Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Fjórir milljarðar
seldir íríkisvíxlum
RÍKISSJÓÐUR tók tilboðum í
tæpa fjóra milljarða króna í útboði
á ríkisvíxlum í gær.
Mest var selt af ríkisvíxlum til
þriggja mánaða, 2.509 milljónir
króna, ríkisvíxlar til sex mánaða
seldust fyrir 1.120 milljónir króna
og ríkisvíxlar til tólf mánaða seld-
ust fyrir 300 milljónir króna.
Seðlabanki íslands keypti ríkis-
víxla fyrir 1.235 milljónir á meðal-
verði samþykktra tilboða.
Ávöxtunarkrafa víxlanna
hækkaði aðeins frá síðasta ríkis-
víxiaútboði fyrir mánuði. Meðal-
ávöxtun þriggja mánaða víxla og
sex mánaða víxla hækkaði um
0,06 prósentustig í 6,67% í fyrra
tilvikinu og 6,80% í því seinna og
meðalávöxtun tólf mánaða víxia
hækkaði um 0,24 prósentustig í
7,42%.
*
Þróunarsjóður sjávarútvegs tekur tilboði frá Isfélagi
Vestmannaeyja í hlutabréf í Meitlinum og Búlandstindi
Líklegt að hluthaf-
ar nýti forkaupsrétt
STJÓRN Þróunarsjóðs sjávarút-
vegsins hefur samþykkt tilboð frá
ísfélagi Vestmannaeyja hf. í hluta-
bréfaeign sjóðsins í Meitlinum hf.
í Þorlákshöfn og Búlandstindi hf. á
Djúpavogi. Ekki hefur þó verið
gengið frá kaupunum þar sem hlut-
hafar og starfsmenn fyrirtækjanna
hafa forkaupsrétt að bréfunum og
rennur frestur þeirra til að ganga
inn í tilboðið út í næstu viku.
Þróunarsjóður sjávarútvegs fékk
fyrr í sumar tilboð i hlutabréfaeign
sína í Meitlinum, Búlandstindi og
Tanga á Vopnafirði frá Útvegs-
mannafélagi _ Samvinnumanna,
dótturfyrirtæki íslenskra sjávaraf-
urða. Því tilboði var hafnað í júní,
en viðræður voru í gangi við félag-
ið um að gera tilboð í hlutabréfin
í Meitlinum og Búlandstindi þegar
tilboðið barst frá ísfélaginu, að sögn
Hinriks Greipssonar, forstöðu-
manns Þróunarsjóðsins.
ísfélagið vill kaupa 26% hlut
sjóðsins í Meitlinum að nafnvirði
119,3 milljónir á genginu 1,0. Þá
vill Isfélagið kaupa 23% hlut sjóðs-
ins í Búlandstindi að nafnvirði tæp-
ar 70 milljónir á genginu 1,15. Til-
boðið í bréfin í fyrirtækjunum hljóð-
ar því upp á samtals 200 milljónir
og miðast það við staðgreiðslu.
Engar beiðnir höfðu borist frá
hluthöfum eða starfsmönnum fyrir-
tækjanna í gær um að ganga inn
í tilboðin. Hins vegar er gengi bréfa
í báðum fyrirtækjunum í viðskiptum
á Opna tilboðsmarkaðnum orðið
mun hærra en tilboðið hljóðar upp
á. Er því búist við að aðrir hluthaf-
ar nýti sér forkaupsréttinn, skv.
upplýsingum Morgunblaðsins.
Sigurður Einarsson, forstjóri ís-
félags Vestmannaeyja, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að hlutabréfin
í þessum fyrirtækjum hefðu verið
til sölu árum saman, en engin tilboð
borist í þau. „Við álítum þetta væn-
leg fyrirtæki og sjáum ýmsa mögu-
leika á því að geta unnið með þeim
báðum, án þess þó að það sé byijað
að móta það.“
Lífleg viðskipti með hlutabréf
í Búlandstindi
Nokkur viðskipti hafa átt sér stað
með hlutabréf í Búlandstindi að
undanförnu. Alls hafa verið seld
bréf á Opna tilboðsmarkaðnum fyr-
ir um 28 milljónir að nafnverði frá
21. ágúst. Hefur gengi þeirra
hækkað úr 1,2 í 2,05 á þessu tíma-
bili eða um 70%. Þá urðu viðskipti
á mánudag með bréf í Meitlinum
miðað við gengið 1,5. Hinrik sagði
að þegar ákvörðun hefði verið tekin
um að taka tilboðinu frá ísfélaginu
hefðu bréf verið til sölu í Búlands-
tindi miðað við gengið 1,2. Kvaðst
hann telja hugsanlegt að ákvörðun
sjóðsins um sölu bréfanna hefði
orðið til þess að ýta undir hækkan-
ir á gengi bréfanna.
Aðrir stærstu hluthafar Meitils-
ins eru Útvegsfélag Samvinnu-
manna, dótturfyrirtæki íslenskra
sjávarafurða, Olíufélagið, Ölf-
ushreppur og Vátryggingafélag ís-
lands hf. Stærstu hluthafar Bú-
landstjnds eru auk sjóðsins Gunn-
arstindur, Útvegsmannafélag sam-
vinnumanna og Olíufélagið, en hlut-
hafar eru 41 talsins.
Eftir að sölu hlutabréfa Þróunar-
sjóðs í Búlandstindi og Meitlinum
lýkur er einungis eftir að selja litla
hluti í tveimur sjávarútvegsfyrir-
tækjum. Um er að ræða 7 milljóna
hlut í Fáfni hf. á Þingeyri, sem
ekki þykir mikil söluvara, og 13
milljóna hlut í Fiskiðjunni Skagfirð-
ingi hf.
Bygging dælustöðva
Einn milljarður króna boð-
inn út í húsnæðisbréfum
Sendinefnd
frá Kína
Tilboð
38,5% yfir
áætlun
BORGARRÁÐ samþykkti í gær
að taka tilboði ístaks hf. í bygg-
ingu dælustöðva fyrir skolp við
Ánanaust, á móts við Boðagranda
og Seilugranda. Einungis þrjú til-
boð bárust í verkið og var tilboð
ístaks lægst, nam tæpum 137
milljónum og var 38,5% yfir kostn-
aðaráætlun. Tilboð Ármannsfells
hf. var hins vegar 154% yfir kostn-
aðaráætlun og Húsaness hf. 82,5%
yfir áætlun. Stöðin, sem er á
móts við Boðagranda, er í eigu
Reykjavíkurborgar í heild sinni en
hin, sem stendur á móts við Seilu-
granda, verður að tveimur þriðju
hlutum í eigu Seltirninga en einum
þriðja i eigu Reykvíkinga. Heildar-
kostnaður Reykjavíkurborgar við
verkið nemur alls tæpum 113 millj-
ónum króna.
TILBOÐ í fjórða og síðasta hluta
útboðs húsnæðisbréfa á þessu ári
verða opnuð í dag og verður geng-
ið frá sölunni í næstu viku, sam-
kvæmt upplýsingum Sigurðar
Geirssonar, forstöðumanns verð-
bréfadeildar Húsnæðisstofnunar
ríkisins. Um er að ræða einn millj-
arð króna. Samanlögð lánsfjáröfl-
un Húsnæðisstofnunar með sölu
húsnæðisbréfa á þessu ári nemur
um 5,1 milljarði króna, en með
bréfunum er Byggingarsjóður
verkamanna fjármagnaður. Til við-
bótar tekur stofnunin um tvo millj-
arða króna að láni hjá ríkissjóði,
sem ganga til að endurfjármagna
Byggingarsjóð ríkisins, þannig að
heildarlánsfjáröflun Húsnæðis-
stofnunar ríksins á yfirstandandi
ári er um 7,1 milljarður króna.
Það fyrirkomulag á sölu hús-
næðisbréfa að leita tilboða verð-
bréfamarkaða í sölu bréfanna var
tekið upp á þessu ári eftir endur-
skoðun á sölufyrirkomulagi bréf-
Húsnæðisstofnun
tekur 7,1 milljarð
króna að láni í ár
anna í kjölfar þess að mikillar sölu-
tregðu gætti í útboðum á bréfunum
vegna sviptinga í vaxtamálum.
Hættu bréfin að seljast með öllu
og sá ríkissjóður Húsnæðisstofnun
fyrir lánsfé í framhaldinu.
Sölufyrirkomulagði gefist
mjög vel
Að sögn Sigurðar Geirssonar
hefur hið nýja sölufyrirkomulag á
húsnæðisbréfum gefist mjög vel og
aldrei komið til þess að reynt hafi
á sölutryggingarákvæði tilboðanna.
Húsnæðisbréfin hafi selst upp á
þrem vikum í fyrsta útboðinu í jan-
úar, þremur dögum á öðru útboðinu
í apríl og einnig á þremur vikum á
þriðja útboðinu í júlí, þrátt fyrir að
ákvörðun Seðlabanka íslands um
að stöðva sölu á verðbréfum tíma-
bundið hafi sett strik í reikninginn.
Sölufyrirkomulagið er með þeim
hætti að verðbréfamarkaðir gera
tilboð í sölu á ákveðinni upphæð í
húsnæðisbréfum og skuldbinda sig
til sölu á henni við tiltekinni ávöxt-
unarkröfu. Tilboði Verðbréfamark-
aðar íslandsbanka var tekið í tvö
fyrstu skiptin en tilboði Kaupþings
í síðasta útboðinu í júlí.
Húsnæðisbréf eru annars vegar
boðin til 24 ára og hins vegar til
42 ára og er framboð á bréfum til
styttri tíma mun meira en á bréfum
til lengri tíma. Um er að ræða jafn-
greiðslubréf og hefst endurgreiðsla
þeirra á árinu 1999. Ávöxtunar-
krafa á styttri bréfunum hefur ver-
ið svipuð eða sú sama og á húsbréf-
um, en ávöxtunbarkrafa á lengri
bréfunum 0,07-0,08 prósentustig-
um undir ávöxtunarkröfu húsbréfa.
Söluandviðri húsnæðisbréfanna í ár
er eins og fyrr sagði um 5,1 millj-
arður króna.
KÍNVERSK sendinefnd háttsettra
embættismanna frá ráðuneytum ut-
anríkisviðskipta, landbúnaðarmála
og sjávarútvegsmála er nú stödd hér
á landi vegna fyrsta fundar íslensk-
kínverska viðskiptaviðræðunefndar-
innar.
Íslensk-kínverska viðskiptavið-
ræðunefndin var stofnuð á grund-
velli samstarfssarnnings milli ríkj-
anna, sem Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra undirritaði í Kína í
ágúst 1995. Á fundi viðskiptavið-
ræðunefndarinnar verða einkum til
umræðu leiðir til að efla viðskipti
ríkjanna, m.a. um hugsanlegt sam-
starf á sviði sjávarútvegs, jarðvarma
og fjárfestingar Kínverja í áliðnaði
á íslandi. Einnig verður íslenskt við-
skiptaumvherfi kynnt og fisk-
vinnsluhús og Sjávarútvegssýningin
í Laugardalshöll heimsótt.
Formenn nefndarinnar eru Hu
Chushent, yfirmaður Evrópuskrif-
stofu kínverska utanríkisviðskipta-
ráðuneytisins og Kristinn F. Árna-
son, skrifstofustjóri viðskiptaskrif-
stofu utantríkiðviðskiptaráðuneytis-
ins.
Vöruflutningar Reykja
vík-Húsavík í 40 ár
Húsavík. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Silli
MIKLAR breytingar hafa orðið á vörubílaflota fyrirtækisins.
f’YRIRTÆKIÐ Aðalgeir Sigurgeirs-
son hf. minnist þess um þessar mund-
ir að 40 ár eru liðin síðan stofnandi
og aðaleigandi þess Aðalgeir Sigur-
geirsson hóf vöruflutninga milli
Húsavíkur og Reykjavíkur.
Aðalgeir hóf akstur vörubíis 1948
hjá Bifreiðastöð Þingeyinga, en að-
eins tveimur árum síðar eignaðist
hann sína fyrstu bifreið af Ford gerð
en 1954 keypti hann sína fyrstu
Mercedes-Benz bifreið og síðan hefur
sú bifreiðategund verið uppistaðan í
hans bílaflota.
Á þessum árum var mjög mikið
af vörubílum á Húsavík og góð at-
vinna fyrir þá yfir sumarið en lítil
að vetri til og því erfitt að standa
undir fjárfestingu nýrri og betri bíla
ásamt framfærslu stórrar fjölskyldu.
Ákvað Aðalgeir því að breyta til
og hefja reglubundna vöruflutninga-
starfsemi milli Húsavíkur og Reykja-
víkur árið 1956. Burðargeta fyrsta
bílsins var aðeins 4,5 tonn, sem
þætti lítið í dag.
Fyrstu árin vann eingöngu fjöl-
skylda Aðalgeirs við fyrirtækið. En
1966 var bílunum fjölgað og vinnu-
kraftur keyptur að. Með árunum
hafa flutningarnir aukist jafnt og
þétt og nú eru í reglubundnum ferð-
um milli Húsavíkur og Reykjavíkur
4 bifreiðar auk tengivagna. í dag eru
starfsmenn fyrirtækisins 12 og einn
þeirra, Bjarni Sveinsson, á að baki
hjá fyrirtækinu 20 ára starfsaldur
og hefur ekið um 1.550 ferðir milli
Húsavíkur og Reykjavrkur. Allir eru
bílamir búnir einangruðum flutn-
ingakössum og kælivélum, sem geta
hitað, kælt og fryst eftir því hver
þörfrn er. Farnar eru 5 ferðir í viku
hverri milli Húsavíkur og Reykjavík-
ur, auk reglubundinna ferða til Akur-
eyrar, Kópaskers og Raufarhafnar.
Aðalgeir stofnaði, ásamt nokkrum
öðrum flutningsaðilum Vöruflutning-
amiðstöðina hf. í Reykjavík árið
1960, þar sem fyrirtækið hefur verið
með sína vöruafgreiðslu síðan.
Árið 1974 tók Sigurgeir við fram-
kvæmdastjórn af föður sínum og
hefur gegnt því starfi síðan, en faðir
hans vinnur enn við fyrirtækið.
í tilefni þessara tímamóta hefur
fyrirtækið gefið Framhaldsskólanum
á Húsavík flutninga fyrir 100 þúsund
krónur og Björgunarsveitinni Garð-
ari fyrir 70 þúsund.
„Það er stefna okkar í þessu fyrir-
tæki að nýta tækifæri framtrðarinnar
meðvitað um hið liðna. Þjónusta vel
okkar stóra og trygga viðskiptahóp
og halda þannig á málum að fyrir-
tækið haldi áfram að dafna,“ sagði
Bjami Aðalgeirsson, stjórnarformað-
ur fýrirtækisins, þegar hann ávarp-
aði gesti í tilefni afmælisins.