Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson.
SIGRÚN Eva söng sigurlagið, Kæra Höfn, eftir Heiðar Sigurðs-
son, t.h. Lag Óskars Guðnasonar lenti í 2. sæti og lag Jóns
Finnssonar í því þriðja.
Heilsugæslan í hús-
næði hreppsins
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
HLEIN, hús aldraðra, og Grunn-
skólinn í baksýn en sundlaugin og
prestsbústaðurinn Aldan niðri við
götuna.
Hrísey - Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðismálaráðherra afhenti
Sigmari Sævaldssyni, formanni
stjómar Heilsugæslustöðvarinn-
ar í Hrísey, nýtt húsnæði í Hlein
laugardaginn 21. sept. síðastlið-
inn. Þar með er lokið löngum
búskap stöðvarinnar í kjallara
pósthússins á staðnum. Þar hef-'
ir verið lítið pláss, lágt undir
loft og léleg hljóðeinangrun.
Það er ein af íbúðunum, sem
byggðar hafa verið í Hlein, húsi
fyrir aldraða, sem tekin hefír
verið til notkunar fyrir Heilsu-
gæslustöðina. íbúð þessi er um
80 fermetrar að stærð og þurfti
ekki miklar breytingar til að hún
væri nothæf fyrir stöðina.
Þá eykst þjónusta Heilsugæslu-
stöðvarinnar nú um helming. Áður
komu læknar aðeins fyrir hádegi á
þriðjudögum út í Hrísey en nú verða
þeir þar á þeim tíma og einnig eftir
hádegi á fimmtudögum sem getur
hentað mörgum betur vegna atvinnu
viðkomandi.
Margir gestir voru mættir til af-
hendingarinnar og voru þar einnig
fluttar ræður. Þórir V. Þórisson,
yfírlæknir stöðvarinnar, flutti þarna
ávarp en það gerði einnig sveitar-
stjórinn, Gunnar Jónsson. Voru þeir
ánægðir með þessa þróun á heilsu-
gæslumálum í eyjunni. Þá afhenti
ráðherra bréf sem tilkynnti ijárveit-
ingu til uppbygingar tölvubúnaðar í
umdæmi heilsugæslustöðvarinnar.
Sigmar þakkaði þetta og gat þess
að þar með væri Heilsugæslustöðin
ein af fyrstu stöðvunum sem færi í
gang með slíka væðingu innan heil-
sugæslunnar. Síðan bauð hann við-
stöddum að þiggja veitingar af þessu
tilefni.
Afmælislag
1997
Höfn - ÁRIÐ 1997 munu Austur-
Skaftfellingar minnast þess að 100
ár eru liðin frá upphafi byggðar á
Höfn í Homafirði. Kosin var af-
mælisnefnd sem mun, ásamt Menn-
ingarmálanefnd Austur-Skafta-
fellssýslu, vinna að undirbúningi
hátiðahalda næsta árs. Liður í þeim
undirbúningi var samkeppni um
„Afmælislagið 1997“ sem fram fór
í íþróttahúsi staðarins laugardags-
kvöldið, 28. september. Einungis
Homfirðingar, búsettir á Homa-
fírði eða brottfluttir, höfðu rétt til
þátttöku. Alls bárust í keppnina
ellefu lög eftir tíu höfunda.
Ekkert var sparað til að gera
flutning laganna sem bestan. Var
Hljómsveit Magnúsar Kjartansson-
ar fengin til að flytja lögin ásamt
söngvurunum Bjarti Loga Finns-
syni, Guðmundi Hermannssyni,
Helgu Möller og Sigrúnu Evu Ár-
mannsdóttur. Fyrir nær fullu húsi
vom lögin 11 flutt, hvert öðm
betra. Þrátt fyrir að menn ættu
erfitt með að gera upp hug sinn lá
í loftinu að „Kæra Höfn“ yrði sig-
urlagið. Fallegt lag, góður texti
og frábær söngur Sigrúnar Evu
lögðust þar á eitt. Höfundur lags
er Heiðar Sigurðsson og textahöf-
undur Guðbjartur Ossurarson, sem
átti einnig texta við 3 önnur lög.
Kunnu áhorfendur vel að meta
framtakið og ljóst að þessi fyrsti
liður hátíðarhaldanna sló í gegn.
—— ♦ ♦ ♦----
Leikfélag
Keflavíkur í
nýtt húsnæði
BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjar
samþykkti á þriðjudagskvöld að út-
hluta Leikfélagi Keflavíkur húsnæði
að Vesturbraut 17, Karlakórshúsinu
í Keflavík.
Kjartan Már Kjartanson, formaður
menningamefndar Reykjanesbæjar,
segir leikfélagið hafa verið á hrakhól-
um undanfarin 40 ár og því sé þessi
ákvörðun bæjarstjómar félaginu afar
kærkomin.
Tilvonandi leikhús er upphaflega
hannað sem tónlistarhús og því þarf
ekki að gera miklar breytingar svo
það nýtist sem leikhús.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
JÓN Eggert Guðmundsson nýkominn úr könnunarleiðangri
í Flekkuvík.
Offjölgun ígiú-
kera í Flekkuvík
Veldur eyðingu þaraskógarins
og hefur hugsanlega áhrif á
uppeldisstöðvar nytjafiska
Vogum - Jón Eggert Guðmunds-
son, líffræðingur og kafari, hefur
sem áhugamál að rannsaka of-
fjölgun ígulkera í Flekkuvík á
Vatnsleysuströnd en þar hefur
verið mikil eyðing á þaraskóginum
vegna offjölgunar ígulkera.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Jón að á síðasta ári hefði
hann fyrst heyrt um það hjá öðr-
um kafara að mikil gróðureyðing
hefði orðið á kletti í Flekkuvíkinni
en tveimur árum áður var hann
þakinn gróðri. í sumar fór Jón
að kafa í Flekkuvíkinni og þá kom
í ljós að mikil gróðureyðing hafði
orðið þar. Síðan hefur hann unnið
að rannsóknum.
Hann segir offjölgun hafa verið
þekkta í fjörðum, t.d. í Eyjafirðin-
um og hugsanlega í Hvalfirði en
þar hefur það ekki verið sannað.
„Ég veit ekki til að offjölgun
ígulkera hafi átt sér stað fyrir
opnu hafi eins og hér í Flekkuvík.
En það sem gerist er að fjöl-
breytt plöntu- og þörungasamfé-
lög hverfa og það verður aðeins
auðn eftir. Til að byija með verða
tekin nánari sýni til að sanna
þetta,“ sagði Jón.
Jón sagði ennfremur að þar sem
þaraskógurinn væri uppeldis- og
hrygningarstöðvar hrognkelsa
gæti þetta haft áhrif á hrogn-
kelsaveiðar og einnig á nýliðun
annarra nytjafíska eins og þorsks
og ufsa.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Skipulag ríkisins
Athugnn vegna vegagerðar á aust-
anverðri Vopnafjarðarströnd
SKIPULAG ríkisins hefur hafið athugun á frum-
mati Vegagerðar ríkisins á umhverfísáhrifum fyr-
irhugaðrar lagningar Hlíðarvegar um Gljúfursá
og Oxl. Vegagerðin gerir ráð fyrir að kostnaður
við 2,1 km langan veg um Gljúfursá verði um 48
milljónir og vegna 1,1 km langs vegar við bæinn
Öxl um 8 milljónir. Vegurinn er á austanverðri
Vopnafjarðarströnd í Norður-Múlasýslu.
Um Gljúfursá liggur vegurinn um nokkuð gróið
land frá Hrútagili að Tóargili. Þar um og inn fyr-
ir Gljúfursárgil er landið lítið gróinn jökulruðning-
ur með klökkum á nokkrum stöðum á yfírborðinu.
Veglínan liggur um Gljúfursárgil, um 60 m ofan
við Neðri Foss. Innan við Gljúfursá er landið grón-
ara á köflum með smálækjum. Um Öxl fer nýr
vegur út af þeim gamla á grónum mel. Við tekur
framræst mólendi um og innan Marklækjar og
kemur inn á núverandi veg skammt utan Vopnár.
Með framkvæmdinni er, samkvæmt upplýsing-
um frá Vegagerðinni, verið að leysa af hólmi
gamla og burðarlitla vegi. Núverandi brú yfír
Gljúfursá er frá árinu 1932, burðarlítil og með
alls ófullnægjandi aðkomu. Fyrirhugað er að setja
stálræsi yfír Gljúfursá í stað einbreiðu brúarinn-
ar. Um Öxl færist umferðin úr hlaðinu og er með
því stuðlað að öryggi ábúenda og dregið úr ryk-
og hávaðamengun. Stytting leiðar og betri lega
vegar greiða fyrir umferð og stuðla að auknu
umferðaröryggi.
Vegagerðin telur umhverfísáhrif framkvæmd-
arinnar aðallega lúta að efnistöku og breyttri ásýnd
fossins þar sem farið er yfír Gljúfursárgil skammt
fyrir ofan Neðri-Foss með stálræsi og fyllingu.
Skólinn
loks hafinn
Grundarfirði
LANGÞRÁÐUR draumur sex
ára barna í Grundarfirði um að
hefja skólagöngu í fyrsta sinn,
rættist loksins eftir langa bið.
En þau hafa beðið með óþreyju
eftir því að framkvæmdum við
skólann lyki, svo þau gætu haf-
ið ferð sína á menntabrautinni.
Kennarar þeirra, Helga Mar-
ía Jóhannsdóttir og Arnhildur
Þórhallsdóttir, eru hér fyrir
framan skólann, en tvískipta
þurfti bekknum vegna fjölda
barna.