Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Hjalparstofnunum úthýst í Búrma Lýðræðisöfl hvetja til aðgerða gegn nýrri ferðamálastefnu stjórnvalda „ÞAÐ var í janúar og kalt. Ég var bara á skyrtunni. Ég ætlaði að reisa kofa yfir Ijöl- skylduna og átti bara eftir að setja þakið þeg- ar hermennirnir skip- vuðu mér að koma og vinna. Ég vildi fá að setja þakið á áður en ég færi en þá hótuðu þeir að skjóta mig.“ Það var hrætt fólk og hrakið sem Christian Balslev-OIesen, fram- kvæmdastjóri hjálpar- stofnunar dönsku kirkj- unnar, hitti að máli í nýafstaðinni ferð sinni um Búrma. Hann miði- Anna M. Þ. Ólafsdóttir Aung San Suu Kyi aði upplýsingum um ástandið í land- inu á fundi framkvæmdastjóra og upplýsingafulltrúa Norrænu kirkju- hjálparstofnananna sem haldinn var í Borgarfírði fyrir skömmu. -*» Danir styðja 100.000 flóttamenn í búðum í Tælandi en tvær til þijár milljónir manna hafa verið hraktar frá heimilum sínum. Fólk, einkum úr minnihlutahópum, sætir í auknum mæli hótunum og pyntingum og er knúið til þess að vinna ókeypis fyrir yfirvöld eða ganga í herinn. Öðrum er hótað lífláti hypji þeir sig ekki brott af jörðum sínum. Erindi Balslev-OIesen tii Búrma var að fylgjast með starfi dönsku stofnun- arinnar og kynna sér aðstæður fólks- *_.ins í landinu. Hann hitti sérstaklega að máli Aung San Suu Kyi lýðræðis- leiðtoga og handhafa friðarverð- launa Nóbels. Starf óháðra hjálparstofnana hef- ur gengið afar erfíðlega allt frá ár- inu 1990 þegar stjórnvöld kröfðust þess að fá að stjórna hjálparstarfi. Eina kirkjulega hjálparstofnunin sem fær að starfa í landinu er My- anmar Council of Churches (MCC) en samtökum búddatrúarmanna, múslíma og kaþólskra hefur verið úthýst. Rauði krossinn hefur ekki séð sér fært að starfa í Iandinu síð- an 1995. MCC eru einu samtökin í Rangoon sem beijast fyrir mannrétt- indum. Þau hafa leyfí fyrir einum \ síma. Starfsmenn eru 40. Varla þarf \ '"'að taka fram að síminn er hleraður ! og bréf ritskoðuð. Fátækt og vannæring I Þrátt fyrir orðspor Búrma sem forðabúr Asíu er þriðjungur barna í j Búrma vannærður. „Bændur eru neyddir til þess að selja ríkinu hluta > af uppskeru sinni á mjög lágu verði“, ! segir Aung San Suu Kyi. „Það er geigvænlegt fyrir smábændur." Þeir selja hluta af landinu til þess að eiga fyrir mat en geta þá ræktað ennþá j minna næst og svo koll af kolli. Samkvæmt upplýsingum Stanley Hram í Ástralska sendiráðinu í Rangoon, sem kannað hefur efna- ^hagsástandið í Búrma, hefur ríkis- - ‘ stjórnin vanreiknað fólksfjölgun í landinu. Það, ásamt lélegum árangri af áætlun ríkisstjórnarinnar um að auka hrísgijónaframleiðslu, hefur geysileg áhrif á afkomu fólksins. Hann segir vaxandi ferðamanna- straum því mjög mikilvægan, hins vegar muni tekjur af honum ekki Þriðjungur barna í Búrma er vannærður, — segir Anna M. Olafs- dóttir, sem hvetur til viðbragða gegn ofríki þarlendra stjórnvalda. koma almenningi til góða, eins og málum er nú háttað. Um 90% gjald- eyristekna fara strax út úr landinu aftur um hendur ráðamanna. Hjálparstofnun dönsku kirkjunnar hvetur Dani til þess að ferðast ekki til Búrma Fullyrðingum Stanley Hram ber saman við aðrar heimildir dönsku hjálparstofnunarinnar í Rangoon. Þó að ríkisstjórnin hafí slakað nokk- uð á klónni og gert átak til þess að fá ferðamenn til landsins er það ekki síst til þess að hafa upp í vopna- skuld við Kínveija. Skuggahliðar þessarar nýju stefnu eru fleiri. Við komuna til landsins þurfa ferðamenn að skipta minnst 300 dollurum og fá í staðinn nokkurs konar Matador- peninga. Þá geta þeir notað á útvöld- um ferðamannastöðum sem oftar en ekki er flikkað upp á af föngum í nauðungarvinnu. „Það er ekki rétt sem ég las nýlega í vestrænu tíma- riti að Búrmabúar séu glatt og gestr- isið fólk sem aðeins vilji gera ferða- mönnum til geðs. Það er bara her- stjórnin og þeir ríku sem njóta góðs að ferðamönnunum. Almenningur sér ekki eyri“, sagði Aung San Suu Kyi í einni af ræðum sínum. „Erlend- ir ferðamenn gera því lýðræðisöflum í Búrma mestan greiða með því að halda sig heima“, segir hún. „Ríkis- stjórnin hefur þurrausið fjárhirslur landsins og ef ferðamönnum fjölgar ekki kemur það niður á ríkisstjórn- inni og þeim sem fjárfest hafa í land- inu. Hvorki íjárfestingar né þróunar- aðstoð annarra landa koma fólkinu sjálfu til góða. Allir peningar renna í vasa örfárra. Við vildum í fyrstu sjá til hvort slík aðstoð skilaði sér en ljóst er að hún gerir það ekki. Þess vegna mælum við með efna- hagsþvingunum gegn Búrma." Eiturlyfjaframleiðsla eykst Búrma framleiðir 60% af heróíni heimsins. Aðal eiturlyfjakóngurinn Khun Sa hefur „gefið sig fram“ við yfirvöld með þeim afleiðingum að nú deila þeir með sér eiturlyfjaágóð- anum og sameinast um að halda þjóðinni í heljargreipum. Ópíumrækt hefur farið vaxandi eftir að Khun Sa gaf sig fram og eiturlyfjaneysla er algeng meðal landsmanna. Éinn viðmælenda Christians Balslev-Oles- en tók svo djúpt í árinni að segja að flest ungt fólk í Búrma væri háð ópíumi eða heróíni. Ríkið sölsar undir sig land og lóðir Ríkið kaupir lönd af bændum á smánarlegu verði og selur þau fjár- festum á margföldu verði. Ný lög um húsbyggingar gera borgarbúum erfitt fyrir. Framhlið húsa verður að vera úr múrsteini, þau verða að vera meira en tveggja hæða og þök úr tini. Þeir sem ekki geta uppfyllt þessi skilyrði hrekjast út í úthverfi þar sem vatnsveitu, frárennsli og gatnakerfi er mjög ábótavant. Þeir fá engan styrk eða bætur vegna nauðflutninganna og missa auk þess oft vinnuna vegna þess hve erfitt þeir eiga með að sækja hana frá úthverfunum. Kínverjar hafa mikil áhrif í Búrma. Meþódistinn Keneth Khin Maung Myint bílasali og vara- forseti KFUM í Mandalay segir Kín- veija eiga 60% húsa í Mandalay og níu af hveijum tíu bílum. Stjórnvöld- um í Kína er mikið í mun að halda Búrma á sínu bandi og koma í veg fyrir að aðilar að ASEAN (Associati- on of South- East Asian Nations) umkringi land sitt. Staðhæft hefur verið að í baráttunni um hollustu Búrma hafi ASEAN-löndin einmitt hallað sér frekar að stjórnvöldum í Búrma en dregið úr stuðningi við lýðræðishreyfingu Aung San Suu Kyj til þess að tryggja áhrif sín. íslendingar hafa á tímabilinu frá janúar og fram í júlí keypt timbur frá Búrma fyrir 2 milljónir króna. Er það nokkuð hærra en eftir árs viðskipti í fyrra. Harðviðarkaupend- um og fólki í ferðahug ætti að vera í lófa lagið að hlýða kalli Aung San Suu Kyi um efnahagsþvinganir með- an tekjur landsins eru ekki nýttar íbúum til hagsbóta. Höfundur er fræðslu- og upplýsingafulltrúi Hjálpnrstofnunar kirkjunnar. 20.maí fyrir meðhöndlun Húðkrem dr. Guttorms Hernes frá Bode í Noregi er nú aftur fáanlegt. 28.maí eftir meðhöndlun Útsölustaðir: Blómaval, Sigtúni 40. Blómaval, Akureyri. Hornabær, Höfn Hornafirði Sameining íþrótta- hreyfingarinnar? UNDANFARIÐ hafa birst í blöðum greinar um samein- ingu ÍSÍ og ÓL, þær hafa allar verið gott innlegg í þá umræðu hvort endurskipu- leggja eigi alla hreyf- inguna upp á nýtt og leggja niður núverandi skipulag. Samkvæmt lögum Iþróttasambands ís- lands er tilgangur sambandsins að vera æðsti aðili fijálsrar íþróttastarfsemi í landinu. Sambandið á að vera óháð stjórn- málastefnum og trú- málaskoðunum. ISI er landssam- band þeirra félaga og félagasam- banda, sem hafa iðkun íþrótta á stefnuskrá sinni. Tilgangur sam- bandsins er: að efla, samræma og skipuleggja alla íþróttastarfsemi í landinu; að annast samstarf um íþróttamál við ríkisvaldið og aðra innlenda aðila; að vera fulltrúi íslands i íþrótta- málum almennt gagnvart öðr- um þjóðum. Þetta er göfugt hlutverk og aldr- ei má gera lítið úr þeirri starfsemi og þjónustu sem til staðar er í dag. Sameining er orð sem oft hefur verið nefnt í þessu máli, sam- eining ÍSÍ og_ÓL en afhveiju ekki sameining ÍSÍ og UMFÍ og halda ÓL utan við þá sameiningu? Sam- eining hefur átt sér stað alls stað- ar í þjóðfélaginu s.s. hjá sveitarfé- lögum, stofnunum og fyrirtækjum. Þessar umræður eru eðlilegar í framhaldi af því. Menn eru hik- andi, það er af hinu góða, lyfta þarf umræðunum á hærra plan, umræðum um ákveðnar persónur í hreyfingunni á að halda utan við þær. íþróttir gegna veigamiklu hlut- verki í íslensku þjóðfélagi. Fijáls félagasamtök hafa unnið ötult starf til eflingar íþróttum í land- inu. Við sem störfum í grasrótinni höfum ákveðnar skoðanir á því hvernig við viljum hafa íþróttafé- lögin, hvernig sérsamböndin, hér- aðssamböndin starfi. Markmið ÍSÍ og þeirra aðila sem mynda sambandið hlýtur að vera að efla Sþróttahreyfinguna í land- inu, að ná sem flestum iðkendum og fá fólkið til starfa fyrir hreyf- inguna. En hvert er hlutverk ÍSÍ. Endur- skoða þarf hlutverk ISÍ og þeirra sambanda sem því tengjast. Við sem myndum þetta samband hljót- um að spyija okkur: Hvað á ÍSÍ að gera? Þessi spurning kann að vera erfiðari en menn grunar í fljótu bragði. í framhaldi af þess- ari spurningu er eðlilegt að velta því fyrir sér hvað ÍSÍ gerir í raun og veru. Hvort ÍSÍ sé að gera Ásgerður Halldórsdóttir margt annað en það eigi að gera. Svona þurfum við að halda áfram að spyija okkur og næsta spurning gæti verið: Er starf- semin nauðsynleg? Ef svarið er já, er rétt að velta því fyrir sér hvort einhveijir aðrir gætu sinnt starfseminni bet- ur, þótt þeir geri það ekki núna. Spurningar af þessu tagi eru nauð- synlegar og eðlilegar, þótt við þeim geti hins vegar verið óþægileg svör. Fjölmargir aðilar í grasrótinni hafa spurt sig þessara spurninga og svörin hafa leitt til gagngerra breytinga. Þau sam- bönd sem mynda ÍSÍ verða að ein- beita sér að því að sinna sínu Endurskoða þarf hlut- verk ISI, segir Asgerð- ur Halldórsdóttir, sem og þeirra samtaka er því tengjast. meginhlutverki. En hver eru mark- mið þeirra? Það er ekki markmið í sjálfu sér að hafa sem flest fé- lög, héraðssambönd, sérsambönd, heldur að þeir vinni störfin sem þekkja þau best fyrir minnstan kostnað. Endurskipulagning ætti að koma neðan frá. Við þurfum að spyija okkur hvað er grasrótin að gera, hvert er hlutverk hennar? Svo koll af kolji þar til yfirstjórn íþróttamála á íslandi hefur verið endurskipulögð með markmið allra þeirra sem mynda hana að leiðar- ljósi. Þetta er ekki lengur einka- mál íþóttahreyfingarinnar, ríkis- valdið á að taka þátt í þessari end- urskipulagningu. Ríkisvaldið á að tryggja að þær forsendur séu fyrir hendi, að félög megi og hafi frelsi til að efla og treysta starfsemi sína. Frumvarp til nýrra íþróttalaga þarf að flytja á næsta Alþingi þar sem tekið verði m.a. á hvernig rík- isvaldið eigi að styrkja íþrótta- hreyfinguna í landinu. Ég verð ein af mörgum fulltrúum sem sitja mun næsta íþróttaþing, sem haldið verður á Akranesi 26. og 27. október nk. Þar vildi ég sjá að íþróttaráðherra Björn Bjarnason legði til að skipaður yrði starfshóp- un innan iþróttahreyfíngarinnar sem ætlað væri að fínna leiðir til eflingar, sparnaðar og hagræðingar til lengri tíma, þannig að markmið- um félagasamtakanna sem mynda hreyfinguna verði náð. Höfundur er fyrrv. formaður íþróttafélagsins Gróttu. Scetir sófar á óviðjafnanlegu verði HÚSGA GNALA GERINN Smiðluvegl 9 (gul gata)-Kópavogi-simi 564 1475 Opið mán.- fös. 10-18, lau. 11-14 BARISAFATAEFISI nýkomin í miklu úrvali. ný lína af barnasniðum. VIRKA Opirt mánucl.-rtVsiud. kl. ÍO-IH. Lim^iircl. kl. IO-M.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.