Morgunblaðið - 04.10.1996, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
HLUTI af fjölskyldunni í stóra bragganum.
Böm braggahverfisins
KVIKMYNPIR
Stjörnubíó,
S a m bíóin ,
Nýja bíó í Keílavík
DJÖFLAEYJAN ★ ★ ★ >/2
Leikstjóri Friðrik Þór Friðriksson.
Handritshöfundur Einar Kárason.
Kvikmyndatökustjóri Ari Kristins-
son. Tónlist Hilmar Örn Hilmarsson.
Framleiðslustjóm Ari Kristinsson.
Leikmynd Ámi Páll Jóhannsson.
Búningar Karl Aspelund. Hjjóðhönn-
un Kjartan Kjartansson. Aðalleik-
endur. Baltasar Kormákur, Gísli
Halldórsson, Sigurveig Jónsdóttir,
Halldóra Geirharðsdóttir, Sveinn
Geirsson, Guðmundur Ólafsson, Ing-
var E. Sigurðsson. íslenska kvik-
myndasamsteypan 1996.
MANNLÍFIÐ í braggahverfum
borgarinnar á sjötta, framá sjöunda
áratuginn, er yrkisefni Friðriks Þórs
í nýjustu mynd hans, sem byggð er
á metsölubókum Einars Kárasonar
- sem jafnframt skrifar handritið.
Börn þessara hverfa voru misjöfn
einsog fólk er flest. Sumir komust
til manns, aðrir höfnuðu í strætinu,
líkt og sá sem aðalpersónan hér,
Baddi (Baltasar Kormákur), er
byggð á. Enda kampurinn líklegri
til þeirra uppeldisáhrifa en mann-
ræktar. Þar kom margt til utan hrör-
leg húsakynni. Þama dróst saman
fólk í húsnæðishraki, barnafólk, fá-
tæklingar, innanum margt óreglu-
og minnipokamanna. Utan hverfis-
ins mættu íbúarnir ósjaldan fordóm-
um, einkum börn og unglingar sem
ósjaldan brotnuðu saman eða brynj-
uðu sig inní skel, urðu harðir naglar.
Hjarta Thúlekampsins - og
myndarinnar - er „stóribragginn",
aðsetur aðalpersónanna. Öðlingsins
Tomma (Gísli Halldórsson), Karólínu
spákonu (Sigurveig Jónsdóttir) konu
hans og bamabarna þeirra; Badda,
Danna (Sverrir Geirsson), Dollíar
(Halldóra Geirharðsdóttir) og Grettis
(Guðmundur Ólafsson) manns henn-
ar. Gógó móðir þeirra er í „kanan-
um“, giftist einum þeirra í myndar-
byijun 0g flytur vestur. Sá sem allt
snýst um er Baddi, töffari og auðnu-
leysingi sem heldur til Vesturheims
í kjölfar móður sinnar, heldur til
baka, „ameríkaniseraður" mjög.
Snýr heimilislífinu í stórabragganum
í martröð fyrir aðra íbúa hans en
spákonuna sem sér ekki sólina fyrir
augasteininum sínum né hraðferð
hans á botninn.
Hnignun og fall Badda er sterk-
asti þátturinn í Djöflaeyjunni, en í
kringum hann hópur eftirminnilegra
persóna og atvika. Með frábæru
umhverfi, búningum, tónlist og
texta, skapast afar sérstætt and-
rúmsloft, oftast gráglettið, jafnvel
meinfyndið, þó tregafullt í bland.
Djöflaeyjan er þó fyrst og fremst
bráðhress gamanmynd sem á ekki
að valda neinum vonbrigðum. Hún
hefur alla burði til að hæna íslend-
inga að kvikmyndahúsunum á ný.
Myndin er vellukkaður heimur útaf
fyrir sig, sérkennilegur og persónu-
legur. Frásögnin hröð, það þarf að
koma mörgum persónum og atburð-
um til skila. Framvindan er þó nán-
ast aldrei snubbótt, Friðrik hefur
góða yfirsýn yfir sína mislitu hjörð
0g nær því besta fram hjá flestum.
Þeir eru sem skapaðir til samvinnu,
Einar og Friðrik, þegar kemur að
hversdagslífí undirmálsmanna og
tekst svo sannarlega að draga fram
broslegri hliðamar á lífi í volæði og
skrautlegar persónur, sem er megin-
styrkur myndarinnar. Þá er komið
að einni aðalstjörnu Djöflaeyjunnar,
leikmynd Árna Páls Jóhanssonar er
ein, ef ekki sú al-besta í íslenskri
kvikmyndasögu. Vakti geysiathygli
meðan hún var í smíðum, það hjálp-
ar örugglega uppá aðsóknina að
þúsundir manna lögðu leið sína vest-
ur á Nes og góndu einsog naut á
nývirki er Árni og hans menn breyttu
nokkrum aflóga vörugámum í ný-
reista blokk og byggðu á örskots-
stund aldurhnigið og slæpt bragga-
hverfi með allri sinni smæð og forar-
pollum. Friðrik nýtur þess að hafa
átt samstarf við flesta sína sam-
verkamenn, þeir gjörþekkja hver
annan. Mannflóruna og leikmyndina
kvikmyndar Ari Kristinson af al-
kunnri snilld, búningarnir óað-
flnnanlegir í höndum Karls Aspe-
lund, sömuleiðis tónlistin undir
stjóm Björgvins Halldórssonar og
Þóris Baldurssonar. Þeir þættir eru
geysilega áríðandi í myndinni og
styrkja hana. Handrit Einars Kára-
sonar er fyndið og líflegt, maður sér
eftir nokkrum atburðum en einhvers
staðar varð að draga línuna, einn
kostur Djöflaeyjunnar er að hún er
aldrei langdregin og lengd hennar
mjög ásættanleg. Kjartan hljóð-
draugabani Kjartansson skilar sínu
vel.
Af leikurunum ber að sjálfsögðu
mest á Baltasar Kormáki. Hann er
ekki nógu fólslegur né grimmur til
að byija með en sækir í sig veðrið
og kemst vel frá Badda þegar á
heildina er litið. Gísli er ómissandi
burðarás að venju í myndum Friðriks
og Sigurveig Jónsdóttir lífgar heil
ósköp uppá Djöflaeyjuna sem hin
krossbölvandi Karólína. í minni hlut-
verkum er sérstök ástæða að nefna
frammistöðu Magnúsar Ólafssonar,
og Sveins Geirssonar, þó enn frekar
Guðmund Ólafsson og Halldóru
Geirharðsdóttir . Hún er Dollí Iifandi
komin og Guðmundur er stórkostleg-
ur sem hinn borubratti mannleri,
maður hennar. Þá er ógetið Ingvars
E. Sigurðssonar, hann er Gijóni. Er
hægt að segja meira? Yfir öllu vakir
svo Friðrik, þrunginn sínu sérstæða
skopskyni og athafnasemi. Hvort-
tveggja nýtur sín vel.
Þrátt fyrir allt láglífið er svo und-
urfallegt atriði undir lokin þar sem
fulltrúi kynslóðarinnar sem á að erfa
landið, kemur fram á sjónarsviðið,
glaðbeittur og hæfileikaríkur. Og
braggarnir rifnir. Góð lokaáhrif af
fínni mynd.
Sæbjörn Valdimarsson
Kanebo
-engu líkt J
HUÐGREINING OG
FÖRÐUN í DAG KL. 13-18
OGÁMORGUN KL. 12-15
Á SNYRTISTOFUNNI PARADÍS,
LAUGARNESVEGI 82.
^ TÍMAPANTANIR i
SÍMA 553 1330.
ALLIR VELKOMNIR.
SÉRFRÆÐINGUR
FRÁ KANEBO
,, 4 É Á STAÐNUM.
Kaneho
Art through Technology
japanskar snyrírvörur
*
I
Silfur, gull og gijót
í Gerðarsafni
SIGURÐUR Þórólfsson gullsmiður
opnar sýningu á silfurmunum í
Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni,
neðri hæð, laugardaginn 5. október
kl. 15.
Sýninguna nefnir hann „í Báru-
fari“ 0g vísar þar til fjörusteinanna
sem hann notar í mörg verka sinna.
Um 40 verk verða á sýningunni, þar
af yfír 30 silfurskúlptúrar. Einnig
verða sýnd örsmá skipslíkön úr gulli
og silfri, skreytt eðalsteinum.
í Gerðarsafni verður einnig sýnt
myndband þar sem örsmá skipslík-
önin birtast frá ævintýralegum
sjónarhóli. Myndatöku og klippingu
annaðist Páll Reynisson.
Þetta er 4. einkasýning Sigurðar,
en auk þess hefur hann tekið þátt
í mörgum samsýningum.
„Að baki sýningarinnar í Gerðar-
safni liggur gífurleg vinna lista-
mannsins, sem er fjötraður í hjóla-
stól vegna vöðvarýmunar. Til þess
að geta smíðað setur hann leðurólar
utan um úlnliðina og með vogarafli
getur hann lyft höndunum upp í
vinnustellingar og skapað þannig
fíngerða gripi úr silfri og gulli,"
segir í kynningu.
Sýningin stendur til 20. október
og verður opin daglega frá kl.
12-18 nema mánudaga.
Hús Hams-
uns brann
Ósló. Morgunblaðið.
HÚS Knuts Hamsuns í Oppeid
á Hamaroy í Norðland, þar
sem hann vann að ritstörfum
sínum, brann til kaldra kola á
dögunum.
Þó svo húsið sé aðeins í um
200 metra fjarlægð frá
slökkvistöð leið hálf þriðja
klukkustund frá því eldsins
varð vart og þar til búið var
að ráða niðurlögum hans.
Átti slökkvilið í mestu vand-
ræðum með tækjabúnað sinn
og að skipuleggja sjálft
slökkvistarfið.
Húsið var í einkaeigu og
notað til íbúðar.
Robinson og Crusoe - leiksýning fyrir börn
LEIKSÝNING fyrir böm verður í
fundarsal Norræna hússins laugar-
daginn 5. október kl. 14.
Leikritið sem sýnt verður heitir
Robinson og Crusoe og er ætlað
börnum 9 ára og eldri. Aðgangur
er ókeypis.
Tveir danskir leikarar, Claus
Reiche og Hans Norregaard fara
með titilhlutverkin. Leiksýningin
kemur frá Norregaard & Reiches
leikhúsinu í Haderslev.
„Söguþráðurinn er í stuttu máli
sá að tveir flugmenn hrapa í hafíð
í flugvélum sínum. Þeir svamla í
sjónum dágóða stund áður en þeim
tekst að komast upp á húsþak sem
flýtur á hafínu.
Flugmennirnir koma hvor frá
sínu landinu og þeir skilja ekki mál
hvors annars. Þjóðir þeirra hafa ef
til vill átt í stríði. Þeir sýna hvor
öðmm fjandskap í fyrstu, en kom-
ast fljótt að raun um að þeir verða
að standa saman ef þeir eiga að
komast af. Tjáskiptin ganga illa til
að byija með. Það verður margs
konar misskilningur og spaugileg
atvik, en með látbragði og hreyfíng-
um tekst góð samvinna með þeim
og að lokum verða þeir góðir vinir.
Leikritið er dæmisaga um hvern-
ig tveir einstaklingar frá ólíkum (og
e.t.v. fjandsamlegum) menningar-
heimum geta unnið saman ef mark-
miðið er það sama; að komast lífs
af“, segir í kynningu.
Leiksýningin verður sýnd í
grunnskólum á Vesturlandi.
Danska sendiráðið og Teater &
Dans í Norden hafa styrkt sýning-
una.