Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 33

Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 33 JÓHANN PÉTUR KOCH VIGFÚSSON + Jóhann Pétur Koch Vigfússon var fæddur á Reykjanesvita Hafnarhreppi 19. janúar 1924. Hann lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Foss- vogi 7. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru Vigfús Sigurðsson, Græniandsfari, húsasmiður í Reykjavík og vita- vörður á Reykjanesi um skeið, f. 16. júlí 1875 á Gilsbakka í Öxarfjarðarhr. í N-Þing., d. 26. maí 1950 í Reykjavík, og kona hans, Guðbjörg Árnadóttir, f. 9. júní 1884 í Simbakoti á Eyrar- bakka, d. 26. desember 1966 í Reykjavík. Jóhann var yngstur átta systkina. Látin eru Tómas, Gunnþóra, Sigurður og Auður, en á lífi eru Ólafur, Anna og Svanhildur. Hinn 7. febrúar 1953 kvænt- ist Jóhann Margréti Sigutjóns- dóttur, sem fædd er á Norðfirði 20. október 1927, dóttur Sigur- jóns Jónssonar, múrarameist- ara á Norðfirði, síðar í Hafnar- firði, d. 29. mars 1984, og konu hans, Vilborgar Pálsdóttur. Börn Jóhanns og Margrétar eru fjögur: Viiborg, f. 25. maí 1953, sérkennari, býr í Hafnarfirði, gift Randall Fleck- enstein, kennslu- fræðingi, þau eiga fjögur börn; dr. Vigfús, f. 3. septem- ber 1955, líffræð- ingur, býr í Hafnar- firði, kvæntur Þór- dísi H. Sveinsdótt- ur, kennara, þau eiga fjögur börn; Pétur, f. 13. júní 1958, múrari, býr í Svíþjóð, kvæntur Eva Marie Sand- gren, hjúkrunar- fræðingi, þau eiga eina dóttur; og Haf- dís, f. 10. janúar 1960, hjúkrun- arfræðingur, býr í Reykjavík, gift Jóni Valdimarssyni, vél- fræðingi, þau eiga tvö börn. Fyrir átti Jóhann einn son, Sig- þór ívar Koch, f. 7. febrúar 1941, endurskoðandi, býr í Reykjavík, á hann einn son. Jóhann lauk sveinsprófi í Reykjavík 1945 og var félagi í Múrarafélagi Reykjavíkur frá 1945-1959, síðan félagi í Múrarameistarafélagi Reykja- víkur. Meistari hjá Byggingafé- lagi verkamanna 1959-1971 og við hús íslenskra aðalverktaka við Höfðabakka 9 í Reykjavík. Jóhann starfaði siðustu árin hjá Húsasmiðjunni hf. í Reykjavík. Útför Jóhanns fór fram í kyrrþey. Kær föðurbróðir, Jóhann P. Koch Vigfússon, er látinn eftir þunga sjúk- dómslegu á 73. aldursári. Að hans eigin ósk var kveðjuathöfnin í sama anda og það líf sem hann hafði sjálf- ur æt.íð lifað - með hægð og í kyrr- þey og aðeins í návist nánustu ætt- ingja og vina. Okkur sem næst hon- um stóðum kom andlát hans reyndar ekki á óvart, svo mjög var af honum dregið síðustu vikurnar. En vissulega höfðum við öll ætlað honum lengri lífdaga. Allt til síðustu áramóta gekk hann heill til skógar, fullur starfs- orku og þreks enda þótt löngum starfsferli hans væri lokið, og það var þung raun að sjá hvernig illvígur sjúkdómur lagði þennan sterka og þrékmikla karlmann að velli á aðeins réttu hálfu ári. Og nú við ótímabært andlát hans er söknuðurinn vissulega sár en mér er ekki síður í huga þakk- læti fyrir að hafa átt þennan góða frænda að og fyrir það að hafa not- ið frændrækni hans og umhyggju eins lengi og ég man eftir mér. Jóhann P. Koch Vigfússon var yngstur átta systkina. Afi og amma, Vigfús Sigurðsson Grænlandsfari og Guðbjörg Árnadóttir kona hans, gegndu þar stöðu vitavarðar og bjuggu þar með börnum sínum í tíu ár. Aður hafði afi ráðist sem aðstoð- armaður í Grænlandsleiðangur Jo- hanns Péturs Kochs, dansks jökla- fræðings, sem fór sína fyrstu vísinda- ferð á Grænlandsjökul á árunum 1912-13. Með þeim afa og J. P. Koch tókst gagnkvæm vinátta og virðing og það sýnir hug hans til þessa hollvinar að yngsti sonur þeirra ömmu og afa var heitinn í höfuðið á honum. Arið 1925 flytur fjölskyldan síðan til Reykjavíkur og þar ólst Jó- hann upp og starfaði alla tíð eftir það. Hann stundaði byggingastörf nær allan sinn starfsferil, lærði ung- ur múraraiðn hér í Reykjavík, fór þá til framhaldsnáms í þeirri grein til Svíþjóðar og átti síðan nána og farsæla samvinnu við föður minn og Ólaf bróður sinn á sviði bygginga- mála hér í borginni um margra ára skeið. Hann vann mikið og gott starf i þágu Byggingarfélags verkamanna, og síðar hjá íslenskum aðalverktök- um og þegar hann síðan hætti sjálf- stæðum rekstri réðst hann til starfa hjá Húsasmiðjunni hér í Reykjavík og átti þar tíu ára starf að baki þeg- ar hann hætti störfum vegna aldurs. Koch frændi, en þannig var hann jafnan nefndur í hópi okkar frænd- fólksins, var skapmikill að eðlisfari. Hann átti ríka og mikla lund en var jafnan hæglátur og yfirvegaður í fasi og alltaf einstaklega hlýr og ein- lægur í viðmóti. Á yngri árum stund- aði Koch íþróttir og útivist, en hin síðari ár var bóklestur besta afþrey- ingin eftir erilsaman vinnudag. Og nú þegar hann hafði látið af störfum vegna aldurs áttu börnin og fjöl- skyldur þeirra hug hans allan. Að vera samvistum við Margréti og börnin var hans líf og yndi í bestu merkingu þeirra orða og þar varð hann mikillar hamingju aðnjótandi. Margrét reyndist honum sannur lífs- förunautur - í einu og öllu virtust Margrét og Koch sem einn maður og allt þeirra samband bar vott um einlæga vináttu og væntumþykju. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn og það er sannarlega sterkur og samheldinn hópur sem nú kveður kæran föður og afa. Sár ástvinamissir verður aldrei bættur, þar getur enginn komið í annars stað. En að föður mínum látn- um átti Koch frændi stærstan þátt í að bæta okkur söknuðinn. Vissulega voru þeir um margt ólíkir bræðurnir, faðir minn og Koch, en báðir höfðu þeir mikla ábyrgðarkennd gagnvart sínum nánustu og sýndu þeim ein- staka umhyggju og ræktarsemi. Þessi þáttur var reyndar svo ríkur í fari þeirra beggja að hann mótaði alla þeirra lífssýn og lífsviðhorf öðru fremur. Og þessarar frændrækni af hálfu Koehs nutum við Guðbjartur og börnin okkar í ríkum mæli. Á hveiju vori var það litlum drengjum að jafnaði tilhlökkunarefni að fá að sækja sumarskemmtun Kiwanisfé- laga með Koch frænda, - en í þeirri hreyfíngu starfaði hann um árabil. Síðar, þegar útvega þurfti tápmiklum strákum sumarvinnu, var líka gott að eiga hann að og alla tíð sýndi hann velferð systkinabarnanna ekki síður áhuga en sinna eigin. Allt þetta viljum við nú þakka að leiðarlokum. Í hugskotinu eigum við ótal ljúfar minningar um Koch frænda. Móðir mín saknar elskulegs mágs og við hin frænda og vinar. Fyrir hönd okk- ar allra flyt ég Margréti, bömum og systkinum Kochs einlægar samúðar- kveðjur. Friður fylgi honum. Guðbjörg Tómasdóttir. Tengdafaðir minn, Jóhann Vigfús- son, er látinn eftir stutta og hetju- Iega baráttu við erfiðan sjúkdóm. Ég kynntist Jóhanni fyrir tuttugu árum þegar ég kom fyrst til íslands frá Bandaríkjunum til að giftast dótt- ur hans, Vilborgu, sem hafði verið þar við nám. Frá þessum árum á ég margar skemmtilegar minningar af MINNINGAR samveru minni og minnar fjölskyldu með Jóhanni og Margréti, konu hans. Ég var strax tekinn inn í íjölskyld- una og boðinn velkominn frá fyrsta degi. Það er aldrei létt að vera útlend- ingur fjarri eigin fjölskyldu en Jó- hann tengdafaðir minn lagði sig allan fram við að láta mig finna að hér ætti ég fjölskyldu og fyrir það verð ég jionum ávallt þakklátur. Á stund sem þessari koma orð eins og kærleiki og heiðarleiki upp í hugann. Jóhann var einst.aklega kær sinni fjölskyldu. Hann lagði sig allan fram við að aðstoða og styðja hana eins og honum var einum lag- ið. Hann var ávallt reiðubúinn að aðstoða við útrétt.ingar vegna heim- ilis og barna, svo ekki sé talað um þegar kom að því að rétta hjálpar- hönd vegna alls þess sem sneri að lagfæringum og nýsmíði íbúðarhús- næðis. Áratuga reynsla hans sem múrarameistara nýttist svo sannar- lega fjölskyldu hans. Sérstaklega er mér þó minnisstætt þegar kom að því að þakka Jóhanni fyrir alla hjál- pina var svarið ávallt hið sama: „Þú launar mér best með því að gera hið sama fyrir barnabörnin mín.“ Jóhann hafði mikinn metnað fyrir hönd barna sinna og bamabarna og að þau hefðu tækifæri til að mennta sig. Hann hafði mikið yndi af barna- börnunum og það var mikið tilhlökk- unarefni hjá mínum bömum að fara í heimsókn til afa og ömmu á Tómas- arhaga og eins þegar „afabíll" lagði fyrir framan húsið okkar. Fjölskyld- an var Jóhanni sérstaklega mikilvæg og lagði hann mikla rækt við að hlúa vel að henni og að hans börn gerðu hið sama. Þetta kom berlega í ljós á síðustu vikum hans þegar hann lá í Sjúkrahúsi Reykjavíkur að velferð eiginkonu, barna og þeirra fjöl- skyldna var efst í hans huga. Jóhann var sérlega fær í samskipt- um við aðra enda reyndi oft á þá eiginleika hans í starfi en Jóhann gegndi stjórnunarstörfum lengst af sínum starfsferli. Hjá Jóhanni fengu allir sömu meðhöndlun sem ein- kenndist af heiðarleika, sanngirni og síðast en ekki síst virðingu. Eg vann undir hans stjórn í byggingarvinnu í tvö sumar eins og svo margir í fjöl- skyldunni, börn sem frændfólk. Ég hef alltaf dáðst að því hvernig Jó- hann gat með fáum og vel völdum orðum komið skoðunum sínum á framfæri. Ég fann að samstarfs- menn, ekki sist unga fólkið, var sama sinnis. Jóhann átti sérstaklega auð- velt með að setja sig í spor ungu kynslóðarinnar. Þegar ég hugsa til baka eru efst í huga mér minningar frá sumarbú- stað Jóhanns og Margrétar í Hestvík við Þingvallavatn. Þann bústað hann- aði og byggði Jóhann frá grunni og átti hann þar margar góðar stundir ásamt fjölskyldu sinni. Ekkert gladdi hann meira en að fjölskyldan væri þar saman komin og sérstaklega naut hann sín vel umkringdur barnaböm- unum. Jóhanni féll aldrei verk úr hendi í sumarbústaðnum og var hann sífellt að hugleiða hvaða verkefni skyldi vinna næst þannig að njóta mætti sem best aðstæðna á staðnum. Jóhann hafði oft orð á því við mig að aðalatriðið væri að hafa næg við- fangsefni á svona stað en ekki það að maður kláraði nokkum tímann verkið. Það er sérstaklega erfitt að hugsa til þess að Jóhann verði ekki með okkur aftur í sumarbústaðnum við Þingvallavatn. Hann gat farið eina ferð í sumarbústaðinn sinn í sumar og þá vissi hann hvert stefndi enda hafði heilsu hans hrakað mikið. Ég mun seint gleyma honum þar sem hann sat á pallinum fyrir framan húsið og horfði yfir lóðina sína og fjöllin í kring. Það var greinilegt að þetta var honum mikilvæg stund. Það er með miklum söknuði að ég kveð tengdaföður minn, Jóhann, og þakka ég honum fyrir allar góðu og dýrmætu minningarnar. Hann var mikil kjölfesta í lífí okkar allra. Megi góður Guð styrkja tengdamóður mína sem hefur staðið sterk við hans hlið í gegnum hans erfiðu veikindi, svo og börn, tengdabörn og barna- börn. Við sem urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast Jóhanni mun- um hjálpa yngstu barnabörnunum að varðveita minningu hans enda voru þau honum svo kærkomin. Blessuð sé minning góðs vinar. Randver C. Fleckenstein. + Hjartkær faðir okkar, sonur, bróðir, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR UNNSTEINSSON, iþróttakennari, Safamýri 52, Reykjavik, sem lést á heimili sínu 9. september síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 20. septem- ber og hefst athöfnin kl. 13.30. Unnsteinn Ólafsson, Gunnlaugur Ólafsson, Berglind Hilmarsdóttir, Elna Ólafsson, Arna Björk Unnsteinsdóttir, Hanna Unnsteinsdóttir, Grétar J. Unnsteinsson, Bjarki A. Unnsteinsson, Reynir Unnsteinsson. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS BJÖRGVIN JÓNSSON, Fífuhvammi 41, Kópavogi, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju fimmtudaginn 19. septemberkl. 13.30. Hervör Jónasdóttir, Helgi Ágústsson, Hallgrimur Jónasson, Ágústa Friöriksdóttir, Jónas Ragnar Helgason, Jóna Bára Jónsdóttir, Guðmundur Björgvin Helgason, Helga Jóna Benediktsdóttir, Helgi Gunnar Helgason, Frfða Pálsdóttir, Oddfríður Steinunn Helgadóttir, David Costin, Björgvin Pétur Hallgrímsson, Sigrfður Hallgrímsdóttir, íris Björk Hafsteinsdóttir, Vilhjálmur Andri Einarsson, Pála Hallgrfmsdóttir og barnabarnabörn. + Ástkær faðir okkar, fósturfaðir, tengda- faðir, afi og langafi JÓN JÓNSSON fyrrum bóndi, Varmadal, Kjalarnesi, sem lést 11. september sl. verður jarð- sunginn frá Foasvogskirkju föstudaginn 20. september kl. 15. Hjördi's Jónsdóttir, Hreinn Magnússon, Valdemar Jónsson, Þórdís S. Kjartansdóttir, Jón Sverrir Jónsson, Hanna Sigurjónsdóttir, Haraldur Jónsson, Sigri'ður Sigurjónsdóttir, Guðný Björg Þorgeirsdóttir, Þór Sigþórsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA MAGNÚSDÓTTIR, Hagamel 53, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. september kl. 13.30. Magnús Leopoldsson, Björk Valsdóttir, Hallur Leopoldsson, Guðrún Gísladóttir, Elvar Steinn Þorkelsson, Guðný Ósk Diðriksdóttir, Þórhallur Björnsson, Unnar Þór Gunnarsson, María Sif Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Erfidrykkjur Glæsileg kaffi- lilaðbon), tallegir salir og mjög góð þjónusta Upplýsingar ísíma 5050 925 og 562 7575 FLUGLEIÐIR níim iiin'minii GARÐS APÓTEK Sogavegi 108 REYKJAVÍKUR APÓTEK Austurstræti 16 eru opin til kl. 22 "tó” Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Garðs Apótek

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.