Morgunblaðið - 04.10.1996, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 33
Lokatónleikar
TONLIST
Borgarlcikhúsið
LOKATÓNLEIKAR NOR-
RÆNU TÓNLISTARDAG-
ANNA
Caput hópurinn flutti verk eftir Klas
Torstensson, Magnus Lindberg Niels
Marthinsen og Cecilie Ore. Stjóm-
andi: Christian Eggen. Einleikari:
Guðni Franzson. Upplesari: Amar
Jónsson. Þriðjudagurinn 1. október,
1996.
„MÁL er að linni og gott það
sem gert var“, segir einhvers stað-
ar og sl. þriðjudagskvöld lauk
Norrænu tónlistardögunum með
tónleikum í Borgarleikhúsinu.
Mikið mæddi á íslenskum flytjend-
um og skipuleggjendum mótsins,
sem stóðu sig vel þegar á heildina
er litið. Talsvert hefur verið rætt
um hvort rétt sé að hlaða saman
á stuttum tíma svo mörgum nútí-
matónverkum og einnig, hvort það
úrval, sem dómnefndir i hveiju
landi hafa valið, gefi í raun alrétta
mynd af tónsköpum á Norðurlönd-
unum. Það vill segja, að hugsan-
legt sé að dómnefndar-
stýringin sé fordæmandi
í vali sínu og haldi virkni
tónlistardaganna mjög
til samræmis við þá
skólastefnu, sem ríkir á
Norðurlöndunum, sé í
raun sérlega „akade-
mísk“ í vali sínu. Það
er nú svo, að undir heitinu „nútí-
matónlist" telja margir að rúmist
ákveðnir fordómar, bæði með og
á móti einhverju, sem menn oftast
vita lítið um. Er nafnið nútímatónl-
ist einkennandi fyrir einhvern stíl
eða er það einfaldlega öll tónlist,
sem samin er á okkar tímum?
Það sem velst til flutnings virð-
ist oftast taka mið af því sem
nýtískulegast er og felur slíkt val
í sér ákveðna hættu einangrunar
gagnvart hlustendum. Þá kemur
upp sú spurning, hvort listsköpun
eigi að miðast við óljóst greinan-
legar þarfir hlustenda og ef svo
er ekki, hvers vegna þá að halda
tónleika, þar sem kallað er til hins
almenna hlustanda með auglýs-
ingum.I keppninni um hlustendur
hefur „nútímatónlistin“ beðið
lægri hlut gegn gamalli og viður-
kenndri tónlist og þá ekki síður
skemmtitónlistinni og má vera, að
hlustendur hafi einfaldlega engan
áhuga á tilraunum, vilji fá eitthvað
bitastæðara sér til yndis og
ánægju.
Er listin
„spekúlasjón“
eða ekki?
Þá hefur sú spurning orðið æ
áleitnari, hvort það er val hlust-
enda, sem er aðal dómar-
inn eða hreinlega, að
vandamálið sé falið í
gerð nútímatónlistarinn-
ar. M.ö.o., að tilraunir
og sérhyggja skapenda
sé orsökin fyrir fálæti
margra og einnig, að
efnisinnihald flestra
verkanna snerti ekki við því sem
manninn varðar og ekki síður, að
í tilraunaleiknum hafi menn
gleymt lífinu. Tónlist þeirra sé því
að nokkru dæmigerð fyrir þá firr-
ingu, sem tröllríður samfélagi
manna, nokkuð sem allir nema
sérkennilegir siðapostular leiða hjá
sér, enn sem komið er. Vandamál-
ið er hvort tilraun sé nægilegt list-
rænt markmið og hvað vinnst þó
hún heppnist. Er listin „spekula-
sjón“ eða tengist hún einhveijum
mannlegum þáttum, sem erfitt er
að henda reiður á. Það er hægt
að skilgreina tilraunina en enginn
veit neitt hvar skal leita listarinnar
eða hver finnur hana, því ýmsir
vegvísar og leiðbeinandi tákn og
akademískar skýringar geta á
stundum orsakað ótrúlega glám-
skyggni, um hvað sé gott eða
slæmt.
Gagnrýni leysir ekki þennan
vanda en hún hefst hjá tónskáld-
inu, sem hefur þegar staðlað hug-
myndir sínar, er marka útlínur
verka hans. Gagnrýnin heldur svo
áfram hjá hlustendum og þá fyrst
er smíði höfundar lokið, þegar
verkið er leikið á tónleikum. Hvort
sem menn vilja beygja sig fyrir
hlustendum eða ekki, standa hlust-
endur að lokagerð verksins, með
því að hlýða því og í móttöku
þeirra gagnast ekki kenningar eða
forrituð fræði, því það er sjálf lifun
verksins sem þá gildir, hvað merki-
legt sem tónskáldið hefur ætlað
sér með gerð þess. Þau nútíma-
verk, sem reynst hafa endingargóð
og þar er af stóru safni að taka,
njóta mikilla vinsælda og eru met-
in af innri gildum sínum, þ.e., að
í tónlistinni sjálfri búa þau mögn
skáldskapar, er tala með einhveij-
um hætti til hlustenda. Það er sem
sagt val hlustenda sem endanlega
ræður lífslengd tónverks og fram
hjá þeirri staðreynd kemst enginn,
nema að fundin verði leið til að
flytja tónverk án þess að hlustend-
ur komi þar nærri. Það sem ef til
vill bjargar þessu er sú staðreynd,
að hlustandinn er ekki einn hópur,
heldur margskiptur eftir menntun,
þörfum og áhuga.
Athyglisverðustu verkin um
mannleg umsvif
Það er sérkennilegt, að þau
verk sem helst hafa vakið athygli
á Norrænu tónlistardögunum,
fást við mannleg umsvif eins og
t.d. Sól ég sá, eftir Karin Rehnqu-
ist, og á iokatónleikunum er það
verkið Dagbókarlok, eftir Klas
Torstensson, sem er byggt á dag-
bókarleifum Andrée, þess sem
stóð fyrir loftbelgjaleiðangri til
Norðurpólsins árið 1897. Verkið
er tvískipt, fyrst langur hljóm-
sveitarkafli og þá leskafli með
tónlistarsamleik. Arnar Jónsson
las úr dagbókinni, sem endar á
slitróttum setningum, því veðrun
bókarinnar hafði gert hana að
mestu ólæsilega. Flutn-
ingur hans var áhrifa-
mikill og tónverkið í
heild túlkaði mjög sterkt
örlög leiðangursmanna,
hvernig lífsþróttur
þeirra hefur fjarað út,
til að hvíla faldir í hvítri
auðninni í nærri fjörutíu
ár, en búðir þeirra fundust ekki
fyrr en 1930.
Annað verkið á þessum tónleik-
um var stutt og gott verk, eftir
Magnus Lindberg, sem hann nefn-
ir Away. Þetta stutta og klára
verk var með því besta sem undir-
ritaður heyrði á Norrænu tónlist-
ardögunum, bæði hvað varðar
notkun hljóðfæra og tónvefnaðinn
í heild. Næsta verk var Chimes
at Midnight, eftir Niels Marthins-
en, viðamikið og þétt unnið tón-
verk, sem þó var helst til langdreg-
ið. Þéttleiki verksins var mestur í
upphafi, þar sem heyra mátti
mörg tónstef í gangi en endaði á
þriggja radda kóral, leiknum af
trompett, horni og básúnu.
Síðasta verk Norrænu tónlistar-
daganna, Futurum Exactum, fyrir
rafmagnaða strengi, eftir Cesilie
Ore, var í rauninni eins konar
„plat“. Það var flutt af norskri
sinfóníuhljómsveit af segulbandi
en „mæmað“ af hljómsveitar-
mönnum á sviðinu, sem var mest
allan tímann myrkvað. Þetta birtir
í raun sérkennilegt alvöruleysi og
mætti túlka á sama hátt og krakk-
ar gera oftlega í gríni og segja
þá: „allt í ganni, manni“. Þá má
og hugsa sér þetta sem eins konar
framtíðarspá og þá fer gamanið
að kárna, ef þetta er framtíðin.
Verkið er byggt upp af tvenns
konar gerðum af tremólum, boga-
og fingratremólum og miklum
styrkleikaandstæðum. Þetta ein-
falda verk var mjög vel flutt af
norsku sinfóníuhljóm-
sveitinni, en það eina
sem oft er krafist í túlk-
un „nútímatónlistar" er
einmitt skörp ná-
kvæmni.
Caput hópurinn stóð
fyrir þessum tónleikum
en stjórnandi var Christ-
ian Eggen. Lék hann á als oddi
og lagði sig meira að segja á gólf-
ið, þ.e. á grúfu, sem endanlega
lausn í spáverki Cecilie Ore. Flutn-
ingurinn í heild var góður en með
hljómsveitinni lék Guðni Franzson
einleik á klarinett og eins og fyrr
segir, las Arnar Jónsson úr dag-
bókarsiitrum Andrée.
Jón Ásgeirsson
í keppninni
um hlustend-
ur hefur
„nútímatón-
listin" beðið
lægri hlut
Það er sem
sagt val hlust-
enda sem end-
anlega ræður
lífslengd
tónverks
Hið íslenska
kvikmynda-
fræðafélag
stofnað
NÝTT félag, Hið íslenska kvik-
myndafræðafélag, hefur verið
stofnað og er tekið til starfa. Til-
gangur félagsins er að vinna að
framgangi rannsókna og fræði-
mennsku um öll svið kvikmynda-
gerðar. Félagið hefur jafnframt
að markmiði að efla kvikmynda-
t.engda menntun innan skólakerf-
isins. Einnig mun félagið leitast
við að fræða almenning um gildi
kvikmyndarinnar.
Félagið hefur þegar staðið fyrir
einum fyrirlestri, dr. Jay Ruby,
prófessor í mannfræði, kom til
landsins í byrjun ágúst sl. og fjall-
aði m.a. um viðteknar hugmyndir
um gerð heimildarinynda í fyrir-
STJÓRN Hins íslenska kvikmyndafræðafélags: Ólafur H. Torfa-
son, Kormákur Bragason, Böðvar Bjarki Pétursson, Anna Svein-
bjarnardóttir og Oddný Sen.
lestri sem hann hélt í Norræna
húsinu.
í sljórn Hins islenska kvik-
inyndafræðafélags sitja: Kormák-
ur Bragason kvikmyndafræðing-
ur, Oddný Sen kvikmyndafræð-
ingur, Ólafur H. Torfason kvik-
myndagagnrýnandi, Böðvar
Bjarki Pétursson forstöðumaður
Kvikmyndasafns Islands og Anna
Sveinbjarnardóttir kvikmynda-
fræðingur sem er formaður. Sig-
uijón Baldur Hafsteinsson mann-
fræðingur er varamaður í sljórn.
Skriftarsýning og
tónleikar á vestfjörðum
HELGINA 5. og 6. október mun
Torfi Jónsson vera með sýningu á
listritun í húsakynnum Kambs hf.
á Flateyri. Sýningin er haldin á
vegum Minningarsjóðs Flateyrar.
Á sýningunni eru margar letur-
gerðir. Sýningardagana muhu
Leikfélag Flateyrar og Tónlistar-
skólinn vera með fjölbreytta dag-
skrá. Ennfremur munu Sigrún V.
Gestsdóttir og Jónína Gísladóttir
flytja nokkur sönglög. Allur ágóði
af þessum listviðburðum rennur til
minningarsjóðsins, sem verður not-
aður er til að gera skrúðgarð á
Flateyri.
Sýningin verður opin kl. 16-21
báða dagana. Dagskráin hefst kl.
TORFI, Sigrún og Jónína
verða með skriftarsýningu og
tónleika á Vestfjörðum um
helgina.
16.30 á laugarag og kl. 20.30 á
sunnudagskvöld.
Tónleikar í Safnaðarheimil-
inu í Bolungarvík
Sunnudaginn 6. október munu
Sigrún V. Gestsdóttir, söngkona og
Jónína Gísladóttir, píanóleikari
halda tónleika í Safnaðarheimiiinu
í Bolungaivík kl. 16. Á efnisskránni
eru meðal annars þijú sönglög eftir
Hjálmar H. Ragnarsson sem hann
samdi fyrir sýningu Þjóðleikhússins
„Á Pétri Gaut“. Einnig flytja þær
verk eftir Sigursvein D. Kristinsson,
Karl Ó. Runólfsson og Jórunni Við-
ar. Af erlendum lögum flytja þær
verk eftir Brahms, Schubert, Fauré
og nokkra negrasálma
HAUSTVERÐLISTINN ER KOMINN
UM GRAM GÆÐIN ÞARF ENGINN AÐ EFAST
OG VERÐIÐ HEFUR ALDREI VERIÐ HAGSTÆÐARA.
ALLT AÐ 10.000 KR. VERÐLÆKKUN
Á EINSTÖKUM GERÐUM GRAM KÆLISKÁPA.
CRAM HF-462
Aóur 6,0.990
Nú > > 56.980
GRAM Ytri mál mm: Rými lítr. Staðgr.
gerð: B x D x H kæl.+fr. kr.
Kæliskápar án frystis:
K-130 550 x601x 715 116 39.990
K-155TU 550 x601x 843 155 47.490
KS-200 550x601x1065 195 48.440
KS-240 550x601x1265 240 53.980
KS-180TU 595 x601x 843 168 49.990
KS-300E 595x601x1342 271 56.990
KS-350E 595x601x1542 323 63.980
KS-400E 595x601x1742 377 71.970
Kæliskápar meö frysti:
KF-120 550 x601 x 715 94 + 14 41.990
KF-135TU 550 x601 x 843 109 + 27 48.980
KF-184 550x601x1065 139+33 48.980
KF-232GT 550x601x1285 186 + 33 56.940
KF-263 550x601x1465 197 + 55 54.990
KF-245EG 595 x601x1342 168 + 62 62.990
KF-355E 595x601x1742 272 + 62 69.990
KF-345E 595x601x1742 190 +133 79.990
Frystiskápar:
FS-100 550 x601 x 715 77 39.990
FS-133 550 x601 x 865 119 46.990
FS-175 550x601x1065 160 52.990
FS-150 595 x601x 900 131 48.970
FS-250E 595x601x1342 224 59.990
FS-290E 595x601x1542 269 69.990
FS-340E 595x601x1742 314 78.990
Frystikistur:
HF-234 800 x695x 850 234 42.980
HF-348 1100 x695x 850 340 48.980
HF-462 1400 x695x 850 462 56.980
HF-576 1700 x695x 850 576 72.980
FB-203 800 x695x 850 202 45.980
FB-308 1100x695x 850 307 52.990
(FB-gerðir hafa 75mm einangrun - orkusparandi)
EURO og VISA raðgreiðslur
án útborgunar.
FRÍ HEIMSENDING - og við fjarlægjum
gamla tæklð án aukakosnaðar.
^onix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420