Morgunblaðið - 29.09.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1996 B 23
ATVIN N UA UGL YSINGAR
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingar óskast á næturvaktir á
hjúkrunarvakt vistheimilis (grunnröðun í Ifl.
213) og á hjúkrunardeildir kvöld og helgar.
Sjúkraliða vantar í 50% stöðu, vinnutími
8-12. Möguleiki er á leikskólaplássi.
Upplýsingar veita ída Atladótir, hjúkrunarfor-
stjóri, og Þórunn A. Sveinbjarnar, hjúkrunar-
framkvæmdastjóri, í símum 553 5262 og
568 9500.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveitan vill hafa á að skipa hæfasta starfsfólki á sínu sviði
og viðhalda hæfni þess, því starfsfólkið er ein mikilvægasta auðlind
fyrirtækisins. Jafnrétti verði til starfs og launa, þannig að kjör og
frami samræmist ábyrgð og árangri.
Óskar eftir að ráða íeftirtaiin störf:
Starf rafmagnsverk- eða tæknifræðings í
verkfræðideild.
Starfssvið:
• Áætlanagerð og hönnun vegna aðveitu-
kerfis.
• Úrlausn ýmissa tæknilegra viðfangsefna
sem varða uppbyggingu, endurnýjun og
rekstur veitukerfisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði rafmagnsverk-
fræði eða rafmagnstæknifræði.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun
og reynslu á sterkstraumssviði.
Starf rafmagnseftirlitsmanns
Starfssvið:
• Spennusetning heimtauga, úttekt nýrra
raflagna vegna tenginga húsveitna við
dreifikerfi Rafmagnsveitunnar.
• Þjónusta og ráðgjöf við verktaka og orku-
kaupendur vegna raflagna, rafmagns-
tækja og orkunotkunar.
• Önnur sérhæfð verkefni er tengjast raf-
lögnum, rannsóknum og raforkusölu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sveinspróf í rafvirkjun og vera rafiðnfræð-
ingur.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu í
vinnu við lágspennulagnir.
• Einnig er gerð krafa um þægilegt viðmót
og lipurð í mannlegum samskiptum, þar
sem vinna rafmagnseftirlitsmanns er í
mjög nánum tengslum við viðskiptavini
Rafmagnsveitunnar.
Starf fuiltrúa i' afgreiðslu þjónustudeildar.
Starfssvið:
• Ráðgjöf til hönnuða og rafverktaka varð-
andi heimtaugar.
• Meta og meðhöndla umsóknir.
• Yfirfara og samþykkja heimtaugateikningar.
• Innsláttur í gagnagrunn.
• Útskrift heimtaugareikninga.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Rafvirkjamenntun.
• Lipurð í mannlegum samskiptum og geta
unnið sjálfstætt.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
er að hafa á skrifstofu Mannvals,
Austurstræti 17, 3. hæð.
Umsóknarfrestur er til 11. október nk.
Athygli er vakin á því, að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut
kvenna i stjórnunar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgarinnar,
stofnana hennar og fyrirtækja.
mm
IV/ 1!
AU5TURSTRÆTI 17 • 3. HÆÐ • 1D1 REYKJA'ÍK
5ÍMI 5E1 585B • FAX 5E1 5858
Sölufólk óskast
Sölufólk óskast í símasölu. Góð verkefni og
mikil vinna framundan. Góð, hvetjandi sölu-
laun og notaleg vinnuaðstaða. Dag-
vinna/kvöldvinna.
Upplýsingar veittar í síma 581 4088.
Hið íslenska bókmenntafélag.
Eftirlitsstofnun EFTA
Laus staða no. 7/96:
Framkvæmdastjóri
almennrar skrifstofu
Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel hyggst ráða
framkvæmdastjóra almennrar skrifstofu frá
og með 1. janúar 1997.
Meginverkefni Eftirlitsstofnunar EFTA er að
tryggja að aðildarríki EFTA standi við skuld-
bindingar sínar í tengslum við samninginn
um Evrópska efnahagssvæðið (EES).
Framkvæmdastjórinn verður yfirmaður skrif-
stofu stofnunarinnar, sem fer með starfs-
mannamál, fjárhagsáætlanir og eftirlit, bók-
hald, fjármálastjórn, tryggingamál starfs-
manna, innkaup, skráningu/skjalasafn, tölvu-
þjónustu o.s.frv.
Viðkomandi þarf að hafa háskólagráðu í lög-
fræði, hagfræði, viðskiptafræði eða sam-
bærilega menntun, hafa gegnt ábyrgðar-
stöðu í ráðuneyti, ríkisstofnun, samtökum
eða sambærilegu einkafyrirtæki, hafa
reynslu af stjórnun þar á meðal starfsmanna-
haldi, gerð fjárhagsáætlana og reynslu af
tölvukerfum. Reynsla af starfi innan alþjóða-
stofnana og góð þekking á EES-samningnum
og tengdri löggjöf er æskileg.
Þá þyrfti viðkomandi að hafa fullkomið vald
á talaðri og ritaðri ensku (hinu opinbera
máli stofnunarinnar). Kunnátta á frönsku,
þýsku, íslensku eða norsku æskileg.
Til að fá nánari upplýsingar og umsóknar-
eyðublöð (No. 7/96) vinsamlegast hafið sam-
band við:
EFTA Surveillance Authority,
Director of Administration,
Rue de Tréves 74,
B-1040 Brussels, Belgium.
Fax: (00322) 286 1800.
Umsóknarfrestur rennur út 18. október
1996.
Upplýsingar og beiðnir um umsóknareyðu-
blöð eru afgreiddar síma (00322) 286 1891.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
HÁSKÓLABÓKASAFN
Tölvunarfræðingur
Landsbókasafn fslands - Háskólabókasafn
óskar eftir að ráða starfsmann í kerfis-
þjónustu safnsins. í safninu eru um 175
PC-einkatölvur fyrir starfsfólk og safngesti,
tæplega 50 prentarar, geisladiskar á neti auk
ýmis annars tölvubúnaðar. PC tölvurnar eru
tengdar Unix netþjónum með TCP/IP.
Starfið er fólgið í rekstri PC-einkatölva og
annarra jaðartækja á netinu, áframhaldandi
þróun þessa tölvuumhverfis auk þátttöku í
þróunarverkefnum safnsins sem einkum
tengjast upplýsingaþjónustu á Internet.
Gerðar eru kröfur um próf í tölvunarfræði frá
HÍ, próf frá Tölvuháskóla Verslunarskóla
íslands eða tilsvarandi menntun.
Nánari upplýsingar veita Þórir Ragnarsson í
síma 563 5600. Umsóknir, með upplýsingum
um menntun og fyrri störf, skulu sendar
landsbókaverði fyrir 4. október nk.
Landsbókasafn íslands - Háskólabókasafn,
Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík.
Skipholti 70 Simi 581 2581
óskar eftir
nema á 3. ári, sveini eða meistara.
Vinsamlega sendið inn umsóknir á afgreiðslu
Mbl. merkt: „Hár - 15243“ fyrir 4. október nk.
SJÚKRAHÚS
REYKJAVÍKUR
Hjúkrunarfræðingar
Heila- og taugaskurðlækningadeild
og háls-, nef- og eyrnadeild A-5
Hjúkrunarfræðingar óskast á heila- og tauga-
skurðlækningadeild og háls-, nef- og eyrna-
deild í Fossvogi.
Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Bjarnveig Pálsdóttir
deildarstjóri í síma 525 1065 og Margrét
Tómasdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í
síma 525 1306.
Deild A-6
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga á lyf-
lækningadeild A-6. Vinnuhlutfall og vaktafyr-
irkomulag eftir samkomulagi.
Deildin er almenn lyflækningadeild með
áherslu á hjúkrun sjúklinga með:
Innkirtla- og efnaskiptasjúkdóma.
• Lungnasjúkdóma.
Meltingarfærasjúkdóma.
Nýrnasjúkdóma.
Spennandi uppbyggingarstarf á deildinni er
framundan í vetur.
Nánari upplýsingar veita Guðrún Halldórs-
dóttir deildarstjóri í síma 525 1635 og Mar-
grét Björnsdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 525 1555.
Barnadeild
Lausar eru tvær stöður hjúkrunarfræðinga á
barnadeild. Vinnuhlutfall eftir samkomulagi.
Ýmsir vaktamöguleikar koma til greina, m.a.
fastar kvöldvaktir. Unnið er 3ju hverja helgi.
Aðlögun er einstaklingshæfð og fer eftir
reynslu og þekkingu viðkomandi hjúkrunar-
fræðings.
Á deildinni eru 26 rúm og þar fer fram blönd-
uð starfsemi, bæði hand- og lyflæknishjúkrun.
Allar nánari upplýsingar veita Auður Ragn-
arsdóttir deildarstjóri í síma 525 1566 og
Margrét Björnsdóttir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 525 1555.
Hjúkrunardeild fyrir aldraða 1-A
Hjúkrunarfræðingar óskast á hjúkrunardeild
fyrir aldraða á Landakoti. Vinnuhlutfall og
vaktafyrirkomulag eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Bryndís Gestsdóttir
deildarstjóri í síma 525 1912 og Anna Birna
Jensdóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri í síma
525 1888.
Öldrunarlækningadeild 2-A
Hjúkrunarfræðingur óskast á öldrunarlækn-
ingadeild á Landakoti á kvöld- og helgarvakt-
ir. Vinnuhlutfall og vaktafyrirkomulag eftir
samkomulagi.
Nánari upplýsingar veita Guðbjörg Jóna Her-
mannsdóttir deildarstjóri í síma 525 1917
og Anna Birna Jensdóttir hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri í síma 525 1888.
Læknaritarar
Læknaritari óskast á röntgendeild í Fossvogi
í fullt eða hlutastarf. Leitað er eftir reyndum
læknaritara.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Helgadóttir,
fulltrúi starfsmannaþjónustu, í síma 525 1949.