Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Nýstárleg tónlistarhátíð í Kaupmannahöfn
Framúrstefna í fram-
kvæmd á Vesturbrú
Kaupniannahöfn. Morgunblaðið.
MENNINGARUPPÁKOMA undir
heitinu „Art Projekt" lítur óneitan-
lega út eins og hún hafi eitthvað
með listir að gera og hér er það
tónlistarhátíð í Kaupmannahöfn
20.-29. september, sem liggur að
baki nafninu. En ART er líka
skammstöfun fyrir „Abraham Rac-
ing Team“, því driffjöður hátíðar-
innar er Þjóðveijinn Franz Abra-
ham, 32 ára og fyrrum kappakstur-
kappi í Formúlu 1. Tónlistin átti
ekki síður í honum hlut en kapp-
aksturinn, svo hann stofnaði um-
boðsskrifstofuna Art Concert í
heimaborg sinni Múnchen. Árið
1992 hélt hann þar eftirminnilega
tónlistarhátíð undir ofangreindu
nafni. í ár er hún haldin í nýupp-
gerðu tónlistarhúsi á Vesturbrú,
Vega, en síðan er ætlunin að halda
hana annað hvert ár á mismunandi
stöðum.
„Art Projekt" er ekki venjuleg
tónlistarhátíð, þar sem tónlistar-
menn koma aðvífandi, spila sína
kvöldtónleika og fljúga af stað
næsta dag. Abraham fékk þá hug-
mynd að gera athyglisverða tón-
listarmenn að tónlistarstjórum í
einn dag. Þeir fá þá til liðs við sig
tónlistarmenn, sem þeir vilja gjarn-
an vinna með eða aðra listamenn,
sýna kvikmyndir ef það hentar,
halda fyrirlestra eða eitthvað ann-
að. Með öðrum orðum þá skipu-
leggja þeir dag eftir sínu höfði.
Síðan hitta þeir sem flesta af hin-
um sem koma, þannig að hátíðin
gæti leitt af sér ánægjulega fundi,
ný verkefni og óvæntar uppákom-
ur. Á hátíðinni 1992 hittust Lou
Reed og Laurie Anderson og fóru
að vinna saman upp úr því segir
Andrea Berg framkvæmdastjóri
„Art Projekt" í samtali við Morgun-
blaðið.
Abraham heillast af margs konar
tónlist, teknó og ethnó, klassík, jazz
og blús að ógleymdri samtíma- og
framúrstefnutónlist, svo „Art Proj:
ekt“ fellur ekki í hefðbundið far. í
ár eru gestirnir Þjóðvetjinn og
teknófrumkvöðullinn Sven Váth,
Branford Marsalis jazzsaxófónleik-
ari, Sabri Brothers sem flytja Sufi-
tónlist frá heimalandi sínu Pakist-
an, argentínski píanóleikarinn
Martha Argerich og Rússinn Alex-
andre Rabinovitch píanóleikari og
tónskáld, mínimalistatónskáldið
bandaríska Steve Reich og Kronos-
kvartettinn bandaríski, sem neitar
að binda sig á einn tónlistarklafa,
heldur spilar jöfnum höndum hipp
hopp, framúrstefnu, samtímatónl-
ist, jazz, rokk og afríska tónlist.
Sem dæmi um efnisskrána kynn-
ir Reich tónlist sína og tónlist, sem
hann hefur hrifist af eins og Bela
Bartok og afríska tónlist. Hann
kemur fram með hljómsveit sinni
„Steve Reich and the Musician-
s“og„Paul Hillier and The Theatre
Voices“ koma fram, en eins og aðr-
ir í hópnum teygja þeir sig yfir
marga skala, syngja bæði miðalda-
tónlist og nútímatónlist. Berg segir
að reynt hafi verið að ná í Björk,
sem hafi sýnt mikinn áhuga, en
ekki komið þátttöku við vegna
GUÐMUNDUR Ingólfsson ljósmyndari sýnir litmyndir frá sumr-
inu í verslun Hans Petersen hf í Austurveri.
Litmyndir
frá sumrinu
GUÐMUNDUR Ingólfsson ljós-
myndari sýnir í verslun Hans
Petersen hf í Austurveri við
Háaleitisbraut. Þetta eru lit-
myndir frá sumrinu sem er að
líða, teknar á stærstu litfilmu
(8x10“) og stækkaðar af Agli
Sigurðssyni.
Guðmundur lærði ljósmynd-
un í Þýskalandi i lok sjöunda
áratugarins og hefur rekið ljós-
myndastofuna Imynd frá árinu
1972.
Sýningin stendur frá 13. sept-
ember til 10. október.
•MIKIL umræða hefur að undan-
förnu verið í Noregi um staðsetn-
ingu fyrirhugaðs óperuhúss. Rík-
isstjórninni er ætlað að taka
ákvörðun um liana innan þriggja
mánaða. Staðir á borð við Vest-
banen og Bjorvika hafa verið
nefndir, svo og að óperan verði
áfram á sama stað. En um heigina
lögðu nokkrir ævintýramenn til
að aflóga olíuborpallur verði
dreginn inn á Óslóarfjörð og not-
aður sem grunnur að óperuhúsi.
Að baki hugmyndinni er hópur
sem starfar að svokölluðu Oslop-
rosjekt, félag sem vinnur m.a. að
því að koma nýjum hugmyndum
um skipulag Oslóar á framfæri.
Kostnaðaráætlanir liggja ekki fyr-
ir en félagið bendir á að með þessu
megi ef til vill vænta enn frekari
fjárstuðnings olíufélaganna. Esso
er nú aðalstyrktaraðili óperunnar.
Hugmyndin hefur þegar fengið
góðar viðtökur tónskálda en John
Persen, formaður norska tón-
skáldafélagsins segir félagsmenn
styðja hugmyndina og að hún
hefði án efa verið þeim Mozart
og Wagner að skapi.
Duglítill uppvakningur
KVIKMYNPIR
Bíóborgin
ILLUR HUGUR
(„Diabolique") ★ Vi
Leikstjóri Jeremiah S. Chechik.
Handritshöfundar Don Roos, Henri-
George Clouzot, Jerome Geronimi,
Thomas Narcejac. Kvikmyndatöku-
stjóri Peter James. Tónlist Randy
Edelman. Aðalleikendur Sharon
Stone, Isabelle Adjani, Chazz Pal-
minteri, Kathy Bates, Spalding Gray,
Allan Garfield. Bandarísk. Morgan
Creek/Wamer Bros. 1996.
ILLUR hugur er enn ein endur-
gerðin sem Hollywood sækir í
franska kvikmyndagerð og nú er
ekki ráðist á garðinn þar sem hann
er lægstur. Myndin er gerð eftir Les
Diaboliques, rómaðri hroll-
vekju/sakamálamynd sem Henri-
George Clouzot gerði rétt eftir miðja
öldina. Þótt sú frábæra mynd yrði
kveikjan að Psycho Hitchcocks, öðru
meistaraverki, er því ekki að fagna
hér. Chechik hefur gert eina, athygl-
isverða mynd, Benny and Joon, dra-
matíkin á greinilega betur við hann
en myrkar morðgátur.
Guy (Chazz Palminteri) stjórnar
með harðri hendi heimavistarskóla
í Pennsylvaníu. Eiginkona hans, Mia
(Isabelle Adjani), er jafnframt eig-
andi skólans og einn samkennara
þeirra, Nicole (Sharon Stone), er
hjákona Guys. Hann misbýður báð-
um svo stöllurnar taka sig saman
og hyggjast koma óberminu fyrir
kattarnef. En líkið liggur ekki kyrrt.
Handritshöfundinum Don Roos,
sem m.a. á að baki Single White
Female, tekst engan veginn upp að
þessu sinni, styðst að nokkru leyti
við frumgerðina, en flest sem hann
leggur sjálfur til málanna er til ama
og leiðinda, líkt og afleitur enda-
sprettur, loðið lesbíuívaf, tilgangs-
laus kvenréttindaumræða. Adjani
og Stone eru glæsilegar en tregar
leikkonur, handritið hjálpar ekki
uppá sakirnar. Stone er þó ekki alls
varnað sem hin slóttuga Nicole.
Palminteri fer létt með að vera and-
styggilegur, annars er ekki krafist
af þessum annars sleipa leikara, það
er svo Kathy Bates sem fer létt
með að stela senunni sem spæjari
sem ruglar ráðabrugg þrenningar-
innar. Illur hugur er lagleg ásýnd-
um, dimm og drungaleg, tónlistin í
sama dúr, en efnið og innihaldið er
bragðlaust og skákar á engan hátt
sínum fræga forvera, þvert á móti
hefði Les Diaboliques betur fengið
að hvíla í friði.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndlist
í Eden
KRISTJÁN Jón Guðnason
opnar sýningu á málverkum,
teikningum og klippimyndum
í Eden í Hveragerði 23. sept-
ember næstkomandi.
Kristján Jón hefur áður
sýnt á samsýningum og einn-
ig haldið nokkrar einkasýn-
ingar. Þetta eru myndir gerð-
ar við íslenskar þjóðsögur og
þó sérstaklega islensk ævin-
týri.
Sýningunni lýkur 5. októ-
ber.
Verk eftir On
Kawara á
Annarri hæð
OPNUÐ hefur verið sýning á
verkum eftir japanska lista-
manninn On Kawara í sýning-
arsalnum Önnur hæð að
Laugavegi 37.
„On Kawara er óvenjulegur
listamaður sem hefur á þrem-
ur síðustu áratugum unnið að
nokkrum mjög afmörkuðum
flokkum verka sem á einn eða
annan hátt fjalla um tíma og
benda okkur á hversu hverf-
ult augnablik lífið er“, segir
í kynningu.
Hér sýnir hann málverk
sem gert var hér á landi á
síðasta ári og símskeyti sem
send hafa verið með óreglu-
legu millibili.
Sýningin stendur út októ-
ber og er opin á miðvikudög-
um fr^ kl. 14-18 eða eftir
samkomulagi.
Ráðstefna um
myndlistargagnrýni
DAGANA 19.-22. september verður
haldin í Reykjavík umfangsmikil al-
þjóðleg ráðstefna um myndlistar-
gagnrýni sem ber yfirskriftina: Art
Criticism Today: The State of
European Art Criticism. Að ráðstefn-
unni standa Myndlista- og handíða-
skóli íslands, Norræna húsið og lista-
söfn á höfuðborgarsvæðinu. Til ráð-
stefnunnar er boðið 6 erlendum list-
fræðingum sem allir starfa eða hafa
starfað við listgagnrýni og munu
þeir halda erindi á þinginu ásamt 5
íslenskum starfsbræðrum sínum.
Viðfangsefni ráðstefnunnar er víð-
tækt, en einkum verður þó sjónum
beint að stöðu jaðarsvæða í myndlist
og myndlistarumfjöllun. Þrátt fyrir
gróskumikið listalíf sem gjarnan
blómstrar á slíkum svæðum standa
þau ævinlega í skugga hinna vest-
rænu stórborga - Parísar, Lundúna,
Berlínar - hvað umræðu um listir
áhrærir. Flestir líta til þessara borga
eftir nýjungum í listum og mest
mark er tekið á þeim sem þar hafa
náð að koma sinni ár fyrir borð. Á
ráðstefnunni verða slík sjónarmið
rædd á gagnrýninn hátt og afstaða
listamanna og gagnrýnenda sem
standa utan við þessi helstu áhrifa-
svæði skoðuð. Umræðan mun einnig
beinast að stöðu myndlistar og mynd-
listarumfjöllunar gagnvart flölmiðl-
um nútímans, tengslum gagnrýn-
enda og lesenda þeirra og hlutverki
listamanna og listgagnrýnenda í
samtímanum.
Erlendir gestir ráðstefnunnar um
myndlistargagnrýni verða fjölmarg-
ir. Paolo Bianchi er svissneskur list-
fræðingur og gagnrýnandi, fæddur
í Baden árið 1960. Hann er meðlim-
ur í AICA, alþjóðasamtökum list-
gagnrýnenda, og starfar sem sjálf-
stæður sýningarstjóri. Else Marie
Bukdahl er danskur listfræðingur og
gagnrýnandi, meðlimur í AICA og
forseti Konunglegu listaakadem-
íunnar í Kaupmannahöfn. Lisa Lind-
gren er finnskur listfræðingur og
gagnrýnandi. Hún var til skamms
tíma forstöðumaður sambands finn-
skra listamanna og eins veitti hún
Nútímalistasafninu í Helsinki forystu
tímabundið en er nú sjálfstætt starf-
andi sýningarstjóri. Eftir hana liggja
fjölmargar greinar um listamenn, list-
stefnur og listkenningar. Annelie Po-
hlen er forstöðumaður Kunstverein í
Bonn. Pohlen var áður einn af þekkt-
ustu listgagnrýnendum Þjóðveija og
skrifaði m.a. reglulega í listtímaritið
Kunstforum. Fáir landar hennar hafa
meiri yfirsýn yfir þróun þýskrar og
alþjóðlegrar listar á undanfömum
tveimur áratugum. Eric Troncyer
gagnrýnandi og sýningarstjóri, sem
varð m.a. kunnur fyrir sýningu sína
„No Man’s time“ í Nice árið 1991,
þar sem hann tefldi saman hópi ungra
listamanna beggja vegna Atlants-
hafsins og tókst með því að varpa
ljósi á framvindu síðasta áratugar
þessarar aldar. Harm Lux er hollensk-
ur listfræðingur og sýningai-stjóri sem
starfar í Sviss. Hann rak sýningarsal-
inn Shedhualle í Zúrich til skamms
tíma og gerði hann alþjóðlega fræg-
an. Harm Lux hefur m.a. sett upp
viðamikla sýningu um norræna list.
Auk þeirra flytja erindi á ráðstefn-
unni Jon Bing, rithöfundur og for-
stöðumaður menningarráðs Noregs,
og Anne Flindt Christensen, menning-
arblaðamaður við danska dagblaðið
Information og lektor í menningar-
blaðamennsku, en þau eru gestir
þings á vegum Norræna blaðamanna-
skólans í Árósum sem haldið er í
Reykjavík 17.-21. september. Það
þing mun sitja á sjöunda tug nor-
rænna menningarfréttaritara, sem
síðan munu taka þátt í dagskrá ráð-
stefnunnar um myndlistargagnrýni
fyrstu tvo dagana.
Dagskrá ráðstefnunnar um mynd-
listargagnrýni hefst á tveimur inn-
gangsfyrirlestrum um listgagnrýni á
líðandi stundu fimmtudaginn 19.
september kl. 14.00 en að þeim lokn-
um flytur Halldór Bjöm Runólfsson
erindi og litskyggnusýningu um ís-
lenska list. Þingað verður allan daginn
föstudag og laugardag (9.00-17.00)
og frá klukkan 10-12 sunnudag.
Ráðstefna norrænna menningar-
blaðamanna fer fram í Reykjavík
dagana 17.-21. september og er hún
að hluta í samstarfi við ráðstefnu
myndlistargagnrýnenda. Framtíð og
aðferðir menningarblaðamennskunn-
ar verða sérstaklega ræddar á ráð-
stefnunni sem er sú þriðja sinnar teg-
undar sem haldin er. Ráðstefnan er
haldin af Norrænu blaðamannamið-
stöðinni.