Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 03.10.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 41 AÐSENDAR GREIIMAR NÚ ÞEGAR hand- boltavertíðin byijar og félögin hefja þjálf- un, hefst eltingaleikur ýmissa félaga við sterkustu einstakling- ana úr öðrum félög- um. Margir fylgjast með fréttum af til- færslum manna í meistaraflokki og ekki þykir í frásögu færandi að menn skipti um félag á hveiju ári, þó svo að á árum áður hefði það talist óhugsandi. Þetta er kannski ekki óeðlilegt í ljósi þess að oft er um umtalsverða fjár- muni að ræða. En færri vita að ýmis félög stunda þessa iðju langt niður í yngri flokkana. Ef sterkir flokkar koma upp í yngri flokkum í úthverfafélögunum ná krakkarn- ir oft ekki nema rétt fermingu áður en eltingaleikurinn byijar. Eftir að hafa fylgst með svona atburðum og hugleitt hvatir og afleiðingar þessa ákvað ég að reyna að vekja um- ræðu um þessi mál. Hvatir sem einkenn- ast að mínu mati af alröngu gildismati út- sendara (,,hringjara“) félaganna á markmið- um og eðli unglinga- íþrótta og afleiðingum fyrir unglingana sem birtist í lakari árangri, viðskilnaði við æsku- félagana ásamt niður- broti á þeim þroska og jákvæðu lífsvið- horfum sem þátttaka í hópíþróttum hefur veitt þeim. Markmið með þátttöku barna og unglinga í hópíþróttum er ekki aðeins að auka hreyfiþroska og styrkja líkamlegt atgervi, heldur einnig að að læra að vinna sem hluti af heild, temja sér góða ástundun, stundvísi og ganga í gengum erfiðleika (tap) og ná ár- Færri vita, segir Hörð- ur Arnarson, að kapp- hlaup íþróttafélaga um sterka einstaklinga nær „langt niður í yngri flokkana“. angri. Hinn andlegi þroski er á margan átt mikilvægari og hefur reynst mörgum íþróttamanninum gott veganesti á lífsleiðinni. Það að standa með vinum sínum í blíðu og stríðu og vinna sig fram til árangurs eru eiginleikar sem ein- staklingurinn þarf á að halda í sínu einkalífi, námi og starfi. Með þessi gildi í huga hafa margir foreldrar hvatt til þess að börn þeirra stundi hópíþróttir og reynt að stuðla að því með starfi í foreldrafélögum og öðru sjálfboðaliðastarfi. Þau íþróttafélög, sem stunda þá iðju að ná í sterka einstaklinga úr öðrum félögum, eru í flestum til- vikum félög í eldri hverfum borgar- innar. Þessi félög hafa oft vanrækt uppbyggingu unglingastarfsins en geta ekki hugsað sér að uppskera eins og til er sáð og finnst því sjálf- sagt að fara í garð nágrannans. Markmið með unglingastarfi þess- ara félaga á ekkert skylt við þau markmið sem áður er lýst um að styrkja og bæta einstaklinginn heldur snúast um það eitt að félag- ið nái árangri. En hvað verður um einstaklinginn sem lætur undan stöðugum ágangi um loforð um frí æfingagjöld og ferðir og tilvonandi sæti í sterkum meistarafiokki? Vináttan við félagana til margra ára, sem þróast hefur í gegnum æskuárin, er slitin, unglingnum er talin trú um að vinirnir séu minna virði en nýja félagið og lendir hann því oft utan félagahópsins sem er í hverfinu og í skólanum. Gengið er þvert á anda hópíþróttanna um samheldni og félagslegan þroska. Hvað íþróttir varðar fer einstakl- ingurinn í nýtt umhverfi þar sem allsendis óvíst er hvernig hann þroskast og hvernig hann fellur inn í hópinn. Því jafnvel þótt kappsam- ur þjálfari og stjórnarmenn vilji sigur og ekkert nema sigur eru aðrir fyrir í liðinu sem annt er um sínar stöður. Vinirnir, sem alltaf hafa hvatt hann áfram, eru ekki til staðar og leikgleðin hverfur. Oft endar þetta því miður með því að einstaklingurinn hættir þátt- töku í íþróttinni innan nokkurra ára. Hvað er það sem gerir þessum félögum kleift að stunda þessa iðju sína ár eftir ár? í fyrsta lagi er^ það bjarminn um meistarflokk þó svo að fæstir unglingarnir séu í raun í íþróttum með það sem helsta markmjð að komast í meistara- fiokk. í öðru lagi eru þessi félög oft fjársterk og oft studd af stór- fyrirtækjum í borginni. Forráða- menn þessara fyrirtækja yrðu margir hveijir undrandi ef þeir vissu að fjármagn frá þeim væri óbeint notað til niðurrifsstarfsemi í íþróttafélögum í úthverfum borg- arinnar, í hverfum þar sem þessi fyrirtæki eiga hagsmuna að gæta. Ég vil hvetja aðstandendur þess- ara félaga að leggja niður þessa iðju eða að minnsta kosti að ein- skorða hana við meistaraflokk. Leyfið unglingunum að vera í friði þar sem þeim líður vel og þar sem þeir hafa náð að þroskast sem ein- staklingar og leikmenn. Ef ungl- ingurinn hefur ástæður til að skipta um félag eruhann fullfær um að hafa frumkvæði að því sjálf- ur. Þó svo að ykkur virðist standa á sama um að rífa niður uppbygg- ingu í öðrum félögum gerið það unglinganna vegna að láta þá í friði. Höfundur er áhugamaður um íþróttir unglinga. Hugleiðingar um íþróttir unglinga Hörður Arnarson Gerðu miklar kröfur til öryggis og búnaðar þegar þú kaupir þér nýjan bíl. Gerðu samanburð, niðurstaðan verður Renault Mégane. Vökva- og veltistýri, fjarstýróar samlæsingar meó þjófavörn, hágæóaútvarp og segulband meó fjarstýringu, 6 hátalarar, snúningshraóamælir, klukka, litaó gler, rafdrifnar rúóur, — útihitamælir, samlitir stuóarar, þokuljós aó framan, loftpúói fyrir ökumann og farþega, HD aTT. styrktarbitar í huróum, bílbeltastrekkjarar, bílbeltahöggdeyfar, höfuópúóar aó aftan o.m.fl Mégane RINIAIII ARMÚLA 13. SÍMI: 568 1200 n r'a komum BEINNSÍMI: 553 1236
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.