Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni Ljóska TAUéÁteALÚO 6£T/ túO/Ul/P TJL GtíeiNA- EN þAO AP HUN rA/ 'ASTA þÉR. RÆ& é<5 EHJO Í//ÐJ ÓSICA BleokiNVfZ. Q Ferdinand Smáfólk YE5,MAAM..Ml<' NAME 15 "rerun::.i don't KN0U)..THAT5 UJHATTHEY ALL CALL ME.. ~zc YE5,1 KNOU) I 5HOULP HAVE BEEN HERELASTUUEEK.. LUELL, l'M HERE NOLO.. I HOPE WE DON't HAVE TOREAD"LUARANPPEACE" THE FIR5T PAY.. Já, kennari... ég heiti Rabbi... ég veit það ekki... það er það sem ég er kallaður... Já, ég veit að ég hefði átt að vera hér í síðustu viku ... Nú, ég er hér núna ... Ég vona að við þurfum ekki að lesa „Stríð og frið“ fyrsta daginn... BREF TTL BLAÐSINS Knnglan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Ognarveldi í vesturbæ Frá Karli Agústi Ipsen: GRANNI, húmanískt hverfisblað í vesturbæ Reykjavíkur, hefur verið gefinn út, með nokkru hléi, í lengri tíma. Þegar undirritaður tók til starfa við blaðið var það með mikilli eftirvæntingu. Blaðið var nýtt, og það virtist vera spennandi miðill sem hentaði framtíðinni. Lýðræði var mikilvægasta dyggð blaðsins, enginn einn maður átti að stjórna blaðinu og allir áttu að vera jafnir, svo sem er stefna húmanista um víða veröld. Greinar mínar voru birtar og allt lék í lyndi. En Adam var ekki lengi í Paradís, né ég í Granna. Fljótt tók að bera á ósamlyndi innan ritstjórn- ar. Einn maður var farinn að taka undir sig öll völd, hann réð öllu sem hægt var að ráða. Eg hefði aldrei tekið illa í slíkt hefði hann kallað sig ritstjóra, hefðu störf ritstjómarmanna verið skil- greind, svo ekki hefði þurft að koma til ósætti eða misskilningur. En það mátti ekki. Á yfirborðinu þurfti að vera sú hilling að allir væm jafnir, að enginn væri ofar öðrum, jafnvel þótt allir sem að blaðinu kæmu vissu betur. Svo fór að við fórum tveir úr rit- stjórn, sáum okkur ekki fært að starfa við aðstæður þar sem enginn réð nema þessi eini maður. Þar sem orðið lýðræði þýddi, í huga æðsta- valds, einræði. Svo fór að eftir að við fórum frá blaðinu hætti blaðið að koma út. Sjö mánuðir liðu og fór forvitni okkar um hvað komið hefði fyrir blaðið sífellt vaxandi. Loks fór svo að við ákváðum að hringja í æðsta-vald og athuga hvað gengi á. Eftir nokkrar viðræður ákváðum við að ganga aftur í Granna og lágu á bakvið tvær meginástæður: í fyrsta lagi söknuðum við þess miðils sem gamli-Granni var. Við sáum mögu- leikann á því að verða jafnvel til „Utaf með Frá Sigurði E. Haraldssyni: ÓMAR Ragnarsson samdi fyrir nokkrum árum ágætan texta um hann Jóa útheija, sem var þekktur fyrir sín þrumuskot auk margs ann- ars. Þar komu raunar fleiri við sögu, einn hrópaði í darraðardansinum miðjum: „Útaf með dómarann" og tvítók þá kröfu er rétt er munað. Það er þannig engin ný bóla að dómarinn sé ekki endilega vinsælasti maður á vellinum og störf hans umdeild. Hitt er nýtt að ráðist sé að starfsheiðri knattspyrnudómara í blaðaskrifum. Það gerðist þó fyrir skömmu á síðum Morgunblaðsins. þess að blaðið risi aftur til fyrri gæða. I öðru lagi langaði okkur að halda áfram að skrifa, að koma okk- ar skoðunum á framfæri. Okkur til mikillar furðu kom það í ljós, eftir að við höfðum gengið að nýju í Granna, að ógnarveldi æðsta- valdsins hafði aukist þannig að hann var nú orðinn að talsmanni allra húmanista á íslandi. Hann hafði hert á taki sínu í ritstjóm og nú var svo komið að enginn þorði að andmæla æðsta-valdinu. Nú voru góða ráð dýr. Gátum við sætt okkur við slíka harðstjórn? Áttum við að skrifa áfram og vona að takið linaðist? Við ákváð- um að sitja. Ég skrifaði greinar og mætti með þær á ritstjórnarfund. Beiskja æðsta-valds kom þá þegar í ljós. Áður en æðsta-vald hafði lesið greinina, áður en hann hafði svo mikið sem lesið fyrirsögnina, neitaði hann birtingu greinarinnar. Greinin var sögð slúðurgrein, hún hæfði best slúðurriti og að ég hefði á mér þann pistil að ég væri sorpblaðamaður. Ég viðurkenni að mér sárnaði við þessi orð og var mér skapi næst að ganga út af fundi. Ég sat þó á mér og hugs- aði sem svo að beiskjan hlyti að þverra. Það gerðist þó ekki og magn- aðist óánægjan sífellt. Loks varð ekki framhjá því litið að við þessar aðstæður var mér ekki sætt á blaðinu. í mínum huga var Granni dauður og með honum allar þær hugsjónir sem að baki lágu. Ég ákvað að hætta á blaðinu, og skamm- ast mín fyrir aðild mína að því. í því eintaki sem nú er á leið úr prent- un, og er sennilega komið í söluturna og verslanir í vesturbæ þegar þessi orð birtast, er grein eftir mig. Ég Iít svo á að þessi grein sé svanasöng- ur minn í Granna, að þar með sé allri aðild minni að blaðinu lokið. KARLÁGÚST ÍPSEN, Bræðraborgarstíg 24, Reykjavík. Það má hiklaust fullyrða að Gylfi Þór Orrason er einn virtasti dómari, sem nú um stundir gegnir því vanda- sama hlutverki að dæma knatt- spyrnuleiki. Þeim sem til hans þekkja kemur ekki á óvart að Gylfi njóti viðurkenningar. Prúðmennska hans er alkunn, hið sama má segja um áralöng afskipti af knattspyrnu og hann hefur stutt af drengskap við bak ungra manna, sem stunda knatt- íþróttina. Fáryrði í garð Gylfa Þórs dæma sig sjálf og eru svo ógeðfelld, að þeim ber að mótmæla. SIGURÐUR E. HARALDSSON, Bólstaðarhlíð 3, Reykjavík. Hvað skal segja? 28 Væri rétt að segja: Gætum sanngirnis í viðskiptum við hvert annað. Svar: Orðið sanngirni er kvenkyns og eins í öllum föllum. Hér er fleira athugavert. Rétt væri: Gætum sanngirni í viðskiptum hvers við annað. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef. ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.