Morgunblaðið - 04.10.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 25
Cartwright
viðstaddur
hátíðarsýn-
inguá
Stone Free
BRESKA leikskáldið, Jim Cartwr-
ight, höfundur hins vinsæla leikrits,
Stone Free, sem sýnt er í Borgar-
leikhúsinu kom til landsins í gær
til að vera viðstaddur hátíðarsýn-
ingu á verki sínu í kvöld. Cartwr-
ight sagði í samtaii við Morgunblað-
ið að hann væri mjög spenntur fyr-
ir sýningunni í kvöid. „Verkið hefur
hlotið frábærar viðtökur áhorfenda
hér á landi og er að mér skilst fjöl-
sóttasta leikritið á þessu ári. Ég
hef átt mjög gott samstarf við
Magnús Geir, leikstjóra, en mér
finnst hann vera dæmi um einn af
þessum íslensku listamönnum sem
eru fullir af krafti og vinna afskap-
lega heiðarlega að því sem þeir eru
að gera. í fyrsta skipti sem verk
eftir mig var sett upp á erlendri
grund var það íslendingur sem leik-
stýrði og það var gert af sama
kraftinum og sömu vandvirkninni.“
Með Cartwright í för er eiginkona
hans og tvö börn þeirra hjóna. Auk
Stone Free ætla þau að sjá annað
verk Cartwrights, Barpar, sem sýnd
er á leynibarnum í Borgarleikhús-
inu. Einnig ætla þau að skoða ís-
lenska náttúru og sagðist Cartwr-
ight vonast til þess að hann sæi
eitthvað af þeim jarðumbrotum sem
hér ættu sér stað nú. Cartwright
sagðist hafa heyrt minnst góðum
orðum á gestrisni íslendinga. „Er
það kannski dæmigert fyrir hana
að taka á móti manni með þvílíkri
sýningu."
Hamingju-
stund í Lista-
klúbbnum
FJÓRÐA starfsár Listaklúbbs Leik-
húskjallarans er að hefjast en fyrsta
dagskrá haustsins verður mánu-
dagskvöldið 7. október. Nefnist hún
Hamingjustund með Bengt Ahlfors.
Finninn Bengt Ahlfors er eitt
þekktasta leikskáld Norðurlanda en
margir kannast jafnframt við hann
sem rithöfund og lagasmið. Á
mánudagskvöld verður §allað um
verk hans og leikið úr nokkrum
þeirra, meðal annars Hamingjurán-
inu, sem nú er sýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins og Umhverfis jörð-
ina á 80 dögum, en sú sýning kom
hingað á vegum Lilla Teatern í
Helsingfors fyrir um þremur ára-
tugum. Lék Ásko Sarkola þá aðal-
hlutverkið.
Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri mun segja frá Ahlfors og lesa
kafla úr endurminningum hans,
Stigzeliuska Rummet, en meðal
annarra sem koma fram eru Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir
Snær Guðnason, Örn Árnason og
Jóhann G. Jóhannsson. Umsjón
hefur Kolbrún Halldórsdóttir.
Listaklúbburinn mun gangast
fyrir uppákomum á mánudags-
kvöldum í vetur. Meðal þess sem
boðið verður uppá á næstunni eru
málþing um stöðu íslenskrar leikrit-
unar og handritagerðar, 14. októ-
ber, í tilefni af því að 200 ár eru
frá því að fyrsta íslenska leikritið
var frumsýnt. 21. október flytja
Bandamenn skólaleikrit úr Bessa-
staðaskóla, Álf í Nóatúni, skrifað á
árunum 1820-30 af Jónasi Hall-
grímssyni ogw fleirum. Hefur verk
þetta aldrei verið flutt áður opinber-
lega. Hrólfur eða Slaður og trúgirni
eftir Sigurð Pétursson var fyrsta
íslenska leikritið sem vitað er jneð
vissu að flutt var hér á landi. í til-
efni af fyrrnefndum tímamótum
mun Spaugstofan spreyta sig á
verkinu og verður dagskráin 4.
nóvember.
LISTIR
Morgunblaðið/Þorkell
JIM Cartwright mættur í Borgarleikhúsið í gær.
LISTASAFN ÍSLANDS
BREYTTUR OPNUNARTÍMI
Frá 1. október verður safnið opið
kl. 11.00—17.00
alla daga nema mánudaga.
Loftljós, 3 litir.
1.994 kr.
Loft- og veggjaljós. Fást í 10 litum
og úrfuru og eik. . nn- ,
Verö fra I .9 9O Ivl*
Loftljós, 3 litir.
1.994 kr.
Loftljós, 3 litir.
2.488 kr.
Útiljós, 4 litir.
1.895 kr.
Veggljós, 3 litir.
2.688 kr.
Veggljós, 3 litir.
2.976 kr.
Utiljós á vegg. Fást
hvít og antikgræn.
7.191 k r.
Halogen 3x20w með spennubreyti,
perum og öllum festinqum.
8.990 kr.
Útiljós á stólpa. Fást
hvít og antikgræn.
Heildarverð:
12.499 kr.
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 • Sími 525 3000
Helluhrauni 16 • Sími 565 0100
Grænt númer 800 6688
Þúfinnur Ijósið sem þú leitar að í Ijósadeild Húsasmiðjunnar.
Þar kviknar á perunni í cevintyralegu úrvali. Ljósin eiga það
öll sameiginlegt að vera gœðaframleiðsla á sanngjömu verði.
nordlux