Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 35
SKAFTI
BENEDIKTSSON
+ Skafti Benediktsson fædd-
ist á Bjarnarnesi í Nesjum
17. október 1911. Hann Iést á
hjúkrunarheimilinu Skjólgarði
á Höfn í Hornafirði hinn 9. sept-
ember síðastliðinn og fór útför
hans fram frá Stafafellskirkju
17. september.
Nú fer ég
nýjan veg
norðan yfir heiðar,
suðri mót .
möl og gijót
marka sporin
reiðar, fela sjón
fram í Lón
fjöll og auðnir breiðar,
hérna fóru fommenn sinnar leiðar.
(Sr. Jón Jónsson, Stafafelli.)
Við fréttina af andláti Skafta í
Hraunkoti leitaði hugur aftur til
ánægjuríkra samverustunda, í ná-
býlinu austur í Lóni. Samgangur
var mikill milli bæja og snerist oft-
ar en ekki um ýmislegt tengt bú-
skap. Komið var saman af bæjun-
um við réttir, steypuvinnu og fleira.
Fyrir ungum dreng var Skafti í
sérstöku uppáhaldi. Fáir gáfu sér
tíma til að yrða á litla karla, sem
ekki gátu ekið hjólbörum eða voru
það lágir í loftinu að þeir voru ein-
ungis notaðir í fyrirstöðu í smala-
mennsku. Öðru máli gegndi með
Skafta, sem var ætíð sposkur und-
ir yfirskegginu, tilbúinn að tala við
og hlusta á smáfólkið.
Hann hafði mikla unun af að
skemmta fólki með líflegum frá-
sögnum og var góður leikari. Var
af þeirri kynslóð sem setti upp leik-
rit og skemmtanir í gamla Fundar-
húsinu, á fyrri hluta aldarinnar.
Broti af þeim félagsanda kynntist
ég á jólaskemmtunum í Lóninu þ.s.
Skafti var oftast jólasveinninn.
Ljósamótorinn drunaði úti i myrkr-
inu, gengið var í kringum fagur-
skreytt tréð, skyndilega kom þessi
gráskeggjaði maður í salinn með
mikla og glaðhlakkalega rödd sem
hæfði hlutverkinu. Hann sagði sög-
ur og stjórnaði hringdansi. Þeir eru
eftirminnilegir söngdansarnir, sem
allir sungu af innlifun og gerðu
hljóðfæri algjörlega óþörf þessi
vetrarkvöld.
Miklar breytingar urðu á bú-
skaparháttum í Lóni í tíð Skafta.
Framan af sínum búskap rak Skafti
fé í Kollumúla og á hann ófá spor-
in í Stafafellsfjöllum. Smala-
mennska á því svæði var sérstakt
þrekvirki. Að fara um vegleysur
og jökulvötn af áræði og ósérhlífni
var hlutskipti Skafta haust eftir
haust. Hann tók þátt í að byggja
göngubrú á Jökulsá og flytja allt
efni sem til þurfti. Þessi fram-
kvæmd öll var honum minnisstæð
og gat hann sagt á sinn einstæða
hátt frá ýmsum atvikum s.s. þegar
dýnamítið valt af hestinum og túp-
urnar dreifðust niður Illakamb eða
að bensínborinn sem fluttur hafði
verið alla þessa leið virkaði ekki
þegar á reyndi. Framfarahugur
einkenndi ávallt hans lífsferil.
Minnisstætt er sumarið 1974, en
þá var Skafti mikið á Stafafelli við
að byggja nýtt fjárhús. Hann var
alltaf mættur snemma morguns á
gamla traktornum, verklaginn og
vinnusamur, ásamt því að vera
hrókur alls fagnaðar. Skömmu síð-
ar byggði hann áþekkt hús í Hraun-
koti og var sjálfur yfirsmiður.
Heimilið í Hraunkoti var ein-
stakt. Allir voru svo ríkir af áhuga-
málum og vilja til að móta sitt
umhverfi. Við fráfall Skafta gerir
maður sér grein fyrir hverfulleikan-
um. Mannlíf í Lóni hefur breyst og
verður aldrei eins og það var. Mað-
ur kemur í manns stað segir mál-
tækið, þó erfitt verði að fylla í
skarðið, gefst okkur tækifæri til
að heiðra minningu hans. Orðstír
lifir þeim er sér góðan getur. Ég
hef sagt syni mínum frá gráu
gimbrinni, broddstönginni og öllum
þeim góðu minningum sem Skafti
og heimilisfólkið í Hraunkoti gáfu
mér í uppvexti. Sonurinn svarar
með erfiðri spurningu; „En af
hveiju er Skafti dáinn?“ Fátt er
um svör sem eru litlum dreng skilj-
anleg og jafnvel okkur sem eldri
erum. Þegar heilsunni hrakaði hjá
honum vildi hann hafa heimsóknir
stuttar, það átti ekki við hann að
kvarta eða vera bundinn í slíka lík-
amlega fjötra. Það er von mi'n og
trú að hann sé nú kominn á stað
þ.s. frásagnargleði hans og kraftur
fá notið sín í ríkum mæli. Með
þessum fátæklegu orðum kveð ég
vin með söknuði og þakklæti,
ásamt því að votta Sigurlaugu og
öðrum aðstandendum dýpstu sam-
úð.
Gunnlaugur Benedikt.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
t
Ástkær faðir okkar, bróðir og mágur,
ERLENDUR GEIR ÓLAFSSON,
Mávabraut 7,
Keflavik,
áður til heimilis í Vestmannaeyjum, er látinn.
Ólafur Geirsson, Gunnlaugur Óskar Geirsson,
Óskar Ólafsson, Jóhanna Agústsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR PÉTURSDÓTTIR,
Hraunbæ 102c,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
fimmtudaginn 19. september kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Vilborg E. Lárusdóttir,
Guðrún H. Lárusdóttir.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
fráfall og útför okkar ástkæru
SIGRÍÐAR INGIBJARGAR
FINNBOGADÓTTUR,
Móaflöt 23,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir eru færðar hjúkrunar-
fólki á Reykjalundi og Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Stefán Vilhelmsson,
Elfn G. Stefánsdóttir, Júlfus K. Björnsson,
Vilborg J. Stefánsdóttir, Reynir Ó. Guðjónsson,
Bjarni K. Stefánsson, Sigurióna Ástvaldsdóttir,
Sölvi Stefánsson, Inga Arnadóttir, -
Svana H. Stefánsdóttir
og barnabörn.
AlVINNUAUGtYSINGAR
„Au pair“ Frakkland
Við búum í úthverfi Parísar. Okkur vantar „au
pair" strax, ekki yngri en 18 ára, reyklausa,
barngóða og notalega í umgengni.
Uppl. eftir kl. 17 í símum 587 0102 eða
00331 6952 1220.
Starf í íþróttahúsi
Starfsmann (konu) vantar í íþróttahúsið
Digranes við þrif og afgreiðslu. 50 - 70%
vinna. Kvöldvaktir.
Upplýsingar í síma 554 2230 (Ómar) og
564 2347 (Óskar E.)
Aðalstjórn HK.
Djákni
Sóknarnefnd Garðasóknar auglýsir stöðu
djákna í hálft starf frá og með 1. október
1996 laust til umsóknar.
Umsóknir merktar: „Djákni" sendist skrif-
stofu
Garðasóknar, Kirkjuhvoli, 210 Garðabæ fyrir
28. september nk.
Sóknarnefnd.
Framreiðslufólk
- þjónar
Óskum að ráða til starfa framreiðslufólk og
fólk vant þjónustustörfum nú þegar. Fast
starf og tímabundið, mikil vinna.
Upplýsingar gefur Páll í síma 477 1321.
Hótel Egilsbúð,
Neskaupstað.
Prentsmiðir
Dagsprent hf. óskar eftir að ráða prentsmið.
Viðkomandi þarf að hafa góða þekkingu á
QuarkXPress. Vaktavinna.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
prentsmiðjustjóri í síma 462 4222.
Dagsprent hf.
Sálarrannsóknarfélag
íslands
Hlutastarf/
skrifstofustarf
Sálarrannsóknarfélag íslands óskar eftir að
ráða starfsmann til starfa á skrifstofu félags-
ins, Garðastræti 8.
Starfstími er frá kl. 14-17 alla virka daga.
Umsóknir berist skrifstofu SRFÍ eða í póst-
hólf 433, 121 Reykjavík, fyrir 23.9. 1996.
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöld og helg-
arvaktir. Starfsfólk vantar til aðhlynningar í
100% starf og einnig á stuttar kvöldvaktir.
Möguleiki er á leikskólaplássi.
Upplýsingar veita ída Atladótir, hjúkrunarfor-
stjóri, og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í símum 553 5262 og
568 9500.
Byggingaverkamenn
Vantar byggingaverkamenn til starfa strax.
Umsóknareyðublöð á skrifstofu okkar, Funa-
höfða 19. Sími 577 3700.
Ármannsfell hf.
Félagsmálaráðuneytið
Fólk í atvinnuleit
Félagsmálaráðuneytið vekur athygli á að
vinnuafl vantar til fiskvinnslu víða um land.
Vinnumiðlanir veita nánari upplýsingar.
Félagsmálaráðuneytið,
16. september 1996.
Sýslumaðurinn íVestmannaeyjum
Skrifstofustarf
Staða skrifstofumanns við embætti sýslu-
mannsins í Vestmannaeyjum er iaus til um-
sóknar. Um er að ræða bókhalds- og gjald-
kerastörf. Viðkomandi þarf að hefja störf 1.
nóvember nk. Ráðningartími ótímabundinn
og um fullt starf er að ræða. Umsækjendur
þurfa að hafa góða reynslu af bókhalds- og
tölvuvinnslu. Laun eru samkvæmt launakerfi
starfsmanna ríkisins.
Nánari upplýsingar veitir Jón Óskar Þórhalls-
son, skrifstofustjóri. Umsóknarfrestur er til
4. október 1996 og skulu umsóknir berast
til sýslumannsins íVestmannaeyjum, Heiðar-
vegi 15, Vestmannaeyjum.
Öllum umsóknum verður svarað.
Vestmannaeyjum, 18. september 1996.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum,
Georg Kr. Lárusson.