Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ Kránni lokað klukkan tíu Eyrbekkingar standa á öndinni vegna þess að sýslumaður hefur gert veitingastaðnum og þorps- kránni, Kaffi Lefolii, að loka fyrr á kvöldin vegna kvörtunar nágranna. Veitingamaðurinn ætlar að loka ef ákvörðun sýslumanns fæst ekki hnekkt. Helgi Bjarnason kynnti sér deilurnar. ÞÓRIR Erlingsson tók Gunnarshús eða Gistihúsið á Eyrarbakka á leigu í árslok 1994, en í hluta hússins hafði verið rekið kaffihús um skeið, gerði það upp og opnaði veitinga- staðinn Kaffí Lefolii í febrúar 1995. Hann fékk veitingaleyfi og leyfi til vínveitinga og hefur síðan rekið staðinn sem kaffi- og veitingahús og þorpskrá. Frá upphafi hafa eig- endur næsta húss, Bakarísins, mót- mælt vínveitingum í húsinu og fengu því framgengt við endurnýjun vín- veitingaleyfisins fyrir skömmu að veitingastaðnum verður að loka klukkan tíu á kvöldin virka daga en hálf tólf um helgar. Mikil óánægja er með þessa ráðstöfun í þorpinu og Þórir er að undirbúa kæru til dóms- málaráðuneytis. Þórir segir að veitingastaðurinn hafi gengið mjög vel. Þangað kæmu hópar af öllu Arborgarsvæðinu og úr Reykjavík, auk einstaklinga. „Fólki líkar sá andblær liðinna tíma sem það finnur hér í þessu sögu- fræga húsi. Kjallarinn er orðinn að þorpskrá, þar sem íbúarnir hittast," segir Þórir. Hann rekur _ staðinn ásamt konu sinni, Katrínu Ósk Þrá- insdóttur. 8 metrar í svefnherbergið Kristinn Harðarson hefur ásamt fjölskyldu sinni gert upp Bakaríið, næsta hús við Kaffi Lefolii. Hann segist hafa mótmælt hugmyndum fyrri rekstraraðila um vínveitinga- leyfi árið 1992. Hann rekur skemmtistaðinn Gjána á Selfossi þar sem Þórir vann um tíma, segist hafa fylgst með uppbyggingu hans á veit- ingahúsinu og ekkert haft við hana að athuga enda hafi verið talað um að staðnum yrði lokað klukkan tíu á kvöldin. Það hafi því komið sér mjög á óvart þegar hreppsnefnd mælti með fullu vínveitingaleyfi og sýslumaður veitti það. Hann hafi hins vegar ákveðið að bíða með að- gerðir í eitt ár og sjá hver reynslan yrði. Tæpir 8 metrar eru milli Kaffi Lefoliis og Bakarísins og er svefn- herbergisgluggi Kristins gegnt aðal- inngangi veitingahússins. Kristinn Harðarson segir að það sé ekki meiri hávaði í kringum Kaffi Lefolii en aðra veitingastaði, nema síður sé. Hins vegar sé ekki hjá ónæði komist við þessar aðstæður, fólk þurfi ekki annað en að tala saman á leið frá húsinu til að það berist inn til sín. Telur hann sig ekki þurfa að þola slíkt í íbúðahverfi í friðsælu og hljóðbæru þorpi. Þórir Erlingsson segir aftur á móti að Kristinn hafi aldrei getað sannað að gestir veit- ingahússins hafi gert honum ónæði. í eina skiptið sem hann hefði látið gera lögregluskýrslu hafi fólkið setið í rólegheitum inni á staðnum. Þá bendir Þórir á að Kristinn sé eini nágranninn sem kvartað hafi og aðrir nágrannar hafi meira að segja safnað undirskriftum til stuðnings rekstrinum. Lögfræðingur Kristins mótmælti því við hreppsnefnd og sýslumann að vínveitingaleyfi Kaffi Lefoliis yrði endurnýjað og til vara að veitinga- tími yrði til tíu öll kvöld. Kristinn flutti á Selfoss í haust að því er hann segir sýslumanni „vegna lang- varandi og óviðunandi ónæðis frá veitingahúsinu". Húsið geti hann þó hvorki selt né leigt vegna þessa. í samtali við Morgunbiaðið bætir Kristinn því við að þetta sé orðið að svo miklu hitamáli á Eyrarbakka að hann hafi ekki treyst sér tii að búa þarna lengur, sérstaklega vegna níu ára sonar síns. Hann stefni hins vegar að því að flytja þangað aftur. „Við keyptum Bakaríið 1989 ogvor- um þrjú ár að gera það upp. Það er nú elsta íbúðarhúsið á Eyrar- bakka. Það liggur mikil vinna í hús- inu og miklar tilfinningar við það bundnar,“ segir Kristinn. Eftir að úrskurður sýslumanns lá fyrir tókst honum leigja hús sitt. Hreppsnefnd meðmælt Erindi Þóris Erlingssonar um end- urnýjun vínveitingaleyfis var nú sem fyrr vel tekið í hreppsnefnd Eyrar- bakkahrepps. Fimm hreppsnefndar- menn voru hlynntir endurnýjun leyf- isins en tveir á móti. Þeir sem á móti voru höfðu við fyrri afgreiðslu málsins flutt tiliögu um að leyfið yrði bundið við lokun staðarins klukkan hálf tólf alla daga. Málið virðist ekki vera flokkspólitískt því I-listinn sem hefur meirihluta í sveit- Morgunhlaðið/Davíð Pétursson Minnsti snjór frá 1960 Grund - Það er víðar en í Esjunni sem fjöll hafa ekki verið snjólétt- ari sl. 30-40 ár. Skarðsheiðin hefur ekki státað af svo fáum fönnum síðan 1960 að fréttaritari best veit. Menn fylgjast grannt með hvort Skessuhornið nái að verða snjólaust en eini skafiinn sem í því er skipti sér fyrir nokkr- um dögunt og eru nú tveir snjódíl- ar eftir. Sryórinn í heiðinni er mjög dökkur svo ekki er ólíklegt að upp séu komin öskulög úr fyrri gosum t.d. Heklu 1947. FIMMTUDÁGUR 3. OKTÓBER 1996 15 LAIMDIÐ Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir ATTA metrar eru á milli Kaffi Lefoliis og Bakarísins sem er minna húsið til vinstri á myndinni og svefnherbergisgluggi íbúðarhússins er beint á móti inngangi veitingahússins. Nokkuð hátt grindverk er á milli húsanna. Kristinn Þórir Harðarson Erlingsson arstjórn skiptist í tvennt í afstöðu sinni og er Magnús Karel Hannesson oddviti og sveitarstjóri annar af þeim tveimur fulltrúum sem urðu undir í máiinu. Þrátt fyrir þessa afstöðu hrepps- nefndar kvað fulltrúi sýslumanns upp þann úrskurð að takmarka bæri leyfi Þóris til vínveitinga til klukkan tíu alla daga nema aðfaranótt laug- ardags, sunnudags og almenns frí- dags er loka skuli klukkan hálf tólf. Eru þetta þrengri skilyrði en fram höfðu komið í málamiðlunartillögu oddvitans sem felld var í hrepps- nefnd. í úrskurði fulltrúa sýslu- manns, Ragnheiðar Thorlacius, segir m.a.: „Vegna staðsetningar veit- ingahússins Kaffi Lefolii og mikillar nálægðar við íbúðarhús Kristins Harðarsonar er ónæði af völdum hávaða og umgangs frá vínveitinga- húsinu meiri en íbúar í skipulagðri íbúðarbyggð mega vænta og þar má telja eðlilegt. í máli þessu eru annars vegar í húfi hagsmunir íbúa til að njóta næðis og hvíldar á heimil- um sínum að kvöld- og næturlagi og hins vegar hagsmunir leyfisbeið- anda til að stunda atvinnurekstur sinn án afskipta hins opinbera. I framlagðri greinargerð sýslumanns er gerð grein fyrir rekstrarformi veitingahússins Kaffi Lefolii. Með vísan til þess að starfsemin byggist fyrst og fremst á veitingasölu, þ.e. á matsölu til hópa, þyk- ir atvinnufrelsi veit- ingamannsins ekki verða settar of þröngar skorður þó svo að leyfisveitandi meti það nauðsynlegt að tak- marka veitingatíma áfengis frá því sem verið hefur.“ Ætlar að loka Þórir fékk leyfið boðsent með lögregl- unni og þurfti að greiða 30 þúsund krónur fyrir án þess að vita efni þess. Hann segist ekki geta unað niðurstöð- unni. Hann segir ýmislegt gagnrýn- isvert í úrskurðinum og forsendum hans, meðal annars það mat að hann gæti vel rekið staðinn þrátt fyrir takmarkanir á opnunartíma. „Það segir sig sjálft að sjoppuopnun virk- ar ekki á veitingastað. Ég get ekki boðið hópum hingað til að borða upp á það að þurfa að reka fólkið út klukkan tíu,“ segir hann. Ætlar Þórir að kæra úrskurðinn til dóms-' málaráðuneytis. En ef hann stendur óhaggaður eftir þá málsmeðferð seg- ist hann verða að loka staðnum, ekki sé rekstrargrundvöllur fyrir honum með þeim takmörkunum sem sýslumaður setji. „Það er hlálegt að á sama tíma og ég þarf að loka klukkan tíu mega verslanir og aðrir staðir hér í þorpinu vera með opið til klukkan hálf tólf. Þetta er ekki í takt við það sem almennt þekkist," segir Þórir. Úrskurðurinn framkallaði hörð viðbrögð íbúa á Eyrarbakka. Hreppsnefndarmenn óskuðu eftir skyndifundi í hreppsnefnd og á með- an á honum stóð voru bílflautur all- margra bíla þeyttar fyrir utan hreppsskrifstofuna. „Þetta hefur vakið hörð viðbrögð hér, nánast reiði,“ segir Jón Bjarni Stefánsson, annar fulltrúi Sjálfstæðisflokks, sem er í þeim hópi hreppsnefndarmanna sem fylgjandi eru fullu vínveitinga- leyfi Kaffi Lefoliis. „Þetta er ekki reiði íbúanna vegna þess að þeir geti ekki sjálfir farið á krána heldur vegna þess að verið er að drepa nið- ur viðleitni til uppbyggingar ferða- þjónustu hér á Eyrarbakka," segir hann. „Okkur fannst það mörgum mikið átak hjá Þóri að opna veitinga- stað í þessu húsi. Reksturinn bygg- ist á fólki úr nágrenninu og Reykja- vík sem finnst gaman að koma á þennan stað, gjarnan af einhveiju sérstöku tilefni. Ekki er hægt að bjóða upp á þetta lengur,“ segir Jón Bjarni. Nokkrar konur beittu sér fyrir söfnun undirskrifta til að mótmæla úrskurði sýslumanns og stóð til að afhenda í gærkvöldi Þóri Erlingssyni og fulltrúa hreppsnefndar lista með undirskriftum mikils fjölda bæjarbúa og nágranna. Keppinautar í veitingahúsarekstri Kristinn. Harðarson rekur veit- ingastaðinn Gjána á Selfossi og hef- ur það dregist inn í umræðuna þann- ig að á Eyrarbakka telja sumir að hann sé að beita sér gegn Kaffi Lefolii af samkeppnisástæðum. „Það var strax farið að tala um það að ég væri að stoppa samkeppni. Mér finnst fáránlegt að halda því fram, staðirnir eru svo ólíkir. Þórir er að reka rólegan veitingastað og kaffi- hús en ég er með harðan skemmti- stað með lifandi tónlist, hávaða og látum,“ segir Kristinn um þetta og bætir við: „Það lítur út fyrir að ég njóti minni mannréttinda en aðrir vegna þess að ég er veitingamaður, það er eins og ég megi þola allt þetta vegna starfs míns.“ Hann tekur það fram að hann sé ekki í átökum við Þóri Erlingsson heldur frekar þá hreppsnefndar- menn sem staðið hafi fyrir málinu á þeim vettvangi. Segist hann hafa verið tilbúinn til að semja um mála- miðlun sem báðir gætu sætt sig við en aldrei hafi verið hlustað á sig og fyrsta sáttatilraunin ekki verið gerð fyrr en við endurnýjun á veitinga- leyfinu hjá sýslumanni en það hefði verið of seint. Leikfélag Selfoss Kabarett í Inghóli á Selfossi Selfossi - NÝR kabarett Leik- félags Selfoss og hljómsveitarinnar Karma verður frumsýndur í Ing- hóli á Selfossi á laugardag, 5. októ- ber. Það eru félagar í leikfélaginu sem hafa samið kabarettinn sem fjallar um ferð fólks á sólarströnd og nefnist Sólarauki með Karma. Það er Ólafur Þórarinsson hljóm- listarmaður og hljómsveitarfólk hans sem hefur samið og fellt tón- listina að leikverkinu. Kabarettinn er samstarfsverk- efni Leikfélags Selfoss, Karma og skemmtistaðarins Inghóls. Að venju eru það margir sem koma að uppfærslu verksins, alls um 40 manns þegar allir eru með taldir. Einsog nafnið á kabarettinum ber með sér fjallar efni hans um ferð fólks á sólarströnd og eru atburðir í þeirri ferð heimfærðir upp á þekktar persónur og staðhætti á Selfossi, nokkuð sem kemur fólki til að hlæja þannig að sprelltaugar þess fá straum. Þá eru lífleg dans- atriði í kabarettinum. Áformaðar eru þrjár sýningar, 5., 12. og 19. október. Mikil að- sókn er á tvær seinni sýningarnar og nánast uppselt. Búist er við góðri aðsókn á fyrstu sýninguna nú á laugardag og hafa aðstand- endur sýningarinnar þá í huga aðsókn á fyrri kabaretta Leikfé- lagsins. Morgunblaðið/Sig. Jóns. FRÁ æfingu kabarettsins í Ingbóii á Setfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.