Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 25
AÐSENDAR GREINAR
Vanþróað vegakerfi
og hallalaus fjárlög
UMRÆÐUR um
hallalaus fjárlög hafa
verið nokkrar að
undanförnu. Stjórnar-
flokkarnir hafa sett
sér það markmið að
ná jöfnuði í ríkisfjár-
málum og lækka
skuldir ríkisins.
Um leiðir að því
markmiði er deilt.
Sumir telja of langt
gengið í sparnaði, en
aðrir vilja ganga
lengra og draga veru-
lega úr framkvæmd-
um jafnt sem rekstr-
arútgjöldum ríkisins.
Meðal þeirra eru tals-
menn og aðilar innan VSÍ sem virð-
ast engu að síður margir hveijir
hella olíu á eld þenslunnar í kapp-
hlaupi um að ná í aukin fjárráð
almennings og skapa þannig aukna
verðbólguhættu. A höfuðborgar-
svæðinu er neyslukapphlaupið á
sviði hvers konar viðskipta í blóma
og eykur tekjur ríkissjóðs. En það
er í mörg horn að líta og mörg sjón-
armið sem þarf að hafa í huga af
hálfu landsstjórnarinnar þegar
fengist er við ríkisfjármál og efna-
hagsmál.
Flestir eru sammála um að
tryggja fjármuni til velferðarkerfis-
ins, heilbrigðismála og fræðslumála
innan þeirra marka sem eðlilegt
getur talist i útgjöldum til þeirra
málaflokka. Síðan er tekist á um
önnur útgjöld, þar á meðal til fram-
kvæmda við vegi, hafnir, flugvelli
og ýmsar aðrar nauðsynlegar fram-
kvæmdir og rekstur á sviði félags-
og menningarmála.
Miklar framfarir hafa orðið á
öllum sviðum á íslandi. Islensku
þjóðinni hefur tekist að styrkja
stöðu sína með frumkvæði í þróun
á sviði tölvutækni, læknavísinda,
fræðslumála, stjórn-
unar og fyrirtækja-
rekstrar. Einkavæðing
nýtur vaxandi skiln-
ings, miklar úrbætur
hafa orðið í ríkisrekstri
og bylting orðið í
fjölmiðlun. Allt þetta
hefur styrkt þjóðfélag-
ið sem heild og gert
hag okkar betri.
Einum mikilvægum
þætti í uppbyggingu
nútímasamfélags hef-
ur samt miðað hægar
en æskilegt er. Það er
vegagerð. Vissulega
hefur mikið verið gert.
Samt er vegakerfið í
landinu vanþróað og óboðlegt sem
lykilinn að arðbæru samfélagi sem
byggir svo mjög á flutningum af-
urða milli landshluta og milli ná-
lægra byggða og sóknar mikil-
vægrar þjónustu og viðskipta til
og frá höfuðborgarsvæðinu. Á síð-
asta kjörtímabili var mikil áhersla
lögð á framkvæmdir í vegagerð
sem liður í því að efla atvinnu í
landinu þegar atvinnuleysi var að
aukast. Nú er svo komið að að
dapurt vegakerfi, og í raun stór-
hættulegt, stendur mikilvægri þró-
un og framförum okkur fyrir þrif-
um. Slys á þjóðvegunum eru tíð
og kosnaður við rekstur ökutækja
er mikill vegna vondra vega. Fram-
kvæmdir við vegagerð skapa at-
vinnu fyrir verktaka og fjölga
þannig atvinnutækifærum á meðan
á þeim stendur. Hið mikilvægasta
er samt sem áður að góðir vegir
íjölga atvinnutækifærum í öðrum
greinum og bæta hag almennings.
Sögð hefur verið saga af íslend-
ingi sem heimsótti Þýskaland og
átti samtöl við þýskan stjórnmála-
mann. Dáðist Islendingurinn að
vegakerfinu þýska og hafði orð á
Vegagerð er mikil-
vægur þáttur, segir
Sturla Böðvarsson, í
uppbyggingu nútíma-
samfélags.
því að Þjóðveijar væru ríkir að
geta byggt svo gott vegakerfi. Svar
Þjóðverjans var óvænt en skýrt.
Þeir væru svo auðugir vegna hins
öfluga vegakerfis. Við þá uppbygg-
ingu hefði umferðarþungi ekki einn
ráðið heldur sú ákvörðun að byggja
samgöngunet um landið til þess að
efla atvinnulífið með hagkvæmu
samgöngukerfi. Þessi speki hefur
verið mér ríkulega í huga síðustu
mánuði þegar umræðan hefur verið
sem mest um nauðsyn þess að
skera niður ríkisútgjöíd og ýmsir
hafa sérstaklega býsnast yfir þeim
fjármunum sem fara til vegagerðar
Sturla
Böðvarsson
sem eigendur ökutækja leggja til í
ríkissjóð. í þeirri umræðu hefur
stundum birtst togstreitan milli
höfuðborgar og landsbyggðar þeg-
ar sagt er að landsbyggðin njóti
en höfuðborgarsvæðið skaffi fjár-
muni í ríkissjóð með tekjum þess
fjölda sem greiðir í vegasjóð af
notkun ökutækja. Sú umræða er
ekki sanngjörn og hún skiptir þjóð-
inni í fylkingar öllum til skaða. Hjá
fámennri þjóð í stóru landi, sem
byggir afkomu sína að mestu á
auðlindum sjávar við ströndina alla,
er slík togstreita hættuleg. Ferða-
þjónusta, sem er einn mesti vaxtar-
broddur atvinnulífsins, verður ekki
efld og auðlindir sjávar við strönd-
ina verða ekki nýttar frá byggðum
bólum án þess að vegasamgöngur
verði viðunandi. Að öðrum kosti
er hætta á áframhaldandi byggða-
röskun.
Umræður um lækkun framlaga
til vegagerðar hafa ekki allar verið
mjög viti bornar. Þar hefur einkum
heyrst frá þeim sem ferðast innan
borgarmarka milli þess sem þeir
fljúga milli landa og láta sig engu
varða uppbyggingu vegakerfisins í
þágu atvinnulífsins. Athafnamenn
í sjávarútvegi sem senda gáma
fulla af verðmætum sjávarafurð-
um, t.d. um vegi á norðanverðu
Snæfellsnesi, hafa hins vegar aðra
afstöðu. Á þeim brennur þörfin
fyrir góðar samgöngur. Ekki síst
yfir vetrartímann þegar skiptir
sköpum að koma fiski milli lands-
hluta til vinnslu eða í flugfrakt til
Keflavíkur og vegir um Kerlinga-
skarð eða Fróðárheiði eru ófærir
þá viku alla vegna snjóa eða vegna
þungatakmarkana. í dag er staðan
orðin þannig að vegirnir skipta út-
gerð og fiskvinnslu næstum eins
miklu máli og hafnaraðstaðan.
Þeirri staðreynd má ekki gleyma.
Ég hef verið í þeim hópi þing-
manna sem lagt hafa á ráðin um
að ná jöfnuði í ríkisrekstrinum með
sparnaði pg breytingum á starfsemi
ríkisins. Ég vænti þess að sá árang-
ur verði af því starfi og að því
marki verði náð á næsta ári og
skuldir og vaxtagreiðslur ríkissjóðs
fari síðan lækkandi. En það skiptir
miklu máli til hvaða hluta skattpen-
ingar eða lán sem tekin eru fara.
Um leið og ég ítreka þá skoðun
mína að reka eigi ríkissjóð með
afgangi ber að tryggja fjármuni til
vegagerðar. Það var gert á síðasta
kjörtímabili og það eru engin teikn
um minni framlög til vegagerðar á
næsta ári en er á þessu ári. Það
er mikilvægur árangur, um leið og
jöfnuði er náð hjá ríkissjóð.
Höfundur er alþingismaður og
talsmaður Sjálfstæðisflokksins í
fjárlaganefnd Alþingis.
_ Wt,,
|( Grænt r
Grænt númer
v'///n»'
Símtal í grcent númer er
ókeypis fyrir þann sem hringir*
*Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PÓSTUR OG SlMI
yökvastýri
Rafknúnar rúður
aö framan
Upphituð framrúða
aðeins hjá Ford!
Fjarstýrö
Höfuðpúöar samlæsing
framan og aftan
Utvarp og geisíaspHari
með þjofovörn
ViÖarlíKi á maetabordi
Litaö gler
Ford Escort Ghia '97
Það er
notalegt
að vera
vel búinn!
Ghia er heitið á lúxusútgáfu
Ford Escort. Hann stendur
vissulega undir nafni þar sem hann
er órúlega vel búinn eins og sést
á búnaðarlýsingunni hér til hliðar.
Þiátt fyrir þennan ríkulcga búnað
er Escort Ghia á veiði sem stenst
hvaða samanburð sem er.
Escoit Ghia er fáanlegur með
tveimur vélarstærðum, t ,4 og 1,6
lítra, bæði 5 gíra og sjálfskiptur.
Það er sannatiega notalegt að
aka um á vel búnum Foid Escort
Ghia.
Hafðu samband við sölumenn
okkar og teynsluaktu cinum strax!
—fyrir alla!
Ford Escort Ghia '97 kostar frá:
1.438.000 kr.
Fyrstir koma
fyrstir fá...
...kaupauka!
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SlMI 515 7010