Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Islendingar og Astralir í samstarfi um glæpaforvarnir Þýfi finnanlegt Morgunblaðið/Kristinn LÖGREGLUÞJÓNARNIR Stefán Alfreðsson og Kristinn Sig- urðsson með kveikjaragas sem þeir gerðu upptækt í verslun við Lágmúla. Óheimilt að selja kveikjara- gas í verslunum ÍSLENDINGUR hefur í samvinnu við ástralskan aðila komið á fót þjónustu á alnetinu sem miðar að því að skrá tæki og annan búnað á lista, til að auðveldara sé að hafa upp á þeim eftir þjófnað eða sannreyna hvort varningur sem boðinn er til kaups sé stolinn eða heiðarlega fenginn. Njáll Harðarson stendur að fyr- irtækinu ásamt Rowan Timms sem starfaði áður sem ríkissaksóknari í Ástralíu að sögn Njáls. Byijaði á að skrá nígeríska svikahrappa „Við höfum látið alnetsþjón- ustuna Islandia vinna forrit fyrir okkur sem miðar að því að koma á fót nokkurs konar gagnabanka, sem við köllum Crime on Line. Fyrirtæki og einstaklingar geta skráð tækjabúnað í eigu sinni á lista bankans. Menn skrá sig sem notendur að kerfinu og geta þá skoðað hvað þar er gð finna og sjá strax hvort tiltekinn hlutur er stolinn eða ekki, sér að kostnaðar- lausu,“ segir Njáll. Njáll segir samvinnu þeirra Timms hafa hafist í gegnum alnet- ið, en Njáll hefur um nokkurt skeið haldið úti heimasíðu þar sem var að fmna upplýsingar um vafasöm fyrirtæki og glæpsamleg tilboð frá nígerískum aðilum. „Þessi ófögnuður barst í stríðum straumum inn í fyrirtæki mitt, þannig að ég tók til bragðs að skrá þær upplýsingar sem þar komu fram inn á alnetíð, í von um að það hefði fyrirbyggjandi að- gerðir í för með sér, auk þess að auðvelda öðrum að varast þessa þijóta. Fælir glæpamenn frá Timms hafði samband við mig í kjölfarið því hann hefur unnið að rannsókn slíkra mála. Eftir þessi fyrstu kynni héldum við sam- bandi og síðan vaknaði hpgmyndin um Crime on Line fyrir skömmu. Eitt helsta markmið þessarar þjón- ustu er ekki aðeins að aúðvelda mönnum að finna þýfi, heldur einnig að fæla glæpamenn frá því að taka tækjakost eða aðra hluti sem ljóst er að hægt er að hafa upp á um allan heim. Við reiknum með að þeir mun- ir, sem eru skráðir í bankann, verði merktir með límmiða eða öðru þess háttar, til að enginn velkist í vafa um að þeir séu auð- finnanlegir og freistist því síður til að nema þá á brott,“ segir hann. Skráning þegar hafin Fjárhagslegur rekstur fyrirtæk- isins fer fram í gegnum skrifstofu þess í Ástralíu en gagnavistun hérlendis í fyrstu en síðan er reikn- að með að setja upp fleiri þjónustu- stöðvar erlendis. Njáll kveðst telja mikla vaxtarmöguleika fólgna í þeirri þjónustu sem er í boði á Crime on Line og þegar hafi fjöl- margir aðilar, flestir erlendir, ritað tæki sín inn í gagnabankann. Lág þóknun er tekin fyrir skráningu, eða um eitthundrað til þúsund krónur eftir fjölda tækja. „Við teljum þessa hugmynd nægilega snjallatil að hljóta braut- argengi á heimsvísu og vonumst eftir að við kaup og sölu á ýmsum þeim munum, sem gætu verið illa fengnir, verði Crime on Line fljót- lega almennt og nauðsynlegt hjálpartæki.“ LÖGREGLAN í Reykjavík lagði hald á 21 brúsa af kveikjaragasi í verslun við Lágmúla á þriðjudag. Slíkt gas má ekki selja einstakling- um yngri en 18 ára og það má einungis selja á bensínafgreiðslu- stöðum. Óheimilt er að selja gas af þessu tagi í verslunum og sölu- turnum. Að sögn Ómars Smára Ár- mannssonar aðstoðaryfirlögreglu- þjóns var farið í nokkrar verslanir Sími 555-1500 Sumarbústaður Til sölu góður ca 50 fm sumarbústaður í landi Jarðlaugsstaða í Borgarfirði. Eignarland hálfur hektari. Verð: Tilboð. Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bllsk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti möguleg á 3ja herb. íb. Lyngmóar Góð 2ja herb. íb. á 2. hæð. Áhv. 3,1 millj. Verð 5,5 millj. Reykjavík Baughús Glæsileg ca 90 fm 3ja herb. íb. í tvíb. meö góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbréf. Verð 8,5 millj. Skipholt Góð ósamþ. einstakllb. ca 48 fm I fjölb. Verð 2,7 millj. Hafnarfjörður Sævangur Glæsilegt einbhús á einni hæð ca 180 fm auk tvöf. bílsk. Skipti mögul. á minni eign. Verð 16,0 millj. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj., samtals 204 fm. Mikið endurn. Ath. skipti á lítilli íb. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lítiö áhv. Verð 4,3 millj. Vantar eignir á skrá Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. og söluturna í borginni í gær og kannað hvort þar væri á boðstólum kveikjaragas. Svo reyndist ekki vera nema í nefndu tilviki. Hann sagði þetta gert vegna upplýsinga um sniff unglinga undanfarið. Ómar Smári segír að öllum ætti að vera kunnugt að slíkt gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sem anda að sér gasinu og hvetur foreldra til að vera á varð- bergi. LÖGFRÆÐIVAKTIN í Hafnarfirði mun hefja starfsemi í dag, fimmtu- dag, en hún er rekin á vegum Fé- lags sjálfstætt starfandi lögmanna í Hafnarfirði, í samráði við Hafnar- fjarðarkirkju. Bæjarbúum verður þar boðin ókeypis lögfræðiráðgjöf starfandi héraðsdóms- eða hæstaréttarlög- manna. Sams konar lögmannavaktir hafa verið starfræktar í Reykjavík og á TILKYNNT var um innbrot í hús- næði íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur við Lindargötu um hálfníuleytið á þriðjudagsmorgun en þegar nánar var að gáð kom í ljós að þýfið hafði verið flutt í skúr í nágrenninu. Tvær hurðir höfðu verið brotnar upp, læsing tekin úr útidyrahurð og ijórar töskur teknar. í töskunum voru tvær sérstakar tölvur ætlaðar Borgarráð Lánað verði til félags- legra leiguíbúða BORGARRÁÐ hefur sam- þykkt tillögu félagsmálaráðs um að sótt verði um lán til Húsnæðisstofnunar ríkisins til kaupa á 30 félagslegum leiguíbúðum árið 1997. I erindi félagsmálaráðs til borgarráðs keniur fram að árlega hafi verið sótt um lán til 30 leiguíbúða frá árinu 1990 til ársins 1996 og að einu sinni hafi verið veitt lán til kaupa á 30 íbúðum eða árið 1991. Önnur ár hafi ver- ið veitt til færri íbúða. Lánuð eru 90% af kaup- verði íbúðanna tij 50 ára með 1% vöxtum. Stjórn SH í heimsókn í Japan ÞRETTÁN stjórnarmeðlimir Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna eru í Japan um þess- ar mundir í þeím erindagjörð- um að kynna sér fiskmarkað- inn ,og heimsækjá viðskipta- vini félagsins en það sem af er árinu hafa umsvif SH ver- ið hvað mest í Japan. Þorsteinn Pálsson sjávar- útvegsráðherra er einnig staddur í Japan þar sem hann á í viðræðum við ráðamenn én jafnfrarht.hefur hann ferð- ast um með stjórn SH. Sjávarútvegsráðherra mun ávarpa móttöku á vegum SH í kvöld, fimmtúdagskvöld. Akureyri frá árinu 1994. Lögmenn á vakt reka ekki erindi fyrir þá sem aðstoðar leita heldur veita munn- lega ráðgjöf um margvísleg lög- fræðileg álitaefni. Starfsemin í Hafnarfirði er í sam- vinnu við Lögmannafélag íslands og verður til húsa í Safnaðarheim- ili Hafnaríjarðarkirkju, Strandbergi 1. Viðtalstímar verða fyrsta og þriðja fimmtudag í mánuði frá kl. 17-19. til tímatöku og aukahlutir þeim tengdir. Einnig voru teknir standar undir startbyssur og hljóðmagnari. Að sögn lögreglu var verðmæti hlutanna um 6-7 milljónir króna. Við nánari eftirgrennslan fundu lögreglumenn alla hlutina óskemmda í skúr við nálægt mann- laust hús. Rannsóknarlögreglan var kvödd á vettvang og er málið í at- hugun. Síinl: 533-4040 Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fasieignasali - Ólafur Guóimmdsson. sölustjórí Birgir Georg.sson sölum., Erlendur DaviA*son söluni FA.STEIGNASALA - Arimila 21 - Kevkiavilt - Traust og örngg biónusta Grundarstígur — miðbær Góö 3ja herb. íb. á 2. hæö meö suðursvölum í 6 íb. stigagangi. Rúmg. herb. Gott skipulag. Verö 6.6 millj. Ath. skipti á 3ja herb. íb. í Árbæjarhverfi. 8191. Hagar — við Háskólann Vel skipulögö 131 fm sérhæö í þríbhúsi. 3 rúmgóö svefnherbergi. 2 stórar stofur með stórum suðursvölum. Fallegar innr. Marmara flísar á baði. Þvottaherb. í íb. íb. er nýl. stands. og máluö. Áhv. 5.7 millj. Verð 10,9 millj. Laus fljótl. 8180. Sérhæð — Seltjarnarnes Rúmg. neöri sérh. í tvíbýli auk rúmg. bílskúrs viö Vallarbraut. 4 svefnherb. 3 stofur. Gott eldhús. Stærö samtals ca 230 fm. Hús í góðu ástandi. Lítiö áhv. Verö 11,6 millj. Ath. skipti á minni eign í vesturbæ. 7791. Unnarbraut — Seltjarnarnes Mikið endurn. sérhæö á tveimur hæöum auk bílsk. á góöum staö sunnan megin á Nesinu. Stórar stofur og herb. m. góöri lofthæð. Nýleg eldh.innr. og tæki. Stærö íb. 138 fm. Áhv. ca 6,3 millj. hagst. lán. Allar nánari uppl. á skrifst. 8034. Lögmannavakt í Hafnarfirði hefur starfsemi Okeypis munnleg 1 •• f* X* / X •••#» logfræðiraðgjof Innbrot hjá ÍTR Þýfið fannst í skúr í nágrenninu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.