Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Björgunarsveitin á Eyrarbakka fær svifnökkva til afnota VÍGLUNDUR Guðmundsson á fullri ferð á svifnökkvanum á grynningum í Ölfusá. Einnig er hægt að „sigla“ nökkvanum upp á bakkann til leitar. Japanir vilja Is- land í Alþjóða- hvalveiðiráðið Fimmtán ára draumur rætist „ÞETTA er búinn að vera draumur okkar í fimmtán ár,“ segir Jón Sigurðsson, félagi í Björg, björgunarsveit Slysa- varnafélagsins á Eyrarbakka, um svifnökkva sem sveitin keypti í sumar. Nökkvann er fyrirhugað að nota við leitir í og við Ölfusá og víðar ef þörf er á. Björgunarsveitin er oft köll- uð til leitar í Ölfusá, meðal annars yfirleitt þegar talið er að fólk hafi fallið í ána við Selfoss. Leitirnar eru erfiðar því grynningar eru miklar og breyta sér ört. Hafa björgunar- sveitarmenn því þurft að ganga meðfram ánni allt upp fyrir Kaldaðarnes eða fara á gúmbátum sem þá þarf sífellt að vera að draga eftir grynn- ingum og eyrum. „Eftir hveija leit þráðu menn svona tæki. En við erum fyrst og fremst sjóbjörgunarsveit og þurfum að láta báta og önnur tæki því tengd ganga fyrir. Það var ekki fyrr en við vorum orðnir vel búnir á því sviði að við gátum leyft okkur þetta,“ seg- ir Jón. Sparar sporin Björgunarsveitin keypti notaðan svifnökkva í vor, tveggja manna far sem kostaði um 700 þúsund krónur. Var þetta verulegt átak fyrir litla sveit. Enn hefur ekki reynt á nökkvann, sem betur fer, en Jón segir að tíminn hafi verið notaður til þjálfunar og nú séu menn í sérstökum flokki orðnir leiknir í notkun hans. Nökkvinn kemst yfir með 80 kilómetra hraða á klukku- stund við bestu aðstæður en þolir ekki mikla öldu. Notkun hans sparar tíma og ekki síst sporin við leit á Ölfusá. Þá er hægt að leita á honum uppi á landi meðfram ánni, á svæði sem ekki er hægt að fara nema gangandi eða á hestum. Jón segir að svifnökkvinn geti nýst víðar. Hann sé til dæmis góður í mýrum og komist yfir svæði sem önnur farartæki fari ekki. Sveitin er tilbúin að fara með svifnökkvann þangað sem þörf er á. MICHIO Shimada, forstöðumaður sjávarútvegsstofnunar japanska sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu- neytisins, hvetur íslendinga til að gerast aðilar að Alþjóðahvalveiðiráð- inu að nýju, samkvæmt frétt frá sjáv- arútvegsráðuneytinu. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra átti viðræður við Shimada í Tókíó í gær Samkvæmt upplýsing- um sjávarútvegsráðuneytisins sagði forstöðumaðurinn aðspurður að ekk- ert væri því til fyrirstöðu af hálfu Japana að útflutningur hæfist á ís- lenskum hvalaafurðum á Japans- markað gerðust íslendingar aðilar VARÐSKIPIÐ Óðinn er nú lagt af stað heim úr Smugunni eftir sex vikna útivist. Skipið er væntanlegt til Reykjavíkur á sunnudag eða mánudag. Nú eru 14 íslensk skip við veiðar á víð og dreif um Smuguna. Að sögn Helga Hallvarðssonar, yfirmanns gæsluframkvæmda Land- helgisgæslunnar, fóru varðskips- menn af Óðni um borð í 10 togara til fiskveiðieftirlits og kvörnuðu fisk í fimm skipum fyrir Hafrannsókna- að ráðinu. Hins vegar benti hann á að Norðmenn hefðu ekki leyft út- flutning á hvalaafurðum vegna nei- kvæðrar afstöðu Bandaríkjamanna. Ennfremur var rætt um vaxandi útflutning á íslenskum sjávarafurð- um til Japans og benti Þorsteinn Pálsson á að innflutningskvóti Jap- ana hindraði aukin viðskipti með síld- ar- og þorskafurðir. Lofaði Shimada að taka þau mál til skoðunar. Þá voru til umræðu tilraunaveiðar Japana á túnfiski í íslenskri lögsögu, hugsanleg aðild íslands að túnfisk- veiðistofnuninni ICCAT og karfa- veiðar á Reykjaneshrygg. stofnun. Fiskurinn um borð í þessum skipum var mjög góður, að sögn varðskipsmanna. Jón Ivar Einarsson, læknir á Óðni, hefur fengið 32 sjúklinga um borð til sín til aðhlynningar, auk þess sem hann hefur gefið ráð í gegnum tal- stöð um meðhöndlun 8 sjúklinga til viðbótar. Skipherra á Óðni er Kristján Þ. Jónsson. 14 íslensk skip í Smugunni Óðinn á heimleið Kanadaher kannar atvik í Reykjavík Dansmeyjar um borð í herskip HEIMSÓKN tveggja nektardans- meyja um borð í kanadíska frei- gátu, Ville de Quebec, sem hafði viðdvöl í Reykjavíkurhöfn í lok ág- úst, er nú til rannsóknar hjá kana- díska flotamálaráðuneytinu. Dan Bedell hjá Upplýsingaskrif- stofa kanadíska sjóhersins í Halifax sagði í samtali við Morgunblaðið að konurnar væru frönskumælandi Kanadabúar en starfi sem nektar- dansmeyjar í Reykjavík. Hann sagði rannsóknina snúast um hve lengi konurnar dvöldu um borð í skipinu og hvort þær hafi’ dansað nektardans um borð. Nokkrir áhafnarmeðlimir buðu konunum drykki um borð, síðdegis, en óleyfilegt er að gestir dvelji leng- ur en til kl. 23.00. Samkvæmt upplýsingum skip- stjóra voru konurnar ekki farnar frá borði kl. 1 um nóttina. Þessir atburðir hafa, að sögn Bedells, vakið mikla athygli ijöl- miðla í Kanada, en þarlend sjón- varpsstöð vakti eftirtekt flotamála- ráðuneytisins á málinu. Rannsókn lýkur 9. október. Ville de Quebec var í Reykjavík- urhöfn í þijá daga, á leið sinni til heræfinga í Norðursjó á vegum NATO. I áhöfn skipsins voru 225 manns, þar af 40 konur. KRISTINN Sigmundsson og Jónas Ingimundarson hafa verið að flytja Vetrarferðina á tónleikum í um það bil tíu ár og nú er komið að því að gefa flutning þeirra út á geislaplötu. Umræður um stefnuræðu forsætisráðherra Boðar skattalækkanir DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, boðaði skattalækkanir á næstu árum í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi. Bæði ættu jaðarskattar og almennir skattar að lækka, en þar verði að fara með gát, því forsendan verði að vera að ríkissjóður verði framvegis rekinn hallalaus. Það hljóti að vera auðvelt þjóðarsamstöðu um efna- hagslegar forsendur, sem byggjast á því, að ríkið safni ekki skuldum, að kaupmáttur fólks geti aukizt jafnt og þétt og að skattar á al- menning geti lækkað," sagði for- sætisráðherra. Forsætisráðherra vék einnig að efnahagsþróuninni og áhrifum hennar á stöðu kjaramála. Þar sem kjarasamningar eru lausir um næstu áramót, lagði forsætisráð- herra áherzlu á nauðsyn þess, að verkalýðsforingjar og forráða- menn atvinnulífsins gangi fram af sanngirni og ábyrgð við gerð kjarasamninga. Ekki megi stefna þeirri kaupmáttaraukningu, sem náðst hefur á undanförnum árum, í hættu. Söknuðu margs í stefnuræðunni Formælendur stjórnarandstöð- unnar sögðu ástandið ekki eins bjart og forsætisráðherra. vildi vera láta. Margrét Frímannsdóttir, Alþýðubandalagi, taldi það merki- legast við ræðu hans, sem hann lét ósagt. Orða um málefni aldr- aðra og öryrkja, þjónustugjöld, húsnæðismál, skuldastöðu heimil- anna, jafnréttismál og stefnu í heilbrigðis- og menntamálum - alls þessa sagðist hún sakna í ræðu forsætisráðherra. Margrét minnti á, að þetta væri sjötta árið í röð, sem Davíð Odds- son boðaði hallalaus fjárlög, sem aldrei hefðu gengið eftir hingað til. Guðný Guðbjörnsdóttir, Kvenna- lista, rifjaði upp það ákvæði í stjómarsáttmálanum, að stefnt skuli að því, að festa þjóðareign á auðlindum sjávar í stjómarskrá. Það væm hins vegar alvarlegustu skilaboðin, sem komið hefðu frá ríkisstjórninni í haust, að ákveðið hefði verið að endurflytja frumvarp til laga um samningsveð með hinu umdeilda ákvæði, að veðsetja megi aflaheimildir, sem margir túlki sem viðurkenningu á því, að kvóti sé í einkaeign en ekki sameign þjóðar- innar. Þetta hefði forsætisráðherra látið vera að nefna í stefnuræðu sinni. Á meðan útgerðarmenn fengju andvirði milljarða í kvóta afhent á silfurfati, sem þeir síðan geti verzlað með að vild, sé það hrein blekking að halda því fram, að sjávarútvegurinn sé ekki ríkis- styrktur. Vetrarferð Kristins og Jónasar á geislaplötu HINN KUNNI ljóðaflokkur, Vetrar- ferðin, eftir Franz Schubert verður gefinn út á diski í haust hjá Máli og menningu, í flutningi Kristins Sigmundssonar og Jónasar Ingi- mundarsonar. Kristinn sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þeir Jónas hefðu verið að flytja þetta verk á tónleikum í um það bil tíu ár og alltaf hefði staðið til að gefa það út á diski. „En það veitti svo sem ekkert af þessum tíu ára undirbún- ingstíma. Þetta verk er hápunktur Ijóðabókmenntanna.“ Mikill Mefistofeles Kristinn er nýkominn frá Nante og Angers í Frakklandi þar sem hann söng í Fordæmingu Fásts eft- ir Berlioz. Kristinn fékk góða dóma í frönskum blöðum. Eric Ménard, hjá Nantes Poche, segir að hann hafi verið yfirgnæfandi á sviðinu. Segir hann að þessi risi, sem er meira en tveir metrar á hæð, hafí verið einstakur Mefistofeles. Radd- beiting Kristins segir hann sömu- leiðis að hafi verið mjög góð. Gagn- rýnandinn, Henri Pezeller, talar einnig um stærð Kristins og segir hann hafa verið mikinn Mefistofeles sem réði jafnvel við hina drynjandi sterku tóna og þá veikustu. Köln, Flórens, Genf og París Kristinn heldur til Kölnar í vik- unni þar sem hann mun syngja í Seldu brúðinni eftir Smetana. Um miðjan nóvember fer hann svo til Flórens að syngja í Töfraflautunni eftir Mozart. Þaðan fer hann til Genfar að æfa Öskubusku Rossinis fram til jóla en hún verður frum- sýnd í janúar. Á næsta ári segist Kristinn verða mikið í París þar sem hann mun verða í sýningum á Pars- ifal og Lóhengrin eft.ir Wagner.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.