Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 49 DIGITAL HRAFNHILDUR Valgarðsdóttir, Rosemary Tsubaki, sem fékk fyrstu verðlaun fyrir ritgerð, og Eysteinn Björnsson. STÆRSTA TJALDIÐ MEÐ HX DIGITAL \ N M M E ■ ■ _ HÆTTUFOR nrilDOLBYl DIGITAL ENGU LÍKT - þessa. Hraði, spenna og ævin- fcj,, týralegur hasar í mynd þar sem allir helstu bardagalistamenn heims eru saman komnir. Ný Bond-mynd með nýjum leikstjóra LEIKSTJÓRI næstu James Bond-mynd- ar, sem gengur undir nafninu „Bond I 18“, verður væntanlega Roger Spott- iswoode en viðræður við hann standa nú yfir. Fierce Brosnan mun leika Bond og byrjað verður að taka myndina í byrjun næsta árs. Spottiswoode hefur fengið margar viðurkenningar fyrir leik- stjóm sjónvarpsþátta og þar á meðal fyrir þættina „And The Band Played On“. i Handritið er skrifað af Bruce Feir- stein sem aðstoðaði við gerð handrits ' síðustu Bond-myndar, „Goldeneye", sem | varð mjög vin9æl. Greiddur aðgangseyr- ir inn á hana var 28,2 milijarðar. Islenskir rithöfundar verðlaunaðir ► HRAFNHILDUR Valgarðsdóttir rit- höfundur hlaut fyrstu verðlaun fyrir smá- sögu sína „Jólagjöf heilagrar Maríu“ og Eysteinn Björnsson rithöfundur önnur verðlaun fyrir smásöguna „Hvalurinn“ í bókmenntasamkeppni á Ítalíu nýlega. Samkeppnin er kennd við Jean Monnet sem stundum hefur verið kailaður faðir hugmyndarinnar um sameiningu Vestur- Evrópu. Verðlaunagripirnir, sem Hrafn- hildur og Eysteinn hlutu, voru áletraðir silfurbikarar, silfurskildir og bók sem inniheldur verðlaunaverkin. M, LandsbankiH Gengið og Náman munið W_M_, Landsbanki MÁ Islands afsláttarmiðana ■ Bk fslands IÍ1DEPE0DE0CE DAV Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. bönnuö innan 12 ára. íslensk heimasiöa: http://id4.islandia.is SANNLEIKURINN UM HUNDA OG KETTI Sýnd kl. 5.7,9 og 11 Erkitónlist á rangri hillu TÓNLIST Geisladiskur É G , É G , É G Ég, ég, ég, geisladiskur dúettsins Erkitónlistar sf. Erkitónlist eru Pétur Jón- asson og Kjartan Ólafsson. Erkitónlist sf. gefur út og dreifir. ÞRÁTT fyrir ungan aldur er undirritaður ekki svo ungur að hann muni ekki eftir popphljómsveit- inni Pjetri og úlfunum og laginu um Stjána saxó- fón. Tveir fyrrum með- lima Pjeturs og úlfanna, þeir Pétur Jónasson og Kjartan Ólafsson, eru forsprakkar fyrirtækisins Erkitónlistar sem gefur út geislaplötuna Ég, ég, ég. Þeir félagar hafa stundað nám og störf við sígilda tónlist síðastliðin ár og lítið sem ekkert komið nálægt dægurtónl- ist frá því Pjetur og úlf- arnir lögðu upp laupana. Ryðgaðir í poppinu Það heyrist glögglega á geislaplötunni að höf- undamir eru orðnir nokk- uð ryðgaðir í poppinu, platan er á margan hátt undarleg og engu líkara en að hún sé gerð ein- feldningsleg af ásetningi, léttar sumarlaglínur með einföldum undirleik, til þess að styðja sönginn, og auðmeltum textum. „Geturðu hætt/geturðu hætt - hætt að hugs’um mig?/Nei, nei, nei.“ í gegnum einfaldleikann skín að Kjartan og Pétur eru þaulvanir tónlistar- menn sem vita hvað þeir eru að gera svo sem heyr- ist á uppbyggingu laga og einstöku metnaðarfull- um laglínum. Þrátt fyrir einfaldleik- ann er margt gott að ger- ast, sérstaklega í lögun- um Endirinn og Bláber. PÉTUR Jónasson og Kjartan Ólafsson. Fyrirtaks gitarleikur Leiðinlegt er að heyra hljóðfæri eins og tromm- ur og blásturshljóðfæri, sem hefði auðveldlega verið hægt að taka upp í hljóðveri, leikin af tölvum. Slíkt heyrist alltaf og spillir fyrir, tilfinninguna vantar. Það sem bjargar hljóðfæraleiknum er fyr- irtaks gítarleikur. Einnig spillir nokkuð holur hljómur á öllum disknum og óaðlaðandi umslag sem sennilega hefur verið gert á heimatölvu. Hver sem ástæðan er þá er útkoman vægast sagt undarleg. Ef unnið hefði verið meira í t.d. lögunuin Endirinn, Blá- ber, og Litað gler þá eru þar pottþétt popplög sem hefðu getað vakið at- hygli. Það er bara eitt lélegt lag á disknum, lag- ið Milljónavalsinn sem minnir á Der var brænde- vin i flasken ..., stutt vísa endurtekin á nokkrum tungumálum, þar er farið langt yfir strikið í einfald- leikanum. Lögin Tvíhljóð 1, 2 og 3 sýna svo ekki verður um villst að Erki- tónlist er á villigötum í poppinu, þar eru á ferð- inni spennandi brot úr tónverki sem gaman væri að heyra meira af. Gísli Árnason iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiniiiiimi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.