Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 37
36 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 37
JMto0iniÞlafr&
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÞING OG SER-
FRÆÐIÞEKKING
VARNAÐARORÐ forseta íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, í fyrstu ræðu hans við setningu Alþingis, eru
allrar athygli verð. Forseti sagði meðal annars: „Að vissu
leyti heyr þingið nú varnarbaráttu til að tryggja að það vald
sem því ber samkvæmt lýðræðisgrundvelli íslenzkrar stjórn-
skipunar flytjist í reynd ekki smátt og smátt til sérfræðistofn-
ana framkvæmdavaldsins eða til starfsliðs og stjórnenda hags-
munasamtaka."
Líkt og forseti benti á, er þróunin í þessum málum hér á
landi ekkert einsdæmi. Þjóðþingin í nágrannalöndunum hafa
verið sett í sama vanda. Frumkvæði að lagasetningu kemur
í síauknum mæli frá framkvæmdavaldinu og stofnanir þess
hafa á að skipa þeirri sérfræðiþekkingu, sem oft er nauðsyn-
leg til að leysa flókin viðfangsefni nútímans.
Jafnframt hafa hagsmunasamtök hér á landi nú orðið- í
sinni þjónustu vel menntaða sérfræðinga, sem oft og tíðum
verða nánast sjálfkrafa þátttakendur í stefnumótun í ýmsum
mikilvægum málum vegna þess hversu fáir aðrir búa yfir
sömu þekkingu og yfirsýn. Hlutverk þessara aðila við jnótun
opinberrar stefnu vegur sennilega enn þyngra en ella vegna
þess að íslenzku stjórnmálaflokkarnir hafa ekki gegnt mikil-
vægu hlutverki við sérhæfða stefnumótun.
Það er að sjálfsögðu ekkert neikvætt við það að sérfræðing-
ar annist samningu lagafrumvarpa í auknum mæli, í stað
þess að þingmenn semji sjálfir stóran hluta þeirra laga, sem
samþykkt eru á Alþingi, eins og tíðkaðist fyrr á öldinni. Við-
fangsefni stjórnmála og stjórnsýslu hafa orðið flóknari og
þingmenn hafa sjaldnast forsendur til að semja tæknilegan
og sérhæfðan lagatexta. En Alþingi verður að geta veitt fram-
kvæmdavaldinu aðhald, líkt og til er ætlazt í stjórnar-
skránni, og gætt hagsmuna umbjóðenda sinna sem bezt. Til
þess að stefnumótunin færist ekki á vettvang sérfræðistofn-
ana framkvæmdavaldsins annars vegar og til hagsmunasam-
taka hins vegar verður Alþingi að bregðast við með því að
tryggja þingmönnum aðgang að sjálfstæðri sérfræðiþekkingu
á vegum þingsins sjálfs, sem gerir þeim kleift að meta með
gagnrýnum hætti tillögur framkvæmdavaldsins og gæta al-
mannahagsmuna í stað þess að láta fulltrúum sérhagsmuna
eftir að móta stefnu í þýðingarmiklum málaflokkum.
Nokkur skref hafa verið stigin í þessa átt á seinni árum,
einkum hvað varðar sérfræðiaðstoð við nefndir þingsins. Þá
var það mikið framfaraspor er Ríkisendurskoðun var færð
undir Alþingi. Stofnunin hefur reynzt mikilvægt tæki þingsins
til að veita framkvæmdavaldinu aðhald. Þó er enn langt í frá
að íslenzkir þingmenn búi við svipaðar aðstæður í þessum
efnum og starfssystkini þeirra víðast á Vesturlöndum.
LANDAMÆRAEFTIRLIT
MEÐ FISKI
FYRIRTÆKI, sem flytja út sjávarafurðir, munu verða fyr-
ir óþægindum og kostnaði vegna skyndilegrar breytingar
á landamæraeftirliti með fiski í Hollandi. Yfirvöld þar í landi
verða nú, vegna ábendinga framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, að taka upp sömu framkvæmd heilbrigðisskoðunar
á landamærum og fyrir fjórum árum og verða sýni tekin úr
hverri einustu sendingu af íslenzkum fiski, sem fluttur er inn
á Evrópumarkaðinn í gegnum Holland.
Það er ágalli á samningnum um Evrópskt efnahagssvæði,
sem menn áttuðu sig sennilega ekki á sem skyldi er samning-
urinn var gerður, að íslenzkur fiskur skuli ekki vera undanþeg-
inn eftirliti á ytri landamærum Evrópusambandsins. Mismun-
andi reglur í aðildarríkjunum valda útflytjendum óþægindum,
auk þess sem sú hætta er alltaf fyrir hendi að landamæraeft-
irlitinu sé beitt sem viðskiptahindrun. Hinn fijálsi markaðsað-
gangur fyrir flestar íslenzkar sjávarafurðir, sem menn hafa
talið felast í EES, er þessum takmörkunum háður.
Nú, þegar öll íslenzk fiskvinnsluhús uppfylla kröfur Evrópu-
sambandsins um heilbrigði og hreinlæti, hafa hins vegar skap-
azt forsendur til að yfirstíga þessa hindrun. íslenzk stjórn-
völd hafa um nokkurra missera skeið átt í viðræðum við ESB
um að reglur sambandsins um heilbrigðiseftirlit á landamær-
um verði teknar upp í EES-samninginn og ísland taki þannig
að sér eftirlit á ytri landamærum Evrópska efnahagssvæðis-
ins, en á móti verði íslenzkar afurðir undanþegnar eftirliti
er þær eru fluttar inn til ESB-ríkja.
Þessum viðræðum hefur seinkað nokkuð. Uppákoman í
Hollandi sýnir hins vegar nauðsyn þess að þeim verði hraðað
og að staðið verði við áform um að nýjar reglur geti tekið
gildi hér á landi í marz næstkomandi. Hér er um talsverða
hagsmuni að ræða fyrir íslenzkan sjávarútveg.
ÖSKUGOSIÐ í VATIMAJÖKLI
SÍFELLT nýir gosstrókar komu upp, fyrst hvítir gufubólstrar, en þegar þessar myndir voru teknar úr
flugvél Flugmálastjórnar rétt eftir klukkan átta í gærmorgun urðu töluverðar sprengingar, sem þeyttu
Ljósmyndir/Ingvar Valdimarsson
öskunni upp í 300 til 500 m hæð og lagði mökkinn svo undan vindi nokkra kílómetra í norður. Hækkaði
gosmökkurinn úr um 3 km upp í 4 til 5 km hæð á meðan sveimað var yfir jöklinum eða á um fjörutíu mínútum.
Hver strókurinn
á eftir öðrum
Öskugos hófst í Vatnajökli upp úr klukkan
fimm í fyrrinótt. Sjónarvottar segja það hafa
byrjað með hvítum bólstri, líkustum loftbelg,
og þegar á daginn leið urðu töluverðar
sprengingar, sem þeyttu öskunni upp í loftið.
Til Grímsvatna runnu um 5.000 rúmmetrar
af vatni á sekúndu, sem er tífalt
vatnsmagn Þjórsár.
BJARNI Skarphéðinn Bjarna-
son og Ingólfur Guðni Ein-
arsson sáu þegar gosið
hófst en þeir voru staddir um 13 km
suðvestur úr Kverkfjallahrygg.
Bjarni sagði um klukkan 4 hafi
hvítur bólstur eða mökkur hafi blasað
við í vesturátt. Bólsturinn hafí verið
álíka í laginu og loftbelgur og sést
mjög vel. I kjölfar smærri bólstranna
hafi svört súla komið upp á svipuðum
slóðum og fyrsti bólsturinn átján mín-
útur yfir fimm um morguninn.
Tveir tæknifræðingar _frá jarðeðlis-
fræðisviði Veðurstofu Islands, þeir
Bergur Bergsson og Sturla Ragnars-
son, sáu hvíta gufubólstra stíga til
himins frá eldstöðinni við Bárðar-
bungu snemma í gærmorgun, þegar
þeir voru að setja upp jarðskjálfta-
mæli á Skrokköldu á Sprengisands-
leið, sem er í 20 km fjarlægð frá jökul-
röndinni og um 40 km frá eldstöðinni.
„Við vorum á Skrokköldu um kl.
9.30 og þá sáust gosstöðvarnar ansi
vel þaðan. Það sáust sífellt nýir strók-
ar koma upp, en þetta voru alveg
hvítir gufubólstrar. Það liðu kannski
tvær mínútur á milli þess sem strók-
arnir komu upp í byijun, en síðan var
þetta næstum því orðið samfellt, sem
maður sá nýja og nýja bólstra koma.
Þeir voru reyndar miskraftmiklir að
sjá og sumir virtust ansi öflugir,“
sagði Bergur.
Hann sagði að skyggni hefði verið
ágætt á þessum slóðum í gærmorgun,
Morgunblaðið/Sturla Ragnarsson
Gosstrókurinn upp úr Vatna-
jökli séð frá Skrokköldu í
gærmorgun.
en skýjahula hefði legið í jökulyf-
irborðinu og strókarnir sést greinilega
koma upp úr henni. Upp úr hádeginu
hefði skyggnið hins vegar verið orðið
það lélegt að gufubólstrarnir hefðu
hætt að sjást.
Bergur sagði að langt væri síðan
ákveðið hefði verið að setja jarð-
skjálftamælinn upp á Skrokköldu, en
eftir að eldsumbrotin við Bárðarbungu
hófust hefði verið drifið í því að koma
honum upp.
Á sama stað og 1938
Flugvél Flugmálastjórnar með
Magnús Tuma Guðmundsson, jarðeðl-
isfræðing I Raunvísindastofnun Há-
skólans, og Freystein Sigmundsson,
jarðeðlisfræðing í Norrænu eldfjalla-
stöðinni, innanborðs kom að gosinu
rétt eftir klukkan átta í gærmorgun.
Magnús Tumi sagði að greinilegur
gosstrókur hefði komið úr sama hrygg
og gosið árið 1938. „Gosið kemur úr
nyrðri af tveimur vel mótuðum og
samtengdum sigkötlum í jöklinum.
Við urðum varir við töluverðar spreng-
ingar, ekki ósvipað og í Surtseyjargos-
inu á sínum tíma. Sprengingarnar
þeyttu öskunni upp í 300 til 500 m
hæð. Gosmökkinn lagði svo undan
vindinum nokkra kílómetra í norður.
Eg áætla að gosmökkurinn hafi hækk-
að úr um 3 km upp í 4 til 5 km hæð
á meðan við sveimuðum yfir jöklinum
eða á um fjörutíu mínútum," sagði
hann og tók fram að hraði gosmökks-
ins færi væntanlega eftir því hvernig
eldvirknin þróaðist um daginn.
Eins og 10 Þjórsár
Ekki var hægt að fljúga yfir jökul-
inn vegna veðurs fyrr um morguninn.
Skyggni var heldur ekki gott í flug-
inu. „Við sáum að sigkatlarnir tveir
höfðu dýpkað og stækkað og teygt
sig lengra í átt til Grímsvatna. Hins
vegar var ekki skyggni suður yfir sig-
katlana og alskýjað yfir sjálfum
Grímsvötnunum. Þangað hafa runnið
um 5.000 rúmmetrar af vatni á sek-
úndu og samsvarar vatnsmagnið því
að um 10 Þjórsár renni í Grímsvötn,"
sagði Magnús Tumi.
Magnús Tumi og Freysteinn sögðu
að með sama áframhaldi mætti búast
við því að hlaup yrði í Grímsvötnum
í nótt eða í morgun. Ef fram færi sem
horfði og gosið líktist gosinu árið 1938
myndi Skeiðarárhlaup ná hámarki á
um þremur dögum.
Jökullinn þynnri en haldið var
Magnús Tumi sagði einkanlega
tvær ástæður fyrir því að gosið hefði
verið fljótara að ná í gegnum jökulinn
en talið hefði verið í fyrstu. „Aðal-
ástæðan er sú að við áætluðum að
gosið hefði aðeins sunnan við gosstöð-
ina frá árinu 1938. Ef svo hefði verið
hefði jökullinn verið um 600 m þykkur
yfir gosinu. Nú vitum við að hann var
aðeins um 450 m þykkur þarna. Hin
Framan af deginum
verða vindar suðvestlægir
en síðdegis fer að blása af norðri.
Líkleg gjóskudreifing
fimmtudaginn 3. október
Líkleg gjósku-
dreifíng framan
af degi
Gjóskufall á Norðurlandi
í GÆRKVÖLDI höfðu Veður-
stofunni borist tilkynningar
um lítils háttar gjóskufall á
Blönduósi, í Blöndudal,
Svínadal, á Akureyri og í
Reykhólasveit. Búist var við
suðvestlægum vindum og að
gjóska gæti haldið áfram að
berast yfir norðaustanvert
landið fyrri part dagsins.
Ef öskugos heldur áfram í
Vatnajökli bjóst Veðurstofan
við því að gjóska gæti farið
að berast suður um jökulinn,
bæði í lægri og hærri loftlög-
um.
ástæðan er sú að gosið virðist hafa
einangrað sig við annan sigketilinn
og má í því sambandi geta þess að
hann virðist hafa sigið heila 50 m á
aðeins um 4 klukkutímum. Væntan-
lega er aðeins lítið gos undir syðri
sigkatlinum,“ sagði Magnús Tumi.
Hann kvað ekki ólíklegt að um 250
m hátt íjall hefði hlaðist upp undir
nyrðri sigkatlinum í gærmorgun.
Gos úr nýjum gíg
Gos var hafið úr nýjum gíg undir
Vatnajökii seinni partinn í gær þegar
flugvél Flugmálastjómar flaug með
Magnús Tuma Guðmundsson og Frey-
stein Sigmundsson yfír umbrotasvæðið
milli Bárðarbungu og Grímsvatna. Nýi
sigketillinn, og sá ijórði, er 1-2 kílómetr-
um norðar en gígurinn sem byijaði að
spúa ösku og gosbólstruin gegnum jök-
ulinn milli klukkan fiögur og fímm í
fyrrinótt að sögn Magnúsar Tuma.
Taldi hann gossprunguna um sex kíló-
metra að lengd í gær.
Skyggni var ekki gott yfír sprung-
unni um fimmleytið í gærdag og sagði
Magnús að gosmökkurinn næði 4-5
kílómetra hæð yfír sjávarmáli eða 3
kílómetra hæð yfir jöklinum. „Það gýs
upp úr jöklinum á einum stað, líkt og
í [gærmorgun], eða úr katlinum sem
nyrstur var í [fyrradag]," segir Magnús
Tumi.
Hann sagði jafnframt að gígopið í
jöklinum hefði víkkað og var það talið
um kílómetri í þvermál í gærdag. „Gíg-
veggimir og opið er svart af ösku og
jafnframt drífur hana undan vindi til
norðurs."
Magnús Tumi sagði jafnframt að lík-
lega væru tveir gíganna virkir sem
stæði, það er nýi sigketillinn, og sá
næstnyrsti sem braut sér leið gegnum
jökulinn í fyi-rinótt. Hins vegar væri lít-
il virkni í syðsta sigkatlinum eða þeim
minnsta sem vart varð á þriðjudag.
Líklegt að vatnið leiti einungis
niður í Grímsvötn
Nýi ketillinn er 1-2 kílómetrum
norðar en gígurinn sem tók að spúa
ösku upp úr jöklinum í gær og hafði
ekki sigið mikið í gær að Magnúsar
sögn. „Yfirborð jökulsins er tekið að
springa en við vitum hins vegar ekk-
ert hvort þessi virkni verður langvinn
eða hvort gosið nær líka í gegn þarna,“
segir hann.
Magnús Tumi segir að nýjasti ketill-
inn sé á skilum vatnasvæða Gríms-
vatna og Jökulsár á Fjöllum. „Mér
þykir samt líklegast að jökuivatnið
sem bráðnar þarna leiti suður eftir
sprungunni og niður í Grímsvötn þótt
ekki sé hægt að útiloka að það leiti
til norðurs." Þá segir hann ljóst að
gosstöðvarnar nú séu á sama stað og
árið 1938 þegar síðasta Grímsvatna-
gos varð. „Gígarnir eru ofan á fjallinu
sem þá hlóðst upp, þess vegna kom
gosið fljótar upp á yfirborðið en við
bjuggumst við,“ segir hann að lokum.
Páll Einarsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði
Umbrotin
hluti af
lengri at-
burðarás
PÁLL Einarsson, prófessor í jarðeðl-
isfræði við Háskóla íslands, segir að
umbrotin undir Vatnajökli, sem hóf-
ust á sunnudag, tengist virkni sem
fyrst varð vart í fyrrasumar.
Páll segir þijár megineldstöðvar
koma við sögu, það er Bárðarbungu
Grímsvötn og Hamarinn, eða Loka-
hrygg sem liggur austur af honum.
„Fyrst má telja hlaup í Skaftá í júlí
í fyrra en vatnið í það hlaup kom
úr eystri Skaftárkatli sem svo er
nefndur og er á Lokahrygg norðvest-
an við Grímsvötn. Þegar vatnið var
rétt að tæmast úr þessum katli kom
fram óróahviða á skjálftamæli á
Grímsfjalli sem benti til þess að orð-
ið hefði smávegis gos þar undir,“
segir Páll.
Hann segir ennfremur að aukin
skjálftavirkni hafi fylgt í kjölfarið
næstu mánuði á svæðinu. „í febrúar
verður nokkuð kröftug jarðskjálfta-
hrina í Hamrinum sem stendur í viku
og síðan Skaftárhlaup í ágúst. Það
hlaup kom úr vestari Skaftárkatlin-
um á Lokahrygg en var reyndar frek-
ar lítið. Rétt í lokin endurtók sagan
sig hins vegar með óróahviðu sem
fram kom á skjálftamælum og bentfi
til annars goss undir jöklinum. „Síð-
an hefjast umbrot í Bárðarbungu á
sunnudag með stórum jarðskjálfta
og hann virðist hafa hleypt af stað
gosi í Grímsvötnum," segir Páll.
Frekari jarðhræringar
hugsanlegar
Hann segir ekki beinlínis hægt að
draga ályktanir af framangreindum
hræringum. „Það er hins vegar vel
hugsanlegt að fleiri atvik eigi eftir
að bætast við þessa rás atburða þótt
ekki sé hægt að segja fyrir um hvar.
Með því að fylgjast með jarðskjálfta-
mælum má hins vegar átta sig á
þessu jafnóðum," segir Páll.
Jarðskjálftamælarnir sem mest er
stuðst við eru hluti af kerfi sem
komið var upp árið 1985 á þessum
slóðum og Raunvísindastofnun rekur
til eftirlits fyrir Landsvirkjun, að
Páls sögn.