöf til fyrirtækja. Spennandi verkefni þar sem hlutirnir gerast hratt. Staðarnet Við viljum efla þjónustu okkar enn frekar á sviði staðarnela. Ef þú ert með Novell eða NT þekkingu, svo ekki sé nú minnst á ef þú hefur próf í þeim etnum, þá viljum heyra fljótt írá þér. Lotus Notes Nýherji er með öfluga Lotus Notes deild og nú viljum við stækka hana enn frekar. Við leitum að góðum Nates forriturum eða fólki með forritunarreynslu með löngun til að kynnast þessu frábæra hópvinnukerfi og þróa! því lausnir. Dósentsstarf í öldr- unarlækningum Við læknadeild Háskóla íslands er laust til umsóknar hlutastarf dósents (50%) í öldrun- arlækningum. Umsóknum þarf að fylgja greinargóð skýrsla um náms- og starfsferilsstjórnunar- og kennslureynslu og vísindastörf og einnig ein- tök af helstu fræðilegum ritsmíðum. Umsækjendur þurfa að gera grein fyrir þvi hverjar rannsóknarniðurstöður sínar þeir telja markverðastar og jafnframt hlutdeild sinni í rannsóknum sem lýst er í greinum þar sem höfundar eru fleiri en umsækjandi. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir sem umsækjendur hyggjast vinna að verði þeim veitt starfið og þá aðstöðu sem til þarf. Gerð er ráð fyrir að ráðið verði í starf- ið frá 1. júlí 1997. Tekið skal fram að starfið er háð því að styrkur fáist úr Framkvæmda- sjóði aldraðra. Laun skv. kjarasamningi Félags háskóla- kennara og fjármálaráðherra. Umsóknarfrestur er til 20. október 1996 og skal umsóknum skilað í þríriti til starfsmanna- sviðs Háskóla íslands, aðalbyggingu v/Suð- urgötu, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir forseti læknadeild- ar, í síma 525 4879. Nýherji er framsækið fyrirtæki Hjá Nýherja starfar hresst fólk sem leggur metnað sinn í að bjóða íslensku atvinnulífi upp á góða þjónustu og ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. Við leitum að fólki sem hefur góða undirstöðuþekkingu og vill halda áfram að bæta við sérþekkingu sína. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Sigurði Olafssyni, starfsmannastjóra Nýherja. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sækið um á umsóknarblöðum sem liggja frammi í móttöku okkar í Skaftahlíð og á slóð http://www.nyherji.is/umsokn/. Umsóknir og nánari upplýsingar má einnig íá með tölvupósti: sigol@nyherji.is Umsóknarfrestur er til þriðjudags 17. september. CTS^ NÝHERJI okkar akri? tfl Fræðslumiðstöð Reykjavíkur auglýsir lausar stöður við grunnskóla Reykjavíkur. Hamraskóli - sérdeild fyrir einhverfa í sérdeild Hamraskóla vantar þroskaþjálfa í fullt starf. Þar vantar einnig stuðningsfull- trúa í hálft starf frá hádegi. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 567 6300. Langholtsskóli í Langholtsskóla vantar tvo stuðningsfull- trúa, annan í fullt starf en hinn í hálft. Vinn- an felst meðal annars í stuðningi við nemend- ur sem stunda nám í sérdeild fyrir einhverfa en fara einnig út í bekk. Einnig vangar bóka- safnskennara í fullt starf um óákveðinn tíma vegna veikinda. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 553 3188. Melaskóli í Melaskóla vantar stuðningsfulltrúa í fullt starf. Vinnan felst í stuðningi við einstaka nemendur, bæði innan kennslustunda og utan. Einnig vantar starfsmann f heilsdags- skóla í hálft starf. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðar- skólastjóri í síma 551 3004. Umsóknir berist skólastjórum eða Ingunni Gísladóttur, deildarstjóra starfsmannadeild- ar Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, Tjarnar- götu 12. 13. september 1996. Fræðslustjórinn í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.