Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 52
■ KN.: OlUfí OLUNINUU
J
••HYUNDill
HÁ TÆKNI TIL FRAMFARA
SH Tæknival
SKEIFUNNI 17
S/MI 550-4000 • FAX 550-4001
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK. SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(á>CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Hvalur í ógöngum
í Sandgerðishöfn
Dæmi um að nær allur
þorskkvóti sé leigður
_HVALUR, ung langreyður að því
að talið er, synti inn í höfnina í
Sandgerði um miðjan dag í gær.
Helga Ingimundardóttir, for-
stöðumaður Fræðasetursins í
Sandgerði, segir þetta háttalag
óvenjulegt og kunni hún engar
skýringar á því.
Að sögn Helgu hafði skipstjóri
skips sem var á leið inn í höfnina
samband við hana um miðjan dag
í gær og tilkynnti um hval sem
synti þvert fyrir skipið.
„Dýrið svamlaði hérna inni í
höfninni og stefndi síðan á iand,
innst inn í höfnina þar sem gamla
bryggjan var. Þá var frekar lágt
í, en var byrjað að flæða að,“ seg-
ir hún. Þegar hún gætti að dýrinu
var það á bak og burt og höfðu
félagar í björgunarsveitinni Sig-
urvon snarað dýrið og snúið því
frá landi.
Björgunarsveitarmenn fældu
skepnuna síðan út úr höfninni á
tveimur bátum með hávaða og
fyrirgangi. Bæjarbúar fjölmenntu
niður að höfn til að fylgjast með
þessu hjálparstarfi og fögnuðu
þegar tókst að stjaka langreyðinni
út fyrir. Greina mátti sár á skepn-
unni eftir ógöngur hennar.
„Það er talsvert af hrefnu hér
fyrir utan, þannig að við vorum
undrandi á að þessi tegund af
hval rækist hingað inn.
Þetta er næststærsta hvalateg-
undin og virðist nóg af henni ef
marka má rannsóknir Hafrann-
sóknastofnunar, sem hefur mælt
með að 100 verði veiddar á ári,“
segpr Helga.
MEÐ auknum úthafsveiðum hefur
verslun með leigukvóta aukist veru-
lega þó ekki liggi fyrir haldbærar
upplýsingar um heildarviðskiptin.
Dæmi eru um fyrirtæki, sem leigt
hafa frá sér nánast allan þorskkvóta
sinn sl. tvö fiskveiðiár. Helstu skýr-
ingar á því að útgerðir flytja botn-
fiskkvóta frá sér eru að þær stunda
veiðar utan lögsögu og leigja frá sér
kvóta á meðan.
Að mati Kristjáns Ragnarssonar,
formanns Landssambands íslenskra
útvegsmanna, er leigukvótaverslun-
in orðin alltof umfangsmikil. Aftur
á móti telur hann það vera ljóst að
úthafsveiðar Islendinga hefðu aldrei
komið til ef ekki væri tryggður fram-
salsréttur aflaheimilda í lögum.
„Þeir, sem fóru út úr landhelginni
til þess að leita nýrra leiða gátu
m.a. gert það með því að leigja frá
sér aflaheimildir hér heima og þann-
ig minnkað sína áhættu."
12 þúsund tonn ónýtt
Tuttugu og fimm þúsund þorsk-
ígildistonn af botnfiski flytjast frá
síðasta fiskveiðiári yfír á nýhafið
fiskveiðiár, en rúmlega tólf þúsund
þorskígildistonn í botnfiski falla nið-
ur ónýtt milli áranna.
Mestu munar um ufsann en í þeirri
botnfisktegund tókst að veiða aðeins
innan við helming leyfilegs afla-
marks á síðasta fiskveiðiári og af
52 þúsunda tonna aflamarki í ýsu
veiddust rúm 40 þús. tonn. Karfi er
hins vegar eina fisktegundin sem
veidd var umfram úthlutað aflamark
og munaði þar um 11 þúsund tonn.
40 síðna sérblað
Sérblað Morgunblaðsins um sjáv-
arútveg, Úr verinu, er að þessu sinni
helgað Islensku sjávarútvegssýning-
unni sem formlega verður opnuð af
sjávarútvegsráðherra í dag. Úr ver-
inu er alls 40 síður í dag og verður
aukaupplagi dreift á sjávarútvegs-
sýningunni.
■ 25 þúsund þorskígiIdi/EI
■ Vaxandi úthafsveiðar/E4
Morgunblaðið/Þorkell
Tilræði við Björk afstýrt
BRESKA lögreglan eyði-
^^ði í gær pakka sem
suíaður var á Björk Guð-
mundsdóttur og grunur
lék á að innihéldi
sprengibúnað og brenni-
steinssýru, sem átti að
sprautast yfir söngkon-
una. Pakkinn var frá
Ricardo Lopez, 21 árs
aðdáanda hennar í bæn-
um Hollywood á Flórída,
sem framdi sjálfsmorð.
Dagblaðið Miami Her-
ald hafði eftir Todd DeAngelis, lög •
regluþjóni í Hollywood, að á mynd-
,-_.b;jndi, sem tilræðismaðurinn hefði
tekið, hefði hann sagst aðdáandi
Bjarkar, en hún væri „í tygjum við
svartan mann. Það get ég ekki sætt
mig við“. Unnusti Bjarkar er tónlist-
armaðurinn Goldie.
Sagði Lopez einnig á myndband-
inu að vegna þess hvað hann væri
gagntekinn af Björk hefði hann
' sœíðað utnræddan búnað og hygðist.
fremja sjálfsmorð.
Kvaðst hann ekki vita
hvort hún mundi hljóta
líkamslýti, alvarleg
meiðsl eða Iáta lífið.
í fréttatilkynningu,
sem lögreglan í Holly-
wood gaf út í gær, sagði
að lík mannsins hefði
fundist á mánudag eftir
að lögregla hafði verið
kvödd að húsi í bænum
vegna óþefs úr íbúð. Við
rannsókn dauðsfalls
mannsins komu í ljós atriði sem
bentu til þess að hann hefði haft í
hyggju að sýna Björk tilræði með
því að senda henni sýru í pósti og
stílað böggulinn á umboðskrifstofu
hennar.
Pakkinn fannst á pósthúsi í suður-
hluta London í gær og var eyðilagð-
ur. Engan sakaði. Að sögn Nettie
Walker, á umboðsskrifstofu Bjarkar,
var innihald pakkans ekki kannað
og því er ekki enn ljóst hvað hann
innihélt. Björk sagði í yfirlýsingu í
gær að hún hefði aldrei heyrt mann-
inn eða séð, en að hún væri miður
sín vegna málsins. Hún vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um það.
Tilræðismaður á myndbandi
í tilkynningunni frá lögreglunni í
Hollywood sagði að Lopez hefði svipt
sig lífi með því að skjóta sig í höfuð-
ið og lík hans legið á gólfi íbúðar
hans. Þar fannst myndatökuvél, sem
hafði verið komið fyrir á þrífæti og
var henni beint að líkinu.
Einnig fundust ellefu myndbönd.
Eitt þeirra var í myndavélinni merkt
„Síðasti dagur - Ricardo Lopez“.
Myndböndin sýndu Lopez ekki að-
eins skjóta sig með 38 kalibera
skammbyssu, heldur einnig setja
saman sprengibúnað til að sprauta
eiturefninu. Búnaðinum kom hann
fyrir í bók, sem var hol að innan. í
Miami Herald sagði að þegar hann
skaut sig hefði tónlist Bjarkar heyrst
í bakgrunni.
Að sögn Trish Power, blaðamanns
Miami Heraid, sást Lopez halda
umslagi með bókinni að linsu mynda-
vélarinnar og gat lögregla séð hvert
senda átti pakkann. Verið er að
kanna hvort Lopez hafi sent aðrar
sendingar, en eins og sakir standa
virðist það eitt hafa vakað fyrir hon-
um að koma höggi á Björk.
Hjá Scotland Yard í London feng-
ust þær upplýsingar að umrædd
sending hefði verið stöðvuð í pósti,
eyðilögð og engan hefði sakað. Ver-
ið væri að rannsaka málið í sam-
vinnu við bandarísk yfirvöld, en eng-
in nöfn yrðu gefin upp. Að sögn
Trish Power verður það sem eftir
er af pakkanum sent aftur til Banda-
ríkjanna og verður reynt að komast
að því um hversu öflugt tæki var
að ræða.
Lopez var ekki á sakaskrá, en
ekki var vitað hvort hann hefði átt
við sálræn vandamál að stríða. Hann
starfaði sem meindýraeyðir hjá fyrir-
tæki sem nefnist Miami Mice.
Kröfugerð
hluti af
viðræðu-
áætlun
RAFIÐNAÐARSAMBAND íslands
birtir kröfugerð sína vegna viðræðna
um gerð nýs kjarasamnings að lok-
inni kjaramálaráðstefnu um helgina.
Guðmundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambandsins, segir að
sambandið muni gera kröfu um að
kröfugerðin verði hluti af viðræðu-
áætlun sambandsins og vinnuveit-
enda. Hannes G. Sigurðsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri VSI, segir að
kröfugerðir stéttarfélaganna eigi
ekkert erindi í viðræðuáætlun.
Rafiðnaðarsambandið er fyrst
landssambanda innan ASÍ til að
leggja fram formlega kröfugerð.
Guðmundur Gunnarsson sagði að
Rafiðnaðarsambandið hefði í vor
sett fram hugmyndir um kjarasamn-
inga til langs tíma með það að mark-
miði að ná fram svipuðum kaup-
mætti og gerist í nágrannalöndun-
um. Meginkrafan yrði hækkun á
grunnkaupi og að lágir taxtar, sem
ekki væru notaðir, yrðu þurrkaðir út.
Guðmundur sagði að eftir að
kjarakröfur hefðu verið samþykktar
á kjaramálaráðstefnu Rafiðnaðar-
sambandsins um helgina yrðu kröf-
urnar ræddar frekar á fundum í ein-
stökum stéttarfélögum um allt land.
I bytjun næsta mánaðar kæmi sam-
bandið síðan til með að fara fram á
viðræður við viðsemjendur sína um
gerð viðræðuáætlana. Hann sagðist
líta svo á að eðlilegt væri að kröfu-
gerð yrði hluti af viðræðuáætlun.
VSÍ á öndverðum meiði
Hannes sagði að VSÍ liti svo að
kröfugerð ætti ekki að vera hluti
af viðræðuáætlun. Hún ætti ein-
göngu að fjalla um hvernig staðið
yrði að viðræðum, tímasetningar og
helstu markmið samningsaðila. Eðli-
legt væri að kröfugerð kæmi síðan
fram þegar eiginlegar kjaraviðræður
hæfust.
„Félögin geta kynnt sína kröfu-
gerð þegar þeim sýnist og fyrir þeim
sem þau vilja. Viðræðuáætlun er í
eðli sínu samkomulag milli aðila og
þess vegna skil ég ekki hvers vegna
kröfur ættu að vera hluti af, henni.
Ég fæ ekki séð til hvers við ættum
að skrifa undir kröfugerðina," sagði
Hannes.