Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ 18 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 ÚR VERIIMU Hafrannsóknastofnun Stofnmæling botnfiska í fyrsta sinn að haustlagi STOFNMÆLING botnfiska á ís- landsmiðum á vegum Hafrann- sóknastofnunarinnar að haustlagi er nú hafin. Þetta er í fyrsta sinn sem stofnunin stendur fyrir slík- um leiðangri. á þessum árstíma en undanfarin 12 ár hafa slíkar rannsóknum verið gerðar í mars- mánuði. Sú mæling hefur náð yfir útbreiðslusvæði helstu nytja- stofna á landgrunninu. Ekki hefur hinsvegar verið hægt að nýta gögn úr þeim leiðöngrum til að styrkja ráðgjöf um grálúðu og djúpkarfa þar sem útbreiðslu- svæði þeirra er að mestu utan rannsóknasvæðisins. Safna sýnum á 300 togstöðvum Næstu 3 vikurnar mun rann- sóknaskipið Bjarni Sæmundsson ásamt Múlabergi ÓF frá Ólafsfirði safna sýnum á 300 togstöðvum umhverfis landið. Rannsókna- svæðið miðast við landgrunn ís- lands allt niður á 1.500 metra dýpi að undanskildu því að ekki verða teknar stöðvar á djúpslóð fyrir Suðurlandi. Svæðinu er skipt í grunn- og djúpslóð, og er skipt- ingin að mestu miðuð við út- breiðslu þorsks og grálúðu. R/S Bjarni Sæmundsson mun taka sýni á grunnslóð en Múla- berg ÓF 32 á djúpslóð. f upphaf- legri áætlun var auk ofangreindra rannsókna gert ráð fyrir að sinna athugunum á djúpkarfa. Ekki reyndist unnt að hrinda svo um- fangsmiklu verkefni af stað að þessu sinni. Því var ákveðið að áhersla skyldi lögð á grálúðu, en rannsóknum á mikilvægum djúp- karfasvæðum yrði ekki sinnt á þessu ári. Mat á stofnstærðum bætt Á undanförnum árum hefur far- ið fram umræða um mikilvægi þess að efla beri rannsóknir á grál- úðu og karfa með það að markm- iði að styrkja ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunarinnar við mat á veiðiþoli þeirra. Bent hefur verið á mikilvægi þess að styrkja for- sendur ráðgjafar annarra nytja- stofna á íslandsmiðum með aukn- um rannsóknum óháðum þeim sem fyrir hendi eru. Þessar rannsóknir eru því liður í að bæta enn frekar mat á stofnstærðum helstu nytja- stofna á Islandsmiðum, auk þess sem öðrum mikilvægum líffræði- legum upplýsingum um fiskistofna er safnað. Ekki er þó gert ráð fyrir að leiðangurinn fari að skila marktækum niðurstöðum um stofnvísitölur fyrr en að nokkrum árum liðnum. Leiðangursstjórar eru Ólafur K. Pálsson og Einar Hjörleifsson en verkefnisstjóri er Þorsteinn Sig- urðsson. Finnmörk gerð að tilraunafylki? Erfitt ástand þar þrátt fyrir nálægð við miðin í FINNMÖRK í Noregi er lífið saltfiskur enda er fylkið vel í sveit sett. Gjöful mið eru skammt und- an og í landi bíður fólk, sem kann vel til verka. Samt gengur flest á afturfótunum hjá fyrirtækjum í landshlutanum. Þessi mál og önnur voru nýlega umræðuefni á Barentshafsráðstefnu í Honn- ingsvág og þar voru meðal annars viðraðar hugmyndir um að gera Finnmörk að eins konar tilrauna- fylki hvað varðar nýja stefnu í norskum sjávarútvegi. Á ráðstefnunni í Honningsvág voru málefni sjávarútvegsins og Finnmerkur rædd fram og aftur og meðal annars kom það fram hjá Jan Henry T. Olsen sjávarút- vegsráðherra, að á árunum 1989 til 1996 hefðu verið smíðuð 795 fiskiskip 15 metra löng eða VÖRUBRETTI Eigum ávallt á lager bretti. Gerið verðsamanburð. Vörubretti ehf. Flatahrauni 1, Hafnarfirði. Sími: 555-3859, fax 565-0994. styttri. Var helmingurinn raunar undir átta metrum og skip meira en 15 metrar voru aðeins 50. Olsen sagði, að þetta gæti ekki gengið lengur. Í slæmum árum gæti floti af þessu tagi ekki náð kvótanum enda væri hann lítt hreyfanlegur og ófær um að þjón- usta fiskiðnaðinn eins og vera bæri. Sagði hann, að lausnin væri einföld: Litlu skipunum yrði að fækka og fá önnur stærri. Á ráðstefnunni vakti mesta athygli ræða Gunnars Kjonnoys, ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu. Hann byrjaði með að spyrja hvað væri eiginlega að í Finnmörk. Þar væri sjórinn stundaður af kappi eins og víða annars staðar en samt væri eins og þar giltu einhver önnur lög- mál. Þar hefði verið gripið til ýmissa sértækra aðgerða, sem þó hefðu ekki skilað tilætluðum ár- angri. Gunnar varpaði því síðan fram hvort ekki væri rétt að gera Finn- mörk að eins konar tilraunafylki hvað varðaði nýtt fijálsræði í sjávarútvegi. Til dæmis með því að breyta núverandi reglum um kvótaúthlutun til að auðvelda mönnum að ráðast í smíði stærri skipa og margt fleira. Þótt ráðuneytisstjórinn hafi ekki útlistað þessar huginyndir rækilega þá þykir það ljóst, að úr því að hann nefndi þær, þá sé verið að vinna að þeim í norska sjávarútvegsráðuneytinu. ERLENT Reuter Vinnur Blair traust kjósenda? Blackpool. Reuter. Suu Kyi með frétta- mönnum LEIÐTOGI andstæðinga herfor- ingjastjórnarinnar í Burma, Aung San Suu Kyi, laumaðist til þess í gær að ræða við erlenda fréttamenn á lieimili vinafólks síns í Rangoon en stjórnvöld hafa bannað alla umferð að og frá húsi hennar. Suu Kyi sagði að alls hefðu nær 800 stjórnarand- stæðingar verið handteknir, mun fleiri en skýrt hefði verið frá. Hún sagðist ekki óttast herfor- ingjana, aðgerðir þeirra undan- farna daga bentu til hræðslu og taugaóstyrks. Fidel Ramos, forseti Filipps- eyja, sagði í gær að Samtök Suð- austur-Asíuríkja, ASEAN, kynnu að endurskoða stefnu sína gagn- vart Burma. Grundvöllur hennar hefur verið að reyna að hafa já- kvæð áhrif á herforingjastjórn- ina með þvi að hunsa hana ekki auk þess sem rætt hefur verið um að veita Burma aðild að sam- tökunum. BRESK blöð hrósuðu í gær ræðu Tony Blairs, leiðtoga Verkamanna- flokksins, á flokksþinginu í Blackpo- ol í fyrradag og sögðu hana hafa hleypt nýjum eldmóð í flokksmenn. Létu þau þó efasemdir í ljós um, að tíminn fram að þingkosningum, sem fram fara í síðasta Iagi í maí að vori, myndi nýtast honum til að sannfæra kjósendur um, að honum hefði tekist að losa flokkinn úr viðj- um verkalýðshreyfingarinnar. Hið útbreidda götubiað The Sun, sem hælt hefur sér af því að hafa tryggt Íhaldsflokknum sigur í síð- ustu kosningum, lofaði ræðu Blairs. Undir fyrirsögninni „Forseti Blair“ sagði blaðið hann hafa flutt sína bestu ræðu á stjórnmálaferlinum. Flokksmenn af báðum vængjum iýstu sérstakri ánægju með 10 atriða „framkvæmdasamning við bresku þjóðina" sem Blair kynnti í ræð- unni, en þar er um að ræða kosn- ingaloforð allt frá fækkun nemenda í bekkjum grunnskóla til Evrópu- samstarfs. Sun sagði að sú sýn Blairs, sem birst hefði í ræðunni og kosningalof- orðunum, minntu helst á þann kraft er fært hefði Margaret Thatcher völdin á sínum tíma. „Blair bauð upp á mestu uppstokkun sem þjóðin hef- ur kynnst í tæpa tvo áratugi. En, og minnist þeirra orða, vinni Verka- mannaflokkurinn kosningarnar mun Sun minna Tony Blair á loforð sín á hveijum einasta degi,“ sagði í rit- stjórnargrein blaðsins. Nánir samverkamenn Blairs vör- uðu við of mikiili bjartsýni og minntu á, að daginn fyrir síðustu kosningar hefðu skoðanakannanir bent til sig- urs en íhaldsflokkurinn engu að síð- ur unnið kosningarnar. Blair ítrekaði hvað eftir annað í ræðunni, að sigur væri ekki sjálfgefinn, fyrir honum yrði flokkurinn að hafa. Stjórnmála- skýrandi Independent sagði þau ummæli benda til efasemda hjá Bla- ir. Lykilatriði væri hvort hann yrði þess megnugur að nýta athyglina, sem beindist að flokknum, til að vinna kjósendur á sitt band. EÞ losar um takið á fjármunum til ráðgjafarnefnda Lofa að koma til móts við kröfur þingsins DAVID Williamson, aðalritari framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, hefur heitið fjárlaganefnd Evrópuþingsins því að orðið verði við kröfum þingsins um breytingar á starfsháttum ráðgjafarnefnda ESB. Þingið hefur fryst fjárveit- ingu, sem ætluð er til greiðslu ferðakostnaðar nefndarmanna, þar sem það telur starfshætti nefnd- anna ólýðræðislega. Að sögn talsmanns Evrópuþings- ins samþykkti fjárlaganefndin í lok síðustu viku að heimila útgreiðslu fjárins, verði staðið við loforðin, sem Williamson gaf. Bréf þessa efnis hefur þó ekki enn verið sent fram- kvæmdastjórninni og ráðherraráð- inu. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort ráðherraráðið, þar sem full- trúar ríkisstjórna aðildarríkjanna sitja, er reiðubúið að fylgja loforð- um Williamsons eftir. Þau ganga út á að ráðgjafarnefndirnar rökstyðji það sérstaklega, heimili þær ekki aðgang almennings eða fulltrúa Evrópuþingsins að fundum sínum og að nefndarmenn, sem eru sérfræðingar og embættismenn, til- nefndir af aðildarríkjunum, gefi út yfirlýsingar um persónulega hags- muni, sem kunni að stangast á við skyldur þeirra. Haldi samkomulag fjárlaga- nefndarinnar og Williamsons, verð- ur hægt að komast hjá truflun á starfi ráðgjafarnefndanna, en ís- land á aðild að mörgum þeirra vegna EES-samningsins. Þátttökuréttur í 200 nefndum Islendingar eiga í samræmi við ákvæði EES-samningsins þátttöku- rétt í alls um 200 ráðgjafarnefnd- um, sem langflestar starfa í þágu framkvæmdastjórnar ESB. Til- gangurinn með þátttökunni í nefnd- um þessum er sá, að EFTA-ríkin, sem eiga aðild að EES, eigi þess kost að hafa áhrif á tilurð nýrrar ESB-löggjafar, sem síðan mun gilda á öllu evrópska efnahags- svæðinu. Margar þessarra 200 nefnda snerta íslenzka hagsmuni lítið, og er því látið nægja að fylgjast með starfi þeirra án þess að íslenzkir fulltrúar sitji fundi þeirra. Í þeim tilfellum hins vegar, þar sem við- fangsefni nefnda snertir íslenzka hagsmuni, eins og t.d. í málefnum varðandi búnað skipa, heilbrigðis- eftirlit með matvælum o.fl., taka íslendingar þátt. Áætla má, að fjöldi ráðgjafarnefnda með íslenzkri þátttöku nálgist að vera um fjórð- ungur af áðurnefndum 200. Fulltrúar ráðuneytanna í fasta- nefnd íslands hjá ESB í Brussel sitja fundi margra þessara nefnda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.