Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sr. Flóki Kristinsson þjónar erlendis FLÓKNASTA stjórnaraðgerð vorra tíma, punktur húrra húrra . . . Sveinn Ingi Svavarsson SKIPVERJAR á Óðni á mælaveiðum á Reykjaneshrygg. Jarðskjálftamælar sóttir JARÐSKJÁLFTAMÆLAR sem komið var fyrir neðansjávar á Reykjaneshrygg um miðjan ág- úst voru sóttir aftur fyrir skömmu. Það voru varðskips- menn á Óðni, tveir japanskir vís' indamenn og Bryndís Brands- dóttir jarðeðlisfræðingur sem fiskuðu mælana upp. Mælarnir eru 27 talsins en ekki hefur tekist að ná í nema 25. Bryndís segir að enn sé von- ast eftir því að hinir tveir finn- ist. Mikið er í húfi, því hver ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna lagði fram á Alþingi í gær tillögu til þingsályktunar um veiðileyfa- gjald, en þetta er fyrsta þingmálið sem hinn nýi þingflokkur leggur fram á nýsettu þingi. Meginatriði tillögunnar er, að Alþingi álykti, að taka beri upp veiðileyfagjald í sjávarútvegi. Með því staðfesti Alþingi, að þjóðin eigi fiskimiðin. Það sé réttlætismál, að fáir aðilar fái ekki ókeypis aðgang að sameiginlegri auðlind þjóðar- innar. Því er haldið fram í tillögunni, mælir kostar um tvær milljónir króna. Þeir eru japanskir og full- komnustu tæki í heimi til jarð- skjálftamælinga neðansjávar. Mælarnir eru festir neðansjáv- ar með eins konar akkeri. Þegar náð er í þá er sent merki á ákveð- inni tíðni sem losar þá. Bryndís segir að það hafi valdið erfiðleik- um hér að þeir voru notaðir á minna dýpi en vant er, en þeir eru hannaðir fyrir mikinn þrýst- ing og þola allt að sjö þúsund metra dýpi. að veiðileyfagjald í sjávarútvegi sé rökrétt framhald þjóðarsáttar um jafnvægi og öryggi í efnahagsmál- um, og ennfremur því, að veiði- leyfagjald beri ekki að skilgreina sem skattlagr.ingu. Beinn kostnað- ur hins opinbera við sjávarútveg sé um 3 milljarðar kr. ár hvert, og eðlilegt sé, að greinin beri þenn- an kostnað. í tillögunni er út- færslu veiðileyfagjaldtökunnar haldið opinni; stungið er upp á 6 útfærslum, sem m.a. gera ráð fyr- ir að ríkisvaldið selji veiðiheimildir á opnum markaði. Framhald þingsetningar Litlar breytingar á nefnda- skipan Á FUNDI Alþingis í gær var setn- ingu 121. löggjafarþings fram haldið með kosningu varaforseta þingsins og skipan í þingnefndir. Loks var hlutast til um sæti þing- manna. Rannveig Guðmundsdóttir, for- maður nýstofnaðs þingflokks jafn- aðarmanna, tilkynnti formlega um sameiningu þingflokka Alþýðu- flokks og Þjóðvaka í hinum nýja þingflokki. Þar með eru þingfiokk- ar stjórnarandstöðunnar einum færri en á síðasta þingi, sem hefur nokkrar breytingar í för með sér, þar sem sameiningin hefur áhrif á innbyrðis skiptingu stjórnarand- stöðuflokkanna í nefndum þingsins sem og í erlendum samskiptum þess. Þingflokkarnir komust að sam- komulagi um endurskoðun skipt- ingarinnar. Niðurstaða þeirra var sú, að sögn Rannveigar, að halda sig við óbreytta skiptingu setufull- trúa að öðru leyti en því að jafn- aðarmenn létu eftir annað tveggja sæta sem þeir höfðu í utanríkis- málanefnd. Þetta sæti kom í hlut Kvennalistans. Þannig hefur þing- flokkur jafnaðarmanna samtals 18 nefndasæti á þessu þingi, Kvenna- listi 6 og Alþýðubandalag 13. Sæti Olafs Ragnars Grímssonar í utanríkismálanefnd tekur Mar- grét Frímannsdóttir sem auk þess mun sitja í heilbrigðismálanefnd. Þingsæti Ólafs Ragnars tekur Sig- ríður Jóhannesdóttir. Samkomulag var einnig milli þingflokkanna um skipan í forsæt- isnefnd Alþingis sem helzt óbreytt. Varaforsetar voru kjörnir Ragnar Arnalds, Sturla Böðvarsson, Guðni Ágústsson og Guðmundur Árni Stefánsson. Tillaga um veiðileyfagjald á Alþingi Staðfestir að mið- in séu í þjóðareign Ráðstefna um mengun sjávar Sífellt meiri áhugi á umhverfismálum meðal lögfræðinga dag iýkur þriggja daga ráðstefnu á sviði um- hverfisréttar um mengun sjávar, en hún er haldin á vegum íslands- deildar samtaka evrópskra laganema (ELSA). Ráð- stefna þessi er haldin á Hótel Borg í Reykjavík og lýkur með pallborðsumræð- um klukkan þijú í dag, en fyrr um daginn eða klukkan tíu mun Ove Caspersen upplýsingafulltrúi sendi- ráðs Evrópusambandsins fyrir Noreg og ísland halda fyrirlestur um stefnu ESB í umhverfismálum. Af þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband við Margréti Gunnarsdóttur laganema og stjórnarmann í ELSA á Islandi, en hún er jafnframt framkvæmdastjóri ráðstefnunnar. Hvers vegna var ákveðið að taka fyrir umhverfismál á þessari ráðstefnu? „Hugmyndin kom fyrst upp á fundi ELSA fyrr á þessu ári, en okkur fannst vert að vekja fólk til umhugsunar um umhverfís- mál, enda er þörfin á slíkri um- ræðu alltaf að verða meiri. Auk þess eru lögfræðingar í æ meiri mæli farnir að einblína á málefni tengd umhverfisrétti og margir farnir að sérmennta sig í því fagi. Þá má benda á að síðastliðinn vetur var í fyrsta sinn kenndur umhverfisréttur í lagadeild Há- skóla íslands og mæltist það vel fyrir. Þegar við svo vorum að und- irbúa ráðstefnuna ákváðum við að einblína ekki bara á lögfræði- legar hliðar mengunarmála. Af þeim sökum fengum'við ekki bara lögfræðinga til að flytja erindi, heldur líka til dæmis líffræðing og hagfræðing. Á ráðstefnuna komu þrír er- lendir fyrirlesarar en auk þess héldu nokkrir íslendingar erindi. Þá má bæta því við að sex erlend- ir laganemar komu hingað til að vera á ráðstefnunni." Hvaða þýðingu hefur ráðstefna sem þessi? „Hún eflir að sjálfsögðu alla umræðu um umhverfismál og upplýsir okkur um leið um ýmsa hluti sem við vissum ekki áður, enda hafa stanslausar vangavelt- ur verið um mengun hafsins síð- ustu tvo daga. Ráðstefna sem þessi eykur líka áhugann á um- hverfisrétti, reglum tengdum umhverfinu og lögfræðilegum álitaefnum í því sambandi. Þá vil ég vekja athygli á að í pallborðsumræðunum sem verða í dag mun að öllum líkindum verða fjallað nánar um það sem fram kom á ráð- stefnunni og þar verður mögulegt fyrir gesti að koma með fyrirspurn- ir.“ En snúum okkur að samtökum evrópskra laganema (ELSA), getur þú sagt frá starf- semi þeirra? „ELSA var stofnað árið 1981 og samtök laganema frá 41 Evr- ópulandi eiga aðild að því. Með- limir eru því samtals um tuttugu og fimm þúsund. Auk þess tengj- ast ýmis laganemasamtök utan Evrópu ELSA, eins og til dæmis samtök laganema í Ástralíu, Bandaríkjunum og í Afríku. Á hveiju ári eru haldnir fjórir fund- ir þar sem stjórnir allra ELSA- landa hittast, en auk þess eru ► Margrét Gunnarsdóttir laganemi og framkvæmdastjóri ráðstefnunar um umhverfisrétt á Hótel Borg fæddist í Reykja- vík 1. maí 1972. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1993 og hóf nám í lagadeild í janúar 1994. Síðastliðinn vetur var hún í rit- stjórn Ulfljóts, tímarits laga- nema, en auk þess hefur hún setið í stjórn ELSA undanfarið ár. Þar hefur hún meðal annars verið umsjónarkona fræða- starfa og því séð um að kynna ráðstefnur á vegum ELSA fyrir íslenskum laganemum og verið þeim innan handar að afla styrkja. haldnar margar ráðstefnur víðast hvar í Evrópu á vegum hinna ýmsu ELSA-hópa. í alþjóðastjóm ELSA eru sex manns, en hún hefur aðsetur í Brussel. Helsta markmið samtak- anna eru gagnkvæm samskipti milli evrópskra laganema og ungra lögfræðinga. Við í stjórn ELSA á Islandi leggjum til dæm- is mikia áherslu á það að efla vinnuskipti á milli landanna. Þannig getum við sent íslenska laganema utan til tímabundinna starfa og fengið erlenda laga- nema hingað. I sumar komu til dæmis þijár evrópskar stúlkur hingað til lands og fengu þær störf hjá ASÍ, Verslunarráði og hjá sjávarútvegsráðuneytinu. Með því fengu þær tækifæri til að setja sig inn í íslenska lögfræði. Þá má geta þess að ELSA hef- ur lagt mikla áherslu á mannrétt- indamál síðastliðin tvö ár og hafa af því tilefni verið haldnar ráð- stefnur víðsvegar um Evrópu. ís- landsdeild ELSA, AIESEC og Stúdentaráð HÍ munu svo standa saman að svokölluðum Bosníu- dögum tíunda og ellefta október næstkomandi til að safna peningum og bókum fyrir há- skólanema í Bosníu.“ Er íslandsdeiid ELSA sátt við ráðstefnuna sem lýkur í dag á Hótel Borg? „Já, það erum við, enda hefur hún tekist í alla staði vel. Margir lögfræðingar hafa sýnt henni áhuga og jafnvel mætt á einstaka fyrirlestra. Við höfum velt því fyrir okkur að halda ráðstefnu sem þessa á tveggja ára fresti. Það væri mjög þarft, því of lítið er um það í lagadeildinni að sér- stök málefni séu rædd ofan í kjöl- inn, eins og nú var gert.“ Mikilþörf á því að ræða umhverfismál
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.