Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Verkamannasambandlð
FRÁ, frá, annars keyrir Tóti á . . .
Rannsóknir á augnheilsu sykursjúkra
Utrýma á blindu
vegna sykursýki
SYKURSÝKI er ein algengasta
orsök blindu á Vesturlöndum.
Meðferð sem lækkar mjög blindu-
tíðni meðal sykursjúkra hefur ver-
ið þróuð undanfarna áratugi. Hún
felst einkum í því að meðhöndla
sjónhimnuna með leysigeislum en
til að ná sem beztum árangri þarf
að fylgjast reglulega með augum
sykursjúkra.
Eftirlit með augnheilsu
sykursjúkra síðan 1995
Hér á landi hafa læknar stund-
að eftirlit með augnheilsu sykur-
sjúkra frá árinu 1975, og eins og
sagt er frá í nýútkomnu hefti
Sæmundar á Selnum, tímarits
Háskóla íslands, er það stefna
þeirra að útrýma blindu vegna
sykursýki á íslandi.
Jóhannes Kári Kristinsson,
deildarlæknir við augndeild
Landakotsspítala, hefur undanfar-
in ár starfað ásamt Einari Stef-
ánssyni, prófessor í augnlæknis-
fræði við læknadeild H.Í., og fleir-
um að rannsóknum á augnhag
sykursjúkra á íslandi. Rannsókn-
irnar byggjast á gögnum, sem
fengizt hafa við reglubundna
augnskimun sykursjúkra á Landa-
kotsspítala, sem hófst þar fyrir
16 árum. Niðurstöðurnar þykja
sýna, að slíkt eftirlit og rétt með-
höndlun geti dregið mjög úr sjón-
skerðingu og blindu meðal sykur-
sjúkra. Hlutfall blindu af völdum
sykursýki hér á landi hefur lækk-
að undanfarin 15 ár úr 2,4 af
hundraði árið 1980 í 0,5% árið
1994.
Að sögn Jóhannesar Kára er
takmarkið að útrýma blindu vegna
sykursýki hér á landi. „Með sam-
stilltu átaki augnlækna má út-
rýma blindu vegna sykursýki. Það
takmark er skammt undan og
Ljósm./Kristján Maack/Sæmundur á selnum
JÓHANNES Kári Kristinsson,
deildarlæknir við augndeild
Landakotsspítala, en hann
vinnur nú að doktorsverkefni
við læknadeild HÍ sem byggist
á rannsóknum á augnheilsu
sykursjúkra.
ætti að nást, enda höfum við
tækni, þekkingu og aðstöðu til
þess,“ segir Jóhannes Kári í við-
tali í Sæmundi á selnum.
Hlíf og Framtíðin í Hafnarfirði
Viðræður um
sameiningu
Fólk bjart-
sýnna nú en
í fyrra
FÓLK er mun bjartsýnna á
batnandi horfur í efnahags-
málum en það var á síðasta
ári ef marka má skoðanakönn-
un Gallups sem gerð var um
síðustu mánaðamót.
Fram kemur að fólk er sér-
lega bjartsýnt með efnahags-
ástand þjóðarinnar á næstu
12 mánuðum en einnig telur
fólk efnahag heimilanna eiga
eftir að batna.
Þá telur almenningur að
atvinnuleysi eigi eftir að
minnka næsta árið og er það
talsverð breyting frá síðasta
ári.
VIÐRÆÐUR standa nú yfir milli
Verkamannafélagsins Hlífar í
Hafnarfirði og Verkakvennafé-
lagsins Framtíðarinnar um sam-
einingu félaganna. Er það í kjölfar
viljayfirlýsingar um sameiningu,
sem stjórnir félaganna samþykktu
í maí.
í þeirri yfirlýsingu kom fram að
nú í haust yrðu haldnir fundir þar
sem málið yrði kynnt félagsmönn-
um og að því loknu yrði leitað álits
félagsmanna í allsheijaratkvæða-
greiðslu um sameiningu félaganna
tveggja. Verði meirihluti samþykk-
ur skuli stefnt að sameiningunni
síðla árs 1997.
Hlíf var stofnað árið 1907 en
Framtíðin árið 1925. Fram kemur
í dreifibréfi, sem sent hefur verið
til félagsmanna Hlífar, að það hafi
verið til umræðu í langan tíma
innan félagsins að sameina beri
þessi tvö félög enda fari hagsmun-
ir þeirra saman og þau yrðu sterk-
ari sameinuð.
Sjávarútvegssýningin
Umfang endur-
speglar stöðu
greinarinnar
Patricia Foster
FOSTER segir að
aðstæður á fyrstu
sýningunni 1984
hafi verið frumstæðar og
ýmis framkvæmdaatriði
staðið í mönnum.
„Ég man að John gróf
skurði hérna bak við höl-
lina til að reyna að leiða
rigningai’vatnið burt!
Okkur hefur öllum farið
fram og sýningarsvæðið
hefur tekið stakkaskipt-
um.
Ég hef unnið við sýn-
ingar í meira en tuttugu
ár, frá 1983, einkum í
sambandi við sjávarút-
veg. Við skipulögðum
fyrstu sýninguna hérna
og þess vegna hefur ís-
land alltaf verið mér hug-
leiknara en aðrir sýning-
arstaðir, átt sinn eigin sess hjá
mér.
Nexus Media er stórfyrirtæki
í útgáfumálum og hlutur þess í
alþjóðlegum sýningamálum vex
nú hratt. íslenska sýningin er
ein af þeim mikilvægustu sem
það stendur fyrir utan Bretlands.
Aðstæður hér eru einstakar
að mörgu leyti, sjávarútvegur
er hérna helsti atvinnuvegurinn
og sýningin litin öðrum augum
hér en gengur og gerist, hún er
svo mikilvæg. í öðrum löndum
eru sjávarútvegssýningar aðeins
aukageta, aðrar atvinnugreinar
skipta miklu meira máli.
Umfang svona sýninga endur-
speglar ávallt stöðu atvinnu-
greinarinnar. Þetta á við sjávar-
útveg eins og aðrar greinar, því
meiri gangur sem er í greininni
þeim mun öflugri verður sýning-
in.
Árið 1993 voru mjög erfiðir
tímar hér á landi, uppsveiflan
var ekki hafin og sýningin þá
var vægast sagt ekki auðveld
viðureignar. Það var erfitt að fá
fyrirtækin til þátttöku. Ef ég á
að vera hreinskilin var ég hrædd
núna, ég vissi ekki að þið hefðuð
náð ykkur svona hratt aftur á
strik. Allt hefur hins vegar geng-
ið frábærlega núna, allt svæðið
uppselt og ljóst að vel gengur
hjá mörgum íslenskum fyrir-
tækjum.“
Foster segir innlenda aðila sjá
um að afla þátttakenda hérlend-
is. „Við sendum fyrirtækjum og
stofnunum um allan heim upp-
lýsingar um sýning-
una. Það vekúr at-
hygli að þessu sinni
að samkvæmt upplýs-
ingum sem við höfum
fengið hjá stjórnar-
ráðinu og Útflutningsráði koma
að þessu sinni opinberar sendi-
nefndir frá Kína, Japan, Chile,
Spáni og Lettlandi auk grann-
landanna Færeyja og Græn-
lands. Svo margar opinberar
nefndir og gestir hafa ekki til-
kynnt um komu sína fyrr og
haft samband við ráðamenn hér
vegna sýningarinnar. í þessum
efnum eru nú vatnaskil.
Það tekur nokkurn tíma fyrir
sérhveija sýningu sem kynnt er
á alþjóðavettvangi að hasla sér
völl, reyndar gerðist þetta mjög
hratt hér hvað snerti þátttakend-
ur, innlenda sem erlenda.
Ég held að íslenskum innflytj-
► íslenska sjávarútvegssýn-
ingin er nú haldin í fimmta
sinn, sýningarsvæði er mun
stærra og þátttakendur um
20% fleiri en árið 1993 eða um
700 fyrirtæki, þar af tæplega
500 erlend frá alls 27 löndum.
Síðast voru gestir alls um
12.000. Patricia Foster hefur
ásamt eiginmanni sínum, John
Legate, stjórnað öllum sýning-
unum en sú fyrsta var haldin
1984. Þau hjón starfa á vegum
breska fyrirtækisins Nexus
Media Ltd. er annast útgáfu
auk skipulagningar sýninga og
kynninga af ýmsu tagi. Þau
búa í Richmond í Englandi og
eignaðist Foster þrjár dætur
með fyrri eiginmanni sínum
sem er látinn. Hún segist ætla
að setjast í helgan stein að lok-
inni þessari sýningu en viður-
kennir að slikar ákvarðanir
hafi hún áður tekið án þess að
standa við þær.
endum hafi að þessir sinni geng-
ið miklu betur en fyrr að fá fyrir-
tæki sín til að kosta sýningarbás-
ana. Við erum að öðlast viður-
kenningu og traust og ég held
að búið sé að tryggja framhald-
ið. Hér er hægt að halda ágæta
sýningu á þriggja ára fresti því
að það eru margir sem vilja eiga
við ykkur viðskipti á þessu
sviði.“
-Hvernig á lítið, íslenskt
fyrirtæki sem vill koma fullunn-
um afurðum á alþjóðamarkað
að byija að þreifa fyrir sér?
„Vandinn er sá að
erlend fyrirtæki vilja
oftast fá meira af vör-
unni en lítið fyrirtæki
hér ræður við að fram-
leiða. Best held ég að
sé að það kynni sig í Evrópu í
samfloti með öðrum á stórum
alþjóðlegum sýningum þar sem
fiskafurðir eru á dagskránni, t.d.
í Brussel og Bremerhaven. Einn-
ig geta þau reynt fyrir sér á sjáv-
arafurðadeildum stærri sýninga.
Varðandi smæðina sé ég að-
eins þá lausn að þau myndi með
sér sölusamtök. Það er svo erfítt
að komast inn á markaðina, fyrst
þarf að koma fyrirtækinu á
traustan grundvöll hér á landi
og gera síðan útrás. Það er að
sjálfsögðu miklu meira upp úr
því að hafa að selja fullunnar
afurðir en þá þarf að ná sér í
afar góðan sölumann!“
„Held að búið
sé að tryggja
framhaldið"